Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 6

Tíminn - 29.04.1986, Qupperneq 6
Tímirm MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Ritstjóri: NíelsÁrniLund Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Innblaðsstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Heimavistir skóla - dvalarheimili aldraðra Eitt af þeim málum sem ekki hlaut afgreiðslu á síðasta þingi var þingsályktunartillaga um nýtingu heimavistar- húsnæðis skóla í þágu aldraðra. Flutningsmenn tillög- unnar voru framsóknarþingmennirnir Guðmundur Bjarnason og Stefán Guðmundsson. Lagt er til að menntamálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra láti gera úttekt á möguleikum og hagkvæmni þess að nýta ónotað heimavistarhúsnæði í grunnskólum, héraðsskólum og hússtjórnarskólum sem dvalarheimili fyrir aldraða. Mjög víða um land hafa verið byggðir'upp vandaðir heimavistarskólar með það fyrir augum að nemendur héldu þar til á meðan á skólavist þeirra hefur staðið. Þetta eru dýrar byggingar, vel búnar húsgögnum og tækjum enda margar þeirra nýjar og byggðar eftir ströngum kröfum. Þróun síðustu ára hefur síðan orðið í þá átt að í stað þess að nemendur hafi haldið til á heimavistum hefur heimanakstur aukist og dregið hefur úr því að börn úr kauptúnum og kaupstöðum séu send í heimavistarskóla. Af þessu leiðir að heimavistir skólanna standa auðar eða lítið notaðar. Illa nýtt skólahúsnæði, ekki síst þar sem einnig er um að ræða dýrt og vandað heimavistarhúsnæði með mötuneyti og annarri tilheyrandi aðstöðu, verður óhagkvæmt í rekstri og getur orðið nánast ofviða fámennum og fjárhagslega veikbyggðum sveitarfélögum. Því er mikil nauðsyn á því að leitað verði leiða til þess að nýta megi þessi mannvirki áfram þótt í annarri mynd sé en upphaflega var ætlað. í greinargerð með tillögunni segir: „Á síðari árum hefur þörfin fyrir dvalarheimili aldraðra orðið æ brýnni og mun samkvæmt spám aukast enn að miklum mun á næstu árum. Þótt víða hafi risið upp heimili fyrir aldraða eru biðlistarnir langir og margir eiga ekki kost á öðru en að reyna að leita dvalar fjarri sínum heimahögum, ættingjum og vinum. í ljósi þessa er tillagan flutt um könnun á möguleikum þess að nýta ónotað heimavistar- húsnæði í þágu aldraðra“. Flutningsmenn tillögunnar benda á að margir heima- vistarskólarnir eru nýttir til hótelrekstrar á sumrin. Út á það er ekkert að setja og eflaust má gera það áfram þótt breyting yrði á þeirri nýtingu sem nú er á heimavistunum að öðru leyti. Heimavistarskólarnir eru margir hverjir vel í sveit settir, í fögru umhverfi og víða jarðhiti í næsta nágrenni sem býður upp á möguleika til að koma upp þjálfunar- og endurhæfingaraðstöðu fyrir aldraða. Víða hafa risið upp þéttbýliskjarnar í kring um skólana og er þar nú þegar margvísleg þjónusta fyrir hendi. Margt fullorðið fólk og aldraðir eiga líka ánægjulegar minningar frá þessum stöðum frá því að það stundaði þar nám eða þeirra börn. Fyrir það fólk væri það mun léttara að setjast þar að til dvalar en að þurfa að fara á ókunnar slóðir fjarri heimahögum. Vistunarmál aldraðra eru erfið og finnast inörg dæmi um algert ófremdarástand sem þar ríkir. Brýn nauðsyn er á skjótum aðgerðum til lausnar þeim vanda. Það er því tvímælalaust rétt að kanna til hlítar hvort ekki er hér um að ræða leið til úrbóta sem jafnframt myndi leiða til betri nýtingar á opinberu húsnæði í stað viðbótarfjárfestingar. 