Tíminn - 13.09.1986, Blaðsíða 9
Laugardagur 13. september 1986
Húsnæðismál - Ályktun
Samband ungra framsóknar-
manna fagnar þeim áföngum sem
felast í hinum nýju lögum um
Húsnæðisstofnun ríkisins, en jafn-
framt vill SUF benda á nokkur
atriði sem þarf að lagfæra í hinum
nýju lögum og reglugerð sem þeim
fylgja.
SUF álítur að með því að fela
Húsnæðisstofnun að hafa umsjá
með stærri hluta af fjármagni líf-
eyrissjóðanna en áður, þá skapist
möguleikar til markvissari stjórn-
unar á því fjármagni sem fer til
húsnæðismála.
Pá skapar hið nýja fyrirkomulag
þægindi hjá lántakendum að geta
fengið húsnæðislán á einum stað,
jafnframt því sem strangari kröfur
um kostnaðar og greiðsluáætlun lán-
taka skapa öryggi hjá bæði lántök-
um og lánveitendum. Forgangs-
réttindi þeirra sem eru að eignast
íbúð í fyrsta sinn og hátt lánshlut-
fall til þeirra ásamt lcngri lánstíma
skapar mjög bættar aðstæður hjá
þessum aðilum til að fá þak yfir
höfuðið.
SUF vill að því ákvæði um
lánsrétt vegna veru og greiðslu í
lífeyrissjóði síðastliðin tvö ár verði
breytt í ákvæði um uppsafnaðar
greiðslur í tvö ár. SUF vill að þetta
ákvæði verði haft inni tímabundið
á meðan aðlögun að nýju húsnæð-
islánakerfi á sér stað. Jafnframt vill
SUF hvetja ungt fólk til sparnaðar
á húsnæðisreikningum svo það hafi
nægilegt byrjunarfjármagn við
kaup á húsnæði.
I kjölfar ákvörðunar um bann
við vísitölubindingu launa frá árinu
1983 og þeirri kjaraskcrðingu sem
fylgdi, þá sköpuðust miklir
greiðsluerfiðleikar á húsnæðislán-
um hjá fjölda launafólks. Þessir
erfiðleikar endurspegluðust í
mismun á hækkun launa annars-
vegar og í lánskjaravísitölu hins-
vegar. Til að koma í veg fyrir
erfiðleika sem þessa í framtíðinni
þá ályktar SUF að höfuðstóll lána
skuli eftir sem áður breytast í takt
við lánskjaravísitölu, en greiðslu-
byrði og afborganir á lánum mið-
ist við launavísitölu. Á þeim tíma-
bilum þegar launavísitala hækkar
minna en lánskjaravísitala þá skal
tilsvarandi upphæð af afborgunum
lána leggjast á höfuðstól og greið-
ast síðar. Greiðslutími lána mun
því lengjst sem þessum mismun á
afborgunum nemur.
SUF álítur að meginmarkmið
húsnæðislána og húsnæðisstefnu sé
að skapa almenningi öruggt og
viðunandi húsnæði á bestu mögu-
legum kjörum og skapa fjölskyld-
um og einstaklingum jafna mögu-
leika til þess búsetu og eignarforms
sem þessir aðilar velja sér.
Eitt það atriði sem gæti jafnað
þann mun sem er á opinberum
stuðningi til þeirra sem eiga hús-
næði og þeirra sem leigja, er að
greiða leigustyrki. Leigjendur eru
oft láglaunafólk sem getur hvorki
eignast íbúð né notið skattaíviln-
ana vegna lágra tekna.
SUF vill benda á fleiri leiðir til
að ná fram markmiðum nýja hús-
næðislánakerfisins. Þar á meðal
einstaklingsbundin lán sem annað
hvort fylgdu einstaklingum á milli
eigna líkt og lífeyrissjóðslán eða
að áhvílandi húsnæðislán verði
gerð upp í hvert sinn sem eign er
seld og öðlist menn þá lánsrétt
strax við næstu húsnæðiskaup.
Nýju lögin um húsnæðisstofnun
verði endurskoðuð nú þegar í þing-
byrjun, þannig að réttur náms-
manna til hámarks lána sé
tryggður, þótt þeir hafi ekki greitt
í lffeyrissjóði síðastliðin 2 ár.
SUF leggur til að ákvæði um
byggingarhraða nýrra íbúða fyrir
Verkamannabústaði sem kveður á
um að byggingartími sé eigi
skemmri en 18 mánuðir. verði fellt
brott og t' staðinn komi ákvæði sem
segi að byggingarfími verði eigi
lengri en 18 mánuðir.
Tíminn 9
<9jO
leikfélag
REYKJAVlKHR
Leikhússtjóri
Staöa leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur fyrir
tímabiliö 1. september 1987 til 31. ágúst 1990 er
laus til umsóknar. Viðkomandi þarf að geta hafiö
störf að hluta 1. janúar 1987.
Umsóknirsendist formanni Leikfélags Reykjavíkur
í pósthólf 208, 121 Reykjavík, í síðasta lagi 10.
október 1986.
Stjórn Leikfélags Reykjavíkur
£2 9 I
■’ REYKJAVIKURBORG
Staða sálfræðings hjá Dagvist barna í Reykjavík
er laus til umsóknar. Upplýsingar gefur fram-
kvæmdarstjóri og forstöðumaður sálfræðideildar í
símum 27277 og 22360.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum eyðublöðum sem þarfástfyrirkl. 16.00,
mánudaginn 29. sept. ’86.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 SlMI (91) 68M1I
Orðsending til
viðskiptamanna Samvinnutrygginga
Frá 15. september nk. verða skrifstofur okkar í
Ármúla 3, opnar frá kl. 09.00-17.00, mánudaga-
föstudaga.
Frá sama tíma verður umboð Samvinnutrygginga
í Hafnarfirði einnig opið frá kl. 09.00-17.00 dag-
lega.
Samvinnutryggingar g.t.
Ármúla 3,
Sími681411
■S&IH
t
Heilshugar þakkir færum við ykkur öllum er sýndu okkur samúð vegna
andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Ingvars Á. Indriðasonar
frá Arnarholti
og heiðruðu hans minningu. Ykkur er beðið blessunar
Halldóra Jósefsdóttir, börn,
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn
DRATTARYELAR
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Á EFTIRFARANDI VERÐUM
CASEIH 58TXL 2X4 62 hö. Kr. 610.000
CASEIH 68TXL 2X4 72 hö. Kr. 625.000
CASEIH 1394 2X4 77 hö. Kr. 680.000
CASEIH 1394 4X4 77 hö. Kr. 820.000
CASEIH 1494 4X4 75 hö. Kr. 875.000
Allar ofangreindar vélar hafa
Luxus hús með sléttu gólfi
Vökvaskiptingu
Lyftutengdan dráttarkrók
Allur fullkomnasti fáanlegur
búnaður
Væntanlegar
síðar í mánuðinum
CASE IH 485 L
2X4 54 hö.
Kr. 480.000