Tíminn - 03.07.1987, Síða 12

Tíminn - 03.07.1987, Síða 12
-12 Tíminn^ FRÉTTAYFIRLIT WASHINGTON - Oliver North hefur rofiö mánaöalanga þögn sína í sambandi við vopnasöluna til írans og að- stoðina við Contra skærulið- ana sem henni tengist og borið vitni fyrir rannsóknarnefndum þingsins. Ekki var skýrt frá því sem North sagði í vitnisburði sínum en hann hafði áður , lofað að segja allan sannleik- ann um þetta mál. MOSKVA - Talsmaður Sovétstjórnarinnar neitaði fréttum vestrænna fjölmiðla, þess efnis að stjórnin í Kreml hefði jagt fram tilboð í afvopn- unarviðræðum risaveldanna þar sem gert væri ráð fyrir fjarlægingu allra meðaldrægra eldflauga í heiminum. BOMBAY - Talsmenn al- þjóðafyrirtækisins Union Car- bide sögðust vita hvaða starfs- maður hefði valdið versta iðn- aðarslysi heims þegar gasleki varð í verksmiðju fyrirtækisins í Bophal á Indlandi og 2.352 manns létu lífið. Þeir sögðu að nafn mannsins yrði gert opin- bert þegar sá tími kæmi. MOSKVA - Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands kom til Moskvu til að setja menning- arhátíð þar og eiga viðræður við Mikhail Gorbatsjov Sovét- leiðtoga. Búist var við að þær viðræour myndu snúast um samskipti þjóðanna í efna- hagsmálum. TOKYO -Stjórnvöld í Japan höfðu grun um ólöglegan út- flutning eins fyrirtækjaToshiba samsteypunnar til Sovétríkj- anna, sem gerði Sovétmönn- um kleyft að gera kjarnorkukaf- báta sína nanast hljóðlausa,. Kafbátarnir voru búnir að hafa not af þessari tækni í nítján mánuði áður en grunurinn leiddi til handtöku starfsmanna í fyrirtækinu. Þetta var haft eftir heimildarmönnum í Japan. JÓHANNESARBORG- Lögreglan í Suður-Afríku sagðist hafa skotið tvo blökku- menn til bana nýlega í óeirðum í hverfum svartra. Blökku- mennirnir tveir létu lífið þegar lögregla skarst f leikinn í En- hlakahle þar sem hópur svert- ingja grýtti hús. BEIRÚT - Sprengja sprakk á bílastæði í grennd við aðal- stöðvar sýrlenska hersins í Vestur-Beirút þar sem múslim- ar ráða ríkjum. Föstudagur 3. júlí 1987 lllllllllllllllllllllll ÚTLÓND llllllllllllllllllllllllllllll Suður-Kórea: Roh í óvæntri heimsókn hjá andstæðingum sínum Scoul - Rcutcr Roh Tae-Woo leiðtogi stjórnar- flokksins í Suður-Kóreu kom í óvænta heimsókn til höfuðstöðva helsta stjórnarandstöðuflokksins í gær og íivatti til að báðir aðilar kæmust fljótt að samkomulagi um nýja stjórnarskrá. Menn í höfuðstöðvum stjórnar- andstöðunnar urðu ekki þetta lítið hissa þegar formaður Lýðræðislega réttlætisflokksins (DPJ) lét sjá sig þar enda hafði ekki verið tilkynnt um heimsóknina. Embættismenn Endursameinaða lýðræðisflokksins (RDP) sögðu reyndar að þetta væri líklega í fyrsta sinn sem formaður stjórnarflokksins heimsækti stöðvar andstæðinga sinna síðan Chun Doo Hwan forseti komst til valda árið 1980 eftir byltingu hersins. Roh hefur sannarlega verið í sviðsljósinu í Suður-Kóreu eftir hina mjög svo óvæntu tilkynningu á mán- udaginn þar sem stjórnin lét undan nær öllum kröfum stjórnarandstöðu- nnar og samþykkti meðal annars beinar forsetakosningar á þessu ári. Roh átti tal við Kim Young-Sam, annars leiðtoga RDP, í höfuðstöðv- unum í gær og ræddu þeir um nauðsyn þess að setja upp reglur varðandi hið nýja kosningakerfi. Tillögur Roh á mánudaginn bundu enda á nær samfelld mótmæl- ahöld síðustu tveggja vikna þar sem krafist var beinna forsetakosninga Tae-Woo leiðtogi stjórnar- flokksins í Suður-Kóreu: Kom enn á óvart í gær. og afsagnar Chun forseta. Önnur óvænt yfirlýsing barst frá flokki Rohs í gær þess efnis að stjórnin væri að hugleiða hvernig bæta mætti fyrir mannfallið sem varð í óeirðunum í Kwangju fyrir sjö árum. Samkvæmt opinberum tölum létust 193 í blóðugum átökum al- mennings og hers en stjórnarand- stæðingar í borginni segja þessa tölu vera að minnsta kosti fimm sinnum hærri. Ríkisstjórn Chun varð til á þessum tíma og annar frægur maður kom þar við sögu, nefnilega Kim Dae- J ung þekktasti stjórnarandstæðingur landsins. Síðan þessi atburður varð hefur Kim meira og minna dvalist í útlegð eða stofufangelsi en sam- kvæmt heimildum huga stjórnvöld nú að því að gefa honum fullt frelsi. Bandaríkin: Hægrimaður í hæstarétt - Reagan forseti tilnefnir Robert Bork til setu í hinum áhrifamikla hæstarétti landsins Ronald Reagan Bandaríkjaforseti greip tækifærið í gær til að beina hæstarétti Bandaríkjanna meir í átt- ina til hægri er hann skipaði dómar- ann Robert Bork frá Washington í þennan áhrifamikla dómstól. Bork á að taka