Tíminn - 14.08.1986, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 14. ágúst 1986
Hávaðamengun á Keflavíkurflugvelli:
„BYGGÐIN ÞARF AÐ
AÐLAGA SIG
FLUGVELLINUM“
- segir Sverrir Haukur Guðlaugsson
Tannlæknafélagið:
Gjaldskrá ráðherra
er viðmiðunarskrá
„Það sem hér er um að ræða er
uppkast að skýrslu, og hún hefur
verið unnin að frumkvæði varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins og varnarliðsins. Þeir aðilar eru
verkkaupar en Hollustuvernd ríkis-
ins er verktaki," sagði Sverrir Hauk-
ur Gunnlaugsson < samtali við Tím-
ann í gær um skýrslu um hávaða-
mengun á Keflavíkurflugvelli. „Þetta
verkefni er langtímaverkefni, og tek-
ur það sinn tíma að vinna það.“
Sagði Sverrir að sér fyndist óeðli-
legt að starfsmaður Hollustuverndar
væri að reka á eftir málinu með
yfirlýsingum í blöðunum, eins og
virtist hafa verið tilfellið í frétt
Tímans frá því á þriðjudaginn.
I umræddri frétt var rætt við Birgi
Þórðarson hjá Hollustuvernd ríkis-
ins, og birtust þar nokkrar mælinga-
niðurstöður um hávaðamengun frá
Keflavíkurflugvelli, auk nokkurra
niðurstaðna úr skoðanakönnun sem
framkvæmd var meðal íbúa í Njarð-
víkum og Keflavtk.
Var umræddri skýrslu skilað til
umsagnar varnarmálaskrifstofu og
til varnarliðsins til þýðingar og
skoðunar snemma í vor.
Sverrir lýsti óánægju sinni með að
ofangreindar upplýsingar hal'i vant-
að í fréttina og vildi auk þess leggja
mciri áherslu á nokkur atriði.
„Hávaðamælingarnar eru búnar að
sýna það sem stefnt var að, að
flugvélaskiptin hafa haft mikla þýð-
ingu. Hitt er annað mál að það þarf
að ganga frá þessu í endanlegri gerð,
með hliðsjón ekki bara af hávaða-
mörkum ogflugvélategundum, held-
HRAUN
ÓTRÚLEG
ENDING
HRAUN - FÍNT
hefur mjög góöa viöloðun viö flest
byggingarefni og hleypir raka
auöveldlega i gegnum sig.
Mikið veörunarþol — stórgóö
ending.
ur líka að byggðin sem slík í kringum
flugvöllinn þarf að aðlaga sig þessu,
þetta er skipulagsatriði."
Til að forða misskilningi vill blaða-
maður Tímans taka það fram að þær
upplýsingar sem Sverrir saknaði úr
fréttinni, komu fram í samtali Birgis
Þórðarsonar. í fréttinni kom reyndar
fram að Hollustuvernd hefði fengið
varnarmálaskrifstofu og varnarlið-
inu ákveðnar tillögur til umfjöllunar,
en að ekki var kveðið skýrar á um
hver væri verkkaupi og hver verk-
taki, skrifast á reikning blaðamanns
en ekki Birgis Þórðarsonar.
Tíminn hafði samband við Birgi
Þórðarson í gær og taldi hann að
meiri áherslu hefði mátt leggja í
fréttinni, að nú væru allar DC-8
þoturnar komnar með hljóðdeyfi-
búnað og að engin F-4 væri lengur á
vellinum. Annars vildi hann leggja
áherslu á að sínu mati væri þessi
skýrsla á allan hátt hlutlaust unnin
og að engin persónuleg sjónarmið
kæmu þar fram. Þá vildi hann einnig
koma því að, að öll þessi vinna hefði
farið fram í mjög góðri samvinnu við
flugvallastjórnina á Keflavíkurflug-
velli. phh
Á fundi sem stjórn Tannlækna-
félags íslands boðaði til í gær var
gerð grein fyrir þeim skilningi fé-
lagsins-'að þá gjaldskrá sem heil-
brigðisráðherra gaf út nýverið um
tannlæknaþjónustu beri að skoða
sem viðmiðunarskrá fyrir sjúkra-
samlög um það hversu mikið þau
eiga að endurgreiða sjúklingum
sem á því eiga rétt fyrir þá tann-
læknaþjónustu sem þeir njóta.
