Tíminn - 13.09.1986, Blaðsíða 19
Laugardagur 13. september 1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Kennarahjónin Kitty og Tom Higdon voru of róttæk fyrir smekk
skólanefndarinnar í þorpinu, sem rak þau. Þá fóru nemendur þeirra í
vcrkfall. Þetta gerðist 1914.
Sjónvarp mánudag kl. 21.45:
Uppreisnin í skólanum
- um sannsögulega atburði
Allt og sumt:
Suðurnesjamenn
velja lög
Þáttur Helga Más Barðasonar,
Allt og sumt er á sínum stað á
dagskrá Rásar 2 á mánudaginn kl.
16-18.
í þessum þætti eru leikin óska-
lög, sem hlustendum á vissum
stöðum á landinu gefst kostur á að
velja á hverjum tíma. Allt og sumt
sem þeir þurfa að gera er að
hringja í síma 91-68 71 23 kl. 12-13
sama dag og þættinum er útvarpað
og bera fram óskir sínar um að fá
að heyra gömul uppáhaldslög eða
lög sem þeir hafa ekki heyrt lengi.
Meiningin er nefnilega sú að halda
sig frekar við lög sem ekki eru
daglegir gestir á öldum ljósvakans.
1 þetta skipti er röðin komin að
Ketlvíkingum, Grindvíkingum,
Njarðvíkingum og íbúum Gull-
bringu- og Kjósarsýslu að velja sér
lög.
Mánudagsleikrit Sjónvarpsins
greinir frá atburðum sem áttu sér
stað í Bretlandi 1914 og leiddu til
lengsta verkfalls sem sögur fara af
þar í landi. Það nefnist á íslensku
Uppreisnin í skólanum og sýning
þess hefst ki. 21.45.
Það má kalla það stéttastríð
þegar skólabörnin í Burston í
Norfolk, Englandi, lögðu niður
vinnu 1914 til að mótmæla brott-
rekstri kennara sinna Toms og
Kitty Higdon. Þau hjón höfðu lent
í andstöðu við heldra fólkið þar um
slóðir með boðskap sínum um
„kristilegan sósíalisma". Með að-
stoð verkfallssjóðs var öðrum skóla
komið á laggirnar og þar kenndu
þau hjón til ársins 1939.
Með aðalhlutverk fara Eileen
Atkins, Bernard Hill og John
Shrapnel. Leikstjóri er Norman
Stone. Þýðandi er Kristmann Eiðs-
son.
Helgi Már Barðason.
Útvarp mánudag kl. 20.40:
Þættir úr sögu Evrópu
1945-1970
Jón Þ. Þór segir frá ýmsum þáttum
í sögu Evrópu 1945-1970.
Á mánudagskvöld kl. 20.40 flyt-
ur Jón Þ. Þór þriðja erindi sitt um
sögu Evrópu 1945-1970.
Vestur-Evrópa er þar einkum
höfð í sjónmáli en Austur-Evrópu
er getið til samanburðar. í þáttun-
um er lýst lífsháttum og lífskjörum
manna á tímabilinu 1945-1970,
uppbyggingunni eftir stríð og
tireytingum á lífsháttum manna og
neyslu sem henni fylgdi á vestur-
löndum. Sagt verður frá hruni hins
breska heimsveldis og uppbygg-
ingu velferðarkerfisins. í þessum
þætti verður líka getið samgöngu-
byltingarinnar og ferðamennsk-
unnar scm fylgdi í kjölfarið.
Laugardagur
13. september
17.30 íþróttir Umsjónarmaöur Bjarni Felix-
son.
19.20 Ævintýri frá ýmsum löndum (Story-
book International) 9. Forboönu dyrnar.
Myndaflokkur fyrir börn. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir. Sögumaður Edda
Þórarinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Fyrirmyndarfaðir (The Cosby
Show). Sautjándi þáttur. Bandariskur
gamanmyndaflokkur i 24 þáttum. Aðal-
hlutverk: Bill Cosby og Phylicia Ayers-
Allen. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.05 Sexurnar (Boeing-Boeing) Banda-
rísk gamanmynd frá 1965 gerð eftir
samnefndu leikriti eftir Marc Camoletti.
Leikstjóri John Ftich. Aðalhlutverk: Tony
Curtis, Jerry Lewis og Thelma Ritter.
