Tíminn - 30.06.1987, Síða 19
Þriðjudagur 30. júní 1987.
Tíminn 19
TNT- söngkonurnar:
TINA OG TANIMY
Söngkonurnar Tina Turner og
Tammy Wynette hafa aldrei verið
vinsælli en nú upp á síðkastið, - og
þó eru þær komnar hátt á fimm-
tugsaldurinn. Þær hafa báðar verið
á söngferðalagi í Englandi nú í
sumar, og einn rómantískur bresk-
ur blaðamaður komst svo að orði,
- að þær hefðu blómstrað upp á
haustdögum lífsins og aldrei verið
betri en nú.
Blaðamaðurinn rekur æviferil
þeirra, og þykir sem hann hafi um
margt verið líkur, þrátt fyrir hvað
þær sjálfar eru ólíkar: - Önnur,
Tina, er blökkukona, sem mis-.
þyrmt var í 16 ára hjónabandi, en
hin, Tammy, hvít með ljósa lokka,
og hún hafði farið lítið betur út úr
hjónabandsmálunum. Hún hefur 5
sinnum gengið í hjónaband, og
hafa öll þeirra endað með skilnaði,
nema það síðasta sem staðið hefur
í 9 ár.
Breytt útlit og breyttur
lífsstíll
Báðar hafa söngkonurnar breytt
algjörlega um útlit.
Tina hafði sléttan ennistopp og
dökkt hár hennar var klippt í
jafnsítt passíuhár. Nú hefur hún
látið klippa sig í tætingslegar stytt-
ur og lýsa hárið. Vöxturinn er sá
sami, þó hún sé orðin 48 ára. Hún
var spurð hverju hún þakkaði það,
hvort hún væri dugleg í líkams-
æfingum og matarkúrum. „Þetta
er bara heppni, held ég,“ sagði
söngkonan, en hún bætti því við,
að hún fengi líklega alveg nóga
hreyfingu á sviðinu, því hama-
gangurinn í sér væri svo æðislegur.
„Ég reyki ekki og drekk ekki
sterka drykki. Fer ekki í matarkúra
öðruvísi en ég reyni að borða það
sem hollt er - grænmeti og mikið
af fiski.“
Við skilnaðinn sagðist Tina hafa
fengið nóg af karlmönnum fyrir
lífstíð. „Aldrei meira skal neinn
ráða yfir mér!“ var yfirlýsing
hennar. Hún segir að reyndar hafi
hún átt góða vini, og nú sé hún
skotin í einum, Ewin Bach, sem er
Tina Turner á sviði fyrir 20 árum...
... og á tónleikum í dag. Hún segist hafa gaman af að daðra við karlmenn
í áhorfendahópnum. Það seti alltaf fjör í sýninguna
þýskur forstjóri fyrir. hljómplötu-
fyrirtæki, en ekkert liggi á, og hún
fari varlega í sakirnar.
Tammy Wynette hefur ekki síð-
ur breytt sínu útliti, - og til hins
betra, er samdóma álit hennar og
aðdáendanna. Hún hafði áður
axlasítt og mikið krullað litað ljóst
hár, borðaði allt of mikið og hlóð
á sig spiki og hrukkum.
„Ég var alveg tekin í gegn og
„endurnýjuð“ í þekktri fegrunar-
stofnun í Hollywood,“ segir
Tammy. Hún grenntist um 15 kíló,
og fór síðan í andlitslyftingu, lét
stuttklippa hárið og stundaði lík-
amsæfingar. Hún er orðin 45 ára
og 2ja barna amma, en lítur betur
út nú en þegar hún var þrítug!
Hún hefur nú látið innrétta sér-
stakt æfingaherbergi í húsi sínu, og
stundar líkamsræktina af kappi.
Hún segir: „Þetta er allt annað líf,
ég er svo ánægð með mig og
tilveruna!“
Tammy Wynette fyrir 9 árum.Miki-
ar breytingar hafa orðið á síðan -
svo sem sjá má á þessari mynd,
sem er tekin nýlega af henni í
sjónvarpsútsendingu
Þriðjudagur
30. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. - Hjördís Finnbogadóttir og
Óðinn Jónsson. Fróttir eru sagðar kl. 7.30 og
8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30
og síðan lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál
kl. 7.20.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Sagan af
Hanska, Hálfskó og Mosaskegg“ eftir Eno
Raud. Hallveig Thorlacíus les þýðingu sína (6).
9.20 Morguntrimm. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
'10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
(Frá Akureyri) (Þátturinn verður endurtekinn
að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn. - Breytingaaldurinn, breyt-
Ing til batnaðar. Umsjón: Helga Thorberg.
