Tíminn - 24.05.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Sunnudagur 24. maí 1987
Álit sovésks jarðfræðings:
Rockallsvæðið á enga
framtíð fyrir sér
Eftir því sem tækni við leit og
vinnslu málma á hafsbotni fleyg-
ir fram verða sum svæði hans
þrætuepli í miliiríkjadeilum, má
sem dæmi nefna harðar deilur
nokkurra ríkja í sambandi við
olíu- og gasvinnslu á landgrunni
Norðursjávar. Nú er annað
„heitt“ svæði í Norður-Atlants-
hafi æ meira í sviðsljósinu.
Sá staður sem hér um ræðir er
hafsvæðið vestur af klettinum
Rockall, þar sem hagsmunir
fjögurra Evrópulanda -
Bretlands, Danmerkur, írlands
og að nokkru leyti íslands -
rekast á. Þessi deila fer langt út
fyrir mörk hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna, þar sem
Rockallsvæðið fellur ekki einu
sinni að hluta til innan 200 mílna
efnahagslögsögu þessara landa.
Auk þess viðurkenna ekki sem
kunnugt er Bandaríkin og fleiri
ríki, þar á meðal Bretland,
samnmgmn og opinberir full-
trúar þeirra hafa neitað að
undirrita hann.
Ljóst er að deiluaðilar hafa
ekki áhuga á hafsvæðinu sem
slíku. Rockall-hafsbotnssvæðið
vekur vonir vegna þess mögu-
leika, að hugsanlega finnist þar
á sjávarbotni verulegur forði
steinefna, fyrst og fremst
olíulindir.
En eru þetta réttmætar vonir?
Fréttamaður APN, Igor Mo-
nitsjev, bað Mikhaíl Akhme-
tjev, D. Sc. (í jarðfræði og
bergfræði), yfirmann rannsókn-
arstofu Jarðfræðistofnunar Vís-
indaakademíu Sovétríkjanna,
sem er einn helsti sérfræðingur
Sovétríkjanna á því sviði er
varðar gerð hafsbotnsins, um-
sagnar um þetta atriði. Hann
hefur stundað rannsóknir á
Norður-Atlantshafi í mörg ár og
tekið þátt í mörgum leiðöngrum
sovéskra rannsóknarskipa á
þessum slóðum.
„Ég vil segja það hreint út, að
persónulega tel ég það meira en
vafasamt, að olía eða gas finnist
á hafsbotni á Rockallsvæðinu.
Við hafjarðfræðingar þekkjum
vel þau merki, sem geta bent til
þess, að möguleikar séu á því að
olíulindir finnist á einhverju
svæði. Á Rockallsvæðinu finnast
engin slík merki.
Til þess að útskýra skoðun
mína vil ég taka sem dæmi
landgrunn Norðursjávar og
norðanverða strandlengju
Noregs, þ.e. þau svæði hafs-
botnsins þar sem mikil vinnsla
olíu og gass hefur farið fram í
langan tíma með hjálp nútíma
borpalla. Á miðlífsöld, þ.e. fyrir
um það bil 60 til 200 milljónum
ára, var þetta ein víðáttumikil
hafdæld. Frá jarðfræðilegu sjón-
armiði hlýtur jarðskorpa hennar
að teljast „ung“. Auk þess er
hún hulin verulegum setlögum,
sem sums staðar eru 1000 metra
þykk, sem er nauðsynlegt, en
ekki alltaf nægilegt skilyrði þess,
að olíulindir séu til staðar. í
fyrsta lagi er undirstaða Rockall-
hásléttunnar útskiki miklu eldra
bergs, og í öðru lagi er þykkt
setlaganna þar óveruleg.
Með írska trogið svokallaða,
sem gengur austur úr Rockall-
hásléttunoi, er þessu nokkru
öðru vísi farið. Það er ásamt
Norðursjó og landgrunni Noregs
meðal greina landgrunns mið-
lífsaldarhafdældarinnar. Sama á
við um Shetlandseyja-Færeyja-
hrygginn. Olíulinda á því svæði
má vænta með mikilli vissu
vegna líkingar jarðsögu þess og
nútíma gerðar við sjávarbotn
þar sem tilvist olíu- og gaslinda
hefur þegar sannast. En svo við
víkjum aftur að Rockallháslétt-
unni, þá get ég aðeins sagt, að
hægt sé að binda vonir við
austurhlíðar hennar, sem liggja
að írska troginu.
Ég held einnig, jafnvel þótt
hafsbotninn innan 200 mílna
efnahagslögsögu íslands sé mjög
lítið rannsakaður, að þess sé
varla að vænta, að þar finnist
olíu- eða gaslindir. Þannig held
ég, að Íslands-Færeyjahryggur-
inn, sem myndaður er úr basalti,
eigi sér enga framtíð sem olíu-
lindasvæði, þótt mögulegt sé, að
þar kunni að finnast súlfíð.
Horfurnar varðandi svæðið þar
sem landgrunn íslands og Græn-
lands mætist eru eitthvað betri,
þótt jarðskorpa sjávarbotnsins
sé þar einnig ung og sé enn í
mótun.“
. TVÖ .
SIMANUMER:
Samband frá skiptiborði
virka daga frá kl. 8:30-16:30 við:
Aðalskrifstofu, Faxaskála,
Miðskála, Borgarskála,
Landrekstrardeild og
Gámadeild.
Eimskip, Sundahöfn.
Samband frá skiptiborði
virka daga frá kl. 8-17 við:
Vöruafgreiðslu í Sundahöfn
og Viðhaldsdeild.
Flutningurerokkarfag íW““I
EIMSKIP E2
■ ■
PLASTPOKKUN
Betii vörumeðíerð
í vörumóttöku okkar í Reykjavík er öllum viðkvæmum vörum á
brettum pakkað í plast. Þess vegna geturðu óhræddur sent
nánast hvað sem er með flutningaskipunum okkar. Kynntu þér
nýja tækni í bættri vörumeðferð.
83I8CISSK1P
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúslnu v/Tryggvagöfu,
S 28822
.