Tíminn - 07.08.1986, Page 9
Svifflugfélagiö 50 ára:
Svifflug og
sögusýning
í tilefni af 50 ára afmæli Svif-
flugfélags fslands gengst félagið fyrir
svifflugdegi ú Sandskeiði þann 10.
ágúst næstkomandi. Dagskráin hefst
kl. 14.00.
Allar svifflugur félagsins verða til
sýnis ásamt nokkrum svifflugum sem
félagsmenn eiga.
Á dagskránni verður listflug á
svifflugum og velflugum, mynd-
bandasýning, fyrirlestrar um hvað
svifflug er og um upphaf svifflugs á
íslandi, sögusýning, kynningarflug
og veitingasala.
Á sögusýningunni verða sýndar
myndir frá starfi félagsins í gcgnum
árin, hluti af fyrstu renniflugunni
sem notuð var á íslandi, gömul
svilfluga: Grunau Baby árgerð 1954
og samantekt á þróun Íslandsmeta í
svifflugi.
Svifflugfélag íslands var stofnað
10. ágúst 1936 og hefur starfað af
miklum þrótti alla tíð síðan. U.þ.b.
50.000 svifflug Jhafa verið flogin hjá
félaginu frá upphafi. Einn af stofn-
endum félagsins, Sigurður H. Ólafs-
son, flýgur enn af fullum krafti.
Félagsmenn eru nú u.þ.b. 100. Flog-
ið er á Sandskeiði öll kvöld og allar
helgar þegar viðrar. Hver sem cr
getur komið við og fengiö að fara í
kynningarflug eða fengið kennslu í
svifflugi.
Timann
AUGLÝSINGAR 1 83 00
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSM IDJAN
édddt
Cl HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÖPAVOGUR
SÍMl45000
Listasafn HÍ:
Nýtt sýningarsvæði
íOdda
Listasafn Háskóla íslands hefur
nú fengið bjart og rúmgott sýningar-
svæði á efstu hæð Odda, hinnar nýju
byggingar háskólans, sem cr beint
upp af Norræna húsinu og næst
ncðan Árnagarðs. Laugardaginn 6.
júlíkl. 1.30 verður opnuð þar sýning
á 90 verkum úr eigu safnsins, bæði
úr frumgjöf þeirra hjóna, Ingibjarg-
ar Guðmundsdóttur og Sverris Sig-
urðssonar, og öðrum er safnið hefur
síðan keypt. Verður sýningin opin
daglega fram eftir sumri milli kl.
1.30 og 5.00, og er aðgangur ókeyp-
is.
Safnið hefur látið prenta snotra og
vandaða skrá yfír verk sín, og fæst
hún hjá gæslukonu á sýningunni.
Eru í henni upplýsingar um safnið
og htprentanir margra verkanna.
Stjórn Listasafns Háksóla íslands
skipa þeir dr. Gylfi P. Gíslason
prófessor, formaður, Sverrir Sig-
urðsson fyrrum iðnrekandi og Björn
Th. Björnsson listfræðingur, sem er
umsjónarmaður safnsins.
Alþýöuleikhúsiö:
Sama leikrit
önnur tónlist
í tengslum við sýningar Alþýðu-
lcikhússins á verki Augustar
Strindberg „Hin sterkari" hafa ver-
ið haldnir tónleikar sem hefjast
u.þ.b. hálfri klukkusund fyrir sýn-
ingu. Hingað til hafa komið fram
tónlistarmennirnir Kolbcinn
Bjarnason flautuleikari og Kristinn
Árnason gítarleikari. Fimmtudag
7. ágúst og föstudag 8. ágúst niun
Snorri Örn Snorrason leika cinleik
á lútu og samanstendur efnisskráin
af ýmsum lútuverkum frá Endur-
reisnartímanum.
Sýningarnar sem haldnar eru f
Hlaðvarpanum. Vesturgötu 3, hafa
verið mjög vel sóttar og undan-
tekning ef ekki hefur verið uppselt.
Húsið opnar kl. 20.30 en tón-
leikarnir hefjast kl. 21 .OOogstanda
með stuttu kaffihléi fram til kl.
21.30, eða þar til leiksýningin
hefst. Upplýsingar um iniðasölu
eru í síma 19560 frá kl. 14.00
daglega.
8 Tíminn
Fimmtudagur 7. ágúst 1986
Fimmtudagur 7. ágúst 1986
Tíminn 9
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Molar...
