Tíminn - 22.08.1986, Side 15
Tíminn 19
Föstudagur 22. ágúst 1986
lllllllllllllllllllllll HELGIN FRAMUNDAN llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll
STELLA í
ORLOFI
Kvikmyndafélagið UMBI hefur
nýlokið við að taka kvikmyndina
STELLA í ORLOFI. Myndatakan
hófst í byrjun júnímánaðar og var
myndin að mestu leyti tekin í
Reykjavík og nágrenni.
Rúmlega eitt hundrað manns
koma fram í myndinni, en stærstu
hlutverkin eru í höndum Eddu
Björgvinsdóttur, Þórhalls Sigurðs-
sonar (Ladda), Gests E. Jónasson-
ar og Ásu Hlínar Svavarsdóttur,
en auk þeirra koma fram fjölmarg-
ir aðrir íslenskir gamanleikarar.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir og handrit er eftir Guðnýju
Halldórsdóttur.
Áætlað er að frumsýna myndina
18. október n.k.
Það er líf í tuskunum í gamanmyndinni „Stella í orlofi“. Það er aðalleikkona myndarinnar, Edda
Björgvinsdóttir sem sést hér í góðum félagsskap.
Tónlistarfólkið fyrir utan Landakotskirkju.
TOÐUGJOLD
í Landakotskirkju
Sunnudaginn 24. ágúst verða haldnir söng- og hljómsveitartónleikar
í Landakotskirkju. Á efnisskránni eru: Winternacht eftir Hans Abra-
hamsen, Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Mahler og Klarinettkons-
ert Mozarts.
Einsöngvari á tónleikunum er Ragnheiður Guðmundsdóttir og ein-
leikari á klarinett er Guðni Franzson. Hljómsveitinni stjórnar Hákon
Leifsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
KALDILÆKUR
í Ólafsvík
MYNDLISTAR-
SÝNING
Um síðustu helgi var opnuð sýn-
ing á verkum Kjartans Guðjónsson-
ar í Kaldalæk i Ólafsvík. Kjartan var
lengi í stjóm Norræna listbanda-
lagsins og hefur sýnt á vegum þess
í öllum höfuðborgum Norðurlanda
og víðar.
Myndimar er Kjartan sýnir á
Kaldalæk em grafík- og vatnslita-
myndir.
Sýningin er opin kl. 15.00-23.00
fimmtudaga til sunnudaga og .
stendur til 7. september.
- Þessi hlið upp.
SUMARSÝNING
Listasafns A.S.Í
Sumarsýning Listasafns A.S.Í.
lýkur á sunnudag, 24. ágúst. Á
sýningunni eru 40 verk í eigu
safnsins. Opið er kl. 14.00-18.00
virka daga, en kl. 14.00-22.00
laugardag og sunnudag. Þetta er
síðasta sýningarhelgi Sumarsýn-
ingar.
Alda Sveinsdóttir
(Tímamynd-Sverrir)
ALDA SÝNIR
í Ingólfsbrunni
Alda Sveinsdóttir sýnir vatns-
lita- og Akrylmyndir í Ingólfs-
brunni, Aðalstræti 9 dagana 9.
ágúst til 12. september kl. 09.00-
18.00, en lokað er um helgar.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Ij
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Í
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Halla Haraldsdóttir, myndlist armaður.
MYNDLISTARSÝNING
í Hótel Örk
Halla Haraldsdóttir myndlist-
armaður sýnir 19 glerverk og
nokkur málverk í Hótel ÖRK í
Hveragerði. Hér er um að ræða
verk sem unnin voru á síðustu
tveimur árum og eru öll verkin til
sölu, en þeim hefur verið komið
fyrir í veitingasölum og anddyri.
Listamaðurinn er Hvergerðing-
um að góðu kunnur þar sem
gluggi í Hveragerðiskirkju er eft-
ir Höllu.
Árið 1978 fengu hinir kunnu
D.H. Oidtman-bræður Höllu Har-
aldsdóttur til samstarfs við sig,
í Hveragerði
en þeir eru þekktir víða um heim
sem eigendur eins virtasta gler-
og listiðnaðarverkstæðis Þýska-
lands.
Mesta viðurkenning sem
Halla Haraldsdóttir hefur hlotið
ytra er þegar ein mynda hennar
„ Hvít rós “ var valin á jólakort af
hálfu Kiefel-forlagsins, sem gef-
ur út kort fyrir lútherstrúar-
menn. Valið var úr þúsundum
mynda. Sýningin stendur í
nokkrar vikur og öllum heimill
aðgangur.
- Þú veröur nú aö senda
Snata í megrun!
STUÐ-
MENN
á Norðurlandi
Stuðmenn hafa að undanförnu
verið á ferð um Norðurland og
skemmt fólki þar, þeir halda því
áfram um þessa helgi, en áætlun
þeirra er sem hér segir: Þeir leika
í Víkurröst á Dalvík á föstudags-
kvöld, en það er í fyrsta skipti sem
hljómsveitin leikur fyrir Dalvíkinga.
Á laugardagskvöld leika þeir að
Skjólbrekku í Mývatnssveit. Á
sunnudagskvöld verða Stuðmenn
i Sjallanum á Akureyri, en á
mánudagskvöld í Dynheimum á
Akureyri, á þriðjudagskvöld í
Hrísey og miðvikudagskvöld á
Vopnafirði.
STUÐMENN (Tínuunynd-Pétur)