14.00 Miðdegissagan: „Franz Liszt, örlög hans
og ástir“ eftir Zolt von Hársány. Jóhann
Gunnar Ólafsson þýddi. Ragnhildur Steingríms-
dóttir les (11).
14.30 Óperettutónlist.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20Afríka - Móðir tveggja heima. Fimmti
þáttur:
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar
1.7.40 Torgið Umsjón: Þorgeir Ólafsson og Anna
M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Guðmundur Sæmundsson flytur.
Glugginn. - Bandaríska skáldkonan Louise
Erdrich . Ástráður Eysteinsson segir frá.
20.00 Leikhústónlist a. „Agon", balletttónlist eftir
Igor Stravinsky.
20.40 Málefni fatlaðra Umsjón: Hilmar Þór Haf-
steinsson. (Endurtekinn þáttur frá deginum
áður).
21.10 Ljóðasöngur William Parker syngur lög eftir
Aaron Copland. William Huckaby leikur á píanó.
21.30 „Útvarpssagan: „Leikur blær að laufi“
eftir Guðmund L. Friðfinnsson. Höfundur les
(18)-
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Rithöfundur í hálfa öld Dagskrá um Guðm-
und Daníelsson. Gylfi Gröndal tekur saman og
ræðir við skáldið. Flutt brot úr verkum Guð-
mundar og fjallað um þau. (Endurtekinn þáttur
frá sunnudegi).
23.20 íslensk tónlist.
24.00 Fréttir. .
00.10 Samhljómur Umsjón: Þórarinn Stefansson.
(Frá Akureyri) (Endurtekinn þáttur frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
Þriðjudagur
30. júní
18.30 Vllli spæta og vlnir hans. 24. þáttur.
Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi
Ragnar Ólafsson.
18.55 Unglingarnir í hverfinu. Fimmti þáttur.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn Umsjón: GuðmundurBjarni Harð-
arson og Ragnar Halldórsson. Samsetning: Jón
Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Bergerac. Breskur sakamálamyndaflokkur í
tíu þáttum. Annar þáttur í nýrri syrpu um
Bergerac rannsóknarlögreglumann á Ermar-
sundseyjum. Þýðandi Trausti Júlíusson.
21.35 Saga tiskunnar. (Story of Fashion) Nýr
flokkur - Fyrsti þáttur. Breskur heimilda-
myndaflokkur í þremur þáttum um sögu þess
menningarfyrirbæris sem tíska nefnist. (fyrsta
þætti er uppruni Parísartískunnar rakinn allt til
nítjándu aldar. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
22.35 Kastljós. Þáttur um erlend málefni. Umsjón-
armaður Árni Snævarr.
23.05 Leyniþræðir (Secret Societies) Annar þáttur
umdeilds, bresks heimildamyndaflokks. Þýð-
andi Bogi Arnar Finnbogason.
23.35 Dagskrárlok.
ð
0
STOD-2
Þriðjudagur
30. júní
16.45 Laus úr vlðjum (Letting Go). Bandarísk
sjónvarpsmynd bygqð á bók Dr. Zev Wanderer.
18.15 Knattspyrna - SL mótið -1. deild. Umsjón-
armaður er Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Miklabraut. (Highway To Heaven). Banda-
rískur framhaldsþáttur með Michael Landon og
Victor French í aðalhlutverkum. Jákvætt viðhorf
og bjartsýni eru aðalsmerki Jonathans Smith á
ferðum hans um heiminn.
20.50 Uppreisn Hadleys (Hadley’s rebellion).
22.20 Oswald réttarhöldin (The Trial Of The Lee
Harvey Oswald). Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur í 5 hlutum. 1. þáttur.
Menn voru felmtri slegnir og í miklu uppnámi þ.
22. nóvember 1963 en þá var John F. Kennedy,
forseti Bandaríkjanna, myrtur. Lee Harvey
Oswald var grunaður um morðið, en aldrei var
hægt að sanna eða afsanna sekt hans, þar sem
hann var sjálfur myrtur á leið til réttarins. í
þessum þáttum eru réttarhöldin sett á svið,
kviðdómur skipaður og í lokin kveðinn upp
dómur yfir Lee Harvey Oswald.
23.20 Lúxuslíf (Lifestyles Of The Rich And Fam-
ous). í þessum þætti er rabbað við Robert
Conrad, Uri Geller og Morgan Fairchild og þau
veita áhorfendum innsýn í líf hinna frægu og
ríku í Hollywood.
00.05 Aðdáandinn (The Fan). Bandarísk spennu-
mynd frá 1981 með Laureen Bacall, Maureen
Stapleton, Michael Biehn og James Garner í
aðalhlutverkum. Leikstjóri er Edward Bianchi.