■ Franska knattspymuliðið
Racing Club París hefur fest
kaup á enn einum útlendingnum.
í þetta sinn var það Uruguaymað-
urinn Ruben Paz sem spilaði
lítillega með landsliði Uruguay í
Mexíkó. Fyrir hjá Racing eru
tveir aðrir Umguaymenn. Þeir
Ruben Umpierrez, sem reyndar
er nú kominn með franskt vega-
bréf og telst því ekki útlendingur
á skýrslu knattspyrnuliðsins, og
Enzo Francescoli sem var aðal-
stjarna Umguay í Mexíkó. Þá
spilar Pierre Littbarski frá V-
Þýskalandi með Racing svo
nokkuð Ijóst er að einn þeirra
verður að vcra á bekknum þar
sem lið í Frakklandi mcga bara
hafa tvo erlenda leikmenn inn á í
einu.
■ Tékkneska hlaupadrottning-
in Jarmila Kartochvilkova sem
varð tvöfaldur heimsmeistari í
Helsinki árið 1983 getur ekki
keppt á Evrópumótinu í frjálsum
sení hefst í Stuttgart seinna í
þessum mánuði. Ástæðan eru
meiðsl sem hún varð fyrir á móti
í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári.
■ Einn efnilegasti spjótkastari
Bandaríkjanna, Bob Roggv, dó
með nokkuð skrýtnum, hætti í
Houston í Bandaríkjunum í fyrra-
dag. Hann var í bíl með félögum
sínum og þar sem þetta var sendi-
bOI þá lagði hann sig aftan í hon-
um. Skyndilega féll hann niður
og var látinn er komið var með
hann í sjúkrahús. Roggy hafði
náð mjög góðum árangri í spjóti
og var sá besti árið 1982 til að
mynda.
■ Skoski knattspyrnumaðurinn
Richard Gough, sem spilaði vel
með skoska landsliðinu í Mexíkó,
hefur farið fram á að verða seldur
frá liði sínu, Dundee United í
Skotlandi. Gough segist vilja
breyta til og prófa sig annarstað-
ar. Tottenham Hotspur í ensku 1.
deildinni hefur þegar sýnt honum
áhuga.
■ Fjórfaldur Ólympíumeistari
árið 1984 á ÓL í Los Angeles í
Bandaríkjunum, Carl Lewis, hef-
ur látið hafa það eftir sér að hann
hyggist hætta keppni eftir að
ÓL í Seoul 1988 eru afstaðnir.
Lewis varð að draga sig út úr
keppni á móti í Houston á dögun-
um vegna meiðsla og mun hann
ekki geta keppt á sérstökum
minningarleikum um Jesse Ow-
ens sem fram eiga að fara um
svipað leyti og Evrópumótið í
Stuttgart.
Tennis:
íslandsmótið
|- hefst í næstu viku
Dagana 8.-16. ágúst verður haldið
líslandsmót í tennis og er það þriðja
'árið í röð sem mótið er lialdið.
Keppt verður í einliða- og tvíliðaleik
karla og kvenna auk tvenndarleiks.
Þá verður jafnframt keppt í flokkum
unglinga 14-16 ára, 11-13 ára og 10
ára og yngri.
Keppnin mun fara fram á þremur
stöðum, þ.e. fyrri hluti keppninnar
verður haldinn á völlum Þrekmið-
'stöðvarinnar í Hafnarfirði og á Vall-
argerðisvöllum í Kópavogi, en
| undanúrslita- og úrslitaleikir verða
j háðir á hinum nýju tennisvöllum
Hótel Arkar í Hveragerði dagana
15. og 16. ágúst.
Reiknað er ineð góðri þátttöku á
mótinu en í fyrra kepptu rúmlega 60
manns á íslandsmótinu í tennis.
Fjöldi fólks sem stundar tennis-
íþróttina hefur farið vaxandi á
undanförnum árum, enda er nú
allsæmileg aðstaða til þess að iðka
íþróttina á Reykjavíkursvæði Vík-
ings í Fossvoginum en enn vantar
tennismenn tilfinnanlega aðstöðu til
þess að spila innandyra á veturna.
Þátttaka tiikynnist í síma 82266
(TBR) fyrir kl. 20 í kvöld.
Littbarski og Fransescoli komu ekki í veg fyrir aö Racing tapaöi í Frakklandi í fyrradag.
