Tíminn - 09.04.1987, Blaðsíða 14
gefrauna-
VINNINGfiR!
33. leikvika - 4. apríl 1987
Vinningsröð: 1X1 - 2X1 - X21 - 12X
1. vinningur: 12 réttir,
8090 43794(4/n)
kr. 342.845,-
54238(4/i 1) 218723(8/11)
2. vinningur: 11 réttir,
kr. 19.591,-
13217 57791 60307+ 210595’ 223303 657195
47010 58939 127101 223294 575038 660541
51912
’=2/11
Kærufrestur er til mánudagsins 27. apríl 1987 kl. 12.00 á hádegi.
Naf nlausir seðlar úr 32
leikviku: 11 réttir,
41348 54009 57460
45776 54016 60047
48946 55393 60213*
52564’ 55397 125530
kr.415,-
126017* 128492 222535
126037 128895
126041’ 128961*
126064’ 221607*
Kærufrestur er til þriðjudagsins 21. apríl 1987 kl. 12:00 á hádegi.
Kærur skulu vera skrifiegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðirgeta lækkað, ef kærurverðateknar
til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn
og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
ÍSLENSKAR GETRAUNIR
íþróttamiðstöðinni vlSigtún, Reykjavík
■ --------------------------------------\
Gott fyrirtæki í
Reykjavík
Af sérstökum ástæðum er til sölu nýstofnað
bílaþjónustufyrirtæki sem um fyrirsjáanlega
framtíð verður eitt á markaðnum.
Viðskiptavinir geta verið 10-20.000 atvinnubif-
reiðar. Fyrirtækið er í tryggu leiguhúsnæði
næstu 4 árin. Tæki og vélar ásamt „goodwill"
er metin á 4.500.000.- sem greiðast má að
mestu á næstu 4 árum.
Fyrirtækið býður upp á gífurlega tekjumögu-
leika og gæti borgað sig upp á næstu 2 árum.
Vinsamlega sendið nafn og heimilisfang og
símanúmer á afgreiðslu blaðsins fyrir 30. apríl
merkt Bílar...
STA/?yf
Framhaldsaðalfundur
Félag starfsfólks í veitingahúsum minnir á aðal-
fundinn í fundaraðstöðu félagsins í Ingólfsstræti 5
í dag fimmtudag. 9 apríl kl. 16.00.
Framhaldsaðalfundur og aðalfundur síðasta
starfsárs verða samkvæmt félagslögum.
Opið hús kl. 18.00 til 20.00 verður fyrir félagsmenn
og gesti þar sem starfsaðstaða félagsins er til
sýnis. Húsnæðið Ingólfsstræti 5 formlega tekið í
notkun.
Stjórnin.
Rutubíll óskast til sölu
Óska eftir að kaupa 20-30 manna rútubíl, upplýs-
ingar um verð og ásigkomulag sendist Tímanum,
auglýsingadeild merkt 2030.
14 Tíminn Fimmtudagur 9. apríl 1987
llllllllllll TÓNLIST ........ ..... .......ullllili^- ................. ..................
Sakari og Sgouros
Sinfóníuhljómsveit Islands
Háskólabíói 26. mars 1987
Stjórnandi Petri Sakari
Einleikari Dimitri Sgouros
Efnisskrá:
Mozart: Sinfónía nr. 40
Ravel: Gæsamamma
Rachmaninov: 3. píanókonsert
Tveir miklir efnismenn voru hér á
fjölunum um daginn, Petri Sakari og
Dimitri Sgouros. Sakari (f. 1958) er
einn þeirra ungu finnsku hljómsveit-
arstjóra sem víða hafa vakið athygli
á síðustu árum - menn vita ekki
fyllilega hvernig á þessari vakningu
stendur, fremur en t.d. á gullöld
Hollendinga á málaralist á sínum
tíma, en þó mun hún standa í
sambandi við góða tónlistarskóla og
góða kennara. En Sqouros (f. 1969)
er undrabarn í píanóleik og cngar
stærri músíkpólitískar ályktanir
hægt af honum að draga: undrabörn
fæðast, og enginn fær gert við því.