Benda þeir á að í lögum urn
almannatryggingar vísi ákvæði um
að ráðherra gefi út gjaldskrá þegar
ekki eru í gildi samningar milli
tannlækna og Tryggingastofnunar
(f.h. sjúkrasamlaga), einungis til
þess hvað sjúkrasamlagið eigi að
endurgreiða sjúklingi mikið fyrir
tiltekna þjónustu. þar sé hvergi
minnst á tannlækna eða hvernig
þeirra gjaldskrá skuli vera. Jafn-
framt benda þeir á að verðlagning
tannlæknaþjónustu sé frjáls í land-
inu samkvæmt lögurn frá 1978 og
sú gjaldskrá sem Tannlæknafélagið
hafi gefið út sé til viðmiðunar fyrir
tannlækna sjálfa.
í gjaldskrá þeirri sem heilbrigð-
isráðherra hefur gefið út er gert
ráöfyrir 5,5% hækkun en í gjaldskrá
þeirri sem Tannlæknafélagið hefur
gefið út og tannlæknar vinna nú
eftir er hækkunin 13%. Trygginga-
stofnun hefur hins vegar neitað að
endurgreiða reikninga samkvæmt
gjaldskrá Tannlæknafélagsins, en
það telja tannlæknar brot á sam-
keppnislögum frá 1978 eins og
kemur fram í bréfi sem félagið
lagði fram á fundinum í gær: „Ef
ríkisvaldið heldur fast við sinn
skilning, að allir tannlæknar eigi að
leggja gjaldskrá ráðuneytisins til
grundvallar, hvort sem viðkom-
andi sjúklingur á rétt á endur-
greiðslu hjá sjúkrasamlagi eða
ekki, er þar með brotið gegn
fyrrncfndum samkeppnislögum,
og vilja tannlæknar ekki vera þátt-
takendur í slíku athæfi."
SKÁK
7. einvígisskák Karpovs og Kasparovs fór í biö:
Jafntefli liklegustu úrslit
eftir magnaða baráttuskák
Anatoly Karpov virðist staðráð-
inn íþvíaðná heimsmeistaratitlin-
um aftur ef marka má taflmennsku
hans í London nú hina síðustu
daga. Hann tcfldi afar frumlega í
byrjun sjöundu skákarinnar í gær,
náði snemma rýmra tafli og virtist
lengi vel á sigurbraut, allt þar til
heimsmeistarinn ungi grcip í neyð-
arhemilinn, fórnaði skiptamun og
fékk scm bætur tvö peð. Skákin fór
í bið eftir 41. leik Karpovs og er
tvísýnt um úrslit. Karpov getur
hugsanlega tcflt til vinnings þó
jafntefli séu líklegustu úrslitin.
7. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Garrí Kasparov
Drottningarbragð.
1. <14
(Mönnum lék nokkur forvitni í því
hvort Kasparov héldi enn tryggð
sinni við Grúnfelds vörnina leyni-
vopn sitt í einvíginu en hann virtist
ekki hafa fundið viðunandi fram-
hald gegn áætlun Karpovs 4. Bf4
og 5. e3.)
1. ... d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7
(Kasparov beitti Tartakower-af-
brigðinu af Drottningarbragði í
síðasta einvígi og raunar því fyrsta
og gekk bærilega.)
4. cxd5 exd5 5. Bf4
(Með þessum leikmáta vann Karp-
ov 22. einvígisskákina í fyrra og
minnkaði þar muninn í einn
vinning.)
5. ... c6
(Algengast, en Kasparov lék 5. -
Rf6.)
6. Dc2
(Hér er venjulega leikið 6. e3 Bf5
7. g4!? sbr. 21. skák Kasparovs og
Karpovs en þar var Karpov afar
nálægt því að tapa. Hér hefur hann
undirbúið nýja og óvenjulega áætl-
un og kemur algerlega að tómum
kofanum hjá Kasparov sem lendir
þegar í stað í talsverðum liðsskip-
unarörðugleikum.)
6. ... g6 7. e3 Bf5 8. Dd2!
(Nýjung og upphafið af frumlegri
áætlun. Eftir 8. Bd3 Bxd3 9. Dxd3
hefur svartur ekkert að óttast eins
og reynsla ótal skáka ber með sér.)
8. ... Rd7 9. f3 Rb6 10. e4 Be6
(Hafi hvítur tapað einhverjúm
tíma hefur svartur bætt það vel upp
sbr. Rb6 og Be6.)