„Fiskileikur“ á Skaganum:
Tjallarnir fiskuðu betur
Enska knattspyrnuliðið Gtimsby er
hér á ferðalagi um þessar mundir í boði
Þróttar frá Neskaupstað. í gærkvöldi
lék liðið vináttuleik gegn Skagamönn-
um á Skaganum og var sá leikur frægur
fyrir það að Pétur Pétursson lék með
Skagamönnum og skoraði. Guðjón
Þórðarson skaut í stöng úr víti og
markvörður Skagamanna varði víta-
spyrnu. Ekki má þó gleyma að þeir
Grímsbæingar skoruðu úr einu víti.
Leikurinn endaði síðan 5-2 fyrir
Grímsbæinga og var hinn skondnasti á
að horfa og höfðu menn gaman af.
Enskir gerðu út um leikinn á smá kafla
í síðari hálfleik er þeir skoruðu þrívegis
eftir að hafa verið undir 1-2 í leikhléi.
Pétur Pétursson spilaði á ný með
sínum gömlu félögum af Skaganum og
skoraði gott mark auk þess sem hann
lagði upp annað fyrir Valgeir Barða-
son. Skagamenn komust þannig í 2-0
en þeir Grímsbæingar gáfust ekki upp
og Cumming skoraði fyrir leikhlé.
Rétt eftir upphaf síðari hálfleiks beit
ærlega á hjá þeim ensku og þcir fiskuðu
þrjú mörk á nokkrum mínútum. Fyrst
skoraði Hodgeson úr víti og hann
skoraði aftur og loks gerði Wallace
mark. Undir lokin var komið að fram-
kvæmdastjóranum að skora. Mick
Lyons gerði fimmta markið.
Frjálsar íþróttir:
Met hjá Kristiansen
Norska hlaupadrottningin Ingrid
Kristiansen náöi besta tínia sem náðst
hefur í 5000 m hlaupi kvenna á móti í
Stokkhólmi í fyrradag. Kristiansen
hljóp á mjög góðum tíma sem mældist
14:37,33. Hún bætti met Zolu Budd
frá Bretlandi sem haföi hlaupiö á
14:48,07 í ágúst á síðasta ári. Krist-
iansen á einnig besta tínia í heiminum
í bæði 10000 in hlaupi og maraþon-
hlaupi. Hún er því ókrýnd drottning
langhlaupara á meðal kvenfólks.
Knattspyrna:
Víðismenn vinna
kæruna gegn ÍBK
Kæran skilarþeim þremur stigum
og nokkrum mörkum
Héraðsdómstóll Suðurnesja dæmdi í fyrradag
Keflvikingum tapaðan leikinn gegn Víði sem Keflvík-
ingar unnu 1-0 fyrr í sumar. Víðismenn kærðu á
þeirri forsendu að Sigurður Björgvinsson hefur verið
í leikbanni í þeim leik en hann lék með ÍBK.
Lokatölur leiksins verða því 3-0 fyrir Víði og liðið er
nú með 16 stig á meðan Keflavík hrapar í þriðja sætið
■ deildinni með 22 stig. Keflvíkingar geta áfrýjað
dómnum til dómstóls KSI innan tveggja vikna.
Pétur Pétursson
kominná Skagann
-mun líklegaspilameö ÍAgegn
FH á morgun
Pétur Pétursson, knattspyrnumaðurinn síðhærði, er
kominn aftur í raðir Skagamanna. Hann mun væntanlega
spila með í A gegn FH á föstudagskvöldið. Liðið sem „á“
Pétur er Antwerpen í Bclgíu og hefur það lið gefiðjPétri
grænt Ijós á að leika með Skagamönnum í sumar. Þegar
er liðinn mánuður frá því að beiðni um félagaskipti voru
lögð inn til KSÍ og því ætti ekkert að verða því til
fyrirstöðu að Pétur leiki með f A gegn FH á föstudags-
kvöldið. Þetta vcrður fyrsti leikur Péturs síðan fyrir átta
árum 'en þá skoraði Pétur 19 mörk í 1. deild og setti
markamet sem enn stendur.
Pétur Pétursson spilar með Skagamönnum á ný eftir átta ára útilegu
Bjply
Wf
Franska knattspyrnan hafin:
Stjörnur skinu
á öllum völlum
Marseilles byrjar best meö alla nýju leikmennina
aði Jean-Pierre Papin tvívegis og
sigurinn varð Marseilles.
Af öðrum leikjum má nefna að
Franska 1. deildin í knattspyrnu
hófst í fyrrakvöld mcð heilli umferð.
