Tíminn - 17.02.1987, Qupperneq 7

Tíminn - 17.02.1987, Qupperneq 7
Tíminn 7 Þriðjudagur 17. febrúar 1987 liiilllllllllllllllll ÚTLÖND Fasteignaverðið í Lundúnaborg himinhátt: Kompa á tvær milljónir Lundúnir - Reuter Til sölu: Kompa í húsi í Lundún- um sem breytt hefur verið í herbergi. Útsýni yfir Harrods verslunina. Raf- magnsofn og rúm fylgja. Verð: 36.500 sterlingspund. Þessi auglýsing birtist nýlega í blaði og síðan hefur ekki linnt látun- um og hugsanlegir kaupendur flykkjast til að skoða herbergið, 1,67 metrar á breidd og 3,35 á lengd, sem selja á fyrir sem samsvarar rúmum tveimur milljónum íslenskra króna. Þessi saga lýsir best ástandinu á fasteignamarkaðinum í Lundúna- borg en verð á húsum og íbúðum hefur hækkað gffurlega á síðustu árum og er enn að hækka. Húseignin sem um ræðir er í hinu vinsæla Knightsbridgehverfi og samanstendur af hinu örlitla her- bergi auk lítils baðherbergis þar sem komið hefur verið fyrir vaski og sturtu. Þessi „stúdíóíbúð“ er á sjö- undu hæð íbúðablokkar. Fasteignasalinn Angus Macmillan viðurkennir að verðið sé hreint hroðalega hátt „en það ákvarðast af staðsetningu og þægindum og enginn skortur er á áhugasömu fólki“. Fyrir sama fé væri hægt að kaupa þrjú lítil hús í iðnaðarhverfi Wolver- hampton í Miðlöndunum og eftir slík kaup væri enn dulítið af sterl- ingspundum eftir. Tom Torney, þingmaður Verka- mannaflokksins, hefur kallað sölu- verðið á húseignum í Knightsbridge „nýja brjálæðið á fasteignarmarkaði Lundúnaborgar" og hyggst hann taka málið upp á þingi. Mörg metin í skákinni: Bjelica setur nýtt metí fflug- vélaskák Dubai - Reuter Júgóslavneski skákmeistarinn Dimitri Bjelica hefur bætt sitt eigið heimsmet í að leika sem flestar skákir í röð um borð í flugvél. Bjelica var um borð í flugvél júgóslavneska flugfélagsins sem flaug frá Belgrad til Dubai, höfuð- borgar hinna sameinuðu arabísku furstadæma. Tók það ferðalag fjórar klukkustundir. Á leiðinni lék Bjelica við aðra flugfarþega og vann hann 29 skákir af 33 sem hann lék. Einni skákinni tapaði sá júgóslavneski en þrjár urðu jafntefli. Bjelica er frægur skákskýrandi, hefur skrifað 28 bækur um skák. Hann hafði áður leikið 25 skákir á flugleiðinni milli Los Angeles og New York. Flugvélametið er ekki hans eina met, hann á metið í að leika flestar skákir í röð, alls 301. Það gerði hann á sýningu í Sarajevo í heimalandi sínu árið 1982 og er það skráð í heimsmetabók Guinness. Auglýsing um áburðarverð 1987 Efnainnihald Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Tegund N-P205-K20-Ca-S febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst sept. Kjarni 33- 0- 0- 2- 0 10220 10360 10500 10640 10780 10920 11060 11200 Magni 1 26- 0- 0- 9- 0 8440 8560 8680 8800 8920 9040 9160 9260 Magni 2 20- 0- 0-15- 0 6940 7020 7120 7220 7320 7420 7500 7600 Móði 1 26-14- 0- 2- 0 12140 12300 12480 12640 12800 12980 13140 13320 Móði 2 23-23- 0- 1- 0 13060 13240 13420 13600 13780 13960 14140 14320 Græðir 1 14-18-18- 0- 6 13140 13320 13500 13680 13860 14040 14220 14400 Græðir 1A 12-19-19- 0- 6 12840 13020 13200 13380 13560 13740 13920 14100 Græðir 2 23-11-11- 0- 0 11760 11920 12080 12240 12400 12560 12720 12900 Gratóir 3 20-14-14- 0- 0 11800 11980 12140 12300 12460 12620 12800 12960 Gratðir 4 23-14- 9- 0- 0 12160 12320 12500 12660 12820 13000 13160 13340 Grarflir 4A 23-14- 9- 0- 2 12760 12940 13120 13300 13480 13660 13840 14000 Grasðir 5 17-17-17- o- 0 11860 12040 12200 12360 