Tíminn - 01.06.1986, Síða 3
Sunmjdagur; t> •|úe1jM'986?
Tírhlnh11 3-'
Austurrísk
listá
hátíð!
Listahátíðardagana 31. maí
til 15. júní, verður í Nýlistasafn-
inu sýning á verkum 10 ungra
Austurríkismanna, þeir eru:
Birgitte Kowanz, Erich Sperger,
Franz Graf, Fritz Grohs, Gerw-
ald Rockenschaub, Heimo Zo-
berning, Josef Famaseder, Peter
Kogler, Romana Scheffknecht,
Wolfgang Schrom. Það sem er
sameiginlegt með þessum lista-
mönnum er, að öll vinna þau
abstrakt myndir, allt frá ljóð-
rænum abstraktsjónum upp í
harða geometríu. Listamennirn-
ir hafa vakið talsverða athygli að
undanförnu í listheiminum og
heilu greinarnar í listtímaritun-
um hafa velt þessum hræringum
fyrir sér. Það má segja að það
sem þarna gerist, tengist þessari
gerjun sem átt hefur sér stað að
undanförnu í listheiminum.
Listamennirnir leita fyrir sér aft-
ur í tímann, í þær stefnur sem
upp hafa komið á þessari öid, en
voru aldrei kannaðir til hlítar,
vegna hraðrar atburðarásar
sögunnar, og hefja rannsóknir
sínar'-'á þeim punkti sem frá var
horfið. Nýlistasafnið telur að
þetta sé góð viðbót við hina
ágætu listahátíð.
Safnið stendur einnig fyrir
sýningum á kvikmynd eftir fræga
enska listamenn, sem vinna öll
sín verk í sameiningu, og eiga
sér talsvert lengri starfsferil að
baki. Þessir menn heita Gilbert
og Georg og hafa þeir komið
víða við á þessum starfsferli
sínum, sem hófst á sjöunda
áratugnum. Þeir teljast til kons-
ept listamanna, en hafa þó verk
á sýningum jafnt nýmálara sem
konseptlistamanna. Flest söfn
Evrópu og víðar munu eiga verk
eftir þá. Kvikmyndin verður
sýnd í MÍR salnum.
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eða útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi:
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeðjur og aðra
undirvagnshluti í allar gerðir
beltavéla.
x Slitstál, skerablöð og
tannarhorn fyrir jarðýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jarðýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stærðir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aðra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeðjurogfæribandakeðjur
fyrir verksmiðjur og
landbúnaðarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöðvar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP h/f
Sími641045
HOLLUSTU
HORNIÐ
Svanfríður Hagwaag
Grænmetisfrauð
Grenmetisfrauð er stórgott oggetur gert mikið fyrir máltíðina. Blandan
af eggjum, mjólk og grænmeti gerir það að verkum að næringarefnin
blandast fullkomlega. Meira að segja þeim sem ekki eru hrifnir af soðnu
grænmeti finnst grænmetisfrauð gott. Þessi uppskrift er grunnuppskrift og
í hana er hægt að nota næstum hvaða soðið grænmeti sem er og þess vegna
er alveg upplagt að nýta til þess þá afganga sem til falla.
Grænmetisfrauð
1/4 bolli srnjör
1 tsk. sjávarsalt
1 msk. hunang
1/4 bolli heilhveiti
1 1/2 bolli hituð mjólk
5 eggjarauður
2 3/4 bolli fínsaxaðsoðiðgrænmeti
5 eggjahvítur
Bræðið smjörið, látið hveitið út
í og látið krauma í 3-4 mínútur án
þess að hveitið brúnist. Bætið út í
sjávarsalti, hunangi og velgdri
mjólkinni. Látið suðuna koma
upp, þeytið vel með vírþeytara og
látið síðan sósuna kólna þangað til
hún er vel volg.
Bætið út í þeyttum eggjarauðum
og soðnu grænmetinu og haldið
áfram að kæla. Þeytið eggjahvít-
urnar þangað til þær eru stífar.
Þegar grænmetisblandan er orðin
köld er eggjahvítunum hrært var-
lega saman við. Hellið yfir í 1 1/2
lítra smurt ofnfast mót. Látið í
vatnsbað og bakið í 150°C heitum
ofni. Bakið í um það bil 1 klukku-
stund eða þangað til hægt er að
stinga prjóni í frauðið og hann
kemur hreinn út.
Þessi grænmetisfrauð eru mjög
góð með sojaborgurum eða öðrum
baunaréttum. Berið frauðið fram
með góðri sósu. Hér kemur með
uppskrift af Indverskri sósu sem er
mjög góð með.
Indversk sósa
1/2 bolli heimatilbúin majónsósa
1/2 bolli sýrður rjómi
1 tsk. sítrónusafi
1/4 tsk. karrí
Blandið öllu vel saman.
Stórar vélar eingongu? Nei, líka
einfaldar,ódýrar pokalokunarvélar.
Pokalokunarvélar frá 7.000 kr.
Þær henta stórum sem smáum rekstrareiningum, t.d. þegar pakk-
að er varahlutum, rafmagnsvörum, nöglum eða skrúfum; fatnaði;
matvörum, t.d. kartöflum eða samlokum; sælgæti, t.d.
poppkorni, kúlum eða karamellum; þvottaefni; hljóm-
plötum; fræi, blómaáburði og gróðurmold; smámynt
og þannig mætti lengi telja.
Audion Speedpack.
Sníður pokann eftir vörunni um
leið og pakkað er.
Úrval annarra pökkunarvéla.
Plastprent selur úrval annarra pökkunarvéla af
öllum stærðum og gerðum. Jafnframt höfum við í
26 ár framleitt alls konar plastumbúðir úr eigin filmu, með og án
áprentunar. Það er því engin tilviljun að flestallir Islendingar
meðhöndla daglega vörur sem pakkað er í umbúðir frá okkur.
Plastpökkun er framtíðarlausn.
4Plast sparar miðað við aðrar umbúðir, verndar
vel og uppfyllir auknar kröfur um geymsluþol og
auglýsingargildi. Forysta Plastprents byggist á
tækniframförum, fjölhæfu starfsliði og mikilli reynslu. Þess vegna
leysum við pökkunarvanda íslenskra fyrirtækja.
^ Plastprent hf.
Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf.
Höfðabakka 9. Sími 685600.
Audion Contisealer.
Vélknúin. Fyrir færibandalok-
un. Hraði 7,5 m/mín.
ARGUSCO