Tíminn - 13.06.1987, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. júní 1987
Tíminn 3
Ráðhús Reykjavíkur. Verðlaunatillaga Margrétar Harðardóttur og Steve Christers
Ráðhús Reykjavíkur
Úrslit verðlaunasamkeppni borgarráðs birt
Urslit verðlaunasamkeppni um
ráðhús Reykjavíkurborgar voru op-
inberuð í anddyri hins nýja Borgar-
leikhúss á föstudag. Hlutskörpust
varð tillaga Margrétar Harðardóttur
og Steve Christer og hlutu þau
rúmar 2 milljónir króna f verðlaun.
Alls bárust 38 tillögur til sam-
keppninnar og var það almennt álit
dómnefndar að tillögurnar væru al-
mennt í háum gæðaflokki og að
höfundar þeirra hafi lagt sig fram við
verk sitt og framsetning þeirra væri
almennt sérlega góð og skýr.
í öðru sæti var tillaga Guðmundar
Jónssonar sem unnin var í samstarfi
við Sigurð Gústafsson og hlaut sú
tillaga rúma 1 milljón í verðlaun.
Priðju verðlaun skiptust á milli
tveggja tillagna, en að auki voru
keyptar fjórar tillögur.
Dómnefnd skipuðu þau Davíð
Oddsson borgarstjóri, Sigrún Magn-
úsdóttir borgarfulltrúi og Þorvaldur
S. Þorvaldsson forstöðumaður borg-
arskipulags tilnefnd af borgarráði,
og Guðni Pálsson og Þorsteinn
Gunnarsson tilnefndir af Arkitekta-
félagi {slands. -HM
Sjómannadagurinn er nú í fyrsta sinni lögbundinn frídagur sjómanna. Því verða flestir togarar bundnir við
landfestar um helgina líkt og þessir togarar í Hafnarfjarðarhöfn. (Tímamynd: Pjetur)
Sjómannadagurinn á morgun:
Dagurinn nú í fyrsta sinn lögboðinn frídagur sjómanna
Sjómannadagurinn verður hald-
inn hátíðlegur um allt land á morg-
un og ríkir sérstaklega góð hátíðar-
stemmning í flestum sjávarplássum
fyrir sjómannadeginum í ár. Kem-
ur það ekki á óvart því flestir
togarar verða í landi yfir helgina
þar sem sjómannadagurinn er nú í
fyrsta sinni lögbundinn frídagur
sjómanna. Þó eru undantekningar
á þessu.
Af þessum sökum eru líkur á að
mun meira beri á starfandi sjó-
mönnum í hátíðarhöldunum nú en
undanfarin ár enda var sjómann-
adagurinn oft á tíðum orðinn mun
meiri hátíðisdagur landkrabba en
sjómanna þar sem stór hluti togara
var á sjó á sjómannadaginn.
Hátíðarhöld verða með hefð-
bundnu sniði víðast hvar um
landið. Skip eru fánum prýdd og
íslenski fáninn dreginn að húni á
skipum og í landi klukkan átta.
Sjómannamessur verða haldnar í
kirkjum og að venju verða flutt
ávörp, kappróðrar, koddaslagir og
fleira í þeim dúr er til gamans gert.
Á mörgum stöðum standa kvenn-
adeildir slysavarnafélaga og sjóm-
annakonur fyrir kaffisölu og sjóm-
annahóf eru haldin.
-HM
Umfangsmikil leit að manni á bát:
Skektan fannst
mannlaus á hafi
Leit á sjó fram haldið og fjörur gengnar
I gær fór fram umfangsmikil leit
að lítilli skektu frá Grindavík sem
saknað var frá kvöldi fimmtudags.
Síðast sást til hennar klukkan 22:30
það kvöld á mikilli siglingu 4 rnílur
suður af Grindavík á heimleið. Um
borð var einn karlmaður, 33 ára að
aldri, búsettur í Grindavík. Hann
var úti við skemmtiveiðar. Til leitar
voru allar slysavarnasveitir suður
mcð sjó, bátarog Landhelgisgæslan,
sem hóf leit laust fyrir klukkan tíu í
gærmorgun.
