Tíminn - 01.06.1986, Síða 13

Tíminn - 01.06.1986, Síða 13
Sunnudagur1.júní 1986 Vií’í' i'.úi r iik'*?-i'i•.i - i? Tíminn 13 Enn hefur „bjallan" for- ystuna í sögunni. Þegar fyrir fimmtíu árum var hann hjólbeinóttur með mjóa hjólbarða, sveig- myndaða glugga og Ijós yfir númersplötunni. Mikið auglýsingastríð var rekið vegna Ford Edsel. Hér eru þeir Ford synirnir, William Clay, Benson og Henry II myndaðir ásamt þessum gallagrip. Kaupendur kærðu sig ekki um hann. TIU BESTU BÍLARNIR FYRR OG SÍÐAR I þýska vikuritinu Stern sáum við á dögunum þennan forvitnilegadálk, þarsem bíla- sérfræðingur blaðsins velur saman tíu bestu biia allra tíma, - og tiu þá verstu eða mis- heppnuðustu. Greinarhöf- undurinn, Hans Werner, tekur þó fram að hvað valið snertir er eingöngu miðað við gagn- semi bílanna fyrir vanalegan notanda, en glæsikerrum, eins og Rolls Royce, Bugatti og slikum er sleppt. nr tíii MESTUVANDMÐA JÁLKARNIR 1. VW. bjalla Á fimmtíu árum var 21 milljón bíla af þessari gerö smíðuð og enn er saga hans ekki öll. Talið er að sjö milljónir af „bjöllunum" séu enn á ferðinni og í þróunarlöndunum renna þeir áfram spánnýir fram af færiböndunum. 2. Ford T-módelið Frá 1908 til 1927 voru 15 milljónir af þessum svonefndu „Tin Lizzies“ framleiddar. Frá 1913 voru þeir byggðir á færiböndum. Vélin var aðeins 20 hestöfl. Um langt árabil var verðið um 290 dollarar. Með T-módelinu hófst fjöldaframleiðsl- an á bifreiðum. 1. Ford Edsel Mesti vandræðagripurinn í sögu bifreiðanna. Vegna ófagurra lína, nefhlífarsem minnti á ónefnanlegt líffæri og lítils stöðugleika á vegi hlaut Ford Edsel mikla gagnrýni frá upphafi. Ford tapaði á þessum bíl um 150 milljónum dollara. 2. DeLorean DMC Mesta blekkingin í bifreiðasögunni. Þessi fólksbíll með vængjadyrnar varð til þess að hinn fyrrum forstjóri hjá GM tapaði hundruðum milljóna í gin skattheimtunnar. Hann flúði til Bandaríkjanna, þar sem hann var eftirlýstur fyrir fíkniefnabrot. 3. Citroén 2 CV Þessi franski „fólksvagn" hefur verið smíðaður í fimm milljónum „eintaka" frá árinu 1948 og enn er hann á ferðinni. Þessi sparneytni og dugmikli smábíll þýkir bjóða upp á þægindi sem ökumenn lítilla bíla kunna vel að meta. 4. Austin Mini Þetta undratæki, - Hvað mikið rými snertir, - sem hönnuðurinn Alec Issigonis teiknaði var fyrsti smábíllinn með framhjóladrifi og þverliggjandi vél. Sex milljónir bíla hafa verið smíðaðar frá 1959. 3. Citroén Birotor í lok sjöunda áratugarins eyddu Frakkar stórfé í að gera vél sem hafði snúða í staðinn fyrir bullur. Verksmiðja var reist og byggður tilraunabíll, 260 Ami-8, sem reyndur var á vegum um allt Frakkland. En allt rann þetta ævintýri út í sandinn. 4. Mercedes 130 H Þegar fyrir daga VW-bjöllunnar hafði Daimler Benz þróað smábíl með vél að aftanverðu. En hann þótti ógurlega rasssíður og var tekinn úr umferð árið 1936. 5. Fiat Topolino Þessi smábíll sem fyrst var smíðaður 1936 og síðan með ýmsum breytingum til 1948 var smábíll sem um leið reis þó vel undir því að kallast ekta bíll. Hann var 3,22 metrar að lengd með tveimur sætum og fjórgengisvél, 13 hö og náði 87 km hraða. 