Tíminn - 30.06.1987, Qupperneq 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 30. júní 1987'
Stjórnarmyndunarmenúett Jóns Baldvins á enda:
Sjálfstæðisfíokkurinn
hafnaði landbunaðar"
Dramatískum kafla í stjórnar-
myndunarviðræðunum undir for-
' ystu Jóns Baldvins Hannibalssonar
lauk í gærkvcldi þcgar Jón skilaði
forseta íslands umboði sínu og
, lýsti því yfir að hgnn bæri ekki
ábyrgð á því hvernig farið hafði.
Viðræðurnar náðu hámarki um
miðnættið á sunnudagskvöld eftir
11 kiukkutíma fundarhöld í Al-
þingi. Þá lá á borðum þingflokk-
anna þriggja tillaga að uppstillingu
ráðuneyta, sem ekki tókst að sætt-
ast á og var því viðræðunum hætt
að sinni.
Eftir að Þorsteinn Pálsson varp-
aði fram afarkostum sínum s.L
fimmtudag hefur stöðugt verið teit-
að leiða í verkaskiptingunni til að
tryggja það að hlutfallslegt valda-
jafnvægi ríki milli flokkanna
Þriggja-
Það hefur berlega ræst að Þor-
steinn Pálsson ætlaði sér ávallt að
verða málamiðlun í forsætisráð-
herrastólinn, en á saina tíma að
halda fast í að fá þrjá ráðhcrra í
viðbót, þrátt fyrir það að forsætis-
ráðuneytið sé almennt talið hafa
tvöfalt ígildi á við önnur ráðuneyti.
Þorsteinn segir nei við
landbúnaðar- og
heilbrigðismálum
Það hefur ekki þótt síður merki-
legt að Sjálfstæðisflokkurinn hafn-
aði gjörsamlega frá upphafi við-
ræðnanna að taka landbúnaðar-
ráðuneytið. Þykir mörgum ábyrg
afstaða stærsta flokks landsins hafa
beðið þarna alvarlegan hnekki, að
neita hreint og klárl út frá byrjun
að taka að sér ákveðinn þá'tt lands-
stjórnarinnar sé út í hött. Þá herma
sömu heimildir að Sjálfstæði-
sflokkurinn. hafi einnig hafnað að
taka að sér heilbrigðisráðuneytið,
enda reynslunni TíkarLaf Borgar-
spftalamálinu fyrr í vetur.
Lokatillaga
Þegar allt um þraut og Jón
Baldvin gafst upp lá eftirfarandi
tillaga um verkefnaskiptingu á
borðum þingflokkanna og var þar
Sjálfstæðisflokkur og væntanlega
Þorsteinn Pálsson í forsæti.
Sjálfstæðisflokkur
- forsætisráðuneytið - dómsmála-
og kirkjumálaráðuneyti
- iðnaðarráðuneytið
,- 'menntamálaráðuneytið
- forseta Sameinaðs þings
Framsókn
- utanríkisráðuneytið með utan-
ríkisviðskipti
- landbúnaðarráðuneyti .
- sjávarútvegsráðuneyti
- heilbrigðisráðuneyti
- formann fjárveitinganefndar AJ
þingis
Alþýðuflokkur
- fjármálaráðuneyti
- viðskiptaráðuneyti (bankamál)
- félagsmálaráðuneyti
- samgönguráðuneytið
- formann utanríkismálanefndar
Steingrimur vildi
fækka ráðherrum
Þama er um að ræða tillögu sem
Steingrímur Hermannsson hafði
lagt fyrir hina formennina, en
henni breyttu síðan alþýðuflokks-
menn án nokkurs samráðs við
þingflokk framsóknarmanna í sam-
ræmi við þarfir Sjálfstæðisflokksins
með því að leggja til að hann fengi
fjóra ráðherra. Tillaga Steingríms
fól hins vegar í sér að hver flokkur
fengi 3 ráðherra, ef Þorsteinn fengi
forsæti. Var þessi skipting af hálfu
framsóknarmanna talin nauðsyn-
leg til að tryggja eðlilega og réttláta
valdaskiptingu innan ríkisstjómar-
innar, og um hana hafði ávallt
verið full samstaða milli Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks.
Yfirleitt hefur forsætisráðherra-
embættið verið talið mikilvægasta
ráðherraembættið og því haldið
fram að það hafi tvöfalt vægi á við
önnur ráðuneyti. Framsóknar-
menn hafa litið þannig á máiin og
þegar þeir samþykktu möguleik-
ann á að Þorsteinn Pálsson fengi að
leiða þessa stjórn, þá þótti fram-
sóknarmönnum eðlilegt að Sjálf-
stæðisflokkurinn gæfi í einhverju
eftir af fyrra skilyrði sínu um fjóra
ráðherra og fimm ráðuneyti.
