Tíminn - 22.08.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 22. ágúst 1986
Ráðstefna um Þingvallavatn um mánaðamótin:
Vistkerfi Þingvalla-
vatns mjög dýrmætt
Ýmsir sælgætisframleiðendur
„vigta rétt“
Opalpakkarnir
10% of léttir
- segja 25 sérfræðingar sem rannsakað hafa vatnið í 12 ár
- í könnun Neytendafélags Reykjavíkur
Lífríki Þingvallavatns hefur verið
til rannsóknar í 12 ár og niðurstöður
þeirrar rannsóknar liggja nú fyrir.
Af því tilefni verður haldin ráðstefna
um Þingvallavatn í Norræna húsinu
dagana 27. ágúst til 1. september.
Rannsóknarhópurinn sem vann að
rannsókn vatnsins samanstóð af 25
sérfræðingum frá öllum Norður-
löndunum og munu þeir leggja fram
niðurstöður sínar á ráðstefnunni.
I ljós hefur komið að !ó hluti
vatnsins er gróðri þakinn. Lífþyngd
þörunga er mikil þrátt fyrir dýpt og
kulda vatnsins. Lággróður er nokk-
uð mikill á 10 metra dýpi og krans-
þörungar verða mjög háir á 10-25
metra dýpi. Kransþörungar mynda
stór gróðurbelti í vatninu og hafa
mikla þýðingu fyrir allt dýralíf í
vatninu, t.d. fiskinn.
Þingvallavatn og Mývatn eru á
tindum Atlantshafshryggjarins þar
sem meginlöndin klofna. Vötn á
slíkum svæðum hafa hvergi verið
könnuð nema á íslandi, enda eru
slíkar sprungur hvergi eins áberandi
eins og á íslandi. Aðrir staðir í
heiminum þar sem tindar Atlants-
hafshryggjarins eru á þurru landi eru
á suðausturhorni Afríku til Djibouti
og Eþíópíu og til Rift Valley.
Á alþjóðlcgan mælikvarða er
Þingvallavatn mjög gott veiðivatn,
afraksturinn er um 10 kg á hektara á
ári af fiski eða alls 80 tonn af fiski að
murtunni meðtalinni. Þingvallavatn
er reyndar eina vatnið sem vitað er til
að hafi 4 afbrigði af bleikju, en þær
tegundir cru murta sem lifir á svifi,
botnbleikja eða sniglableikja sem
lifir á botndýrum, gjábranda sem
lifir í gjánum á botndýrum og rán-
bleikja sem lifir aðallega á murtu.
Rannsóknin á Þingvallavatni sýnir
að það er mjög dýrmætt frá vísinda-
legu sjónarmiði og enn dýrmætara
frá sögulegu sjónarmiði. Því er nú
hugmyndin að gefa út bók um allt
vistkerfi vatnsins og Þingvallasvæðið
allt og verða niðurstöður vísinda-
mannanna uppistaða þeirrar bókar.
ABS
BOÐI HF. AU tíf GLÝSIR
B0DA GIRDINGAR / m 1 / EL£PHA>n_
LEIÐANDIÁ ÍSLANDI 1 \g* B
i
i
■ ■ ■■:- ...- 1; , ^ . :3vv **•:*•': -
Vegna fenginnar reynslu í sölu á rafmagnsgirðingum
á íslandi, höfum við hjá Boða hf. ákveðið að versla
beint við framleiðendur á rafmagnsgirðingaefni. Við
munum því hætta að versla í gegnum umboðsaðila í
Danmörku. Með þessu vonumst við til að geta veitt
betri þjónustu á sölu á rafmagnsgirðingum og vænt-
anlega lækkar verð á komandi mánuðum.
Við munum selja girðingar þessar undir vörumerk-
inu
LEIÐANDIÁ ÍSLANDI
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
Leitið frekari upplýsinga hjá sölumönnum í síma 91-651800.
B0DA GIRDINGAR
BOÐI hf
Viðkoma er ávallt i Flatey á báðum leiðum.
Bilaflutninga er nauðsynlegl að panta með fyrirvara.
A timabilinu 1. juni til 31. ágúst
Manudaga Frá.Stykkishólmi kl. 09 00
Frá Brjanslæk kl. 14 00
Til Stykkishólms kl. 18.00
fyrir brotttör rútu til Rvk.