Skektuna fann þyrla Landhelgis-
gæslunnar klukkan 16:30 í gær, 28
mílur suðaustur af Hópsnesi við
Grindavík og var það talsvert langt
frá þeim stað, sem reiknað var með
að hún fyndist á. Hún var þá mann-
laus og bar þess ekki merki að hafa
oltið. Utanborðsvélin, sem mun hafa
verið gallagripur, var innanborðs og
líklegt þykir að maðurinn hafi fallið
útbyrðis við að bjástra við vélina.
Skektan var tekin um borð í
bátinn Boða og flutt til hafnar. Leit
var frant haldið í gærkvöld á tuttugu
bátum og björgunarsveitarmenn
gengu fjörur við Grindavík.
Þj
Félag íslenskra iönrekenda:
Skatturinn á að
miðastviðafkomu
- fyrirtækjanna en ekki framleiðslukostnaö
Félag íslenskra iðnrckenda hef-
ur sent frá sér ályktun vegna liugs-
anlegra efnahagsaðgerða nýrrar
ríkisstjórnar, þar á meðal um
hækkun skatta framleiðslukost-
naðar á fyrirtæki.
„Það skýtur skökku við ef
minnka á halla á ríkissjóði mcð því
að hækka enn skatta á framleið-
slukostnað og veikja þannig sam-
keppnisstöðu atvinnulífsins gagn-
vart erlendum keppinautum á
sama tíma og samkeppnisstaðan
fer versnandi vegna innlendra
kostnaðarhækkana. Það þarf að
hverfa frá þeirri stefnu að skatt-
leggja framleiðslukostnað fyrir-
tækjanna. Skattlagning þeirra á
fyrst og fremst að taka mið af
afkomu," segir í ályktuninni.
Sjómannadagurinn 1987:
Tvö vegleg sjó-
mannadagsblöð
Byggja á áratuga hefð
í tengslum við sjómannadaginn
hefur verið hefð að gefa út sérstök
sjómannadagsblöð þar sem fjallað
hefur verið um ýmislegt er snertir
íslenska sjómenn. í ár eiga koma út
tvö merk sjómannadagsrit, annað er
gcfið út af Sjómannadagsráði Reykj-
avíkur og Hafnarfjarðar, en hitt af
Sjómannadagsráði Vestmannaeyja.
Sjómannadagsblaðið 1987 er
fimmtugasti árgangur Sjómanna-
dagsblaðsins sem Sjómannadagsráð
Rcykjavíkur og Hafnarfjarðar gefur
út. Síðustu tvö ár hefur blaðið tekið
miklum stakkaskiptum og er það nú
stórt og mjög vandað. Meðal efnis í
blaðinu er stórmerk grein um þátt úr
sögu fiskveiða við ísland sem fremur
hljótt hefur vcrið um, þ.e. lúðuveið-
ar bandarískra fiskimanna úti fyrir
fyrir Vestfjörðum árin 1884-1897.
Bandarísku fiskimennirnir áttu
bækistöð á Þingeyri við Dýrafjörð
og voru þeir á þriðja hundrað þegar
flest var.
Þá má nefna þátt er nefnist „Hel-
för þriggja skipa" og er um ofsaveðr-
ið 26. janúar 1955 þegar fimmtíu og
þrír sjómenn týndu lífi sínu, og
“Samvinnuútgerð í Reykjavík og
Hafnarfirði" sem fjallar um það
þegar sjómenn stofnuðu svokölluð
áhafnarfélög um útgerð skipa sinna
þegar útgerðarmenn ætluðu að
leggja þeim á kreppuárunum.
Fleiri greinar, viðtöl og annað efni
er að finna í ritinu.
í ár eru fjörutíu ár síðan fyrsta
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja
kom út. Á þessum fjörutíu árum má
finna í Sjómannadagsblöðunt Vest-
mannaeyja hinar gagnmerkustu
heimildir um líf og starf sjómannsins
í gleði og sorg, enda mest allt efnið
ritað af þeim sjálfum.
í blaðinu í ár er m.a. að finna
gagnmerka ritgerð um útgerð og
sjósókn í Vestmannaeyjum á fyrri
helmingi þessarar aldar, ritgerð
sem nefnist „Ýtingar og lendingar
við hafnlausa strönd" sem rituð var
í byrjun þessarar aldar af Sigurði
Sigurfinnssyni hreppstjóra. Þá er að
finna merk viðtöl og frásagnir, auk
smærri greina.