Fréttaritari i Paris á vingott við þrjár
flugfreyjur. Allt gengur að óskum þar til
áætlanir stúlknanna fara úr skorðum og
starfsbróðir fréttamannsins reynir að
gera sér mat úr ástandinu. Þýðandi
Baldur Hólmgeirsson.
22.45 lllvirki og fórnarlamb. (Tadort: Tag-
er und Opfer) Þýsk sakamálamynd gerð
fyrir sjónvarp. Leikstjóri llse Hoffmann.
Aðalhlutverk: Karin Anselm, Christoph
M. Ohrt og Maja Maranow. Ung stúlka
hafnar aðstoð lögreglunnar og maöur
finnst myrtur í bifreið sinni. Hanna Wieg-
and lögregluforingi, sem annast rann-
sókn málsins, kemst fljótlega á snoðir
um undarleg tengsl stúlkunnar og hins
látna. Þýðandi Veturliði Guðnason.
00.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
14. september
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Andrés, Mikki og félagar. (Mickey
and Donald) 20. þáttur. Bandarískteikni-
myndasyrpa frá Walt Disney. Þýðandi
Ólöf Pétursdóttir.
18.35 Bjargið Endursýning. íslensk sjón-
varpsmynd sem tekin var að vorlagi í
Grímsey. Nokkur börn fá að fara í fyrsta
sinn í eggjaferö út á bjarg. ÞulurHallgrím-
ur Thorsteinsson. Umsjón og stjórn: Elin
Þóra Friðfinnsdóttir. Áður sýnd í Sjón-
varpinu vorið 1983.
19.15 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Frá Listahátíð í Reykjavik 1986.
Vinarstrengjakvartettinn leikur
Strengjakvartett ópus 3 eftir Alban Berg.
Stjórn upptöku: Tage Ammendrup.
21.15 Masada. Sjötti þáttur. Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur. Aðalhlutverk
Peter Strauss, Peter O'Toole, Barbara
Carrera, Anthony Quayle og David
Warner. Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.051 sjón og raun - Sigurður Nordal
Endursýning. Séra Emil Björnsson ræðir
við dr. Sigurð Nordal prófessor sem talar
opinskátt um lif sitt og ævistarf á sviði
islenskra fræða og bókmennta. Þátturinn
var frumsýndur árið 1969.
23.00 Dagskrárlok
Mánudagur
15. september
19.00 Úr myndabókinni 19. þáttur Endur-
sýndur þáttur frá 10. september.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Poppkorn Tónlistarþáttur fyrir tán-
inga. Gísli Snær Erlingsson og Ævar Örn
Jósepsson kynna músikmyndbönd.
Samsetning: Jón Egill Bergþórsson.
21.10 (þróttir. Frá Evrópumótinu i frjálsum
íþróttum í Stuttgart. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
21.45 Uppreisnin í skólanum (The Bur-
ston Rebellion) Bresk sjónvarpsmynd
um sannsögulega atburði. Leikstjóri
Norman Stone. Aðalhlutverk: Eileen
Atkins, Bernard Hill og John Shrapnel.
Árið 1911 voru hjónin Kitty og Tom
Higgins ráðin til að kenna við barna-
skóla í Burstonþorpi eí Norfolkhéraöi.
Þau reyndust róttækari í skoðunum en
skólanefndinni likaði svo að þeim var
vikið frá störfum. Þá gripu skólabörnin til
aðgerða sem urðu upphaf lengstu vinnu-
deilu i sögu Breta, Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
23.13 Fréttir i dagskrárlok
^fekkL
bríngau
straT
686300
Tíminn 19
Laugardagur
13. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
7.30 Morgunglettur. Létt tónlist.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Fréttir á ensku.
8.35 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
8.45 Nú er sumar Hildur Hermóðsdóttir
hefur ofan af fyrir ungum hlustendum.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.20 Óskalög sjúklinga Helga Þ.
Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar a. „Morgunsöngur
trúðsins" eftir Maurice Ravel. Cécile
Ousset leikur á píanó. b. „Lærisveinn
galdrameistarans" eftir Paul Dukas. Su-
isse Romande hljómsveitin leikur; Ernest
Ansermet stjórnar.c. Tvær rómönsur op.
28 eftir Wilhelm Stenhammar. Arve Tel-
efsen leikur á fiðlu með Sinfóniuhljóm-
sveit sænska útvarpsins. Stig Wester-
berg stjórnar.