Fimmtudaga: Samatimataflaog
mánudaga
Fósludaga Frá Stykkishólmi kl 14 00.
ettir komu rutu
Viðkoma i inneyjum
Frá Brjánslæk kl. 19 30
Til Stykkishólmskl. 23.00
Priðjudaga FraStykkisholmikl. 14 00
ettir komu rútu
Frá Bqánslæk kl. 18 00
Til Stykkishólms kl. 21-30
Laugardaga: FráStykkishólmi kl. 09.00
Sigling um suðureyjar
Frá Brjanslæk kl. 15.00
Til Stykkishóims kl. 19.00
A timabilinu 1. juli lil 31. ágúsl
Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Frá Brjánslæk kl 14 00
Til Stykkisholms kl. 18.00.
fyrir brottför rútu.
A timabilinu 1. mai til 30. sept.
á Stykkisholmi:
Hjá afgreiðslu Baldurs
Stykkishólml, s.: 93-8120
Frá Brjánslæk:
Hjá Ragnarl Guðmundssyn'
Brjánslæk, s.: 94-2020.
Um 10% vantaði upp á að upp-
gefin vigt á Opalpökkum stæðist í
raun samkvæmt könnun sem
NRON gerði á 18 sælgætistegund-
um frá 7 sælgætisverksniiðjum,
þ.e. á því hvernig raunveruleg vigt
passaði við uppgefna. Litlu minna,
eða 8,2%, reyndist einnig vanta í
Topaspakkana frá Nóa-Síríus, sem
er mjög svipað sælgæti. í 12 af 18
tilfellum reyndist uppgefið magn
eða meira en það í pökkunum.
Sérstaklega virðist Linda vigta
súkkulaði sitt ríflega. f fjórum
tilfellum vantaði svo smávegis upp
á vigtina, m.a. bæði á kúlur og
rúsínur frá Góa.
„Ég var rétt að fá fréttir af þessu
og hef því enn enga skýringu á
reiðum höndum. En við munum
sannarlega leita hennar, enda er
þetta ekki viðunandi. Stefnan hef-
ur verið að vigta fremur of en van,
sem líka má sjá á hinum tegundun-
um sem kannaðar voru frá okkur,“
sagði Einar Ólafsson framkvæmda-
stj. Ópal, Einar sagðist um leið og
hann frétti af útkomunni í könnun-
inni sjálfur hafa gert könnun og þá
á meðalvigt úr 1000 pökkum en
ekki 3 eins og NRON. Útkoman í
þeirri einkakönnun sýndi að 2%
vantaði að meðaltali upp á vigtina,
eða u.þ.b. hálfa Opaltöflu. „En
það er heldur ekki nógu gott,“
sagði hann, harðákveðinn að bæta
um betur, eins og að framan grein-
ir.
Pökkunina sagði hann þannig að
um rúmmálsmælingu væri að ræða,
sem verið hafi í notkun í yfir tvo
áratugi. Og svipað mun eiga við
um Topasið. Einar kvast því vera
að velta fyrir sér hvort það sem
þarna munar á þessum tegundum,
gæti verið að einhverju leyti hrá-
efninu að kenna, en báðar eru þær
unnar úr sama grunnhráefninu.
Það sé unnið úr trjákvoðu og komi
frá Arabalöndunum, aðallega
Súdan, sem verið hafi ákaflega
erfiður markaður m.a. vegna mis-
jafnlega góðra sendinga. Auk þess
sagði hann þetta hráefni hafa marg-
faldast í verði, þannig að það nemi
nú orðið 60-70% af framleiðslu-
kostnaðinum.
Auk vigtarinnar athugaði
NRON merkingar á sælgætinu, og
segir mörg dæmi þess að íslenskir
sælgætisframleiðendurmerkifram-
leiðslu sína illa eða alls ekkert.
M.a. er nefnt til alls konar „buff“,
„stengur“, lakkrís og fleira. Það sé
hins vegar sjalfsögð og eðlileg
krafa neytenda að umbúðir séu vel
merktar og að farið sé eftir þeim
reglum sem um slíkt gilda, m.a.
um tegund. þyngd og innihald.
Hótel Hof við Rauðarárstíg
HB
Húsnæði RKÍ við Skipholt
Framsóknarfélögin og Rauöi krossinn:
Höfðu makaskipti
á húseignum sínum
- Rauöi krossinn borgaöi 37 milljónirá milli
Húsbyggingarsjóður Framsóknar-
félaganna í Reykjavík og Rauði
kross íslands hafa haft makaskipti á
húseignum þannig að Rauði kross-
inn festir kaup á Hótel Hofi, Rauð-
arárstíg 18 í Reykjavík, en Fram-
sóknarfélögin fengu húseign RKÍ
við Skipholt 21 og 37 milljónir króna
á milli. Brunabótamat húsanna var
lagt til grundvallar milligjöfinni.
Rauði krossinn mun flytja hluta af
starfsemi sinni í nýja húsnæðið 1.
nóvember og síðan er gert ráð fyrir
að allt húsnæðið verði tekið í notkun
um nasstu áramót.