Sally Ross (Laureen Bacall) er fræg leikkona.
Einkaritarinn hennar, Belle Goldman (Maureen
Stapleton) hugsar um nánast allt fyrir Sally, þar
á meðai að svara aðdáendum sem skrifa til
leikkonunnar. Einn aðdáandi Sallyar er ekki
ánægður með þessa meðhöndlum á bréfum
þeim er hann sendir leikkonunni, og tekur því til
sinna ráða.
01.35 Dagskrárlok.
Ath. Fréttirnar eru alla daga vikunnar, einnig um
helgar og á almennum frídögum.
07.00-09.00 Inger Anna Aikman. Morgunstund
gefur gull í mund og Inger er vöknuð fyrir allar
aldir með þægilega tónlist, létt spjall, og viðmæl-
endur koma og fara.
08.30 STJÖRNUFRÉTTIR (fréttir einnig á hálfa
tímanum).
09.00-12.00 Gunnlaugur Helgason. Jæja...
Helgason mættur!!! Það er öruggt að góð tónlist
er hans aðalsmerki. Gulla fer með gamanmál,
gluggar í stjörnufræðin, og bregður á leik með
hlustendum í hinum og þessum get leikjum.
11.55 STJÖRNUFRÉTTIR (fréttir einnig á hálfa
tímanum).
12.00-13.00 Pia Hansson. Hádegisútvarpið er
hafið. Pia athugar hvað er að gerast á hlustunar-
svæði Stjörnunnar, umferðarmál, íþróttir og
tómstundir og einnig kynning á einhverri íþrótt-
agrein.
13.00-16.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Lagalistinn
er fjölbreyttur á þessum bæ. Gamalt og gott
leikið af fingrum fram, með hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist. Helgl fylgist vel með því sem er að
gerast.
16.00-19.00 Bjarni Dagur Jónsson. Þessi hressi
sveinn fer á kostum með kántrý tónlist og aðra
þægilega tónlist, (þegar þið eruð á leiðinni
heim). Spjall við hlustendur er hans fag og
verðlaunagetraun er á sínum stað klukkan 5 og
6, síminn er 681900.
17.30 STJÖRNUFRÉTTIR.
19.00-20.00 Stjörnutíminn. The Shadows, Fats
Domino, Buddy Holly, Brenda Lee, Little Eva,
Connie Francis, Sam Cooke, Neil Sedaka, Paul
Anka... Ókynntur klukkutími með því besta,
sannkallaður Stjörnutími.
20.00-21.00 Helgi Rúnar Óskarsson, Stjörnu-
spil, Helgi lítur yfir spánnýjan vinsældalista frá
Bretlandi og leikur lög af honum.
21.00-23.00 Árni Magnússon. Hvergi slakað á.
Árni hefur valið allt það besta til að spila á
þessum tíma, enda dagur að kveldi kominn.
23.00 STJÖRNUFRÉTTIR.
23.10-00.00 íslenskir tónlistarmenn. Hinir ýmsu
tónlistarmenn (og konur) leika lausum hala í
einn tíma með uppáhalds plöturnar sínar. I
kvöld: Björgvin Halldórsson.
00.00-00.15 Spennusaga fyrir svefninn. Jóhann
Sigurðarson leikari les hrollvekju fyrir svefninn.
00.15-07.00 Gísli Sveinn Loftsson (Áslákur)
Sjörnuvaktin hafin. Ljúf tónlist,... hröðtónlist,...
sem sagt tónlist fyrir alla.
Þriðjudagur
30. júní
7.00- 9.00Pétur Steinn og Morgunbylgjan.
Pétur kemur okkur réttu megin framúr með
tilheyrandi tónlist og lítur yfir blöðin.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið allsráðandi, afmælis-
kveðjur og spjall til hádegis. Litið inn hjá
fjölskyldunni á Brávallagötu 92.
Fréttir kl. 10.00,11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki er í fréttum
og leikur létta hádegistónlist.
Fréttir kl. 13.00.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og siðdegis-
poppið. Gömlu uppáhaldslögin og vinsælda-
listapopp í réttum hlutföllum.
Fréttir kl. 14.00,15.00,16.00.
17.00-19.00 í Reykjavík síðdegis. Leikin tónlist
litið yfir fréttimar og spjallað við fólkið sem
kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður milli kl. 19.03 og
19.30. Tónlist til kl. 21.00.
21.00-24.00 Sumarkvöld á Bylgjunni með Þor-
steini Ásgeirssyni.
24.00-07.00 Næturdagskrá Byigjunnar - Bjarni
Ólafur Guðmundsson. Tónlist og upplýsingar
um veður og flugsamgöngur.