6 Tíminn Þriðjudagur 29. apríl 1986 GARRI Máttvana stjórnarandstaða Að loknuni þinglausnum hverju sinni ræða menn að vanda lielstu mál þingsins, stöðu ríkisstjórnar að því loknu, og málflutning og árangur stjórnarandstöðunnar. Þótt síðasta þing hafi verið með þeim skemmstu á síðustu áratugum mun það verða talið meðal hinna merkustu vegna þeirra efnahags- ráðstafana, scm það lögfesti. Ráð- stafana sem gerðar voru í samráði og samvinnu við aðila vinnumark- aðarins og tryggðu vaxandi kaup- mátt launþega og stórfellda hjöðn- un verðbólgunnar. Grundvöllinn að þeirri þjóðarsátt lagði ríkis- stjórnin. Þessar ráðstafanir voru gagnrýndar af stjórnarandstöð- unni, cinkum Alþýðuhandalagi og Kvennalista á þeim forsendum að verið væri að traðka a þingræðinu með því að „scnija um mál úti í bæ“ í stað þess að leggja málin á frumstigi fyrir Alþingi, væntanlega þá til samninga við stjórnarand- stöðuna á þingi. I’að fór hins vegar ckkert milli mála, að þessi mál- flutningur stjórnarandstöðunnar féll í grýtta jörð. IMönnum fannst hann beinlínis hlægilegur. Þjóðviljinn snuprar Svavar og Hjörleif Menn eru að því cr virðist nokk- uð sammála uin það nú að loknu þinghaldinu að frammistaða stjórnarandstöðunnar hafi verið eindæma litlaus og léleg. Forysta stjórnarandstöðunnar var hjá stærsta stjórnarandstöðuflokkn- um, Alþýðubandalaginu, en oddvitar þess á þinginu voru þeir Svavar og Hjörleifur. Svo máttlaus og sviplaus var málflutningur þeirra, að meira að segja leiðara- höfundur Þjóðviljans fær ekki orða bundist. í laugardagsblaði Þjóð- viljans kemst hann svo að orði: „ Vidburðir í þjóðfélaginu á liðn- um vctri benda til þess að þingið sé ekki eins sterkt og oft áður. Það er heldur ekki jufn trúverðugur speg- ill þjóðlífsins og fyrrum. Menn Svavar og Hjörleifur fá snuprur í eigin blaði. bljóta að ætlast til þess, að umræð- ur og stefnumótun á ulþingi endur- spegli þjóðlífið, stéttaátök og skoðanamun. Það cr ætlast til þess uð alþingi veiti ríkisstjórn aðhald og að valdakerfíð sé til stöðugrur gagnrýninnar umfjöliunar á ul- þingi. Margt bendir til þess uð þuð ulþingi sem nú hefur lokið störfum hafí ekki svaruð væntingum uf þessum toga.“ Hlutverk stjórnarandstöðu í lýðræðisríkjum hefur stjórnar- andstaða á þingi það hlutverk að ' veita ríkisstjórn það aðhald, sem Þjóðviljinn telur að svo mjög hafi skort á nýliönu þingi. Að auki er það eitt helsta ádeilucfnið á þing- haldið að „ýmis stærstu mál þings- ins voru unnin út í bæ, uuk fjárlug- unna frumvörpin um húsnæðis- kerfíð og sjóðakerfí sjávurútvegs- ins. “ í framhaldi af þcssu segir leið- arahöfundur Þjóðviljans: „Ekkert uf þessu er líklegt til uð styrkju þingræðið í lundinu. Vinnubrögð uf þessum toga leiðu þvert á móti til þess, uð mikilvæg mál fá ónógu umfjöllun á ulþingi, litla umræðu í þjóðfélaginu og vinnulugið er þannig skerðing á lýðræðinu.“ Sinnaskipti? Já, öðru vísi mér áður brá! þcgar vandi hcfur steðjað að þjóðinni á undanförnum áratugum hefur það gerst hvað eftir annað að þeir, sem gefa út Þjóöviljann, hafa blásið í herlúðra gegn þeim ráðstöfunum, sem þingræðismeirihlutinn á Al- þingi hefur staöið að til að stýra hjá vandanum. Þá hafa þeir boðað til „Alþingis götunnar“, eins og þeir hafa kallað það. Jafnvel gripið til ólöglegra aðgerða eins og gerðist 1978, er útflutningsbann var sett á, en þá var kaupmáttur launa mikl- um mun meiri, en hann var þegar Svavar Gestsson hrökklaðist úr stóli félags- og tryggingamálaráð- herra eftir að hafa ráðið mestu í þrjú ár um kjaramál í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Árangurinn af Alþingi götunnar var alltaf á sömu lund: Stófellt tjón þjóöarbúsins af verkföllum, fleiri og verðminni krónur í launa- umslagið, aukin verðbólga og minni kaupmáttur launa en fyrir götuþingið, cinkum þó hjá hinum lægst launuðu. Útií bæ-og útiágötu Umhyggjan fyrir þingræöinu keniur því