Tíminn - 27.05.1987, Side 20
„Svo uppsker
hver sem sáir“
Gullbók
og
Metbók
rísa báðar undir nafni
bCnaðarmnkinn
TRAUSIUR BANKI
1917 /\J 1987
ÁRA
Tímiim
Hamborgarhvalurinn:
Hvalkjötið endur-
sent til íslands
- Utanríkisráðherra mun gera athugasemd um framgang málsins og leita skýringa
Lausn er komin á þeirri deilu sem
spunnist hefur um hvað beri að gera
við íslenska hvalkjötið sem kyrrsett
var í Hamborg fyrir um tveimur
mánuðum. Kjötinu var í gærmorgun
skipað um borð í leiguskip frá Eim-
skipafélaginu sem nú er á leið til
íslands með farminn. Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra sagði í
samtali við Tímann í gær að hann liti
svo á að það sem réði úrslitum í
þessu máli hafi verið afskipti utan-
ríkisráðuneytisins og sendiráðsins í
Bonn. „Ég vek athygli á því að það
var vestur-þýska utanríkisráðuneyt-
ið sem gekk í þetta mál að minni
beiðni, og ég tel að það hafi ráðið
úrslitum," sagði utanríkisráðherra.
Matthías sagði að það hafi ekki
endanlega verið ljóst fyrr en seint á
mánudag að þessi lausn fengist.
Hins vegar hafi upplýsingar um að
hugsanlegt væri að leysa málið með
þessum hætti borist til íslands á
föstudag og þá hafi verið haft sam-
band við Hval hf. og fyrirtækið látið
sækja um undanþágu frá þeini regl-
um sem settar voru um áramót í
Þýskalandi og var undanþága veitt
sem heimilaði að gámarnir væru
teknir aftur um borð í skip frá því
skipafélagi sem kom með þá til
“fríhafnarinnar" í Hamborg og flytti
þá aftur til íslands. Engar skýringar
hafa komið á því hvers vegna nauð-
synlcgt var að flytja kjötið aftur til
íslands í stað þess að það héldi
áfram til Japans, né virðist hafa
verið boðið upp á að málið leystist
með öðrum hætti en að Eimskipafé-
lagið flytti kjötið og þá hcim aftur.
„Við gerum athugasemd um fram-
gang þessa máls og leitum skýringa.
Það sem þarna er um að ræða er að
gerðar eru ákveðnar breytingar og
skjöl frá íslandi eru véfengd og
fríhöfnin í Hamborg er ekki sú hin
sama hér eftir sem hingað til,“ sagði
Matthías Á. Mathiesen. Aðspurður
um hvenær þeirra skýringa væri að
vænta sagði utanríkisráðherra það
myndi taka einhvern tíma og það
mál rekið eftir diplómatískum leið-
um. - BG
skamm-
byssufimi
Lögregluþjónar af A-vakt f
Reykjavík reyndu í gær mcð.
sér í skotfimi. Er þctta liður í
skotkeppni milli vaktanna í
Reykjavík og í framhaldi af
henni er fundin besta skytta
liðsins. Á myndinni sjáum við
Einar Bjarnason formann
Landssambands lögregluþjóna
munda byssuna og skjóta sig í
úrsiit. Bak við hann stendur
Karl Hjartarson. Tíminn fygld-
is með keppninni og er greint
frá henni á blaðsídu 7.
Tímamynd Pjetur
STJÓRNARIVIYNDUNARTILRAUNIN:
Viðræðurnar
t
halda áfram
en hægt mun miöa
Stjórnarmyndunarviðræður Al-
þýðuflokks og Kvennalista undir
forystu Sjálfstæðisflokks, halda
áfram í dag. í gær voru ræddir
nokkrir málaflokkar, þeirra á með-
al cfnahagsmál og í dag verða
utanríkis- og skólamál tekin fyrir.
