Tíminn - 23.06.1987, Side 15
Þriðjudagur 23. júní 1987.
Tíminn 15
lllllSAMVINNUMÁL
Velgengni
á Blönduósi
Bæöi samvinnufélögin skiluöu hagnaði eftir síðasta ár
Á Blönduósi starfa eins og kunn-
ugt er tvö samvinnufélög, Kaupfél-
ag Húnvetninga, sem rekur verslun
og þjónustu, og Sölufélag Austur-
Húnvetninga, sem rekur mjólkur-
stöð og sláturhús. Félögin eru rekin
í nánu samstarfi og er kaupfélags-
stjóri jafnframt framkvæmdastjóri
sölufélagsins.
Kf. Húnvetninga
Á síðasta ári varð heildarum-
setning Kf. Húnvetninga 447,3
miljónir sem er 27,5% aukning frá
árinu á undan. Reikningsleg af-
koma félagsins batnaði verulega á
milli ára, og var nú gert upp með
1.438 þús. kr. hagnaði. Eiginfjár-
myndun varð nokkur í rekstrinum,
en hins vegar versnaði lausafjár-
staðan.
Af einstökum rekstrarliðum má
nefna að launakostnaður varð 49,1
miljón og hækkaði um 48%. Kem-
ur þar tvennt til, annars vegar
fjölgun starfsfólks og hins vegar
taxtahækkaniroglaunaskrið. Ann-
ar rekstrarkostnaður varð 15,8
miljónir og hækkaði um 21%.
í verslunum félagsins varð veltu-
aukningin um 27%. Félagið hélt
fyllilega hlut sínum í verslun í
héraðinu og afkoma einstakra
búða batnaði verulega frá árinu á
undan. t>á batnaði afkoma verk-
stæðis einnig verulega og hefur
ekki verið jafngóð í mörg ár.
1 verksmiðjunni Vilko, sem
kaupfélagið keypti fyrir nokkru,
varð heildarsalan 7,4 miljónir. Ein-
göngu voru þar framleiddar vörur
undir merki Vilko, og gekk fram-
leiðsla þeirra vel og eftirspurn
reyndist svipuð og búist hafði verið
við.
Á félagsmálasviðinu gerðist það
helst að fréttabréf kom út reglu-
lega, og var þar lögð áhersla á að
koma á framfæri fréttum af starf-
semi félaganna og upplýsingum
sem snerta félagsmenn. Samkvæmt
venju var nemendum 8. bekkjar
grunnskólanna á félagssvæðinu
boðið í heimsókn og þeim kynnt
starfsemi félaganna, saga þeirra og
tilgangur.
Sölufélag
Austur-Húnvetninga
{ mjólkursamlagi Sölufélagsins
var tekið á móti 4,2 miljónum lítra
af mjólk, sem er 25 þúsund lítrum
minna en 1985. I sláturhúsi félags-
ins var innvegið kjöt af sauðfé 748
tonn, af nautgripum 132 tonn og af
hrossum 102 tonn. Innvegin ull var
67 tonn, og auk þess var tekið á
móti nokkru af svínum og laxi.
Magnaukning kjöts á milli ára var
um 88 tonn, en nokkur fækkun
varð á ásettu sauðfé vegna búhátta-
breytinga og niðurskurðar vegna
riðu.
Þá var kjötvinnsla Sölufélagsins
rekin með svipuðu sniði og undan-
farin ár. Veltan þar var um 269
miljónir sem var 14% aukning frá
árinu á undan. t>á á Sölufélagið
meirihluta í Hóteli Blönduós hf.
og gekk rekstur þess vel á síðasta
ári. Er umsetning þess vaxandi og
horfur á að svo verði áfram, en
undanfarið hafa staðið yfir miklar
breytingar á húsnæði hótelsins.
Áfkoma Sölufélagsins á síðasta
ári var ágæt og rekstur þess er
talinn traustur. Á rekstrarreikningi
þess fyrir síðasta ár var tekjuaf-
gangur að fjárhæð urn 160 þúsund
krónur.
Samstarf mjólkur-
samlaga norðanlands
í skýrslu sinni til aðalfundar
Sölufélagsins nú í vor vék Árni S.
