Tíminn - 01.06.1986, Qupperneq 12
Sunnudagur1.júní 1986
12 Tíminn
Undrafarartæki
Þeir svissneski mótorhjóla-
íþróttamaðurinn Fritz Egli og
hönnuðurinn Luigi Colani, sem
býr í Bern, tóku sig saman um
að byggja nýstárlegt farartæki.
Út úr þessu kom kynlegt
skrímsli sem þó var einsdæmi að
því er varðar litla loftmótstöðu.
Þetta varð blanda af eggi og
fiski.
Ekki er trúlegt að skrímslið
Ekki logið upp á uppáfinninga-
semina. Egli á ferð í kynjahjóli
sínu.
eigi eftir að sjást á keppnisbraut-
inni. Það er 300 hö. og kemst
með 320 km hraða en getur
ekki gengið í neinni flokkun.
Þetta er öllu fremur sýningar-
gripur og tilraunaverkfæri, sem
ætlað er að sanna hvað hægt er
að láta aka á tveimur hjólum.
Þyngdin er 210 kíló og leitast
hefur verið við að ná formi sem
hæst lagi dropans. Þegar öku-
maðurinn stígur um borð og
býst til að leggja upp verður
hann í byrjun að fá aðstoð við
að koma yfir sig hlífinni. Hins
vegar getur hann komist hjálpar-
laust af baki, því þá fleygir hann
hlífinni einfaldlega niður á jörð-
ina. Véliner 1,5. lítratúrbóvél.
SKmKMÖT
í tilefni 100 ára afmælisins efnir Landsbanki íslands til
sögulegs skákmóts í afgreiðslusal Aðalbankans í Austurstræti 11
sunnudaginn 1. júní.
Þar mætast í 12 manna hraðmóti og keppa um 100 þúsund króna
heildarverðlaun fjórir af fremstu skákmönnum íslands á árunum 1955-1960,
þeir Friðrik Ölafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmason
og Ingvar Ásmundsson; fjórir af efnilegustu skákmönnum íslands í dag, þeir
Hannes Hlífar Stefánsson,. Þröstur Árnason,
Héðinn Steingrímsson og Sigurður Daði Sigfússon;
og fjórir af fremstu skákmönnum Landsbankans, þeir Hilrnar Viggósson,
Jóhann Örn Sigurjónsson, Sólmundur Kristjánsson
og Vilhjálmur Þór Pálsson.
Keppendur tefla allir við alla og tímatakmörk
eru 10 mínútur á hvorn keppanda í skák. Skákstjóri er
Ólafur S. Ásgrímsson. Áhorfendur eru
velkomnir í afgreiðslusalinn meðan
húsrúm leyfir, skákin hefst
klukkan 14.00.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna (100 ár
Reður
vekur
reiði
Perth, maí, 1986, Reuter -
Ástralía hefur fengið 500 doll-
ara sekt, sem er um 3700 dollar-
ar bandarískir (um 16000 ísl.kr.)
fyrir tilraun til að smygla inn í
landið tuddareðri frá Grikk-
landi.
Nicolas Paliondakis, 39 ára
gamall, sem stóð fyrir þessum
ólöglega innflutningi og braut
reglur um sóttkví og innflutning
á kjöti, sagði í réttarsal hennar
hátignar að reðurinn skyldi nota
sem reiðpísk.
✓
Atveislan
mikla
Austur-Þjóðverjar nota helg-
ar og frístundir til átsvalla, segir
í frétt Reuters. Þeir drekka
ótæpilega áfengi og borða sæt-
indi í miklu magni, er haft eftir
sérfræðingi í heilsugæsluráði þar
austurfrá.
í könnun ráðsins á matarvenj-
um tólf svæða kom í ljós að
flestir Austur-Þjóðverjar borði
of mikið og að 54% þeirra teldu
ekki eftir sér að leggja út ómælt
fé til matar- og drykkjarkaupa,
segir prófessor Lothar Heinem-
ann.
Hann sagði að það væru mikil
framför að hafa unnið á matar-
skorti og hungursneyð, en nú
stæði þjóðin frammi fyrir annars
konar félagslegu vandamáli, -
nefnilega yfirvigt.
Eldri könnun sýnir að 40%
íbúa í Austur-Þýskalandi eru
yfir kjörþyngd.
l.Á TTU
Tímaim
EKKl FLJÚGA FRÁ ÞF.R
ÁSKRIFTARSÍMI
686300