Sjálfum fannst mér Mózartsin-
fónían bera af verkunum þetta
kvöld, enda gerir hún það óumdcil-
anlega: Þegar hin verkin bæði verða
gleymd og grafin mun 40. sinfónía
Mózarts ennþá lifa, svo fremi ein-
hverjir verða á lífi til að njóta
hennar. Undir glaðværu yfirbragði
hennar má greina þungan trega eða
örvæntingu; í miklum listaverkum
takast andstæður á eða hverfa hver
í aðra. Petri Sakari og Sinfóníu-
hljómsveitinni tókst allvel að koma
Petrí Sakari, hljómsveitarstjóri.
henni til skila, betur en venja er um
Mózartsinfóníurhérá landi. Sjálfum
finnst mér það annars vera villa í
gerð efnisskráa að byrja á Mózart:
Þarna hefði Gæsamamma átt að
vera á undan, því þannig verk „spilar
sig sjálft" (og skiptir raunar tiltölu-
lega litlu hvernig spilað er) en Móz-
art alls ekki, eins og dæmin sanna.
Þetta voru aukatónleikar, utan
hljómleikaraðar Sinfóníunnar, en
allvel sóttir. Mjög margir voru
þarna, sem ekki sækja reglulegu
tónleikana, og komu þeir vafalítið
til að heyra og sjá Sgouros spila
Rachmaninoff-konsertinn. Áæfingu
mun jjað hafa komið fram, að þetta
Dimitris Sgouros, píanisti.
var í 51. skipti sem Sgouros spilar
þennan konsert (hvað þá með aðra
konserta, og maðurinn er ekki nema
17 ára?), enda varð honum ekki
mikið fyrir því. Mjög gott jafnvægi
og samspil var milli einleikara og
hijómsveitar, en frá sjónarhóli pí-
anóvina má það að þessum konsert
finna, að þótt hann sé vafalaust hið
mesta torf. þá fær píanistinn ekki
mörg tækifæri til að skína bjart:
þetta er tyrfinn rómantískur grautur
allt í gegn. Nei, má biðja um meiri
Mózart.
Sig. St.
Catulli Carmina
Bæverska tónskáldið Carl Orff
(1895-1982) er þekktast fyrir söng-
verk sitt Carmina Burana, sem hér
hefur verið flutt nokkrum sinnum
við miklar undirtektir. Tónlistin í
því verki er fremur einföld en mjög
áhrifamikil - en þó að sumu leyti
eins og ræða stjórnmálamanns sem
maður veit að er innihaldslaus en
kemst þó ekki hjá að hrífast af í
svipinn: Orff er einmitt meistari í
þeirri íþrótt að ná fram sterkum
geðhrifum með einföldum meðul-
um. Eftirhann liggurraunarsitthvað
fleira en Carmina Burana; óperan
Die Kluge mun vera alloft flutt, og
söngleikurinn Catulli Carmina, sem
Söngsveitin Fílharmónía flutti ásamt
hljóðfæraleikurum íHáskóIabíói 15.
mars undir stjórn Smára Ólasonar.
Catulli Carmina var samið og frumf-
lutt í Leipzig árið 1943, og skilst
manni að þeim í Þriðja ríkinu hafi
líkað þetta vel.
Uppistaða verksins eru brímaljóð
rómverska skáldsins Catullusar,
samtímamanns Júlíusar Caesars,
sem lagði hug á örlagakvendið Clo-
diu Pulcher. Hún vermdi ból margra
manna á þessuni árum en ekki ból
Catullusar að marki, og olli það
skáldskaparhríðinni. Catullus dó
ungur, eins og Jónas Hallgrímsson,
yrkjandi um „hana, sem hann harm-
aði alla daga“, og það sem eftir báða
liggur skáldskaparkyns er fremur
lítið að vöxtum. En eins og Jónas
Hallgrímsson hefur mótað ljóðvit-
und Islendinga í 150 ár, þá töldust
kvæði Catullusar meðal undirstöðu-
verka liins latneska heims í 1500 ár.
Um Catullus og Caesar, Clodiu og
Cleópötru, Cicero og Pompeiu, hef-
ur Thorton Wilder samið bestu sögu-
legu skáldsögu þessarar aldar, The
Ides of March.
Catulli Carmina skiptist í þrjá
þætti: forleik, leiksýningu í þremur
þáttum, ogeftirleik. Meginparturinn
samanstendur af ljóðum Catullusar,
sem Gunnar Guðbjörnsson söng,
ákaflega vel, en Elín Ósk Óskars-
dóttir söng miklu minna hlutverk
„Lesbíu“ (Clodiu). Forleikinn og
eftirleikinn syngur kórinn, en lat-
ínutextann orti Orff sjálfur, og töldu
kunnátumenn í hópi áheyrenda að
Orff hafi verið dauft latínuskáld.