6. Austin Seven Þessi enski „fólksvagn" (1922-1939) var líka framleiddur á leyfum í öörum löndum og náði afar mikilli útbreiöslu. í Þýskalandi hét hann BMW Dixi, í Frakklandi Rosengart, Bantam í Bandaríkjunum og meira að segja í Japan var hann framleiddur undir nafninu Datsun. 7. Opel Olympia Þessi mjög svo vinsæli miðstéttarbíll markaöi sín spor í sögu bifreiðanna. Þetta var sjálfberandi að öllu leyti úr málmi og hófst fjöldaframleiðsla 1935. Áöur hafði grindin skipt meginmáli. 8. Mercedes 260 D Þetta var fyrsti fólksbíllinn sem framleiddur var með dieselvél, en hann kom á markað 1936. Hann var meö 45 ha vél og eyddi ellefu lítrum á hundraöi. í fyrstu voru það einkum leigubílstjórar sem keyptu hann og veruleg útbreiðsla kom ekki til sögu fyrr en eftir stríð. 9. Citroén DS Sá „guðdómlegi", eins og hann var kallaður, birtist árið 1955 og þótti sæta tíðindum í bifreiðaiðnaðinum, eins og fyrirrennari hans, „Traction Avant. „ Loftmótstaðan var lítil, hann var með vökvafjöðrun og hækkaði sig eða lækkaði eftir aðstæðum, var búinn vökvastýri og með tvöfalt hemlakerfi. 10. Porsche 911 Þetta er hinn sígildasti af sportbílum sem um getur því þótt á honum væru gerðar ýmsar breytingar þau 22 ár sem hann var við lýði tókst aldrei að breyta honum gagngert, heldur var hann um síðir alveg lagður á hilluna, en hefur nú veriö vakinn til lífsins á ný. ‘ ...... , 5. Borgward 2,3 I. Ári áður en Borgward-verksmiðjurnar fóru á hausinn byggðu þær glæstan bíl með loftfjöðrun. Aðeins 2500 bílar voru þó smíðaðir áður en starfsemi framleiðandans var fyrir bí. 6. Glaserati Tískuframleiðandinn Hans Glas byggði 300 mjög laglega bíla undir þessu nafni árið 1966. Þeir voru með V-8 vél, 150 hö og náðu 150 km hraða. En dæmið gekk ekki upp og senn voru verksmiðjurnar sameinaðar BMW. 7. Zundapp Janus Þetta var smábíll sem var þannig hannaður að farþegar sneru bökum saman, þ.e. þeir í aftursætinu horfðu út um afturrúðuna. Ekki líkaði fólki þetta fyrirkomulag og árið 1958 hvarf þetta viðundur að fullu og öllu. 8. VW 411 Þetta risabarn VW-verksmiðjanna fæddist fyrir tímann, en það var árið 1968. Fékk það auknefnið „langnefur" í munni manna. Endurbætt gerð, VW-412 gat ekki forðað því að úr þessu varð mesta „fíaskó.“ 9. ÐMW Touring Þessi þriggja dyra bíll með ská-baki og farangursrúmi, sem notast gat til annarra hluta, eins og nú er vinsælt, kom á markað 1971. Hanmn var hins vegar á undanm sinni samtíð og hafa BMW verksmiðjurnar aldrei þorað að framleiða bíl með skábaki síðan. 10. VW Porsche 914 Þessi blendingur sem VW og Ferrari verksmiðjurnar stóðu að verð að aðhlátursefni almennings og stundum kallaður „fólksporsche." Það var aldrei litið á bílinn sem neinn Porsche, enda var hann þróaður fyrir VW fyrst og fremst. Sögu .hans.lauk,1974. __ ........ .. _____t , . . .........

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.