11.00 Frá útlöndum Þáttur um erlend máf
efni í umsjá Páls Heiðars Jónssonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Af stað Sigurður T. Björgvinsson sér um
umferðarþátt.
13.50 Sinna Listir og menningarmál líðandi
stundar. Umsjón: Þorgeir Olafsson.
15.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Frá (slandsmótinu i knattspyrnu.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Á hringveginum. Brot úr þáttum
sumarsins frá Austurlandi. Umsjón: Inga
Rósa Þórðardóttir.
17.03 Barnaútvarpið Umsjón: Vernharður
Linnet Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.40 Frá tónleikum í Norræna húsinu
10. januar sl. Svava Bernharðsdóttir
leikur á viólu og Davíð Knowles á sembal
og píanó.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Hljóð úr horni Umsjón: Stefán
Jökulsson.
20.00 Sagan: „Sonur elds og isa“ eftir
Johannes Heggland Gréta Sigfúsdóttir
þýddi. Baldvin Halldórsson les (9).
20.30 Harmoníkuþáttur Umsjón: Högni
Jónsson.
21.00 Þegar ísafjörður fékk kaupstaðar-
réttindi. Umsjón: Finnbogi Hermanns-
son. (Aður útvarpað 18. ágúst sl.)
21.40 íslensk einsöngslög Snæbjörg
Snæbjarnardóttir syngur lög eftir Jón
Björnsson og Eyþór Stefánsson; Ölafur
Vignir Albertsson leikur á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Laugardagsvaka Þáttur i umsjá Sig-
mars B. Haukssonar.
23.30 Danslög
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn
Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00.
&
Laugardagur
13. september
10.00 Morgunþáttur I umsjá Kristjáns Sig-
urjónssonar.
12.00 Hlé
14.00 Við rásmarkið. Þáttur um tónlist,
íþróttir og sitthvað fleira. Aðalefni þáttar-
ins er lokaumferð fyrstu deildar íslands-
mótsins i knattspyrnu. Umsjón: Sigurður
Sverrisson ásamt iþróttafréttamönnun-
um Ingólfi Hannessyni og Samúel Erni
Erlingssyni.
17.00 (þróttafréttir.
17.03 Nýræktin Snorri Már Skúlason og
Skúli Helgason stjórna þætti um nýja
rokktónlist, innlenda og erlenda.
18.00 Hlé.
20.00 Bylgjur Ásmundur Jónsson og Árni
Daniel Júlíusson kynna framsækna rokk-
tónlist.
21.00 Djassspjall Vernharður Linnet sér
um þáttinn.
22.00 Framhaldsleikrit: „Eyja í hafinu“
eftir Jóhannes Helga Leikstjóri: Þor-
steinn Gunnarsson. Fimmti þáttur:
„Lyngið er rautt". (Endurtekið frá sunnu-
degi, þá á rás eitt). (Áður útvarpað 1975).
22.55 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Á næturvakt með Gunnlaugi Sig-
fússyni.
03.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
14. september
8.00 Morgunandakt Séra Sigmar Torfa-
son prófastur á Skeggjastöðum i Bakka-
firði flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Lesiðúrforustugreinum
dagblaðanna. Dagskrá.
8.30 Fréttir á ensku.
8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Helmuts
Zacharias leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar. a. „Suite cortes-
ana" nr. 1 eftir óþekkt spánskt tónskáld.
Karel Paukert leikur á orgel. b. „Ertage
nur das Joch der Mangel", kantata eftir
Georg Philipp Telemann. Kurt Equiluz
syngur. Burghard Schaeffer, Erdmute
Bocher, Uwe Peter Rehm og Karl Grebe
leika með á flautur. selló og sembal. c.
Flautukonserl í G-dúr eftir Friðrik mikla.
Manfried Friedrich og „Carl Philipp Em-
anuel Bach" - kammersveitin leika: Hart-
mut Haenchen stjórnar. b. Sinfónía í
B-dúr op. 9 nr. 1 eftir Johann Christian
Bach. Nýja filharmóníusveitin leikur;
Raymond Leppard stjórnar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Umsjón: Friðrik Páll
Jónsson.
11.00 Messa f Dómkirkjunni í Reykjavik.
Dr. Emilio Castro framkvæmdastjóri Al-
kirkjuráðsins predikar. Séra Þórir Step-
hensen og séra Hjalti Guðmundsson
þjóna fyrir altari. Orgelleikari: Marteinn H.