Franska knattspyrnan hefur fengið
til liðs við sig marga þekkta snillinga
í knattspyrnunni og m.a. nokkrar
stjörnur frá HM í Mexíkó.
Þeir sem hve mestu hafa eytt í
stjörnur er lið Marseilles. Meðal
stjarna þar eru Karlheinz Förster og
Alain Giresse. Eins og við var að
búast þá tókst liðinu að sigra Mon-
aco, með Sörer Lerby og Manuel
Amoros innanborðs 3-1 á opnurtar-
deginum. Patrick Cubaynes skoraði
fyrst en Amoros jalnaði, síðan skor-
Racing Club, með Littbarski og
Francescoli í fararbroddi ásamt Luis
Fernandez tapaði fyrir Rennes með
einu ntarki gegn cngu. PSG, meistar-
ar síðasta árs áttu fullt í fangi með
Laval. Það var Philippe Jeannol sem
skoraði eina mark þessa leiks. Bor-
deaux vann nauman sigur á Metz og
var það Vercruysse sem skoraði eina
mark leiksins fyrir Bordeaux.
Nantcs með Burruchaga frá Arg-
entínu í aðallilutverki sigraði Lille
1-0 með marki Le Roux. Með Lille
leika Belgarnir Vandenbergh og
Desmet. Þá spiluðu þeir vel í vörn
Brest. Jose Luis Brown frá Argent-
ínu og Julio Cesar frá Brasilíu og
Best vann LeHavre 2-1.
Úrslit í 1. umferð
Nice-Toulon ....
Nantes-Lille ...
Rennes-RC Paris . .
Bordeaux-Metz ....
Sochaux-St. Etienne
Le Havre-Brest . . .
Nancy-Auxerre . . .
Paris SG-Laval . . .
Lens-Toulouse . . .
Marseille-Monaco
Golf:
Landsmót 1987
á Akureyri
Frá Gylfa Krístjánssyni á Akureyri:
Nú hefur verið ákveðið að
Landsmótið í golfi árið 1987 verði
haldið á Akureyri. Upphaflega
átti mótið að vera í Hafnarfirði,
en Hafnfirðingar treystu sér ekki
til að taka það. Þá var leitað til
GR en vegna vinnu á Grafar-
holtsvelli verður ekki hægt að
halda mótið þar. Akureyríngar
ætla sem sagt að halda Landsmót
í golfi 1987 eins og þeir gerðu
1985.
í framhaldi af þessari ákvörðun
þá ákvað stjórn GA að sækja um
að fá að halda NM í golfí fyrir
árið 1989.
Unglingasveitakeppni
Frá Gyifa Krístjánssyni á Akureyri:
í morgun hófsl á golfvcllinum
á Akureyri svcitakeppni unglinga
yngri en 21 árs í golfi. Þetta er í
fyrsta sinn sem slfk keppni fer
fram og taka 10 sveitir þátt í
keppninni. Hún stendur í fjóra
daga og verða spilaðar 36 holur á
dag.
I dag verður 36 holu höggleikur
og eftir á verður liðunum skipt í
riðla miðað við árangur. Á föstu-
dag tii iaugadags verða fyrri 18
holurnar spilar einn gegn einum.
ingsfyrirkomulagi en seinni 18
holumar spila einn gegn einum.
Margir af bestu kylflngum lands-
ins verða með þar á meðal nýbak-
aður íslandsmeistari, Úlfar Jóns-
son GK.
Turnar vann
Greg Tumer frá Nýja-Sjálandi
sigraði í Opna-skandinavíska
meistaramótinu í golfi sem lauk í
Ulla í Svíþjóð um helgina. Tumer
háði mikið einvígi við Banda-
ríkjamanninn Craig Stadler og
þurftu þeir að spila bráðabana til
að skera úr um hvor hreppti
fyrsta sætið. Á fyrstu holu í
bráðabananum mistókst Stadler
en Tumar fór á pari og sigraði. í
þríðja sæti á mótinu varð sigur-
vegarínn frá síðasta ári, lan
Baker-Finch frá Ástralíu.
Leiðrétting
Sá hræðilegi misskilningur
kom upp í grein um Landsmótið
í golfi í blaðinu í gær að sigurveg-
arinn Ulfar Jónsson er sagður úr
GS. Þetta er bara hreinlega rangt
því hann er úr Keili. Úlfar er þó
vel að sigri á Landsmótinu kom-
inn og vonandi að þessi villa
skeinmi ekki gleði hans né ann-
arra.