Hljóðfæraskipan er óvenjuleg, fjórir
flyglar og tólf slagverk, leikið af átta
slagverksleikurum.
Tónleikaskráin var vönduð mjög,
með lærðri ritgerð í upphafi um
tónskáldið og verk hans eftir stjórn-
andann Smára Ölason, en síðan
fylgir textinn allur á latínu og ís-
lensku, í þýðingu Smára og Kristjáns
Árnasonar, og hafði Kristján frum-
þýtt sex ljóð fyrir þessa sýningu.
Catulli Carmina var skemmtilegt
að heyra meðan það varði, sem var
þó alltof stutt, einar 40 mínútur.
Héldu sumir að nú væri komið hlé
þegar verkið var búið og allir gengu
út. Sem vonlegt var þótti mörgum
úthverfamanninum, sem barist hafði
vestur í Háskólabíó gegnum umferð-
ina eins og hún er orðin í Reykjavík
eftir tollalækkunina, sem hann hefði
fengið litla uppskeru erfiðis síns.
Bjó sumum gremja í hjarta þarsem
þeir byggðu upp adreanalínið í blóð-
inu fyrir heimferðina.
Það var semsagt gaman að kynnast
þessu verki, sem að mörgu leyti var
vel staðið að. Frá sönglegu sjónar-
miði hefði kórinn mátt sýna á sér
fleiri hliðar og meiri átök, bæði í
veiku og sterku, en almennt stendur
verkið tæplega undir konsertupp-
færslu, a.m.k. eitt sér. Væri sannar-
lega ástæða til að leggja ögn meira í
flutninginn, sem þá mundi lengjast
hæfilega og verða úr sú söngleikræna
sýning sem þeim í Leipzig líkaði
svona vel árið 1943. Sig. St.
LESENDUR SKRIFA
Fyrirspurn útaf skrif-
um um Albertsmálið
í 75. tbl. Tímans 31. mars s.l.
skrifar O.Ó. aðstoðarritstjóri um
Albertsmálið og túlkar aðalatriðin í
málinu með eftirgreindum orðum:
Albert Guðmundsson „er hrakinn
úr embætti og flokki fyrir vafasama
'meðferð einkafjármuna á sama tíma
og hann gegndi embætti fjármála-
ráðherra".
Hvað er hér átt við með orðunum
„vafasama meðferð einkafjár-
muna“.Er hér t.d. átt við eftirgreind
atriði?:
I. Að taka , sem ráðherra, endur-
greiddan afslátt frá opinberri stofn-
un (Áfengis- og tóbaksv.) og stinga
peningu’num í eigin vasa.
2. Að taka tvisvar endurgreiðslu
fyrir sama ferðakostnaðarreikning-
inn. Aðra beint úrríkissjóði, en hina
frá opinberum banka vegna fyrirtæk-
is, sem hann segist sjálfur vita að
hafi ekki átt fyrir skuldum, og því
augljóst að upphæðin myndi síðar
greiðast úr ríkissjóði.
3. Að veita sjálfum sér undanþágu
frá gildandi reglum um innheimtuað-
ferðir skatta og vísa greiðsluskyld-
unni til síns einkafyrirtækis, sem
hann hafi þó ekki komið nærri í 13
ár, enda sé fyrirtækið rekið af syni
sínum, sem að vísu sé gleyminn en
þó muna eftir að greiða skattreikn-
ing sinn.
Ég spyr. Falla þessi þrjú atriði
undir „vafasama meðferð á einka-
fjármunum? Þessi 3 atriði hafa kom-
ið fram í fjölmiðlum án bess að þeim
hafi verið mótmælt. Á máske að
sökkva þessum atriðum í skattsvika-
þáttinn í umræddu máli, en sá þáttur
hefir þá sérstöðu, að vera venjulega
endanlega afgreiddur af skattstofu
með leiðréttingu og skattsekt. Mið-
að við spurningu 1 og 2 hér að
framan mætti kannski spyrja. Hvað
er þjófnaður?
Yæntanlegur kjósandi
Framsóknarflokksins.