Tíminn - 27.06.1986, Page 8
I
I
I
%
Kæru krakkar!
Vegna þess að tveir Barna-
Tímar féllu úr um kosningarnar
vegna óviðráðanlegra orsaka,
raskaðist nokkuð vinnsla á verð-
launaþrautunum. Því verða nöfn
vinningshafa fyrir 20. tbl. birt í
næsta blaði. En takið því strax
fram blað og blýant og sendið
svör við þrautunum í þessum
Barna-Tíma. Það sakar ekki að
skrifa stutta sögu, vísu eða frá-
sögn í leiðinni. Og alltaf ergaman
að fá brandara með.
Halló póstur!
Mig langar að eignast penna-
vini, stráka og stelpur á aldrinum
10-13 ára. Eg er sjálf 11 ára.
Áhugamál mín eru fótbolti, skaut-
ar, skíði, dýr og margt fleira.
Laufey Margrét Magnúsdóttir,
Hjallagötu 6,
245 Sandgerði.
Barna-Póstur
Besti Barna-Tími!
Ég ætla að senda ykkur eiria
vísu. Hún er svona:
Haninn galar hátt og snjallt
og hænan heldur ræður.
Ég vona að þér verði ekki kalt
ja, svona eru nú mæður.
Bless, bless,
Barna-Tíminn er bestur
Kristín Erla Ingimarsdóttir,
Fífusundi - Andakíl,
311 Borgarfirði.
Kæri Barna-Tími!
Mér finnst þú vera alveg ómiss-
andi. Ég ætla að biðja þig um að
koma mér í samband við krakka
sem vilja skipta á plakötum við
mig. Ég á nóg af myndum af
Duran Duran, Wham og Kiss. En
mig langar að fá í staðinn myndir
af Madonnu, Söndru og Cyndi
Lauper. Viltu koma þessu á fram-
færi fyrir mig, elsku póstur?
Kæri Húsvíkingur!
Ég sá á stimplinum á frímerkinu
að bréfið þitt kom frá Húsavík. En
því miður hefur þú gleymt að
skrifa nafnið þitt og heimilisfang
undir bréfið svo þú verður að
skrifa aftur til að komast í bréfa-
samband við krakka sem vilja
skipta við þig á plakötum.
Bestu kveðjur,
Barna-Tíminn.
I | BARNAPÓSTUR
SlDUMÚL A 15,
REYKJAVÍK.
Hvað heitir stelpan?
'íi/..
BJOPIIBH J|J!aL| UBd|8JS
\l.
h J tj/
I \)l p h \l, lll ( mj S? M/i. >i/ C )/i t V )lu. 1 i»» r
)ll
H
9 'Ju Bo e 'Jfsi (g)
e ju Qio-j (v) :iMninybci vyiNsnvi