Tíminn - 22.08.1986, Page 5
Föstudagur 22. ágúst 1986
Tíminn 5
UTLÖND
lllllll!
I
Deng Xiaoping 82 ára í dag
og enn ótvíræður leiðtogi
Deng Xiaoping heldur upp á 82
ára afmæli sitt í dag, við þokkalega
heilsu og ótvíræður leiðtogi fjöl-
mennustu þjóðar heimsins.
Vestrænir diplómatar í Peking
gera ekki ráð fyrir miklum veislu-
höldum í tilefni dagsins, sem er ólíkt
því sem gerðist þegar fyrirrennari
hans í embætti, Mao heitinn formað-
ur hélt upp á sitt síðasta afmæli. Þá
birtust myndir af hinum mikla leið-
toga á forsíðum allra blaða og þau
kepptust við að birta nýjustu ljóðin
hans og lofa visku hans. Nú er öldin
önnur og Deng Xiaoping hefur forð-
ast sviðsljósið og skurðgoðsímynd
Forvextir
lækkaðir í
Bandaríkjunum
- tilraun til að örva hagvöxt
Bandaríski seðlabankinn (Feder-
al reserve) tilkynnti í fyrradag um
lækkun forvaxta, úr 6% í 5%. Þessi
ákvörðun kemur í kjölfar frétta af
síversnandi efnahagsástandi í
Bandaríkjunum. Skömmu áður en
seðiabankinn tilkynnti um vaxta-
lækkunina höfðu verið birtar tölur
um 1,8% samdrátt í byggingariðnaði
í Bandaríkjunum í júlí og er það
þriðji mánuðurinn í röð sem sam-
dráttur er í þessari grein. Ef til vill
reyndist þó mikilvægara varðandi
þessa ákvörðun seðlabankans að
fyrr í vikunni var tilkynnt að hag-
vöxtur í Bandaríkjunum á tímabil-
inu apríl-júní var einungis 0,6%.
íkjölfar lækkunar forvaxtá, sem eru
þeir vextir sem seðlabandinn tekur
at lánsfé til annarra banka, er vonast
til að almenn vaxtalækkun fylgi
og því verði auðveldara fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga að taka fé
að láni. Þannig hyggjast þeir auka
eftirspurn og örva hagvöxt.
Talið er næsta víst að flestir bank-
ar fylgi í kjölfarið og lækki vexti, og
jafnframt er talið líklegt að vextir á
alþjóðlegum peningamarkaði komi
á eftir.
Viðbrögðin á gjaldeyrismörkuð-
um í Evrópu og Japan við lækkun
forvaxta í Bandaríkjunum voru ekki
mikil, og að sögn fjármálasérfræð-
inga þar var búist við þessari vaxta-
lækkun. Talsmenn japanska seðla-
bankans sögðu í gærmorgun að eng-
in ástæða væri til að lækka vexti í
Japan og talsmaður þýska seðla-
bankans sagðist ekkert vilja segja
um vangaveltur um hvort vextir
yrðu lækkaðir í Þýskalandi.
Spákaupmenn og fjármálasér-
fræðingar telja þó líklegt að vextir
verði lækkaðir í báðum þessum lönd-
um á næstunni.
UTLOND
Birgir Guömundsson
Stokkhólmsráöstefnan:
EFTIRUT NÁI
EKKITIL
LOKAÐRA SVÆDA
- Sovétmenn
Sovéska sendinefndin á Afvopn-
unarráðstefnunni í Stokkhólmi
hefur nú dregið nokkuð úr áhrifa-
mætti viðurkenningar sinnar á að
leyfa „eftirlit á staðnum" með
heræfingum Sovétmanna. Fyrr í
vikunni sögðust þeir reiðubúnir til
að leyfa slíkt eftirlit tvisvar á ári,
en nú hafa þeir túlkað það þannig
að slíkt eftirlit næði ekki til svokall-
aðra „lokaðra svæða“, en þau ná
til víðáttumikilla landsvæða austan
járntjaldsins.
Vestrænir hernaðarsérfræðingar
hafa sagt að tilraun Sovétmanna til
að halda lokuðu svæðunum utan
hugsanlegs samkomulags þýddi í
raun, að ekkert gagn yrði af slfku
samkomulagi. Nefna þeir í því
sambandi, að t.d. nái lokað svæði
yfir u.þ.b. 2/3 hluta Austur-Þýska-
lands, á sama tíma og sambærileg
„lokuð svæði" hjá versturveldun-
um nái ekki yfir nema hluta flug-
valla. Embættismenn hjá NATO
draga í land
sögðu í gær að þessi tilraun Sov-
étmanna til að halda lokuðum
svæðum utan samkomulagsins um
upplýsingaflæði og eftirlit kæmi
ekki á óvart og að þeir væru
tilbúnir til að viðurkenna slíka
hugmynd, svo framarlega sem
þessi lokuðu svæði væru ekki stór.
