Tíminn - 09.04.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 9. apríl 1987
Samiö um starfsaldurshækkanir
fyrir fiskvinnslufólk:
5% kauphækkun
við starf í 15 ár
Fiskvinnslufólk, annarsstaðar en
á Vestfjörðum og í Vestmannaeyj-
um, scm unnið hefur 5 ár eða lengur
fær nokkra kauphækkun með við-
bótarsamningi um starfsaldurshækk-
anir sem Verkamannasambandið
hefur gert við VSÍ og VMSÍ. Allar
starfsaldurshækkanir fiskvinnslu-
fólks féllu sem kunnugt er niður í
desembersamningunum í vetur, en
fiskvinnslufólk á Vestfjörðum og
Eyjum samdi eftir það sérstaklega.
Þær starfsaldurshækkanir sem nú
var samið um eru 2% eftir 5 ára
starf, hækka í 3% eftir 10 ára starf
og verða 5% eftir 15 ára starf hjá
sama fyrirtæki.
Þeir sem lokið hafa námskeiðum
sem sérhæft fiskvinnslufólk fá greitt
1020 króna námskeiðsálag.
Laun fiskvinnslufólks með 15 ára
starfsaldur hækka því við þennan
viðbótarsamning úr 27 þús. krónum
á mánuði upp í 28.350 kr. og með
námskeiðsálagi komast þau í 29.370
krónur. - HEI
Loðnan:
ENN VERID
AD VEIDA
- 3 bátar enn með kvóta
Margur hefði nú haldið að loðnu-
vertíðinni væri lokið, en svo er alls
ekki. 3 bátar eiga enn eftir kvóta,
þar af á einn, Dagfari, eftir á annað
þúsund tonn. Loðnan er enn ágæt-
lega góð, að minnsta kosti það góð
að enn er hægt að kreista úr henni
hrognin.
Þrátt fyrir að enn séu eftir bátar er
það Ijóst að Sigurður frá Reykjavík,
sem gerður er út frá Vestmannaeyj-
um er aflahæstur loðnubáta, með
46.884 tonn, og geri aðrir betur.
Búist er þó við að síðasti báturinn
klári kvótann, ekki síðar en í næstu
viku. -SÓL
Massey-Ferguson
Dráttarvélin
■F sem þig vantar
MÖGNUÐ Ný]
M-F 3000 LÍNA!
Góður - Betri - Bestur !
KAUPFÉLÖGIN OG
BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SlMI 38900
- horft til næstu 25 ára
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hélt í fyrradag fund á
vegum forsætisráðuneytisins til að
kynna útkomu fyrstu ritanna í ritröð
um framtíðarspá fyrir fslendinga.
Kennir þar margra grasa, eins og
skýrslur um ntannfjölda, heilbrigði,
byggð og umhverfi, framtíðarsýn
æskufólks framyfir aldamót og nýt-
ingu náttúruauðlinda til sjós og lands
næsta aldarfjórðunginn.
Alls munu koma út 5 sérrit, 2
þeirra komu út í gær, og hin 3
líklegast í maí. Síðustu 3 ritin fjalla
m.a. um íslenska menningu, skóla-
kerfið, tæknibreytingar næsta aldar-
fjórðunginn, efnahagshorfur fram
yfir aldamót, löggjöf og stjórnarfar,
fjárhag hins opinbera og myndun og
miðlun fjármagns við upphaf nýrrar
aldar. Auk þess kom út viðaukarit
með ritinu um náttúruauðlindir, og
fjallar það um veðurfarsbreytingar,
sauðfjárrækt og skógrækt.
Forsaga þessa máls er sú, að við
áramótin 1983-1984 samþykkti ríkis-
stjórnin að tillögu Steingríms Her-
mannssonar, forsætisráðherra, að
gerð skyldi víðtæk könnun á fram-
tíðarhorfum á íslandi næsta aldar-
fjórðung. Tilgangur verksins var að
vekja umræður um langtímasjón-
armið í þjóðmálum og auðvelda
fólki, fyrirtækjum og stjórnvöldum
að móta stefnu til langs tíma.