11. e5 h5
(Svartur á liðsskipunarörðugleik-
um þar sem Rg8 kemst ekki í
leikinn svo glatt. Hann leysir
vandamál riddarans ekki í bráð.)
12. Bd3 Dd7 13. b3 Bh4t?!
(Taflmennska Kasparovs er vægast
sagt undarleg. Hann sólundar tíma
sínum með undárlegum leikjum.
Fyrr eða síðar hlýtur það að segja
til sín þó í augnablikinu komi það
ekki að sök þar sem staðan er
lokuð.)
14. g3 Be7 15. Kf2!
(Kóngurinn er best geymdur þarna
fremur en á drottningarvængnum.)
15. ... Bf5 16. BH Kf8 17. Kg2 a5
18. a3
(Betra en 18. a4 því svartur fær
góðan reit á b4 fyrir biskupinn.
Karpov hefur greinilega náðöflugu
frumkvæði.)
18. ... Dd8
(Annar dálítið einkennilegur leik-
ur. Til greina kom 18. - Kg7.)
|A
u 4>H
Sli 1 ■
i lllllllllll
IHili- lllllll A
u
HA Hl
iiiiiii iH
IIIJl as
19. Rh3 Bxh3t
(Riddarinn var á leið f2 líkt og í 5.
skákinni og Kasparov telur sig gera
rétt í því að skipta upp á honum.
Riddarar njóta sín betur í lokuðum
stöðum, hljóðar gömul regla en
ekki er hún algild. í þessu tilviki
sleppir svartur tökum á hvítu reit-
unum.)
20. Kxh3 Kg7 21. Kg2 Rd7 22. Bd3
Rf8 23. Be3 Re6 24. Re2 Rh6
(Loksins rættist úr fyrir þessum
riddara en hans býður þó ekki ýkja
stöðug fótfesta.)
25. b4(?)
(Ef til vill er þetta vendipunkturinn
í skákinni. Karpov reynir að dreifa
spilinu yfir á drottningarvænginn
með það fyrir augum að skapa
glundroða í herbúðum svarts. En
er það rétta leiðin? Eftir afar
hægfara stöðubaráttu þarsem hvít-
ur hafði náð góðu frumkvæði
virðist liggja beinast við að skapa
peðafylkingu á kóngsvængnum.)
25. ... Db6 26. b5 c5! 27. Rc3 cxd4
28. Bxh6t Hxh6 29. Rxd5 Dd8 30.
Bc4 h4!
(Eitt helsta markmið 13. - Bh4 var
einmitt að framkalla g2 - g3 svo
þessi leikur gæti komið sér vel á
krítisku augnabliki. Og augna-
blikið er krítískt. Keppendur voru
að komast í tímahrak og spennan
geysileg.)
31. Hhfl
(Það var kannski koniinn tími til
þess fyrir hróka hvíts að blanda sér
í leikinn.)
31. ... hxg3 32. hxg3 Hc8 33. Hhl
Hxhl 34. Hxhl
(Opnun h-línunnar skapar hvítum
ýmis sóknarfæri og nú skyndilega
iðar taflið af taktískum flækjum. I
slíkum stöðum nýtur Kasparov sín
best. Hann finnur bráðskemmti-
lega skiptamunsfórn enda má hann
til, að öðrum kosti væri útlitið ekki
gæfulegt.)
34. ... Bg5 35. f4 Hc5!
(í raun þvingað. Eftir 35. - Bh5 36.
Rf6 er svartur illa beygður m.a.
vegnahótunarinnar37. HxhóKxhó
38. f5t Rg5 39. Df4 o.s.frv.)
36. fxg5
(Betri leikir liggja ekki á lausu.)
36. ... Hxd5 37. Bxd5 Dxd5t 38.
Kh2 Dxe5 39. Hfl Dxb5 40. Df2
Rxg5 41. Dxd4t
Tímamörkunum hefur verið náð
og æsispennandi skák, sú skemmti-
legasta í einvíginu hingað til, fer í
bið. Hvítur stendur kannski eilítið
betur í biðstöðunni þó svartur hafi
tvö peð upp í skiptamuninn. En
vinningstilraunir af hvíts hálfu
verða erfiðar því kóngsstaða hans
er afar opin.
Biðstaðan verður tefld áfram á
morgun. Enn er staðan jöfn, 3:3.
liíl
m
i 8
i
111 8
H
a
fi
OSA/SIA