Tíminn - 13.06.1987, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Laugardagur 13. júní 1987
III.......
lllllllll
ÚTLÖND
llllllllll
Itarfrétt um þingkosningarnar í Bretlandi:
Úrslitin í bresku þingkosningunum:
Hundrað sæta meirihluti
- MargrétThatcherog íhaldsflokkur hennarmunu haldaáfram umstjórnvölinneftir stóran sigur
Kculer -
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands byrjaði í gær að
stjórna þriðja kjörtímabilið í röð
eftir mikinn sigur í þingkosningun-
um í fyrradag sem hún kallaði
raunar sinn „stórkostlegasta
sigur."
Urslitin úr kosningunum urðu
að fullu ljós síödegis í gær og sýndu
að Thatcher og íhaldsflokkur
hennar munu hafa töglin og liagld-
irnar á uæsta þingi. íhaldið fékk
hundrað sæta mcirihluta, alls 375
þingmcnn kjörna en Verkamann-
aflokkurinn, helsti andstæðingur-
inn, fékk 229 mcnn kjörna. Banda-
lag frjálslyndra og jafnaöarmanna
fékk h'ins vegar ekki ncma 22
þingmcnn kjörna og önnur 24 sæti
skiptust á milli nokkurra smá-
flokka.
Sigur Thatchers var að vísu ckki
jafn stór og árið 1983 þegar flokkur
hennar náði 144 sæta meirihluta á
þingi en engu að síður var hann
merkilegur og mun meiri cn kosn-
ingaspár höfðu sagt til um.
Thatcher sagði í sjónvarpsviðtali
í gær að hún myndi halda áfram að
framkvæma stjórnarstcfnu síöustu
átta ára scm byggðist á ábyrgri
fjármálastcfnu, minni ríkisforsjá
scm leiddi til þess að fólkið sjálft
rnyndi sjá um framkvæmdirnarscm
skiluðu auknum hagvexti.
Enginn annar núverandi vest-
rænn leiðtogi hefur stjórnaö lengur
en Thátcher scm kjörin hefur verið
fram til ársins 1992 og er fyrst allra
lciðtoga Brctlands til að stjórna
landi sínu þrjú kjörtímabil í röð.
Ekki vildi Thatchcr gefa út yfir-
lýsingu um hvort hún hygðist bjóöa
sig aftur fram til lorystu árið 1992:
„Við skulurn sjá hvernig hlutirnir
ganga", sagöi forsætisráðherrann
umdeildi.
Verkamannaflokkurinn gekk
nokkuð sterkur til leiks í þessari
kosningabaráttu undir forystu Itins
unga Neil Kinnockssem varstjarna
kosningaslagsins. Flokkurinn bætti
viö sig tuttugu þingsætum cn varla
eru meölimir hans ánægðir með
það því útkoman út úr kosningun-
um árið 1983 var sú versta fyrir
Verkamannaflokkinn síðan eftir
stríð. Stjórnmálaskýrcndur voru
Margrét Thatchcr og Denis maður
hennar: Áfram í Downingstræti 10
flestir sammála um það í gær að
óviss framtíð biði Kinnocks sem
formanns og svo gæti farið að rcynt
yrði að velta honum af stalli á
ársþingi flokksins í októbcr.
Bandalag frjálslyndra og jafnað-
armanna stefndi aö því að brjóta
niður tveggja flokka kerfið í land-
inu cn í stað þcss má segja að
bandalagiö sjálft hafi klofnað og
hinir 22 þingmenn þess verði
áhrifalitlir einstaklingar á þingi.
„Þetta er mikil vonbrigðanótt,"
sagði David Owcn leiðtogi jafnað-
armanna í fyrrinótt þcgar úrslit
fóru að koma inn og spár að
birtast. Owen og jafnaðarmenn
liann komu illa út úr kosningunum
og aðcins fjórir þeirra komust inn
á þing. David Stcel og frjálslyndi
flokkur hans hélt hins vegar velli á
flestum stöðum þar sem hann var
sterkur fyrir.
Þótt kosningasigur Thatchers
væri ótvíræður sýndi hann enn
einu sinni hversu tvískipt þjóðin
cr, hversu djúpt bil er á milli
Lokaúrslitin:
íhaldsflokkurinn................ 375 þingmenn
Verkamannaflokkurinn............ 229 þingmenn
Bandalag frjálslyndra
og jafnaðarmanna ................. 22 þingmenn
Aðrir...................................... 24 þingmenn
suðurs og norðurs. íhaldsflokkur-
inn tryggði sér stórsigur þrátt fyrir
að fá aðeins 43% atkvæða. Hann
vann næstum öll þingsæti í suður-
og miðhéruðum Englands en í
norðurhéruðunum og í Skotlandi.
þar sem hnignandi iðnaður og
þrjár milljónir atvinnuleysingja
setja svip sinn á mannlífið, vann
Verkamannaflokkurinn á.
Fimm blökkumenn, allir fulltrú-
ar Verkamannaflokksins, voru
kjörnir á þing í kosningunum og
var það í fyrsta sinn síðan árið 1924
að litaöir einstaklingar fara inn á
þing. Fimmenningarnir eru full-
trúar 2,4 milljón blökkumanna og
Asíubúa sem í Bretlandi búa.
