Tíminn - 01.06.1986, Qupperneq 13
Sunnudagur1.júní 1986
Vií’í' i'.úi r iik'*?-i'i•.i - i?
Tíminn 13
Enn hefur „bjallan" for-
ystuna í sögunni. Þegar
fyrir fimmtíu árum var
hann hjólbeinóttur með
mjóa hjólbarða, sveig-
myndaða glugga og Ijós
yfir númersplötunni.
Mikið auglýsingastríð
var rekið vegna Ford
Edsel. Hér eru þeir Ford
synirnir, William Clay,
Benson og Henry II
myndaðir ásamt þessum
gallagrip. Kaupendur
kærðu sig ekki um hann.
TIU BESTU
BÍLARNIR
FYRR OG SÍÐAR
I þýska vikuritinu Stern
sáum við á dögunum þennan
forvitnilegadálk, þarsem bíla-
sérfræðingur blaðsins velur
saman tíu bestu biia allra tíma,
- og tiu þá verstu eða mis-
heppnuðustu. Greinarhöf-
undurinn, Hans Werner, tekur
þó fram að hvað valið snertir
er eingöngu miðað við gagn-
semi bílanna fyrir vanalegan
notanda, en glæsikerrum, eins
og Rolls Royce, Bugatti og
slikum er sleppt.
nr tíii
MESTUVANDMÐA
JÁLKARNIR
1. VW. bjalla
Á fimmtíu árum var 21
milljón bíla af þessari gerö smíðuð og enn er saga hans ekki öll. Talið er að sjö
milljónir af „bjöllunum" séu enn á ferðinni og í þróunarlöndunum renna þeir áfram
spánnýir fram af færiböndunum.
2. Ford T-módelið
Frá 1908 til 1927 voru 15 milljónir af þessum svonefndu „Tin Lizzies“
framleiddar. Frá 1913 voru þeir byggðir á færiböndum. Vélin var aðeins 20 hestöfl.
Um langt árabil var verðið um 290 dollarar. Með T-módelinu hófst fjöldaframleiðsl-
an á bifreiðum.
1. Ford Edsel
Mesti vandræðagripurinn í sögu bifreiðanna. Vegna ófagurra lína, nefhlífarsem
minnti á ónefnanlegt líffæri og lítils stöðugleika á vegi hlaut Ford Edsel mikla
gagnrýni frá upphafi. Ford tapaði á þessum bíl um 150 milljónum dollara.
2. DeLorean DMC
Mesta blekkingin í bifreiðasögunni. Þessi fólksbíll með vængjadyrnar varð til
þess að hinn fyrrum forstjóri hjá GM tapaði hundruðum milljóna í gin
skattheimtunnar. Hann flúði til Bandaríkjanna, þar sem hann var eftirlýstur fyrir
fíkniefnabrot.
3. Citroén 2 CV
Þessi franski „fólksvagn" hefur verið smíðaður í fimm milljónum „eintaka" frá
árinu 1948 og enn er hann á ferðinni. Þessi sparneytni og dugmikli smábíll þýkir
bjóða upp á þægindi sem ökumenn
lítilla bíla kunna vel að meta.
4. Austin Mini
Þetta undratæki, - Hvað mikið rými snertir, - sem hönnuðurinn Alec Issigonis
teiknaði var fyrsti smábíllinn með framhjóladrifi og þverliggjandi vél. Sex milljónir
bíla hafa verið smíðaðar frá 1959.
3. Citroén Birotor
í lok sjöunda áratugarins eyddu Frakkar stórfé í að gera vél sem hafði snúða í
staðinn fyrir bullur. Verksmiðja var reist og byggður tilraunabíll, 260 Ami-8, sem
reyndur var á vegum um allt Frakkland. En allt rann þetta ævintýri út í sandinn.
4. Mercedes 130 H
Þegar fyrir daga VW-bjöllunnar hafði Daimler Benz þróað smábíl með vél að
aftanverðu. En hann þótti ógurlega rasssíður og var tekinn úr umferð árið 1936.