SamkvaAnt heimildum Tímans
þykir ýmsum sem hægt miði og
raunaf hefur fátt fréttnæmt komið
fram í þessu máli, ef frá er talinn
leiðari Morgunblaðsins í gær. Þar
cr Friðrík Sophussyni sendur tónn-
inn fyrir að hafa hugsanlega Ijáð
máis á að semja megi um stefnuna
í utanríkismálum við Kvennalist-
afin og ítrekað að fráleitt sé fyrir
•éjálfstæðisflokkinn að ganga til
stjórnarmyndunar, eigi hann að,
sveigja af leið í utanríkismálum.
Er þetta túlkað sem svo að nú horfi
þunglega um myndun þessarar
ríkisstjórnar, nema að Kvennalist-
inn láti stefnumál sín í utanríkis-
málurrr róa sinn sjó. Hvort svo
vcrður skýrist jafnvel í dag.
- phh
w
ÞEGAR MILLJÓNIN
VARÐ AD 864.024
Saga einnar milljónar, sem fór af
stað í lánakerfinu nú nýverið er
eflaust ekkert frábrugðin sögu ann-
arra milljóna, sem hleypa heimdrag-
anum úr hinum ýmsu sjóðum. En
Einnig jarðskjálfti á Norðurlandi:
SNARPIR KIPPIR
RÖSKUDU NÆTURRÓ
Áttu upptök í Flatey, en þar um kring er frægt jarðskjálftasvæði
Tveir snarpir jarðskjálftakippir
fundust á Húsavík og nágrenni
laust fyrir klukkan þrjú í fyrrinótt,
en sem kunnugt er varð mesti
jarðskjálfti í tíu ár á Suðurlandi
fyrr um daginn.
Jarðskjálftinn mældist mestur
um 4 stig á Richterskvarða og er
talinn eiga upptök sín við Flatey í
Skjálfanda. Það svæði er þekkt
jarðskjálftasvæði. Ekki mun annað
hafa út af brugðið vegna skjálftans
en að næturró var raskað. Alltént
voru engin lögregluútköll.
Árla gærmorguns varð tuttugu
skjálfta hrina á þessu sama svæði,
en þeir mældust mun minni og
fundust ekki jafn víða. þj
hún sýnir að útreikningur vaxta
lætur ekki að sér hæða, jafnvel þótt
þeir geti talist eðlilegir, þar sem allir
keppast nú við að ávaxta peninga.
Lántakandi er framleiðandi vöru í
Reykjavík og taldi sig þurfa þrjár
milljónir að láni. Þar sem um iðnað
er að ræða féllst lífeyrissjóður Iðju á
að lána iðnfyrirtækinu eina milljón
króna. Hún kom ekki að fullnægj-
andi notum, en maðurinn þáði lánið.
Lífeyrissjóðslán Iðju var lánað í
gegnum Kaupþing í Reykjavík, en
ekki beint frá lífeyrissjóðnum
sjálfum. Þar sem sparisjóðir eru í
Kaupþingi og lántakandi hafði við-
skipti í Borgarnesi fékk hann lánið
greitt út úr Sparisjóði [Mýrasýslu.
Þegar milljónin kom þaðan var hún
orðin 864.024. Auðvitað koma verð-
bætur á þetta lán og var á lántakanda
að heyra að honum þætti verst, að
hann þyrfti að borga verðbætur af
peningum, sem hann hefur aldrei
fengið í hendur, samtals 135.976 kr.
Ástæðan fyrir þessum afföllum er
sú, að lántakandi er látinn greiða
vexti fyrirfram. Sjálft er lánið með
6,5% vöxtum á bréfinu, en það er
íánað með 13% vöxtum auk verð-
bóta. Af fyrirframgreiðslunni telur
lántakandi að sparisjóðurinn fái 3%
og skiptast þá 3,5% upphæðarinnar
á milli Kauþings og lífeyrissjóðsins.
Um þessa vexti og fyrirframgreiðslu
á þeim má segja eins og kerlingin
sagði forðum, þegar hún virti fyrir
sér árar róðrarkarla, sem fóru nestis-
lausir á sjó, en komu gjarnan löður-
sveittir að landi eftir langan barning:
Þarna hafa þeir hitann úr.
KRUMMI
„Nú hlýtur þetta .
að flokkast undir y
náhval. “