Því gerðu framsóknarmenn það
að tillögu sinni að ráðherrum yrði
fækkað í níu alls og fengi hver
flokkur þrjá ráðherra, að öðrum
kosti að Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur fengju fjóra
ráðherra hvor og Alþýðuflokkur
þrjá. Sjálfstæðismenn snerust önd-
verðir gegn þessari tillögu og við
það sat þegar Jón Baldvin hleypti
mannskapnum út úr Alþingishús-
inu.
Vantraust á formann
og varaformann
Framsóknarflokks
Er mikii reiði meðal framsókn-
armanna, sem þykir ekki mikið um
vilja hinna flokkanna til stjómar-
myndunar, sérstaklega þar sem
þeir buðu upp á valkosti í verkefna-
skiptingunni með forystumönnum
allra flokka í forsæti. En aldrei
kom tillaga um Steingrím sem
forsætisráðherra frá hinum flokk-
unum. Þykir mörgum þetta bein-
línis vantraust á Steingrím Her-
mannsson. Heimildir herma enn-
fremur að Sighvatur Björgvinsson
og Karvel Pálmason standi stífir
gegn því að Framsóknarflokkurinn
fái sjávarútvegsráðuneytið og um-
fram allt að Halldór Ásgrímsson
verði áfram sjávarútvegsráðherra.
Túlka framsóknarmenn þetta á
sama veg, sem algert vantraust á
störf Halldórs undanfarin fjögur
ár. Þykir þetta viðhorf þingmanna
Alþýðuflokksins ekki bæta það
ágæta andrúmsloft sem myndast
hafði á milli þessara tveggja flokka
varðandi málefnin. ÞÆÓ
Svavar Gestsson
i ■ -
formaöur Alþýðubandalagsinsum hugsan-
legar viðræöur félagshyggjuflokka:
„Höfum heyrt
hvert í öðru“
Þorsteinn Pálsson
og þingflokkur
Sjálfstæðisflokks:
Þarf að
reyna
þetta
mynsturtil
þrautar
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
kom saman til fundar síðdegis í gær
til þess að ræða breytta stöðu í
stjórnarmyndunarviðræðum. Þing-
flokkurinn tók þá afstöðu að annað
væri óverjandi en að halda áfram
stjórnarmyndunarviðræðum Fram-
sóknar, Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks. Þorsteinn Pálsson
sagði í gær að það væri óábyrgt ef
þessir flokkar gerðu ekki úrslita
Þorsteinn Pálsson kemur af fundi
forseta í gær.
atrennu að stjórnarmyndun. Það
væri ekki gerlegt að láta slitna upp
úr viðræðum vegna spurningarinnar
um hvort bætt yrði við einum ráð-
herra í ríkisstjómina eða ekki.
„Ef þessi stjórnartilraun mis-
heppnast þá erum við tilbúin til
viðræðna um þátttöku í ríkisstjórn.
Þar höfum við lagt áherslu á að
kanna að minnsta kosti möguleika á
myndun ríkisstjórnar svokallaðra
félagshyggjuflokka, eða nánar til-
tekið fjögurra flokka stjórnar, ann-
arra flokka en Borgaraflokks og
Sjálfstæðisflokks," sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins.
Aðspurður sagðist Svavar ekki
vera viss um að stjórnarmyndunartil-
raun Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks færi út
um þúfur, vegna þess að það væri
svo lítið sem væri eftir að koma sér
saman um. Það hefði aldrei gerst að
hugsanlegt stjórnarsamstarf slitnaði
á því hvort ráðherrar væru einum
fleiri eða færri.
Um það hvort fulltrúar félags-
hyggjuflokkanna hefðu rætt sín á
milli um hugsanlega stjórnarmyndun
sagði Svavar: „Ekkert sérstaklega,
en við höfum svona heyrt hvert í
öðru. Það getur nú varla heitið að
við höfum haft neinar sérstakar
viðræður en við höfum kannað það,
jú, jú.“
Hver ætti að þínu mati að fá
umboð til slíkrar stjórnarmyndunar?
„Ég vil nú ekkert um það segja.
Það er auðvitað forseti fslands sem
verður að ákveða það, hvort hún
lætur einhvern hafa umboðið eða
hvort hún hefur þetta opið fyrir
alla.“ ABS
Askrift oq dreifingTímans í
Garöabæ og Hafnarfirði,
sími 641195