5. Fiat Topolino
Þessi smábíll sem fyrst var smíðaður 1936 og síðan með ýmsum breytingum
til 1948 var smábíll sem um leið reis þó vel undir því að kallast ekta bíll. Hann var
3,22 metrar að lengd með tveimur sætum og fjórgengisvél, 13 hö og náði 87 km
hraða.
6. Austin Seven
Þessi enski „fólksvagn" (1922-1939) var líka framleiddur á leyfum í öörum
löndum og náði afar mikilli útbreiöslu. í Þýskalandi hét hann BMW Dixi, í Frakklandi
Rosengart, Bantam í Bandaríkjunum og meira að segja í Japan var hann
framleiddur undir nafninu Datsun.
7. Opel Olympia
Þessi mjög svo vinsæli miðstéttarbíll markaöi sín spor í sögu bifreiðanna. Þetta
var sjálfberandi að öllu leyti úr málmi og hófst fjöldaframleiðsla 1935. Áöur hafði
grindin skipt meginmáli.
8. Mercedes 260 D
Þetta var fyrsti fólksbíllinn sem framleiddur var með
dieselvél, en hann kom á markað 1936. Hann var meö 45 ha vél og eyddi ellefu
lítrum á hundraöi. í fyrstu voru það einkum leigubílstjórar sem keyptu hann og
veruleg útbreiðsla kom ekki til sögu fyrr en eftir stríð.
9. Citroén DS
Sá „guðdómlegi", eins og hann var kallaður, birtist árið 1955 og þótti sæta
tíðindum í bifreiðaiðnaðinum, eins og fyrirrennari hans, „Traction Avant. „
Loftmótstaðan var lítil, hann var með vökvafjöðrun og hækkaði sig eða lækkaði
eftir aðstæðum, var búinn vökvastýri og með tvöfalt hemlakerfi.
10. Porsche 911
Þetta er hinn sígildasti af sportbílum sem um getur því þótt á honum væru gerðar
ýmsar breytingar þau 22 ár sem hann var við lýði tókst aldrei að breyta honum
gagngert, heldur var hann um síðir alveg lagður á hilluna, en hefur nú veriö vakinn
til lífsins á ný. ‘ ...... ,
5. Borgward 2,3 I.
Ári áður en Borgward-verksmiðjurnar fóru á hausinn byggðu þær glæstan bíl
með loftfjöðrun. Aðeins 2500 bílar voru þó smíðaðir áður en starfsemi
framleiðandans var fyrir bí.
6. Glaserati
Tískuframleiðandinn Hans Glas byggði 300 mjög laglega bíla undir þessu nafni
árið 1966. Þeir voru með V-8 vél, 150 hö og náðu 150 km hraða. En dæmið gekk
ekki upp og senn voru verksmiðjurnar sameinaðar BMW.
7. Zundapp Janus
Þetta var smábíll sem var þannig hannaður að farþegar sneru bökum saman,
þ.e. þeir í aftursætinu horfðu út um afturrúðuna. Ekki líkaði fólki þetta fyrirkomulag
og árið 1958 hvarf þetta viðundur að fullu og öllu.
8. VW 411
Þetta risabarn VW-verksmiðjanna fæddist fyrir tímann, en það var árið 1968.
Fékk það auknefnið „langnefur" í munni manna. Endurbætt gerð, VW-412 gat
ekki forðað því að úr þessu varð mesta „fíaskó.“
9. ÐMW Touring
Þessi þriggja dyra bíll með ská-baki og farangursrúmi, sem notast gat til annarra
hluta, eins og nú er vinsælt, kom á markað 1971. Hanmn var hins vegar á undanm
sinni samtíð og hafa BMW verksmiðjurnar aldrei þorað að framleiða bíl með
skábaki síðan.
10. VW Porsche 914
Þessi blendingur sem VW og Ferrari verksmiðjurnar stóðu að verð að
aðhlátursefni almennings og stundum kallaður „fólksporsche." Það var aldrei litið
á bílinn sem neinn Porsche, enda var hann þróaður fyrir VW fyrst og fremst. Sögu
.hans.lauk,1974. __ ........ .. _____t , . . .........