Tíminn - 23.06.1987, Síða 7
Tíminn 7
Þriðjudagur 23. júní 1987.
meðaltalið af þessum tveim svæðum eins og gert var í könnuninni, þ.e.
Z=0,75. En sem sjá má liggja mörk þessara svæða um Reykjavík.
Athyglisvert er að Heimaey virðist skiptast í tvö hættusvæði, samkvæmt
kortinu, þannig að mismunandi staðlar ættu að gilda þar eftir því hvar byggt
er á þessari litlu eyju.
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins:
Hús ekki í
hrunhættu
-- þótt einhverjum hönnunaratriðum sé áfátt
„Par sem byggingarfulltrúinn í
Reykjavík hefur nú lýst því yfir, að
nægilegt sé að reikna með álagsstuðli
Z=0,5 hafa reikningar verið yfir-
farnir m.t.t. þessa. Niðurstaðan var
sú, að þau fjögur hús, þar sem
athugasemdir voru gerðar varðandi
jarðskjálftaþol og gögn voru fyrir
hendi til að meta slíkt standast
þessar kröfur,“ segir m.a. í nýrri
greinargerð sem Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins hefur sent
frá sér.
R.B. tekur sérstaklega fram að
þótt einhverjum atriðum sé áfátt við
hönnun bygginganna gegn jarð-
skjálftaálagi þýði það alls ekki að
þær séu í hrunhættu, heldur að ætla
megi að þær muni skemmast meir
við harðan jarðskjálfta en ella.
í umræðum um burðarþolsskýrslu
R.B. að undannförnu hefur, sem
kunnugt er, komið upp ágreiningur
um hvaða álagsstuðul skuli miða við
varðandi jarðskjálftaálag. í úttekt
R.B. var miðað við meðaltal álags-
gilda fyrir svokölluð 2. og 3. áhættu-
svæði, þ.e. Z=0,75, enda liggja
mörk þessara áhættusvæða um
Reykjavík eins og sjá má af með-
fylgjandi korti. Það gildi segir R.B.
notað á verkfræðistofum þeirra 6
gamalreyndu verkfræðinga sem
unnu að útreikningunum og sömu-
leiðis hefur R.B. eftir Óttari Hall-
dórssyni, höfundi staðalsins, að nota
beri álagsstuðlul Z=0,75 á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
I greinargerð R.B. segir ennfrem-
ur að túlkun á eðlilegum kröfum við
þolhönnun sé í mörgum tilvikum
matsatriði. Því hafi þær verið taldar
best metnar með því að velja nokkra
viðurkennda og reynda þolhönnuði
(allir með yfir 15 ára starfsreynslu)
til að yfirfara burðarþolsteikningar
húsanna sem ákveðið var að kanna
og meta þolhönnun þeirra. A.m.k.
tveir hönnuðir hafi yfirfarið hvert
hús og einungis hafi verið athugað
hvort þau uppfylltu eðlilegar kröfur.
Athugasemdir hafi verið gerðar við
þau atriði sem áfátt var, sem í þeim
byggingum sem hér um ræðir voru
allt frá óverulegum og upp í alvarleg-
ar athugasemdir.
Eðlilegar kröfur voru taldar: Gild-
andi reglugerðir og staðlar. Staðlar
frá nágrannalöndunum þar sem ís-
lenskir eru ekki til. Viðteknar venjur
við vandaða hönnun.
Helstu niðurstöður voru að sögn
R.B.: Vöntun á gögnum, allt frá því
að einstaka útfærslu vantaði upp í að
engar teikningar voru til. Burðarþol
var ekki alltaf tryggt vegna lóðrétts
átaks og gagnvart vindálagi sam-
kvæmt íslenskum staðli og heldur
ekki gagnvart jarðskjálftaálagi sam-
kvæmt staðli Z=0,75 sem fyrr grein-
ir. Þá var hönnun bygginganna mis-
vönduð. R.B. tekur fram að
hönnuðir húsanna sem könnuð voru
geti, og hafi sumir þegar, rætt við
nefndina um sín hús. Heildarnið-
urstaða könnunarinna^ sé þó ljós,
þ.e. að ástand hönnunarmála sé
ekki nægilega gott og að endurbóta
sé þörf á ýmsum sviðum, svo sem
varðandi staðlagerð, eftirlit og al-
menna þekkingaröflun. - HEI
Sólstöðuganga í blíðviðri:
Aldrei fleiri en
í þriðju göngunni
Sólstöðuganga 1987 var gengin á
sunnudaginn og náðist metþátttaka
í ár. Rúmlega fjögur hundruð
manns mættu strax í byrjun og hafa
aldrei fleiri gengið þau þrjú ár sem
gangan hefur verið reynd.
