Tíminn - 22.08.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.08.1986, Blaðsíða 7
Föstudagur 22. ágúst 1986 Tíminn 7 VETTVANGUR i!!!!!!IIU!llii!!i!l!!i!l!Iliilll Illll!ll!l Sr. Ólafur Skúlason, dómprófastur: Borgarfulltrúamir og messurnar Það er ævinlega mikils virði, þegar samstaða ríkir. Fjölskyldur njóta þess, en gjalda, ef skortir. Það er þá einnig í hinni stækkuðu mynd fjölskyldunnar einstaklega ánægjulegt, þegarþess virðist notið af öllum, sem fram fer og almenn þátttaka sannar. Þannig varð með afmælishátíð Reykjavíkur. Ég hef engan hitt, sem ekki var innilega ánægður með það, hvernig til tókst og að var staðið. Og slík var samstaðan. að rígur hvarf milli landsbyggðarinnar og hinnar einu borgar, svo að utanbæjarmenn nutu hátíðarinnar ekkert síður en Reykvíkingar, bæði með því að strcyma til borgar- innar og í gegnum fjölmiðla, sem ræktu hlutverk sitt frábærlega vel. En vitanlega ætti það ekki að koma á óvart, þótt farið sé að slá á aðra strengi. Við eigum ekki öll auðvelt með það að láta gleðina ríkja ótruflaða. Og auðvitað er alltaf hægt að finna eitthvað til þess að kvarta yfir og finna að. Það er að segja fyrir þá, sem slíkt vilja stunda. Og ég sá mér til leiðinda í Þjóðviljanum í dag, 20. ágúst, að nú er verið að finna að hátíðar- messunum á sunnudaginn var. Vil ég því leyfa mér að koma með athugasemdir við þá umfjöllun, bæði af því að mín er þar sérstak- lega getið og vitnað til orða, sem sögð eru höfð eftir mér, og einnig vegna þess, að ég bar ábyrgð á undirbúningi og tilhögun þessa þáttar hátíðarinnar. Á fundi með fulltrúum undir- búningsnefndarinnar, þar sem rætt var um þátt kirkjunnar í borginni í afmælishaldinu, lagði ég áherslu á það að messur væru sungnar í öllum kirkjum borgarinnar og messustöðum öðrum og tækju þá kjörnir fulltrúar borgarbúa virkan þátt í þeim messuflutningi. En að auki skyldi sérstök hátíðarmessa ffutt í Dómkirkjunni síðdegis. Voru þessar tillögur mínar sam- þykktar. Næst fékk ég upplýsingar á borgarskrifstofunni um nöfn og heimilisföng borgar- og varaborg- „Við eigum ekki öll auðvelt með það að láta gleðina ríkja ótrufl- aða. Og auðvitað er alltaf hægt að finna eitthvað til þess að kvarta yfir og finna að. Það er að segja fyrir þá semslíkt viljastunda.11 arfulltrúa. Átti ég síðan fund með prestunum og sagði þeim frá því, hverjir ættu heinia innan sóknar- marka hvers um sig. í tveimur sóknunt reyndust fulltrúarnir fimm í hvorri en í einni var enginn borgarfulltrúi eða varaborgarfull- trúi. Síðan ræddu prestarnir við viðkomandi borgarfulltrúa og skipulögðu messurnar að öðru leyti. Tókust þær að öllu leyti mjög vel og var mér það sérstök ánægja, þegar fulltrúi gesta annarra byggð- arlaga lýsti því yfir í skilnaðarræðu að þessi þáttur hátíðarinnar hefði verið hvað ánægjulegastur og yrði um leið eftirminnilegstur. En vitanlega hlaut að fara svo að það voru ekki allir borgar- eða varaborgarfulltrúar tilbúnir til þess að ganga fram fyrir söfnuð við guðsþjónustu og dærni var þess að sú skýring fylgdi að það samrvmd- ist ekki lífsskoðun viðkomandi. Gekk það þá vitanlega ekki lengra og átti að vera