Friðriksson.
Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 „Til íslands og lífsins leyndar-
fullu dórna" Samfelld dagskrá á aldaraf-
mæli Sigurðar Nordals. Gunnar Stefáns-
son tók saman.
14.30 Miðdegistónleikar a. „Dans hinna
sælu sálna“ úr óperunni „Orfeusi og
Evridis" eftir Christoph Willibald Gluck.
Julius Baker leikur á flautu með hljóm-
sveit Ríkisóperunnar í Vínarborg; Felix
Prohaska stjórnar.b. Rómansa nr. 2 i
F-dúr op. 50 eftir Ludwig van Beethoven.
Igor Oistrakh leikur á fiölu með Gewand-
haus-hljómsveitinni i Leipzig; Franz
Konwitschny stjórnar. c. Hornkonsert nr.
3 í E-dúr K. 447 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Barry Tuckwell og St. Martin-in-
the-Fields hljómsveitin leika. Neville Mar-
riner stjórnar. d. „Hjörð í sumarsælum
dölum", úr kantötu nr. 208 eftir Johann
Sebastian Bach. Leon Goossens.
Edward Walker, Georg Crozier og Georg
Thalben-Ball leika á óbó flautur og orgel.
e. „Ave Maria" eftir Franz Schubert.
Leontype Price syngur með Fílharmóníu-
sveitinni í Vínarborg; Herbert von Karaj-
an stjórnar.
15.10 Alltaf á sunnudögum Svavar Gests
velur, býr til flutnings og kynnir efni úr
gömlum útvarpsþáttum.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Kristnitakan á Alþingi og aðdrag-
andi hennar. Jónas Gíslason dósent
flytur erindi. (Hljóðritað i Þingvallakirkju í
iúní í sumar).
17.00 Kammertónlist eftir Ludwig van Be-
ethoven. a. Trió nr. 7 i B-dúr. Daniel
Barenboim, Pinchas Zukerman og Jacq-
ueline du Pré leika á pianó, fiðlu og selló.
b. Sónata nr. 29. i B-dúr op. 106
(Hammerklavier) i hljómsveitarbúningi
Felix von Weingartners. Sinfóníuhljómsveit
austurríska útvarpsins leikur; LotharZag-
rossek stjórnar. (Hljóðritun frá austur-
ríska útvarpinu) v'
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Einsöngur í útvarpssal Svala Niels-
en syngur lög eftir Jón Ásgeirsson.
Ólafur Vignir Albertsson leikur með á
píanó.
ilAf
Sunnudagur
14. september
13.30 Krydd í tilveruna. Inger Anna Aikm-
an sér um sunnudagsþátt meö afmælis-
kveðjum og léttri tónlist.
15.00 Tekið á rás. Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson lýsa siðari hálf-
leikjum i lokaumferö annarrar deildar
Islandsmótsins í knattspyrnu.
16.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö.
Gunmaugur Helgason kynnir þrjátíu
vinsælustu lögin.
18.00 Dagkskrárlok.
Mánudagur
15. september
9.00 Morgunþáttur i umsjá Ásgeirs Tóm-
assonar, Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar. Elisabet
Brekkan sér um barnaefni kl. 10.05.
12.00 Hlé.
14.00 Flugur. Þorgeir Ástvaldsson kynnir
ný og gömul dægurlög.
16.00 Allt og sumt. Helgi Már Barðason
stjórnar þætti með tónlist úr ýmsum
áttum, þ.á.m. nokkrum óskalögum hlust-
enda í Gullbringu- og Kjósarsýslu og
kaupstöðunum Keflavík, Grindavik og
Njarðvik.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00, 10.00, 11.00,
15.00, 16.00 og 17.00.
17.03 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og
og nágrenni. Stjórnandi: Sverrir Gauti
Diego. Umsjón með honum annast: Sig-
urður Helgason, Steinunn H. Lárusdóttir
og Þorgeir Ólafsson. Útsending stendur
til kl. 18.00 og er útvarpað með tíðninni
90,1 MHz á FM-bylgju.
17.03 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni. Umsjónarmenn: Finnur Magn-
ús Gunnlaugsson og Örn Ingi. Útsending
stendur til kl. 18.30 og er útvarpaö með
tíðninni 96,5 MHz á FM-bylgju á dreifi-
kerfi rásar tvö.