Þátttaka var öllum opin og var
lögð áhersla á allir skemmtu sér
hið besta og fræddust um náttúruna
og sitt nánasta umhverfi.
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands, í samvinnu við ýmsa aðila á
Seltjarnarnesi, Kjalarneshreppi og
Bessastaðahreppi, stóð fyrir
gönguferðum umhverfis megin-
byggðakjarna þessara sveitarfélaga
og rómaði göngufólk skemmtilegar
ferðalýsingar leiðsögumanna.
Farið var út í Viðey og snæddur
þar árbítur, en Sólstöðugöngunni
lauk á Álftanesi um miðnæddi með
varðeldi og fjöldasöng. -SÓL
Útbreiöslukönnun SÍA:
sjá Morgunblaðið
Flestir
Morgunblaðið er útbreiddast allra
íslensku dagblaðanna en DV fylgir
fast á hæla þess, samkvæmt niður-
stöðum úr könnum sem Samband
íslenskra auglýsingastofa hefur látið
Félagsvísindastofnun gera fyrir sig.
Könnunin var gerð í maímánuði sl.
og kom í ljós að um 75% svarenda
sáu Morgunblaðið oft eða daglega
en 67% sáu DV. Mun lakari var
útkoman hjá hinum dagblöðunum,
Þjóðviljinn og Tíminn voru með
svipaða útbreiðslu eða 20% og 19%,
því næst kemur Dagur með 11% og
loks Alþýðublaðið með 5%.
í könnuninni kom í ljós að út-
breiðsla Dags á Akureyri er mjög
mikil eða 79% í Norðurlandi eystra
og 33% í Norðurlandi vestra.
Samskonar könnun var gerð fyrir
fjórum árum og kemur nú í Ijós að
útbreiðsla Tímans hefur minnkað
töluvert en þá sáu 26% svarenda
blaðið daglega eða oft. Breytingarn-
ar á milli þessara kannana eru ekki
eins miklar hjá hinum dagblöðun-
um, enda ekkert þeirra gengið í
gegnum jafn mikla örðugleika á
tímabilinu. Þá má búast við að
uppgangur Dags á Norðurlandi hafi
verið á kostnað Tímans að nokkru
leyti. - BG
SUMAR '87
Vélabær hf. Andakílshr. S. 93-5252
Ólafur Guðmundsson,
Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-5622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-4191
Guðbjartur Björgvinsson,
Sveinsstöðum, Klofningshr. Dal. S. 93-4475
Vélsm. Hunv. Blönduósi S. 95-8145
J.R.J. Varmahlíð S. 95-6119
Bílav. Pardus, Hofsósi S. 95-6380
Bílav. Dalvíkur, Dalvik S. 96-61122
Dragi Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn S. 97-8340
Víkurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson,
Stóra Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts Iðu S. 99-6840
Hafið samband við sölumenn okkar
og kynnið ykkur verð og greiðslukjör
Globust Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
- okkar heirnur snýst um gxdi
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
FEUA Margra ára reynsla sýnir að Fella sláttuþyrl-
ur eru einhverjar vönduðustu sláttuþyrlur sem völ er á.
Fella sláttuþyrlur eru fáanlegar í stærðunum 166 cm og
192 cm. Báðar stærðirnar eru fáanlegar með og án
grasknosara, sem mjög auðvelt og fljótlegt er að taka af
og setja við. Fella er sláttuþyrla sem endist og endist.
Kynnið ykkur prófun Bútæknideiidar sumarið 1982 á
Fella Km 165 sláttuþyrlunni með grasknosara.
FELÍA heyþyrlur eru sterkaz og afkastamiklar. Þær
er hægt að fá bæði lyftutengdar og dragtengdar. Allar
vélarnar eru með skástillibúnaði, þannig að þær geti
kastað frá skurðum og girðingum.
■' • • '. ••' •' . •» • ••:■->•
FELLA stjörnumúgavélar henta stórum og litlum
búum. Hægt er að fá vélar sem raka hvort sem er til
hægri eða vinstri, einnig vélar til tengingar framaná
dráttarvélar.