ntál viðkomandi einna. Á fundinum með prestunum ræddum við ekki um verkaskipt- ingu, en skal þó taka fram, að ég sagðist vart telja borgarstjóra hafa tíma til þess að undirbúa prédikun í viðbót við allar þær ræður, sem hann hlyti að verða að semja. Þeim mun meiri var ánægjan, þegar ég frétti að Davíð Oddsson hefði tckið beiðni séra Franks M. Hall- dórssonar, sóknarprests í Nes- kirkju einstaklega ljúfmannlega og fallist á tilmæli hans um að stíga í stólinn. En að Davíð eða Sjálfstæðis- flokkurinn hafi haft afskipti af þessu máli, er svo langsótt, að ég á bágt með að skilja þá hugsun, sem liggur þar að vaki. En vitanlega bar meir á fulltrúuni Sjálfstæðisflokks- ins í messunum en annarra flokka. Þeir eru fleiri og ber þess einnig að geta að ekki vildu allir ljá máls á þessari þátttöku eins og fyrr getur. Og sums staðar áttu engir aðrir flokkar fulltrúa innan sóknarmark- anna. Svo reyndist í þeim söfnuði sem ég þjóna, Bústaðasöfnuði og vil ég taka það fram vegna orðalags í tilvitnaðri grein Þjóðviljans, að þeir þrír borgarfulltrúar unnu sín „Tókust messurnar aö öllu leyti mjög vel og var mér þaö sérstök ánægja, þegar fulltrúi gesta annarra byggö- arlaga lýsti því yfir í skilnaðarræðu aö þessi þáttur hátíðar- innar hefði verið hvað ánægjulegasturog yrði um leið eftirminnileg- astur.“ verk einstaklega vel og var sómi að. Að flokksleg sjónarmið hafi ráð- ið vali borgarfulltrúa vísa ég algjör- lcga á bug. En vitanlega er það svo um stjórnmálamenn sem aðra, að þeir sinna safnaðarstörfum mis- jafnlega og sjást misjafnlega oft í kirkju. Hygg ég enginn lái presti, þótt hann freistist frekar til þess að bjóða þeim borgarfulltrúa stólinn, sern hann hefur reynt að jákvæðri afstöðu til kirkju ogsafnaðarstarfs. Og vitanlega fylgjast prestar með atkvæðagreiðslum í borgarstjórn sem á Alþingi, þegar um kirkjumál cr fjallað. Ég harma það, að þessi þátttaka hinna kjörnu fulltrúa borgarinnar í messuflutningi skuli fá nokkuð annað en jákvætt þakklæti svo mikils virði finnst ntér það. Og ég tek undir það með fulltrúa annarra sveitarfélaga að þetta var ekki sísti þáttur hátíðarinnar, já, miklu frek- ar í mínum augum hápunkturinn og rnótaði þannig framhald. Leyfi ég mér að þakka þessa þátttöku og vera má að títtnefnd grein og greinar í Þjóðviljanum sýni að kirkjan hefur áhrif og verður þá meir tekið tillit til hennar en verið hefur, jafnvel svo að velviljað fólk sitji ekki álengdar fjær, heldur muni sunnudaginn og söfnuð sinn. Ólafur Skúlason, dóniprófastur Sjálfsagt þótti að bjóða upp á rjómatertu með morgunkaffinu að þessu sinni. Frá vinstri: Finnur Ingólfsson, gjaldkeri Framsóknarflokksins, Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri, Guðmundur Bjarnason, ritari, ásamt starfsmönnum skrifstofunnar þeim Atla Ásmundssvni, Stefáni Guðmundssyni, Þórunni Guðmundsdóttur og Þórlaugu Stefánsdóttur. Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins: Lifandi samband við flokksmenn um land allt Guðmundur Bjarnason, ritari Framsóknarflokksins býður Sigurð Geir- dal velkominn til starfa og afhendir honum lykla að skrifstofunni í gærmorgun. í gærmorgun tók Sigurður Geirdal við stöðu framkvæmdastjóra Fram- sóknarflokksins. Sigurður er fæddur í Grímsey, en er nú búsettur í Kópavogi. Þar býr hann ásamt eiginkonu sinni Ólafíu Ragnarsdóttur og 5 börnum í ný- byggðu húsi að Daltúni 12. Sigurður lauk samvinnuskóla- prófi 1959 en tók síðan stúdentspróf frá M.H. 1980. Því næst fór Sigurður í Háskólann þar sem hann lauk viðskiptafræðiprófi 1985. Sigurður hefur lengst af starfað sem framkvæmdastjóri Ungmenna- félags íslands eða í rúm 16 ár. - Hvernig líst þér á að fara að starfa fyrir pólitískan flokk eftir að hafa starfað svona lengi fyrir ópólit- íska hreyfingu sem UMFI er? „Það leggst vel í mig. Þetta er mannræktarstarf á báðum stöðum og því lík á margan máta og fyrir sama fólk að verulegu leyti. Þetta eru hvoru tveggja lands- samtök, með kjördæmissamtök ann- ars vegar og héraðssambönd hins- vegar. Eitt aðalstarf mitt hefur verið og verður að vera í góðu sambandi við aðildarfélög og samtök, þannig ætti reynslan frá Ungmennafélaginu að koma mér mjög vel ekki síst þar sem Ungmennafélagið starfar fyrst og fremst úti á landsbyggðinni og flokkurinn sækir þangað verulegan hluta af fylgi sínu.“ - Framsóknarflokkurinn virðist hafa lítið fylgi í þéttbýlinu eins og sakir standa, hvcr er ástæðan og hvað er til ráða? „Mismunurinn á afli fjölmiðlanna er mestur hér í þéttbýlinu. Og þess vegna þarf að finna nýjar aðferðir til að koma flokknum áfram hér. Það er vandinn. Ekki það að fólkinu líki ekki stefnan eftir að búið er að koma henni til skila.“ - Hefurðu starluð innan Fram- sóknarilokksins áður? „Já ég starfaði í flokknum frá því ég var urn tvítugt í ein tíu ár þar til ég fór í Háskólann. Ég var varafor- maður FUF í Kópavogi í tvö kjör- tímabil og varamaður í bæjarstjórn Kópavogs í eitt kjörtímabil. Þcgar ég fór svo í Háskólann var ég ásamt því að byggja í fullu starfi. Það varð eitthvað undan að láta.“ - Það hefur komið fram að fjár- hagsstaða flokksins er erfið um þess- ar mundir, sérðu fram á að leysa það mál? „Það verður að sjálfsögðu leyst. Það er ágæt regla að taka vandamál og skíra þau upp og kalla þau verkefni - og verkefni eru til að leysa þau.“ - Hver eru næstu verkefni? „Um næstu helgi verður þing- flokksfundur á Sauðárkróki, síðan fer ég á SUF þing. Flokksþingið verður síðan í nóvember og mikil vinna í sambandi við það, cnda afmælisþing þar sent flokkurinn er 70 ára í ár.“ - Fitthvað að lokum? „Já ég treysti á stuðning flokks- , manna. Ég hef ekki undan að heim- sækja alla flokksmenn þannig að það væri ágætt ef þeir léttu undir með því að hcimsækja mig. Hingað eru þeir alltaf velkomnir og ég hvet flesta til að líta við og fá sér kaffi- bolla og segja mér fréttir. Ég gæti sagt þeim eitthvað á ntóti. Ég legg mikið upp úr þessum þætti. Lifandi samstarf við flokksmenn um land allt er það besta til að stuðla að því að við getum eitthvað gagn gert hér. Þá vil ég einnig koma á framfæri að það er ekki sársaukalaust að hverfa nú frá Ungmennafélaginu. Til allra félagsmanna þar sendi ég rnínar bestu kveðjur og vona að ég hitti þá sem flesta hér.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.