Tíminn - 17.02.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.02.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminri' FRÉTTAYFIRLIT TYRE, Líbanon — Þús- undir Palestínumanna komu sér út úr Rashidiyeh flótta- mannabúðunum í Suður-Lí- banon annan daginn í röð. Margir þeirra óttuðust nefni- lega að Amalsjítar myndu á ný halda umsátri sínu kringum búðirnar áfram. Byssuhvellir og sprengingar sáu til þess að spenna var mikil kringum tvær aðrar flóttamannabúáir Palest- ínumanna, Bourj Al-Barajneh og Shatila búðirnar í Beirút. BEIRÚT - Loka varð Seðla- bankanum í Beirút eftir að hringt hafði verið og hótað að skjóta sprengjum á hann. Lí- banska pundið lækkaði enn og hafði í gær aldrei verið lægra gagnvart Bandaríkjadal. LUNDÚNIR — Amin Gem- ayel forseti Libanon gat lítið annað en samhryggst Margréti Thatcher forsætisráðherra Bretlands þegar þau hittust í Lundúnum til að ræða hvarf Terry Waite, sendiboða ensku biskupakirkjunnar, og mál ann- arra erlendra gísla í Líbanon. Þetta var haft eftir breskum embættismönnum. MOSKVA — Inna Begun, kona gyðingsins losif Begun sem situr í sovésku fangelsi vegna andófsstarfsemi, sagð- ist ekki vita til þess að manni sínum hefði verið sleppt þrátt fyrir orð háttsetts embættis- manns þar eystra að svo hefði verið gert. MANILA — Hersveitir stjórn- arinnar á Filippseyjum sóru hollustueið við hina nýju stjórn- arskrá landsins sem mikill meirihluti landsmanna sam- þykkti eftir að Corazon Aquino forseti og stjórn hennar lögðu hana undir dóm þjóðarinnar í janúar. JERÚSALEM — John Demjanjuk, sem sakaður er um að hafa verið hinn illræmdi „ívar grimmi“ og pyndað og drepið fjölmarga gyðinga í Tre- blinka búðunum í Póllandi í síðari heimsstyrjöldinni, kom fyrir rétt í ísrael í gær. Lög- fræðingar hans kröfðust þess að hann yrði sendur aftur til Bandaríkjanna. JÓHANNESARBORG — Sjálfstæður hópur sem fylg- ist með framgangi mannrétt- indamála sagði tvö tíu ára börn vera í hópi þeirra 700 blökkubarna sem haldið hefur verið í suður-afrískum fangels- um síðan neyðarástands- lögunum var komið á í júni á síðasta ári. Þriðjudagur 17. febrúar 1987 ÚTLÖND Alþjóðlega friðarráðstefnan í Moskvuborg: Gorbatsjov og Sakharov báðir í sviðsljósinu Moskva - Reuter Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi sakaði Bandaríkjastjórn í gær um að vilja nema úr gildi gagnflaugasátt- málann frá árinu 1972. Gorbatsjov sagði að fulltrúar Reaganstjórnar- innar í afvopnunarviðræðunum í Genf hefðu lagt fram formlegt tilboð þar sem gert væri ráð fyrir svokall- aðri víðari túlkun á sáttmálanum sem myndi gera Bandaríkjamönnum kleift að hraða rannsóknum sínum og tilraunum með geimvarnaráætl- unina. Gorbatsjov hélt þessu fram í ræðu sem hann hélt á alþjóðlegri friðar- ráðstefnu í Moskvu. Þar fundaði fólk frá austantjaldsríkjunum, vest- rænum ríkjum og hlutlausum ríkjum um ýmis mál varðandi frið, aukin samskipti og kjarnorkuógnunina í heiminum. „Kjarnorkuvopnum hefur þegar verið beitt tvisvar, svo ekki sé talað um öll þau atvik þegar menn hug- leiddu möguleikann á að beita þeim. Mannkynið er komið að tímamótum þar sem ekki verður til baka snúið,“ sagði Sovétleiðtoginn í ræðu sinni. Hún snérist ekki eingöngu um víg- búnaðarkapphlaupið heldur einnig um innanlandsmálefni í Sovétríkj- unum og „hinn nýja hugsunarhátt" sem Gorbatsjov hefur lagt svo mikla áherslu á síðan hann komst til valda árið 1985. Meðal þeirra sem hlustuðu á ræðu Gorbatsjovs var nóbelsverðlauna- hafinn og eðlisfræðingurinn Andrei Sakharov sem nýlega var leyft að snúa til Moskvu eftir sjö ára útlegð í Gorkí. Sakharov var mjög í sviðs- ljósinu á ráðstefnunni og áður en Gorbatsjov hélt ræðu sína var hann umkringdur ráðstefnufulltrúum