í framhaldi af þessari samþykkt
skipaði forsætisráðherra í apríl 1984
fjölmenna ráðgjafanefnd til þess að
leggja á ráð um það, hvernig best
væri að standa að þessu verki. Sjö
menn úr þessari ráðgjafanefnd voru
síðan skipaðir í framkvæmdanefnd
til þess að standa fyrir verkinu og
hafa yfirumsjón með því.
Eðli málsins samkvæmt voru not-
uð mjög mismunandi vinnubrögð í
hinum ólíku hópum. í sumum tilfell-
um var mögulegt að setja fram
beinar tölulegar spár um framtíðina,
eins og t.d. varðandi mannfjölda, en
í öðrum er frekar reynt að greina
meginstrauma. í öllum tilfellum var
hins vegar, beint eða óbeint, reynt
að svara þeirri spurningu hvernig
íslendingum komi til með að reiða
af við upphaf nýrrar aldar.
Tíminn mun birta ýmsar forvitni-
legar upplýsingar úr sérritum þess-
um á næstu dögum.
- SÓL
Helga Jonsdottir adstodarmaour forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Jón
Sigurðsson framkvæmdastjóri framkvæmdanefndar. Tímamynd: Bjarní
Utgáfa:
FYRSTU RITINI
framtíðarspA
Heilbrigðisdagur WHO:
Bólusetning handa
hverju mannsbarni
Árlegur heilbrigðisdagur AI-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) var í gær.
Hann var helgaður bólusetningum
Sverri Hermannssyni menntamál-
aráðherra hefur borist áskorun frá
18 konum sem sóttu nýlega jafnrétt-
isnámskeið Kennarasambands
íslands.
Þær hvetja menntamálaráðherra
til að veita Valgerði Selmu Guðna-
dóttur yfirkennara í Hólabrekku-
skóla skólastjórastöðu við Ártúns-
skóla. Vakin er athygli á því að
aðeins 18% af skólastjórum við
grunnskóla Reykjavíkur eru konur
en á sama tíma séu konur við marga
og á að minna á mikilvægi þess að
gefa hverju mannsbarni kost á vörn
gegn sjúkdómum sem unnt er að
koma í veg fyrir.
grunnskóla 70% starfandi kennara.
Með því að ráða Selmu verði stigið
skref til að jafna hlut kvenna á
þessum vettvangi.
Tveir umsækjendur eru um skóla-
stjórastöðu Ártúnsskóla. Hinn um-
sækjandinn er Ellert Borgar Þor-
valdsson skrifstofustjóri Fræðslu-
skrifstofu Reykjanesumdæmis.
Konurnar vekja athygli á því að
Fræðsluráð Reykjavíkur hefur met-
ið Selmu jafn hæfa hinum umsækj-
andanum. ABS
Bólusetning er eitt skýrasta dæmið
um mátt virks forvarnarstarfs í heil-
brigðismálum, segir í tilkynningu frá
landlæknisembættinu. Bólusetning
er verndandi og því ólík lyfjum sem
notuð er til að lækna sjúkdóma sem
þegar hafa búið um sig. Lítill vafi
leikur á því, að til þess að útrýma
tilteknum sjúkdómi með öllu er
bólusetning og nákvæm skráning á
útbreiðslu sjúkdómsins veigamestu
vopnin. Á þann hátt tókst að útrýma
bólusótt úr heiminum á einungis 10
árum. Það dæmi bendir til þess, að
eina raunhæfa leiðin til útrýmingar
alnæmis úr heiminum verði einnig
bólusetning. Virks bóluefnis gegn
þeim sjúkdómi þarf þó enn að bíða
í nokkur ár.
f tengslum við umræðu um bólu-
efni hefur Evrópudeild WHO sett
sér það markmið að útrýma misling-
um, mænusótt, stífkrampa í nýbur-
um, barnaveiki og meðfæddum
rauðum hundum úr Evrópu fyrir
1996. Vandamál í Evrópu eru þó
hjóm eitt, segir í tilkynningunni,
miðað við vanda þróunarlandanna.
„ísland er ekki lengur einangraður
útkjálki og hingað berast flestar
sóttir fyrr eða síðar. Útrýming sjúk-
dóma í þróunarlöndunum er fors-
enda þess að þeim verði útrýmt hér
og öfugt.“ þj
Áskorun til menntamálaráðherra:
Selma verði
skólastjóri
- Ártúnsskóla