Tíminn - 13.06.1987, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 13. júní 1987
Umsjón: EGGERT SKULASON
VEIÐIHORNIÐ ‘
Uffe Elleman
Jensen veiddi
í Elliðaánum
Þrátt fyrir annasaman fund utan-
ríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsins í í Reykjavík, tókst Uffe
Elleman Jensen danska utanríkis-
ráðherranum, að bregða sér í veiði
í Elliðaánum í gær. Er þetta í
annað sinn sem ráðherrann veiðir
í Elliðaánum. Eðlilega hafði ráð-
herrann ekki mikinn tíma til veiða
undir þessum kringumstæðum og
var ekki nema tvo tíma í ánni.
Tíminn hitti hann að máli rétt í
þann mund sem hann var að hætta
veiði um klukkan 13 gær. „Þetta
var tregt. Þó er greinilegt að nægur
fiskur er kominn í ána og ég varð
var í fossinum," sagði Uffe Ellem-
an Jensen í samtali við Tímann.
Þrátt fyrir árangurslausa veiði var
ráðherrann hressog sagði að aldrei
væri að vita nema þetta kæmi í
þriðju tilraun. „Ég veiddi hinsveg-
ar í Laxá í Kjós fyrir nokkru og þá
gekk allt að óskum."
Veiðin fyrstu dagana í Elliðaán-
um liefur verið mjög dræm. Þegar
hætt var á hádegi í gær, var aðeins
einn lax kominn á land. Það var
Haraldur Ágústsson sem sleit hann
upp úr Teljarastreng. Þriggja
punda hrygna, veidd á maðk er
eini fiskurinn sem veiðst hefur í
ánni. Það er því kannski ekki
undarlegt þó ráðherranum hafi
gengið illa.
„Upp og niður“-gengið
Veiði hófst í Miðfjarðará í gær
klukkan 16. Tíminn hafði ekki
spurnir af veiði þar í gær, þegar
blaðið fór í prentun, en úr því
verður bætt. Síðastliðin þrettán ár
Klukkun orðin eitt og Uffe Elleman Jensen búinn að taka veiðihattinn ofan og er hættur veiðum. Hann er í
ánægjulegum saniræðum við Garðar Þórhallsson formann árnefndar. Lengst til vinstri er Friis Arne Petersen
aðstoðarmaður ráðherrans og ræðir við Friðrik Stefánsson framkvæmdastjóra Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Tímamynd Pjetur
hefur sama hollið, sem kallar sig Upp Qg ofan í gengum árin, og menn sem hafa átt leið um segja
„Upp og niður' -gengið opnað ána. nafnið því við hæfi. Búist er við laxinn svo að segja flæða yfir
Veiðin hefur að sjálfsögðu verið mjög góðri veiði úr ánni, þar sem bakka.
,{XJ
I ÞACU rRfÐAKÍ
Friðar-
hlaupið
ræst við
Höfða
Steingrímur Hermannsson tendr-
aði loga þann sem brenna mun á
meðan kyndill friðarins mun borinn
um ísland næsta hálfa mánuðinn.
Eftir að Steingrímur hafði kveikt
eldinn fyrir utan Höfða fékk hann
Jóni Páli Sigmarssyni kyndilinn og
lagði hann upp í hlaupið fyrir hönd
Islands. Hlaupa átti í gær um
Reykjanes og láta staðar numið
fyrsta daginn í Hveragerði. íslenskir
hlauparar hlaupa 3000 kílómetra í
þessu alþjóðlega friðarboðhlaupi.
-ES
Steingrímur Hermannsson með
kyndilinn. Davíð Oddsson borgar-
stjóri fylgist með. í baksýn er Sveinn
Björnsson forseti ISI í trimmgallan-
um. Tímamynd Brein
Vélin cem hlekktist á í fyrradag.
Einkaflugvél
hlekktist á
Lítil einkaflugvél, af gerðinni PA-28 hann skall í rúðu vélarinnar.
-140, er mikið skemmd ef ekki ónýt, Rannsókn stendur nú yfir á orsök-
eftir að henni hlekktist á í lendingu um slyssins. Nefhjól vélarinnar lenti
á flugvelli við Hvolsvöll í fyrradag. á ójöfnu þegar það snerti flugvöllinn
Tveir menn voru í vélinni. Sluppu og brotnaði það undan. Vélin skall
þeir báðir með litla áverka. Farþeg- síðan í flugvöllinn og er mikið
inn var fluttur á Borgarspítalann skemmd eins og áður segir.
vegna áverka sem hann hlaut þegar -ES
Aftur kljúfum við verðmurinn !
Nú getum við boðiö
ZANUSSI ZF-821X ÞVOTTAVÉL
á því ótrúlega verði:
29.900
• Mál (HxBxD) •400/00 snún.
85x60x55 cm. vinduhraði.
• Þvottamagn 4,2 kg.
•16 þvottakerfi.
LÆKJARG0TU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022