Tíminn - 13.09.1986, Blaðsíða 4
Britt Ekland og „leikfangið
hennar“, eins og hann Jim
hennar er stundum kailaöur.
Þeir svartsýnustu spáðu
ekki langri sambúð hjá þeim,
en allt virðist vera í fínasta
iagi með samkomulagið á
heimilinu.
Laugardagur 13. september 1986
Diana og Karl prins stinga saman nefjum, en hún var þarna að óska
honum velgengni í polóleik.
„KOSSINN" - Giæsimennið Rhett Butler (Clark Gable) fær jáyrði
Scarlett O’Hara (Vivian Leigh) í myndinni „Gone With The Wind“
„Fimmtugi kossinn"
Þaö er alltaf veriö aö kyssast, og svo hefur víst verið lengi, - hve lengi þorum við ekki að áætla. En frægasti
kvikmyndakossinn er þó orðinn fimmtugur. Það eru sem sagt 50 ár, síðan bókin „Á hverfanda hveli“ (Gone With The Wind)
kom út og síðan var kvikmynd gerð fljótlega eftir bókinni. Þar þótti koss, sem Clark Gable kyssti Vivian Leigh (en það
voru þau Rhett Butler og Scarlet O’Hara í myndinni), svo frábær, að hann var kallaður „KOSSINN” eins og aldrei hefði
verið kysst fyrr í kvikmynd.
í nýju ensku blaði var myndasíða, þar sem sýndar voru margar kossamyndir. Þær eru nokkuð skemmtilegar, því þarna
má sjá ýmsar kossa-tegundir.
og „nútímakossar" af
ýmsum gerðum
Joan Collins og Peter
Holmes (sem sumir
kalla reyndar Mr.
Joan Collins) eru hér
nýgift og lukkuleg, -
Já, „vöðvabúnt-
in“ kyssa líka, þó
erfitt sé að finna
varirnar þegar
hetjan er upptek-
in í líkamsrækt-
inni. Sly Stallone
samþykkti að láta
taka kossamynd
af Brigittu sinni
og sér, - ef það
passaði inn
æfingarnar, - og
það tókst alveg
prýðilega.
Hann Denis Thatc-
her segir:-Ég er sá
eini sem má kyssa
forsætisráðherra
Bretlands, án þess
að eiga á hættu að
löggan komi og
stingi mér inn!
Farrah Fawcett og maður hennar Ryan O’Neal eru þekkt fyrir mikið skap og
tilfinningahita. Hér kyssast þau af miklum móð og skála í kampavfni.
Hvað er þarna að gerast? Bkki vitum
við það, en herrarnir eru Anthony
Newley og Dudley Moore.
UTLÖND
’Mmm
■
MOSKVA — Stjórnarfjöl-
miðlar í Sovétríkjunum hafa
nú í fyrsta skipti viðurkennt að
Daniloff málið, mál bandaríska
blaðamannsins sem handtek-
inn var í Moskvu um mánaða-
mótin síðustu fyrir njósnir,
kunni að hafa áhrif á það hvort
eitthvað verður af fundi með
leiðtogum stórveldanna, þeim
Reagan Bandaríkjaforseta og
Gorbachev leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins.
BEIRUT — Vopnaðir menn
rændu í gær 55 ára gömlum
Bandaríkjamanni, sem var
starfsmaður ameríska há-
skólaspítalans í Vestur-Beirút.
Á sama tíma sat ríkisstjórnin í
Líbanon á rökstólum til að
ræða leiðir til að binda enda á
11 ára borgarastyrjöld í land-
inu.
KABUL — Sovéskir og af-
ganskir herþotuflugmenn eru
nú í þjálfunaræfingum til að
komast undan gagnflugvéla-
eldflaugum, sem ekki er enn
vitaö til að afganskir uppreisn-
armenn hafi yfirráð yfir. Hins
vegar þykir það Ijóst að ef þeir
ráða yfir slíkum flaugum, kunni
þeir ekki að nota þær á réttan
hátt.
VARSJA- Ásamatima og
á þriðja hundruð pólskar fjöl-
skyldur búa sig undir að taka á
móti ástvinum sínum, sem
látnir verða lausir úr fangelsi
um helgina undir lagaákvæði
um sakaruppgjöf til handa pól-
itískum föngum, hafa pólsk
stjórnvöld varað pólska presta
vio því að vera að skipta sér að
pólitík. Hætti þeir því ekki,
segja stjórnvöld að þeir gætu
hrundið af stað nýrri öldu fang-
elsana af pólitískum toga.
KARACHI — Rannsóknar-
menn sem vinna að því að
upplýsa ýmis atriði varðandi
flugránið á Karachiflugvelli í
Pakistan fyrir rúmri viku, nota
nú lygamæli í yfirheyrslum sín-
um á manni sem handtekinn
hefur verið í tengslum við
ránið. Maðurinn, sem heitir
Sulman Tarkki, hefur sagst
vera palestínskur flóttamaður
en er með líbýskt vegabréf.
JÓHANNESARBORG
- Baráttumenn fyrir mannrétt-
indum í Suður-Afríku sökuðu
stjórnvöld um það að fara með
ungt þeldökkt fólk í svokallaðar
„viðhorfaendurhæfingarbúðir"
eftir að þeim hafi verið haldið
föngnum um nokkurt skeio
undir ákvæðum neyðarlag-
anna. Fólk mun „heilaþvegið"
í slíkum búðum áður en því er
sleppt.
SEOUL — Kaþólskir prestar,
prestar mótmælenda og búdd-
ískir munkar eru meðal þeirra
sem skipað hafa sér í flokk
andstöðuafla gegn ríkisstjórn
Chun Doo Hwans forseta sem
nú er í óða önn að undirbúa
það að Asíuleikarnir verði
haldnir í Suður-Kóreu.
Punta Del Este, Uruguay
- Formaður ráðstefnunnar
sem haldin verður í Punt Del
Este í Uruguay í næstu viku
um tolla og viðskipti í heimin-
um (GATT-viðræðurnar) hefur
varað við því að ef ekki náist
samkomulag í viðræðunum
aukist verulega hættan á því
að alþjóðleg viðskiptamál
brotni upp í smærri einingar og
verndar og haftastefna verði
ofaná í alþjóðaviðskiptum.
Slíkt muni hins vegar leiða til
alþjóðlegrar kreppu.