og ljósmyndurum. Sovéska sjónvarpið, sem sjón- varpaði ræðu Gorbatsjovs beint, sýndi myndir af Sakharov í ráð- stefnusalnum án þess þó að nefna hann beint á nafn. Sakharov ásamt öðrum ráðstefnu- gestum klappaði Sovétleiðtoganum lof í Iófa þegar hann sagði að stjórnvöld í Sovétríkjunum ætluðu sér að taka öðruvísi á mannréttinda- málum í framtíðinni heldur en áður hefur verið gert. Alls tóku um 900 útlendingar þátt f ráðstefnunni og 350 sovéskir full- trúar voru einnig á staðnum. Meðal þeirra sem heimsóttu Moskvu voru Yoko Ono, ekkja John Lennons heitins, leikarinn Gregory Peck og rithöfundurinn Graham Greene. (Reuter og APN) Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi: Heldur áfram að stela senunni af Reagan Bandarikjaforseta enda tiltölulega ungur og skýr Bangladesh: Deilt á Ershad með vinnustöðvun Dhaka - Rcutcr Öll vinna og umferð stöðvaðist í sex klukkustundir í gær í Bangla- desh. Það var stjórnarandstaðan sem hvatt hafði til þessa allsherjarverk- falls og sögðu talsmenn hennar að hin mikla þátttaka í mótmælaað- gerðunum táknaði upphafið á bar- áttu fyrir afsögn forsetans, Hossain Mohammad Ershad. Lögregla landsins sagði að stöðv- unin hefði verið „algjör“ en engar fréttir bárust af verulegum átökum. Allt viðskiptalíf lamaðist, skólar lokuðu og umferð stöðvaðist þessar sex klukkustundir. Leiðtogar Awami flokkasam- steypunnar, sem í eru sjö stjórnar- andstöðuflokkar, fögnuðu mjög þátttökunni í verkfallinu og óskaði Begum Khaleda Zia, helsti forvígis- maður flokkanna sjö og aðal- andstæðingur Ershads forseta, fólki til hamingju með að virða að vettugi óskir ríkisstjórnarinnar um að taka ekki þátt í vinnustöðvuninni. Mikill fjöldafundur var haldinn f miðborg höfuðstaðarins Dhaka og þar kröfðust stjórnarandstöðu- leiðtogarnir þess að þing yrði rofið og Ershad forseti segði af sér fyrir 24 mars. Þann dag eru fimm ár liðin síðan forsetinn náði völdum í bylt- ingu sem lauk án blóðsúthellinga. Ershad virtist hinsvegar ekki taka mikið mark á kröfum stjórnarand- stæðinga og sagði fólk enga samúð hafa með „háværum“ röddum þeirra. Einn af leiðtogum Jatiya flokksins, flokks Ershads, sagði stjórnina munu halda áfram „að láta gelt stjórnarandstöðunnar framhjá sér fara“ og bætti við að auð stræti væru ekki mælikvarði á vinsældir. Allsherjarverkfallið í gær fylgir í kjölfar þess að dýrara er orðið að ferðast á milli og einnig hefur póli- tískt ofbeldi aukist t.d. létust þrír stúdentar og 150 aðrir slösuðust í mótmælaaðgerðum í síðustu viku. Ershad forseti kom á borgaralegri stjórn í nóvembermánuði eftir að hafa stjórnað landinu í fjögur og hálft ár með herlögum. Stjórnmála- sérfræðingar sögðu í gær að vinnu- stöðvunin væri ný ógnun við hina þriggja mánaða gömlu ríkisstjórn Ershads en ekki töldu þeir þó líklegt að mótmæli stjórnarandstöðunnar yrðu árangursrík. Ershad forseti Bangladesh: Lætur óánægjuraddir sem vind um eyru þjóta Svissneskt tryggingafyrirtæki: FÆRRILÁTA LÍFID í STÓRSLYSUM Zurích - Rcutcr Um tólf þúsund manns létu lífið í stórslysum og náttúruhamförum á síðasta ári. Og þá eru það góðu fréttirnar; sú tala er mun lægri en verið hefur á síðustu árum. Það var talsmaður svissnesks tryggingafyr- irtækis sem skýrði frá þessu í gær. Fyrirtækið er eitt hið stærsta á sviði tryggingamála og skráði það 215 stórslys og náttúruhamfarir á síðasta ári. Mestu hörmungarnar gengu yfir Camerounbúa í ágúst er eitrað gas drap 1700 manns. fbúar E1 Salvador máttu einnig þola hörmungar en þar létust 1000 manns í jarðskjálfta í októbermán- uði. Tala látinna af völdum náttúru- hamfara og stórslysa hefur að með- altali verið 94 þúsund á ári hverju síðan 1970.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.