Tíminn - 01.06.1986, Side 5
Sunnudagur 1.júní 1986
Tíminn 5
Karl Kvaran:
Form, litir og spenna
í tilefni Listahátíðar verður
haldin í Listasafni íslands yfir-
iitssýning á verkum Karls Kvar-
an listmálara.
Sýningin spannar 45 ára
starfsferil Karls, frá 1941 til
1986, en allan þennan tfma hefur
Karl verið óhemju starfsamur
listamaður.
Á námsárum Karls var mikil
áhersla lögð á teikningu, og
hefur teikningin, línan og hreyf-
ingin alla tíð síðan gegnt mikil-
vægu hlutverki í myndlist hans.
Sjálfur komst Karl svo að orði,
í viðtali við Björn Th. Björnsson
í Birtingi 1958: „Ég held að
maður verði að ganga í gegnum
mjög stranga og nákvæma
teikniþjálfun, meira að segja
akademíska vöðvateikningu, til
að fá tilfinningu fyrir hlutum í
heildinni, fyrir heild myndflatar-
ins.“
Eftir námsdvöl sína erlendis
komst Karl í kynni við Septemb-
er-hópinn, en Þorvaldur Skúla-
son listmálari, hafði verið kenn-
ari Karls á árum áður. í gegnum
September-hópinn, en með hon-
um sýndi Karl árin 1951 og 1952,
kynntist listamaðurinn konkret-
isma þriðja áratugarins. Má
segja að þar með hafi teningun-
um verið kastað og að geometr-
ia, eða flatarmálverk hafi ein-
kennt verk Karls alla tíð síðan.
Þó er fjarri að stöðnun hafi
ríkt innan þessa tiltölulega
þrönga ramma sem listamaður-
inn hefur valið sér. Bæði hefur
efnisnotkun hlaupið á milli olíu,
gvass og túsks, auk þess sem
Karl vann á tímabili allnokkuð
með klippimyndir. Myndformin
hafa breyst hægt en sígandi og
liturinn hefur fengið að þjóna
mismunandi hlutverkum.
Myndir hans eru flestar þraut-
unnar og markvissar, og hefur
Karl tíðkað það hin síðari ár að
mála myndir sínar í nokkrum
lögum, þannig að stundum skín
í eldri yfirferðir. Hefur málarinn
náð með þessu að auka myndir
sínar lífi og spennu, og fært inn
í þær ákveðnar víddir, bæði
tíma og rúms.
Það er athyglisvert, að geo-
metrían, sem Þorvaldur Skúla-
son sagði á sínum tíma að bæri
„með sér hraða nútímans og
breytileik,..“, virðist nú aftur
eiga upp á pallborðið hjá ungum
listamönnum. Merki þess má
meðal annars sjá í Nýlistasafn-
inu nú yfir Listahátíðina, en þar
sýna 10 ungir Austurríkismenn,
abstrakt myndir, allt frá ljóð-
rænum abstraktsjónum upp í
harðar geometríur. Hvort þeir
nálgast viðfangsefnin út frá
sömu forsendum og t.d. Karl
Kvaran skal hinsvegar ósagt
látið.
Sýning Karls verður opin dag-
lega frá kl. 13.30 til 22.00, fram
til 29. júní.
phh
Elsta verkið á sýningunni,
Uppstiliing, frá 1941.
(Tímaniynd: Gísli Egill)
Karl Kvaran.
Karl Kvaran í dag, Málverk, 1985-
86. (Tímamynd: Gísli Egill)
DRÁTTARVELAR
| jT| | d Massey Ferguson
ORYGGI
FRAMAR ÖLLU
ER STYRIBUNAÐURINN í LAGI ?
Notið „original“ MF varahluti:
sterkari
öruggari
ódýrari
BUNADARDEILD
SAMBANDSINS
ÁRMULA3 REYKJAVlK SlMI 38900