Tíminn - 07.08.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn .
l*aft þarf ekki tjakk undir bílinn þegar konan cr svona sterk!
Það má sjá, að ár-.
angurinn af megr-
un og líkamsrækt
hefur orftið glæsi-
legur. „Þaft eru
nýjar línur í Lindu
í ár,“ . sagfti Ijós-
myndarinn, líkt og
hann væri að tala
um nýtt bílinódel!
Það muna áreiðanlega margir
eftir henni Lindu Blair, sem varð
fræg sem stelpukrakki fyrir leik
sinn í galdramyndinni „The Exorc-
ist", en sú mynd var ein af þeim
fyrstu í langri röð galdra- og hryll-
ingsntynda, sent kontust í móð um
þetta leyti. Linda Blair hefur haldið
áfram að leika og nú er hún orðin
fullorðin. kontin yfir tvítugt. En
henni gekk ekkert sérlega vel á
framabrautinni, ogm.a. varfundið
að þvf að hún færi ekki nógu smart
í vextinum, hún væri of feit.
Nú hefur hún Linda heldurbetur
tekið sér tak, því hún hefur á s.l.
ári lést um 20 pund og æft sig á
hverjum degi til að betrumbæta
vaxtarlagið. „Ég hleyp, sippa, geri
teygjuæfingar og skokka!' segir
hún, og bætir því við, að sár líði
stórkostlega vel síðan hún hafi
farið að stunda trimmið.
Linda fór nýlega í mál við
„kroppablað", sem birti nektar-
myndir af henni, en þeir höfðu
ekki borgað henni uppsett verð
fyrir myndatökuna, svo hún gaf
ekki leyfi til að þær yrðu birtar.
Hún segist hafa lagt blátt bann við
því, að tímaritið birti nokkrar
myndir af sér. Leikkonan vill fá 11
milljónir dollara í skaðabætur!
Joyce er áreiftanlega meft
þeini fallegustu sem leggja
stund á líkamsrækt og
vöftvarnir eru í lagi.
HANN ÞARF
ENGAN TJAKK!
Á þessum myndum má sjá hver það er sem vinnur
„þungavinnu-verkin" á þessu heimili. Hin laglega og sterka
Joyce Frame lætur sig ekki muna um það að lyfta upp horni
Honda Prelude-bílsins, sem vegur á annað tonn á meðan
maður hennar vinnur að smáviðgerð undir bílnum!
Joyce er 22ja ára, há og grönn (133 pund) og hefur
vöðvabyggingu scm scgir sex. Hún er ein af bestu líkamsrækt-
arkonum Skotlands og æfir sig í vaxtarræktarstöð á hverjum
degi. Joyce hefur sett sör það takmark að verða atvinnumódel,
- fyrirsæta og sýningardama.
HVOLPALÆTI
„Elsku bróðir, ekki bíta af mér
hausinn!" gæti aumingja Shar-Pei
hvolpurinn á myndinni verið að
hugsa.
Þessir hvolpar eru af sérstöku
kínversku hundakyni, sem er
þekkt fyrir það hvernig skinn hund-
anna liggur í lausurn fellingum um
allan skrokkinn, eins og feldur
þeirra hafi verið ætlaður að duga
án breytinga allt þeirra líf. Þeir eru
eins og krakkar, sem hafa verið
klæddir í ný föt vel við vöxt.
Það er ekki hægt að kalla þá fallega, þessa kínversku hvolpa, en þeir eru víst ósköp verðmætir.
Fimmtudagur 7. ágúst 1986
ÚTLÖND 111
FRÉTTAYFIRLIT
Moskva — Sovétstjórnin
mun skýra frá því á næstu
dögum hvort hún muni fram-
lengja hinu ársgamla banni
sínu á tilraunir með kjarnorku-
vopn. Þetta var haft eftir vara-
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna. Sænskir varnarsér-
fræðingar sögðu í Stokkhólmi
í gær að tilraunum með kjarn-
orkuvopn hefði fækkað mjög á
þessu ári og væri það bein
afleiðing banns Sovétmanna.
Lusaka — Hömlur Suður-
Afríkustjórnar á innflutning
gegnum landið til Zambíu
munu auka mjög á verulega
slæmt efnahagslíf þessarar
fátæku þjóðar. Hagfræðingar
og bankamenn : Hararesögðu
innflutningshömlur stjórnarinn-
ar í Pretoríu á Zimbabwe einn-
ig hafa slæm áhrif á viðskiptal íf
þess lands. Ekki bjuggust þeir
þó við að Suður-Afríkustjórn
myndi skera algerlega á flutn-
inga til og frá landinu.
Lundúnir - Sendinefnd
stjórnarinnar í Pretoríu, sem
nú er í Lundúnum, sagði efna-
hagslegar refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku verða til þess að
hægja á endurbótum og auka
viðnámsþrótt hvíta minnihlut-
ans í landinu.
Jerúsalem - Hæstiréttur
í ísrael komst að þeirri niður-
stöðu að sakaruppgjöf forset-
ans til handa yfirmanni leyni-
þjónustu landsins Avraham
Shaloms og þriggja aðstoð-
armanna hans hefði verið
lögleg. Þar með opnaðist leið
fyrir aðra leyniþjónustumenn,
sem þátt tóku í morðunum á
tveimur palestínskum skæru-
liðum árið 1984, til að krefjast
náðunar.
Madríd - Sérfræðingar
lögreglunnar og vinstrisinnaðir
baskar létu í Ijós efasemdir um
að hótun frá Frelsissamtökum
baska (ETA) um að íbúar
Evrópubandalagsríkjanna á
Spáni væru í hættu, kæmu frá
samtökunum sjálfum.
Helsinki — Embættismenn
frá Sovétríkjunum og ísrael
munu eiga viðræður í Helsinki
18. og 19. ágúst og ræða þar
aukin ræðismannasamskipti.
Stjórnmál verða ekki rædd á
fundum þessum.
Bonn — Stjórn Helmuts
Kohl kanslara skýrði frá því að
um tíu þúsund flóttamenn
hefðu leitað hælis I landinu í
síðasta mánuði. Fredrich
Zimmermann innanríkisráð-
herra sagði stjórnina jafnvel
ætla að gera innflytjenda-
strauminn að helsta kosninga-
málinu í næstu þingkosningum
sem fram eiga að fara í janúar
á næsta ári.
Lundúnir - Margrét
Thatcher forsætisráðherra
Bretlands var sögð við ágæta
líðan eftir að hafa gengist undir
vel heppnaða skurðaðgerð á
hægri hendi.
Bonn — Vestur-þýskt tíma-
rit hafði eftir James Baker
fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna viðvörun um að Banda-
ríkjastjórn hygðist enn auka
verndartollastefnu sína til að
hjálpa til að laga hinn gríðar-
lega viðskiptahalla Bandarikj-.
anna.