Bresk blöö um kosningaúrslitin:
Spegillinn þögull
David Steelft.v.) og David Owen:
Grátleg útkoma
Viðbrögö erlendis frá:
Reagan og
Botha
fagna
Thatcher-
sigri
Reuter -
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti fagnaði í gær úrslitunum í
bresku þingkosningunum, úrslitum
sem gáfu Margréti Thatcher for-
sætisráðherra óskorað vald til að
stjórna landinu þriðja kjörtímabil-
ið í röð.
Reagan sýndi viðbrögð sín er
Ijósmyndarar tóku myndir af hon-
um og Richard Von Weizsácker
forseta Vestur-þýskalands fyrir
framan Bellevue kastala, bústað
vestur-þýska forsetans í Vestur-
Berlín.
„Nú get ég sagt „já““, sagði
Reagan er hann var spurður hvort
hann væri ánægður með kosning-
aúrslitin.
Fleiri fögnuðu kjöri Thatchers.
P.W. Botha forseti Suður-Afríku
sendi henni hamingjuóskaskeyti
enda hefur Thatcher staðið gegn
frekari efnahagslegum refsiaðgerð-
um gegn stjórn hvíta minnihlutans
í Suður-Afríku.
Leiðtogar íhaldsflokka alls stað-
ar í heiminum sendu heillaóska-
skeyti til forsætisráðherrans og
reyndar voru fáir erlendir aðilar
sem lýstu yfir vonbrigðum með
kosningaúrslitin.
„Fyrir milljónir venjulegra Breta
mun sigur íhaldsmanna þýða
áframhald á stjórnmálastefnu sem
í raun gengur þvert á hagsmuni
þeirra,“ sagði að vísu sovéska
fréttastofan Tass í gær. Tass sagði
ennfremur að Thatcher hefði efnt
til kosninga fyrr en áætlað var þar
sem efnahagsspár hefðu verið hag-
stæðar og að auki skammaði
sovéska fréttastofan stjórnarand-
stöðuna í Bretlandi sem hún sagði
vera tvístraða og veikbyggða.
- íhaldsblööin hins vegar í sjöunda himni
I.iindúnir - Reuter
Eitt helsta dagblað Bretlands-
eyja sem er andsnúið Margréti
Thatcher forsætisráðherra minntist
ekkert á kosningaúrslitin á forsíðu
og fjallaði aðeins lítillega um þau
inni í blaðinu í gærmorgun.
Lesendur Daily Mirror cða
Spegilsins, blaðs er styður Verka-
mannaflokk Neils Kinnocks, gátu
ekki lesið neitt um kosningaúrslitin
á forsíðu, aðeins fréttir af popps-
tjörnunni Madonnu. krikkctleikar-
anum Sylvester Clarke og hinum
fjögurra ára gamla Vilhjálmi prins.
Inni í blaðinu mátti þó finna
fréttir af úrslitunum þótt ekki væri
þeim gert hátt undir höfði. Þess má
geta að Spegillinn er eina blaðið,
af annars mjög íhaldssinnuðum
fjölmiðlum, sem styður Verka-
nrannaflokkinn dyggilega.
í fyrradag var Spegillinn aftur á
móti í besta kosningaskapi og var
þá stór mynd af Neil Kinnock á
forsíðu blaðsins og feitletruð
beiöni til kjósenda: „Þið vitið að
hann hefur rétt fyrir sér - kastið
henni út“.
Flest blaðanna í Flect Street í
Lundúnum, Síðumúla þeirra Eng-
lendinga, voru hins vegar með
stórarfyrirsagnirá forsíðum sínum
þar sem kosningasigri Thatchers
var gert hátt undir höfði.
„Þrenna hjá Möggu", stóð í
Daily Mail erstyður íhaldsflokkinn
í hvívetna og „Magga hin þriðja",
stóð í öðru íhaldsblaði The Sun.
The Times, virtasta íhaldsblað-
ið, gekk jafnvel enn lengra í fyrir-
sögn sinni: „Stefndu á fjórða kjör-
tímabilið, segja kjósendur við
Thatcher".
Neil Kinnock leiðtogi Verka-
mannallokksins: Baröist hetjulega
en tapaði
Keppnin um að koma fyrstir með úrslit:
Torbaymenn voru
klukkustund að
telja atkvæðin
Lundúnir - Rcutcr
Fyrstu úrslit úr bresku þing-
kosningunum voru kunn aðeins
kiukkustund eftir að kjörstoðum
hafði verið lokað enda kepptust
kjörstjórnir í bæjum út um ailt
land við að verða fyrstir að telja
sín atkvæði.
Sigurvegarinn í þessu kapph-
laupi var smábærinn Torbay í
Devonskíri í suðvestur Englandi.
Úrslitin þaöan voru komin aðeins
61. mínútu eftir að kjörstöðum
hafði verið lokað klukkan tíu að
breskum tíma.
Torbaymenn náðu þó ekki að
bæta metið sem kjörstjórnin í
Billericay, austur af Lundúnum,
setti árið 1959 þegar úrslitin voru
kunngjörð aðeins 57. mínútum
eftir lokun kjörstaða.
Guildfordbær, suður af
Lundúnum, varð annar í fyrra-
kvöld en bæði þar og í Torbay
voru fulltrúar fhaldsflokksins
kjörnir á þing.
l.þriðja og fjórða sæti í keppn-
inni um fljótustu talninguna voru
kjördæmin Basildon í grennd við
Lpndúnir og Cheltenham á vest-
anverðu Englandi. fhaldsmenn
unnu einnig sigur á þeim stöðum.