12520 12680 12860 13020 Grasðir 6 20-10-10- 4- 1 11020 11180 11320 11480 11640 11780 11940 12100 Grarfir 7 20-12- 8- 4- 1 11220 11360 11520 11680 11840 12000 12140 12300 Gra^ir 8 18- 9-14- 4- 1 10680 10820 10980 11120 11260 11420 11560 11720 Græðir 9 24- 9- 8-1,5-2 11980 12140 12320 12480 12640 12820 12980 13140 Þrífosfat 0-45- 0- 0- 0 9640 9780 9900 10040 10180 10300 10440 10580 Kalíum kls 0- 0-60- 0- 0 6960 7060 7160 7260 7360 7460 7560 7640 " brst 0- 0-50- 0- 0 11220 11360 11520 11680 11840 12000 12140 12300 Ofangreint verð er heildsöluverð miðað við staðgrelðslu í hverjum mánuði. Áburðar- verksmiðjan selur einungis til búnaðarfélaga, samvinnufélaga, verslunarfélaga, hrepps- og bæjarfélaga og annarra opinberra aðila. Áburðarverksmiðjan afhendir áburð þann sem hún selur til framangreindra aðila á sama verði, miðað við afhendingu úr vörugeymslu í Gufunesi eða vörugeymslu áburðarflytjanda á eftirgreindum höfnum: ölafsvík Grundarfjörður Stykkishólmur Patreksfjörður Bíldudalur Þingeyri Flateyri Suðureyri Bolungarvík ísafjörður Norðurfjörður Hólmavík Hvammstangi Blönduós Sauðárkrókur Hofsós ölafsfJörður SiglufJörður Dalvík Akureyri Grenivík Svalbarðseyri Húsavík Þórshöfn Kópasker Vopnafjörður Borgarfjörður eystri Seyðisfjörður Mjóifjörður Neskaupsstaður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Breiðdalsvík Djúpivogur Hornafjörður Vestmannaeyjar óski kaupandi áburðar, sem búsettur er utan svæðis sem takmarkast af Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, Kjósarsýslu, Gullbringusýslu, Arnessýslu, Rangárvallasýslu, að fá áburð afhentan í Gufunesi og annast flutning áburðarins sjálfur skal hann fá endurgreitt sem nemur flutningskostnaði Áburðarverksmiðjunnar á næstu höfn ásamt uppskipunar- vöru- og sjótryggingargjaldi. Áburðarverksmiðjan mun ekki annast flutninga til Dalasýslu og Austur-Barðastrandasýslu eins og verið hefur. Ennfremur mun Áburðarverksmiðjan ekki annast flutninga til Vestur-Skaftafellssýslu. Hinsvegar mun Áburðarverksmiðjan greiða flutningsstyrk til áburðarkaupenda í framangreindum sýslum og ákvarðast flutningsstyrkurinn hverju sinni með hliðsjón af flutningskostnaði til næstu hafnar. Greiðsluk,1ör. Árið 1987 eru greiðslukjör vegna áburðarviðskipta sem hér segir: a) Staðgreiðsla á staðgreiðsluverði viðkomandi mánaðar. b) Kaupandi greiðir áburðinn með tíu (10) jöfnum greiðslum, sem hefjast í febrúar en lýkur í nóvember. c) Kaupandi greiðir áburðinn með átta (8) jöfnum greiðslum, sem hefjast í mars en lýkur í október. d) Kaupandi greiðir 25% við afhendingu áburðar og þrjár (3) jafnar greiðslur í júní, júlí og ágúst. Gjalddagi er 25. hvers mánaðar. Sá hluti áburðar sem afhentur er á lánskjörunf skuldfærist á staðgreiðsluverði sem í gildi er í afhendingarmánuðinum en frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir afhendingarmánuð reiknast vextir á höfuðstól skuldarinnar. Gerður skal vlðskiptasamnlngur um lánsvlðskiptl. Vextir skulu á hverjum tíma vera þeir sömu og afurðalánavextir sem auglýstir eru hjá Landsbanka Islands, sem eru í dag 16,5%. Vextir greiðast eftir á, á sömu gjalddögum og afborganir. Kaupandi skal leggja fram tryggingu fyrir þeim hluta viðskiptanna sem eru láns- viðskipti. Tryggingar skulu vera í formi ávísunar á væntanleg rekstrar og/eða afurðalán eða með öðrum þeim hætti sem Áburðarverksmiðjan metur fullnægjandi. Gufunesi 13. febrúar 1987 ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.