Tíminn - 03.07.1987, Side 5
Föstudagur 3. júlí 1987
Tíminn 5
Hæstaréttardómur um rétt einstæðra mæðra:
TVEGGJA ARA REYNSLll-
TÍMIÁ NÝJUM KÖRLUM
Hæstiréttur hefur fellt þann at-
hyglisverða dóm, að einstæðar
mæður eigi rétt á að halda mæðra-
launum frá Tryggingastofnun í 2 ár
eftir að þær reyna að taka upp
sambúð með öðrum körlum en
barnsfeðrum sínum. Bótaréttprinn
fellur því aðeins niður að til barn-
eigna komi með nýja karlinum,
sambúð hafi staðið óslitið í tvö ár
eða konan gangi í hjónaband.
Þetta kom fram í samtali við
Hilmar Björgvinsson lögfræðing
hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Hann sagði t.d. augljóst að kona
sem búi með manni sem sé linur
við vinnu eða komi auralítill heim
sé vitanlega á báðum áttum á
meðan hún gæti haft öruggar
greiðslur frá Tryggingastofnun og í
því sambandi þurfi að skoða
skattaréttinn og tryggingarnar í
samhengi. Tíminn spurði Hilmar
hvort/hvað Tryggingastofnun gæti
gert til að koma í veg fyrir að fólk
sem raunverulega sé í sambúð léti
skrá sig sem einstaklinga til að ná
út bótum frá Tryggingastofnun.
Hilmar telur ekki vafamál að
eitthvað sé um það að menn séu
skráðir annarsstaðar en þeir dvelj-
ast dags daglega. Konur (bæði
einstæðar mæður og aðrar) séu oft
að þreifa fyrir sér um sambúð og
prófa menn, sem oft reynist ganga
erfiðlega og slitnar upp úr öllu
saman. En að einhverjir aurar frá
Tryggingastofnun afstýri því að
fjöldi fólks gangi í hjúskap sagðist
Hilmar ekki trúaður á. Þar komi
frekar til mórallinn - hin almenna
lausung í þjóðfélaginu. Allir viti að
fjölskyldan eigi erfitt uppdráttar.
Tæknilega séð sagði Hilmar
Tryggingastofnun lítið geta gert til
að komast að óskráðri sambúð
fólks. Hún verði að fara eftir
úrskurði Hagstofunnar um lög-
heimili, en ekki sérstaklega kannað
hvort um slíkar samvistir sé að
ræða í raun og veru.
Alltaf kemst þetta þetta þó upp
meira og minna, að sögn Hilmars,
og við því sagði hann brugðist á
þann hátt að fólk er látið borga til
baka bætur sem það hefur fengið á
fölskum forsendum, yfirleitt þann-
ig að t.d. oftekin mæðralaun eru þá
dregin af meðlagsgreiðslum þar til
jöfnuður næst. Heimild í almanna-
tryggingalöggjöfinni um að hægt sé
að kæra fólk til Sakadóms, sagði
hann hins vegar ekki hafa verið
beitt.
Hilmar benti á að skattaréttur-
inn er ekki minna mál en trygginga-
löggjöfin í því máli sem hér um
ræðir og telur nauðsynlegt að
skoða þau gögn í samhengi, en
misbrestur sé á að það hafi verið
gert. Menn hafi verið að skoða
skattalögin sér og almannatrygg-
ingalöggjöfina sér. En vegna þess
að þetta myndi allt eina heild -
félagsmálaheild - eigi ekki að
skoða þessi mál nema í samhengi.
Varðandi bæturnar sagðist Hilmar
hafa vakið athygli á því að fremur
ætti að greiða t.d. barnabætur til
þeirra sem hafa börnin en að
greiða mæðra- og feðralaun, sem
oft séu svo misnotuð. -HEI
VEIÐIHORNIÐ
Umsjón: Eggert Skúlason
Guðlaugur Bergmann og eiginkonan og veiðifélaginn Þórarinn Sigþórsson með vænan lax. Hann hefur nú
Guðrún með góða veiði. I næstu viku fer Gulli í Laxá á þegar tekið nokkra slíka og ef að líkum lætur verða
Ásum og þá má búast við stórum tíðindum. þeir fleiri.
ÞEIR VEIDAI
FISKLEYSINU
Gulli Bergmann í Karnabæ og
Þórarinn tannlæknir - betur þekkt-
ur sem Tóti tönn - eru dæmigerðir
veiðimenn, sem fara yfirleitt ekki
fisklausir heim úr veiðiferðum. Nú
hefur verið kreppa í veiðinni og
ófáir sem ganga um með öngulinn
í rassinum. Stafar sú kreppa af
vatnsleysi í kjölfar þurrka og birta
er einnig mjög mikil. En hvernig
gengur þessum aflaklóm að eiga
við laxinn við þessar erfiðu aðstæð-
ur?
Þórarinn Sigþórsson: „Ég er bú-
inn að fara í þrjá veiðitúra, í
sumar. Ég fór í Laxá á Ásum, Laxá
í Kjós og Kjarrá. Miðað við að-
stæður hefur þetta gengið nokkuð
vel. Ég byrjaði að vísu frekar seint
og missti af skotinu sem kom fyrstu
dagana. Annars hefur þetta verið
þokkalegt. Við fengum rúmlega
tíu laxa í túr og ég vil meina að það
sé ágætt miðað við aðstæður,"
sagði Þórarinn. Hann heldur síðan
til veiða á mánudag og þá á að
renna fyrir þann silfraða í Laxá í
Þingeyjarsýslu og síðar í Miðfjarð-
ará. „Laxá er ekki háð veðri en
Miðfjarðará er hinsvegar vatnslítil
og erfið sem stendur. Ég vil bara
gefa veiðimönnum eitt ráð og það
er að fara eins varlega og þeir geta.
