Tíminn - 01.06.1986, Blaðsíða 14
Mac Cready
hét að smíða
finngálkn
sem náttúran
hafði þróaðá
milijónum
ára, - og
vinna
tveggja
milljón ára
þróunarstarf
á viku!
Ánægður
fylgist hann
hér með flugi
fuglsins.
Sagt frá
svifflugu-
smiðnum,
Paul Mac
Cready
Maðurinn sem smíðaði
FINNGÁLKN
Hann skráir nákvæmlega hverja hreyfingu finngálknsins í bækur og er
stöðugt að betrumbæta tölvustjórnbúnaðinn.
Páll Mac Cready er maöur
nefndur. Hann situr lon og don
í flugvélum, glápir út um
gluggann, án þess að veita
nokkra athygli borgum á jörðu
eða sjónvarpinu í flugvélinni. í
næturflugi lifir á týrum, vélin
þrumar, hann starir út í
myrkrið. „Það finnst mér
stundum minn besti tími“, seg-
ir hann.
Þessi maður sem er
þekktastur fyrir að smíða svif-
flugur, Mac Cready hefur
fengið fræg verðlaun fyrir
smíði Cossamer Condor svif-
flugunnar, sem er sú fyrsta sem
getur flogið ákveðna vega-
lengd á mannafli einu saman.
Hann smíðaði aðra flugu,
Cossamer Albatross, sem tókst
að fljúga yfir Ermarsund árið
1979 og vann þá enn meiri
verðlaun. Næsta ár smíðaði
hann Cossamer Penguin, sem
er knúin sólarorku. 1981 smíð-
aði han enn betri svifflugu sem
notaði sólarorku. Hún flaug á
milli ParísarogEnglands. 1983
smíðaði hann Bionic Bat, sem
flaut eina mílu á minna en
þremur mínútum. Hún varð
líka verðlaunagripur. Flug-
maður hennar notaði handafl
og lítinn rafmagnsmótor, sem
hann setti í gang fyrir flugtak
með handafli.
Núna er Mac Cready að
smíða vélhjól, sem er helmingi
hraðskreiðara og öruggara en
venjuleg bifhjól. Þá hefur hon-
um dottið í hug að nota hund
eða jafnvel mús til að gefa
orku í svifflugu. Það síðasta
sem hann er að velta fyrir sér
er finngálkn sem uppi var fyrir
65 milljónum ára. Vísindanafn
þess er Quetzalcoatlus Nort-
hropi. Þessi flugdreki er
stærsta skepna sem nokkurn
tíma hefur flogið, með 12
metra vænghaf.
Mac Cready hefur fengið
aðstoð Smithsonian-safnsins til
að endurbyggja þetta finn-
gálkn og reyna að láta það
fljúga í raun og veru.
Þetta er stærðar skepna, 6
metrar hvor vængur. Líkanið
hefur verið reynt í Simidal í
San Gabríel fjöllum í Kaliforn-
íu. Þar eru ágæt skilyrði fyrir
svifflug. Ætlunin er að láta
finngálknið fljúga opinbert
flug í sumar frá þinghúsi
Bandaríkjanna að minnis-
merki Washingtons. Vængir
drekans verða rafknúnir,
þannig að hann blakar vængj-
unum eins og fugl, og á að geta
flogið hringinn í kringum Was-
hingtonsúluna.
Enginn hefur áður getað
smíðað slíka svifvél og enginn
komið nokkuð nálægt því að
láta slíkan grip fljúga. Mac
Cready segir líka að þessi smíð
muni taka tímann sinn, en það
geri ekkert til, að hans dómi.
Hann hefur gefið finngálkn-
inu nafnið QN.
Lockheed verksmiðjurnar,
sem smíðuðu hina frægu
njósnaflugvél U2 hjálpa Mac
Cready við gerð gripsins.
Hugmyndin að þessu fljúg-
andi finngálkni er útdauður
dreki, sem fannst í Vestur-Tex-
as árið 1972.
í fyrndinni flugu alls konar
drekar og skrímsli um loftin
hvar sem var á jörðunni. Þó er
þessi beinafundur sá eini sem
vitað er um af leifum þessa
forna dreka.
Forndýrafræðingurinn Do-
uglas Lawson fann þessi dreka-
bein dreifð yfir hálfa ekru
lands. Var það aðeins annar
vængurinn af skepnunni. Með
því að bera saman bein af
minni drekum hefur tekist að
gera sér grein fyrir útliti skepn-
unnar.
Þó gat Mac Cready ekki
fengið fulla skýringu á því
hvernig svona stór eðla hefði
getað flogið.
„Náttúrufræðingana vantaði
ekki spurningarnar, annað mál
var um svörin," sagði Mac
Cready. Þó varð niðurstaðan
sú að dreki þessi hefði mjög
líklega verið ágætis flugdýr.
- En hvernig gat hann hafið
sig til flugs?
Fyrst giskuðu fornleifa-
fræðingarnir á að drekinn hefði
verið 100 kg með 50 feta
vænghaf. Mac Cready taldi að
loftaflfræðin sýndi að svona
þungt dýr gæti ekki lyft sér á
flug. Miklar voru vangaveltur.
Lyfti drekinn sér af jafn-
sléttu eða flaug hann fram af