við af hinum hófsama Lewis Powell sem verður áttræður í september og ætlar þá að taka sér endanlega hvíld frá emb- ættisstörfum. Bork er virtur fræðimaður en þykir hægrisinnaður og hefur oftlega gagnrýnt þá dóma hæstaréttarins sem hafa verið túlkaðir sem sigur frjálslyndra afla, þar á meðal dóm þar sem fóstureyðingar voru lög- leiddar. f hæstarétti Bandaríkjanna sitja níu dómarar og hingað til hefur Powell oft gengið til liðs við frjáls- lyndari meðlimi dómsins og haft oddaatkvæðið í mörgum málum er snúið hafa að félagslegum atriðum. Ráðning Borks gæti hins vegar átt eftir að breyta hlutföllunum í hæsta- réttinum, hægriöflunum í vil. Búast má við að hart verði deilt um ráðningu Borks í öldungadeild Bandaríkjaþings sem verður að sam- þykkja tilnefninguna. Þar ráða demókratar ríkjum og margirþeirra, þar á meðal Edward Kennedy, tóku strax í gær harða afstöðu gegn Bork. Kennedy sagði t.d. að ef Robert Bork fengi að stjórna Bandaríkjun- Robert Bork: Reagan vill hann í hæstarétt. um yrðu konur að leita eftir fóstur- eyðingum í skítugum bakstrætum og börn fengu ekki að læra um þróunar- kenninguna. Embættismenn í Hvíta húsinu töldu þó að öldungardeildin myndi að lokum samþykkja tilnefningu Borks og einn þeirra benti á að tilnefning hvaða íhaldsmanns sem væri hefði hvort sem er vakið upp mótstöðu á þingi. Reuter/Time Sovétríkin: Linnas látinn Moskva-Rcutcr Karl Linnas, sem sakaður var um að hafa átt hlut að stríðsglæpum nasista og fluttur var frá Bandaríkj- unum til Sovétríkjanna í aprílmán- uði, lést á sjúkrahúsi í gær 67 ára að aldri og fylgdi dauði hans í kjölfar tveggja uppskurða. Það var sovéska fréttastofan Tass sem frá þessu skýrði. Tass sagði hjarta Linnasar hafa ekki hafa þolað þá tvo uppskurði sem hann gekkst undir í fangelsis- sjúkrahúsinu í Leníngrad í síðasta mánuði. Þangað hafði hann verið fluttur frá fangelsi í Talinn, höfuð- borg Eistlands. Sovéskur dómstóll dæmdi Linnas til dauða í fjarveru hans árið 1962 vegna þáttar hans í morðum á rúm- lega tólf þúsund manns. Fólkið var drepið í útrýmingarbúðum í eist- lensku borginni Tartu í síðari heims- styrjöldinni en Linnas var yfirmaður þeirra búða. __ Nígería: T reyst á f riðsemi Lagos - Reuter Herforingjastjórnin í Nígeríu hef- ur tekið áhættu með því að tilkynna að hún ætli að sitja að völdum fram til ársins 1992. Svo virðist þó sem hún treysti á stuðning almennings í þessu máli. Stjórnmálasérfræðingar voru þó flestir sammála um að Brahim Ba- bangida herforingi og forseti lands- ins og stjórn hans yrðu að sýna mikla pólitíska kænsku til að fimm ára áætlun þeirra gengi upp. Babangida, sem tilkynnti um áætl- unina í fyrrakvöld, og stjórn hans verða að stuðla að lýðræðislegum Nýja-Sjáland: Fjölmiðlanámið nýttist nemunum illa llington - Reuter Útgáfa á tímariti, sem nýsjálensk- stúdentar í blaðamannafræðum luðu að gefa út, hefur verið bönn- i á þeim forsendum að of mikið fi verið um ritvillur, lélegt málfar ; aðrar vitleysur í blaðinu. Noel Harrison, stjórnandi North- nd tækniháskólans í Whangarei sem er nyrst á Nýja Sjálandi, sagðist í gær hafa bannað útgáfu á 25 síðna tímariti rétt áður en það átti að koma út. Það voru sex námsmenn sem unn- ið höfðu að útgáfu tímaritsins síð- ustu tíu vikurnar og átti það að sýna hvað þeir höfðu lært í tímum sínum í “fjölmiðlatækni". breytingum en á meðan gæta þess að missa ekki allt úr böndunum. Babangida, sem komst til valda árið 1985 og hafði áður lofað að lýðræði yrði endurreist árið 1990, bar fyrir sig að hann þyrfti tíma til að leysa mikilvæg málefni. Stjórnmálaástandið í Nígeríu hef- ur verið vægast sagt óstöðugt síðan landið hlaut sjálfstæði árið 1960, einn af fyrrirennurum Babangida lofaði t.d. borgaralegu lýðræði árið 1976 en var þá steypt af stóli af öðrum herforingjum. ÚTLÖND Heimir BLAÐAMAÐUR UMSJÓN: Börn vaxa hraðará kínverska skósólanum Pekíng-Reuter Kínverjar hafa fundið upp skósóla sem veldur því að ungt fólk vex hraðar. Skósóli þessi er hannaður í samræmi við forn kínversk læknavísindi. Það var dagblað í Hong Kong sem frá þessu skýrði í gær. Blaðið Wen Wei Po hafði eftir læknum í Guangxihéraði í Suður- Kína að 152 unglingar, sem reyndu hina nýju skósóla, hefðu vaxið að meðaltali um einn senti- metra á mánuði eða 1,7 sinnum hraðar en venjulega. Samkvæmt hinum fornu lækna- kenningum er hægt að hraða lífsstraumunum svokölluðu í gegnum rásir með sérstakri hönn- un sólans.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.