Þegar vatnið er lítið og birtan mikil
er fiskurinn afskaplega viðkvæm-
ur.“
Þórarinn taldi augljóst að sumar-
ið í sumar yrði ekki „toppsumar“
eins og spáð var. Benti hann á að
góð ytri skilyrði hefðu gert það að
verkum að laxinn hefði gengið
mjög snemma og jafnvel upp úr
miðjum maí. Sem dæmi nefndi
Þórarinn að þegar hann var við
veiðar í Kjarrá fyrir nokkru, veiddi
hann leginn fisk mjög ofarlega í
ánni.
Guðlaugur Bergmann: „Mér og
veiðifélaganum, frúnni, hefur
gengið vel. Vorlaxinn kom nokkuð
snemma og hann veiddist þar af
leiðandi nokkuð fyrr en vanalega.
Menn hafa verið að bíða eftir
smálaxagöngunum og þær koma.
Við höfum farið þrisvar upp í
Norðurá og erum búin að fá 43
laxa. Síðan er ég að fara í Laxá á
Ásum í næstu viku.
„Skilyrðin eru erfið og menn
mega ekki gleyma því að gífurlegir
þurrkar hafa verið og það vatn sem
hefur komið í árnar er leysing-
avatn. Það er tiltölulega dautt
vatn, en rigningarnar hefur vantað.
Þær ár sem eru háðar úrkomu eins
og t.d. Norðurá, Laxá í Dölum og
fleiri koma til með að eiga sér erfitt
uppdráttar ef svona heldur áfram,“
sagði Guðlaugur. En eins og hann
benti á, þarf ekki mikið til þess að
stórir hlutir gerist. Hann nefndi
sem dæmi að í Norðurá í gær
veiddust 17 laxar fyrir hádegi, eftir
að aðeins hafði rignt. Til viðmiðun-
ar má geta þess að einn og hálfan
dag þar áður veiddust um tuttugu
laxar. Guðlaugur tók því næst
undir með Þórarni að veiðimenn
yrðu að fara geysilega varlega við
þessar aðstæður.
Stjórnin væntanlega:
Þorsteinn fær um>
boð til stjórn-
armyndunar
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, veitti Þorsteini Pálssyni
umboð til stjórnarmyndunar um
fjögurleytið í gær. Er Þorsteini, sem
samkomulag hefur náðst um sem
forsætisráðherra í væntanlegri
stjórn, ætlað að reka smiðshöggið á
það verk sem unnið hefur verið að
undanfarna daga.
Ekki var þó endanlega búið að
greiða úr flækjum krata og sjálf-
stæðismanna varðandi kaupleiguí-
búðirnar þegar síðast fréttist.
Frekar rólegt var yfir stjórnar-
myndunarviðræðunum fram eftir
degi í gær. Þingmenn og aðrir for-
ystumenn þeyttust milli smáfunda til
þess að reyna binda lausa enda í
málefnasamningnum, en sem fyrr
getur fór meginorkan í að jafna
ágreiningin um kaupleiguíbúðirnar.
Efast margir um að takist að Ijúka
verkinu á laugardag eins og vonir
stóðu til en það gæti skýrst í kvöld
eftir að forystumenn flokkanna hafa
fundað. Framsóknarmenn hafa enn-
fremur boðað til þingflokksfundar
klukkan 21. ÞÆÓ
íslendingar að vakna til vitundar?:
Heildsalar innkalla
ólögleg matvæli úr
hillum verslana
„Þetta lítur mjög vel út og heild-
salarnir brugðust vel við, enda kom
það í ljós að þeir vissu ekki um þá
reglugerð, sem hefur verið í gildi
síðan 1977, en þeir hafa heldur betur
tekið kippinn og eru nú langt komnir
með að leysa þetta,“ sagði Oddur
Rúnar Hjartarson, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ursvæðis í samtali við Tímann, en
eins og lesendur blaðsins rekur
kannski minni til, áttu yfir tuttugu
heildsalar ólöglegar vörur og mat-
væli í verslunum víða um land. Stóð
til að kæra viðkomandi heildsala ef
þeir tækju sig ekki saman í andlitinu
og innkölluðu þessar ólöglegu vörur.
En herferð Heilbrigðiseftirlitsins
hefur greinilega borið ríkulegan
ávöxt.
„Það hefur að vísu ekki náðst í
alla, þeir eru eins og við var að búast
út um hvippinn og hvappinn, en við
erum vongóðir. Þetta er náttúrlega
eitt af eilífðarmálunum okkar, en
við sjáum frammá mjög mikla breyt-
ingu frá fyrra ástandi. Eftir 1. ágúst
förum við aftur í verslanir og könn-
um aftur, því þá rennur síðari frestur
þeirra út, og þá sjáum við endanlega
hvernig þeir hafa brugðist við. En
hingað til hafa þeir brugðist mjög vel
við, þeir mega eiga það,“ sagði
Oddur Rúnar að lokum. -SOL