að þessu sinni úr óvæntri átt. Varlega ber þó að trcysta því að hér sé um ærleg sinnaskipti að ræða á þeim bæ. Líklegra er, að leiðarahöfundi hafi orðið liált á svellinu og farið út af línunni. Þegar hafður er í huga sífelldur áróður eigenda Þjóðviljans fyrir auknum áhril'um verkalýðshreyf- ingarinnar á efnahagssfjóm lands- ins hlýtur sú gagnrýni þeirra nú á samráðum og samvinnu ríkis- stjórnarínnar við heildarsamtök launþega um aukinn kaupmátt og stórminnkandi verðbólgu, að telj- ast með mikluin ólíkindum. Auð- vitað gátu þessi samráð og sam- vinna ekki farið fram í sölum Alþingis. Þess vegna urðu þau aö eiga sér stað „úti í bæ“. Það finnst mönnunum scm boða til Alþingis götunnar þegar byr gefur, aldeilis forkastanlegt! Garri VÍTT OG BREITT „Ekkert botna ég í...“ „Ekkert botna ég í þessum hús- næðismálum. Nú er Alexander búinn að stjórna þeim í viku og allt komið í kaldakol." Þessi athugasemd er höfð eftir einum af þingmönnum Alþýðu- bandalagsins og eins og hún ber með sér lét hann þessi orð falla nokkrum dögum eftir að núverandi ríkisstjórn tók við stjórnartaum- um. Þá var Svavar Gestsson búinn að ráðskast með félagsmálin í nærfellt fimm ár og þá var nú allt heldur betur í sómanum, og ekki yfir neinu að kvarta. Að vísu voru allir sjóðir tómir og búið að svifta byggingasjóði einunt helsta tekju- stofninum, launaskattinum, og við blöstu ekkert annað er hrikaleg vandamál sem leysa þurfti. Þannig var staðan þegar Alex- ander Stefánsson tók við félags- málunum og er ekki nema von að sá þingmaður Alþýðubandalagsins sem hér er vitnað til skorti skilning á að vandamálasúpan hafi byrjað með ráðherradómi Alexanders. Sannleikurinn er sá að það er enn verið að glíma við að leysa vandamál sem hlóðust upp í ráð- herratíð Svavars Gestssonar. Þótt stjórnarandstaðan og sér í lagi Alþýðubandalagið rembist eins og rjúpan við staur að sýna fram á að núverandi ríkisstjórn hafi dregið úr öllum framlögunt til félagsmála er raunin þveröfug. Þótt enn vanti talsvert á að framlög til margs kyns félagslegra þarfa séu eins mikil og æskilegt væri hafa mörg mál þokast veru- lega áleiðis undanfarin ár. Á. s.l. tveim árum hefur kaupmáttur tryggingabóta stöðugt aukist, HH »« Q_LI OG ÖR0RKU KAUPMÁTTUR Lí FEYRISTRYG^I NGABÓTA M. V. VÍSITÖLU VÖRU Í56..ÞÍÓNUSTU BARNA t LÍFERIR . LAGM TEKJU TR ELLI+0R Tafla þessi úr fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar sýnir kaupmáttar- þróun helstu lífeyristryggingabóta og þróun þeirra frá ársbyrjun 1982 til ársloka 1985. Tíininn bætti kaupmáttarþróun mæðralauna með 3 börn, eins og hann er rciknaður af Kjararannsóknarnefnd inn á töfluna með punktalinu frá 2. ársfjórðungi 1983, en fram til þess tíma fylgdi hann kaupmáttarþróun cllilífcyrisins. Sem sjá má hefur lífeyrir þeirra sem njóta lífeyrisbóta ásamt tekjutryggingu aukist stöðugt og verulega frá lægðinni í árslok 1983, eða ellilífeyrir og tekjutryggingar um 19%, barnalífeyrir (meðlög) um rúm 30% og mæöralaun með 3 börnuni um 67% til ársloka 1985. eins og bent var á í Tímanum s.l. laugardag. Fréttabréf Kjararann- sóknarnefndar er órækur vitnis- burður um að lífeyristryggingabæt- ur fara batnandi og mæðralaun hafa tekið verulegt stökk upp á við síðan’ Alþýðubandalagið lét af stjórn félagsmálanna. Húsnæðismál og aðrar félagsleg- ar þarfir eru viðvarandi úrlausnar- cfni stjórnvalda og verða aldrei leyst í eitt skipti fyrir öll. En að halda því fram að allt sé á niðurleið í þessum efnum er ekki annað en vísvitandi ósannleikur eða viður- kenning á því að viðkomandi botni ekkert í því hverju er verið að halda fram. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.