Jóhannsson kfstj. nokkuð að þeim
umræðum, sem uppi hafa verið um
samstarf mjólkursamlaganna á
Norðurlandi. Um það mál sagði
Árni í skýrslu sinni:
„Að undanförnu hefur verið rætt
um samstarf mjólkursamlaganna á
Norðurlandi. Hefurveriðstarfandi
sérstök tíu manna nefnd í því
skyni. Eftir að hafa unnið að
þessum málum um hríð er það
skoðun mín að ekki sé nema um
tvennt að velja: 1. Að hvert samlag
starfi áfram líkt og nú er. 2. Að
stofnuð verði Mjólkursamsala
Norðurlands, eða Norður- og
Austurlands. Undirtektir við stofn-
un Mjólkursamsölu hafa farið vax-
andi og hlotið jákvæða umfjöllun.
En þegar komið hefur að því að sú
hagræðing, sem að er stefnt, næst
ekki nema með því að einhver láti
eitthvað af hendi, þyngist brúnin á
mönnum og hver og einn segir:
ekki ég.
Grundvallarforsenda sameining-
ar, sparnaður í fjárfestingum og
minni reksturskostnaður, næst
ekki nema með tilfærslu á vinnslu
einstakra tegunda og sérhæfingu.
Jafnframt hefur verið horft á að
öll samlögin væru rekin áfram,
þótt einhver fækkun yrði á mann-
afla. Samdrætti í vinnslu yrði mætt
með því að flytja heim íhéraðstörf
sem nú eru unnin í Reykjavík og
með nýjum framleiðsluvörum í
matvælaiðnaði.
Því miður blæs ekki byrlega fyrir
þessari hugmynd sökum samstöðu-
leysis okkar Norðlendinga. Hugs-
anlega erum við nú að missa frum-
kvæði á þessu sviði úr höndum
okkar. Því verður erfitt að ná
aftur, þegar það einu sinni er
komið í hendur stjórnvalda í
Reykjavík." -esig
Verslunarhús Kf. Húnvetninga á Blönduósi
V orhappdrætti
Framsóknarflokksins 1987
VINNINGASKRÁ
1. Sumarhús - nr. 758
2. Ferð með Samvinnuferðum/Landsýn fyrir kr.
lOO.ooo. - nr. 22524
3. -8. Ferð að eigin vali fyrir kr. 50.ooo, hver vinningur.
nr. 14656 - 16323- 17333 - 19931 - 32377 -
37228
9.18. Vömúttekt að eigin vali fyrir kr. 50.000 hver
vinningur.
nr. 44 - 8607 - 12336 - 15357 - 19763 -
32258 - 32423 - 34813 - 38079 - 40666
Vinningsmiðum má framvísa til Stefáns Guðmundssonar,
skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21 Reykjavík.
Ógreiddir miðar em ógildir.
Happdrætti Framsóknarflokksins
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Læknaritarar
Viljum ráöa læknaritara á eftirtaldar deildir:
Handlækningadeild
Lyflækningadeild
Bæklunardeild
Upplýsingar veita læknafulltrúar viökomandi deilda.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist skrifstofustjóra F.S.A. fyrir 5. júlí n.k.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahús á Akureyri
Innanhússfrágangur
Tilboö óskast í innanhússfrágang í rannsóknardeild í
nýbyggingu Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri.
Um er aö ræða nálægt 355 m2 svæði.
Verktaki tekur viö húsrýminu múrhúöuöu meö hitalögn
aö hluta og skal skila því fullgerðu. Innifaliö er allt, sem
til verksins þarf, þ.m.t., t.d. loftræsi- og raflagnir.
Verkinu sé aö fullu lokiö 1. apríl 1988.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Rvk. og á skrifstofu umsjónarmanns framkvæmda-
deildar I.R., Bakkahlíö 18, Akureyri, gegn 5.000,- kr.
skilatryggingu.
Tilboð veröa opnuö hjá Innkaupastofnun ríkisins þriöju-
daginn 14. júlí 1987, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Oskum að kaupa
Viljum kaupa þurrkgrindurfyrir saltfisk. Upplýsing-
ar í síma 91-27880.