Einn embættismanna NATO
sagði: „Við höfum ailtaf gert okkur
grein fyrir því að þetta yrði vanda-
mál, því sérhver þjóð hefur á að
skipa viðkvæmum búnaði sem ekki
er hægt að leyfa öðrum að skoða.
Vandinn er að ná samkomulagi um
stærðargráðu þessara svæða.“
Fulltrúar á ráðstefnunni hafa nú
um mánuð til að komast að sam-
komulagi en ráðstefnunni lýkur
þann 19. september. Hún hófst í
janúar 1984 og hefur starfað með
hléum síðan, en tilgangurinn er að
efla traust og finna leiðir til að
forðast kjarnorkustríð í Evrópu af
slysni eða misskilningi.
fyrirrennara síns.
Hinn gamli baráttujaxl, sem tvisv-
ar hefur fallið í ónáð flokksins en
aftur verið kallaður til forystu, hefur
tileinkað sér sinn eigin stíl og leggur
mikla áherslu á getu og kunnáttu sér
miklu yngri manna til að taka við
stjórn landsins þegar hann er allur.
Ein kenning Xiaopings, sem sjald-
an heyrist, er sú að hann eigi langa
lífdaga að þakka köldum sturtuböð-
um sem hann fer reglulega í, en
sturturnar hafa þó ekki alveg bjarg-
að honum frá ýmsurn einkennum
ellinnar og er hann nú hálf heyrnalaus
og á til að stama svolítið þegar hann
heldur ræður opinberlega. Erlendir
leiðtogar sem sótt hafa hann heim
eru þó sammála um að hann hafi
engu tapað af andlegri snerpu.
Að undanförnu hefur það af og til
borið á góma hvenær hann hyggist
draga sig í hlé, og nú síðast í síðasta
mánuði voru um þetta vangaveltur
þegar hann ásamt fleiri leiðtogum
kínverska kommúnistaflokksins
voru í sumarfríi í smábænum Beida-
ihe. Kommúnískt dagblað í Hong
Kong greindi þá frá því, að Xiaoping
hafi vakið máls á því að hann
hygðist draga sig í hlé, en félagar
hans hafi ekki tekið það í mál þar
sem hann væri enn við hestaheilsu.
Hinn aldni leiðtogi á þá að hafa
spurt hvort væri betra fyrir Kína, að
hann drægi sig í hlé meðan hann væri
enn við sæmilega heilsu eða að hann
sæti í leiðtogasætinu þar til hann
sofnaði í því svefninum langa.
Sérfræðingar í málefnum Kína
hafa bent á að Xiaoping muni að
öllum líkindum draga sig í hlé á 13.
þingi kommúnistaflokksins, sem
verður haldið á næsta ári. Jafnframt
er bent á að hver svo sem niðurstað-
an verði úr þeirri uppstokkun á
flokksforustunni sem fylgir í kjölfar-
ið sé trúlegt, að áfram verði Xiao-
ping einhver áhrifamesti pólitíkus-
inn t' Kína.
Hyggjast
senda
„grænhúfur"
til að þjálfa
Contra*
skæruliða
Bandaríkjastjórn hyggst senda
hersveitir til Mið-Ameríku
eftir 1. október, þegar nýtt fjár-
hagsár hefst, til þess að þjálfa
skæruliða frá Niqaragua, sam-
kvæmt uplýsingum sem banda-
ríska stórblaðið New York Times
hefur aflað sér.
Blaðið greinir frá þessu í frétt
í gær og segir ennfremur að
sérsveitir úr Bandart'kjaher,
„grænhúfurnar" svokölluðu,
muni verða sendar á vettvang, en
þessar sveitir sérhæfa sig í skæru-
hernaði. Þjálfunarverkefni þetta
verður fjármagnað af þeim 100
milljón dollurum sem þingið hef-
ur samþykkt að veitt skuli til
aðstoðar Contra-skæruliðunum,
þó enn eigi eftir að ganga endan-
lega frá þeirri fjárveitingu í þing-
inu áður en hún verður að lögum.
New York Times hefur eftir
háttsettum cmbættismanni í Was-
hington að auk þess að þjálfa
Contra-skæruliðana í skæruhern-
aði verði þeir þjálfaðir í því að
reyna að vinna hylli fólks. „Til-
gangurinn er að grafa undan
stjórn Sandinista, og neyða þá til
að deila stjórn landsins nteð fleir-
um,“ sagði þessi embættismaður
Bandaríkjastjórnar.
BOYTHORPE
Fóðurturnar og vélbúnaður
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið
BÆND UR
Munið að umsóknarfrestur
vegna stofnlána rennur út
15. september.
Veitum allar upplýsingar og fyrirgreiðslu
^ búnabardeilo
SPSAMBflHBSIHS
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900