Tíminn - 31.05.1986, Side 24
Þruöur Helgadottir
Sigrun Magnusdottir
Alfreð Þorsteinsson
Hallur Magnusson
Margeir Daníelsson
Sveinn Grétar Jónsson
Helgi S. Guómundsson
Sigurður Ingólfsson
Guðrún Einarsdóttir
Dr. Þór Jakobsson
Þau skipa efstu sæti B-listans
• Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á, aö fjár-
málastjórn borgarinnar sé í góðu lagi og hagsýni gætt
í meðferð almannafjár. Flokkurinn gagnrýnir harð-
lega, að Innkaupastofnun Reykjavíkurskuli sniðgeng-
in, þegar gerð eru innkaup fyrir borgina fyrir tugmill-
jónir króna.
Samstarf sveitarfélaganna
• Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á aukið
samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Skipulag á alltaf að taka mið af þörfum fólksins á
hverjum tíma, og er ekki óeðlilegt að leitað verði álits
almennings um ýmis skipulagsmál í skoðana-
könnunum.
Austur-miðbær í Suður-Mjódd
• Framsóknarflokkurinn telur brýnt verkefni að'
reisa austur-miðbæ Reykjavíkur í Suður-Mjóddinni,
sem svo er nefnd. Þar ætti að rísa þjónustu- og
verslunarhverfi. Þá mundi einnig vera hægt að leggja
allar hugmyndir um hraðbraut í Fossvogsdal til hliðar
en koma þar upp fögru og skjólríku útivistarsvæði.
Aukinn stuðningur við íþróttir
• Framsóknarflokkurinn telur mikla þörf fyrir að
gera borgarbúum kleift að nýta frístundir sínar ttl þess
að iðka íþróttir og útivist. Flokkurinn telur, að
Reykjavíkurborg eigi að styðja áhugamenn og íþrótta-
félög til þess að halda uppi margháttuðu tómstunda-
starfi.
Húsnæðismál
• Framsóknarflokkurinn vill að sem flestir búi í eigin
húsnæði. Hann telur að efla beri byggingasamvinnu-
félög, og að ungu fólki verði auðveldað að kaupa
húsnæði í eldri hverfum borgarinnar. Margir hafa ekki
tök á að kaupa eigið húsnæði, og því fólki verður að
sjá fyrir leiguhúsnæði af hóflegri stærð. Ungu fólki
verði einnig séð fyrir leiguhúsnæði til ákveðins tíma.
Efla þarf vinnumiðlun
• Framsóknarflokkurinn vill efla starf atvinnumála-
nefndar og gera það markvissara. Meginhlutverk
hennar er að athuga hvaða kostir eru fyrir hendi í
atvinnumálum og undirbúa stefnumótun borgarinnar
í þeim efnum. Efla þarf vinnumiðlun, og sérstakur
gaumur gefinn því fólki, sem einhverra hluta vegna
hefur orðið að hverfa frá námi eða á, af einhverjum
ástæðum erfitt með að komast út á vinnumarkaðinn.
Iðnþróunarsjóður
• Framsóknarflokkurinn vill að stofnaður verði
Iðnþróunarsjóður Reykjavíkur til að efla atvinnulíf í
borginni.
Skólar og heimili
• Framsóknarflokkurinn vill aukið samstarf heimila
og skóla, og tclur brýnt að skólatími verði samfelldur
og börn fái málsverð í skólunum. Þá er nauðsynlegt
að skólinn geti gripið inn í uppeldi barna þar sem
heimilin bregðast.
Fj ölsky ldup ólitík
• Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á samræmda
fjölskyldupólitík og fjölskylduvernd, sem þýðir að
gera verður ráðstafanir til þess að atvinnulíf, þjónusta,
uppeldi og menningarstarf miði að því að efla
fjölskylduna. Vinnumarkaðurinn á að viðurkenna
foreldrahlutverkið með því að hafa vinnutíma sveigj-
anlegan þar sem því verður við komið. Foreldrar sem
kjósa að vera heima með börnum sínum en ekki að
hafa þau á dagvistunarstofnunum eiga að fá greiðslu
frá borginni er nemur því, sem borgin greiðir með
hverju barni í dagvistun.
Stuðningur við kirkjuna
• Framsóknarflokkurinn vill hlúa að starfi kirkjunn-
ar, safnaða og kvenfélaga kirkjunnar og bendir á, að
kirkjan er vettvangur allrar fjölskyldunnar.
Heilsugæslustöðvar
• Framsóknarflokkurinn vill að heilsugæslustöðvar
séu í öllum aðalhverfum borgarinnar. Hlutverk heilsu-
gæslustöðva á m.a. að vera í því fólgið að veita fræðslu
um hollt líferni og benda á skaðsemi reykinga og
vímuefna.
Stuðningur við aldraða
• Framsóknarflokkurinn vill efla samtök aldraðra
sjálfra og áhugafólks um öldrunarmál. Hafa ber að
leiðarljósi þau grundvallarmannréttindi aldraðra, að
þeir taki sjálfir ákvarðanir um þau mál er þá skipta.
Efla verður heimilishjálpina og heimahjúkrun, koma
verður á fót fleiri dagvistunarstofnunum og leiguíbúð-
um fyrir aldraða. Einnig, að komið verði á heimsend-
ingu matar og fleiri sameiginlegum mötuneytum.
Strætisvagnar Reykjavíkur
• Framsóknarflokkurinn vill að tekið verði upp nýtt
kerfi fargjalda strætisvagnanna. í stað afsláttarmiða
korni skírteini er gildi á öllum leiðum ótakmarkað,
ákveðið tímabil.