Tíminn - 22.11.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 22.11.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Sunnudagur 22. nóvember 1987 Sunnudags- LEIDARI Ráðhús við tjörnina „Við Tjörnina skal ráðhúsið standa,“ mælti Gunnar heitinn Thoroddsen á borgarstjóra- árum sínum, en þegar þá voru risnar deilur með mönnum um staðsetningu þessa muster- is. Morgunblaðið birti þessi vísu orð borgar- stjórans yfir þvera forsíðu og það lá í loftinu að ekki mundi tjóa að deila um þetta meir. En líkt og Móse fékk aldrei að koma í fyrirheitna landið, veittist Gunnari ekki sú náð að sjá sáttmálsörk borgarstjórnaríhalds- ins borna undir það þak sem henni hæfði. Og einhver bakþanki læddist að eftirmönnum hans - kannske þóttu önnur verkefni meir knýjandi - og áratugir liðu svo að ekkert reis ráðhúsið. Úti í heimi fögnuðu aðrar borgir fjögur og fimm hundruð ára afmæli sinna ráðhúsa, meðan álftir einar og endur hring- sóluðu á grunni ráðhúss Reykvíkinga. Einnig er mögulegt að borgaryfirvöld hafi ætlað að fylgja slóttugri aðferð Seðlabankamanna, sem á sínum tíma frestuðu byggingu hússins á Arnarhóli, en byggðu það svo þegjandi og hljóðalaust fáum árum síðar, án þess að nokkur æmti né skræmti. En þar hlaut að koma að málið raknaði af Þyrnirósarsvefni og nú bíður margverðlaun- uð teikning af þessu „draumahúsi“ eftir að ' hoppa af blaðinu og ofan í Tjörnina. Kemur þá í ljós að ekki ætlar borgarstjórinn að verða jafn heppinn og Nordal, því skari andófs- manna hefur vakist upp og hefur engu gleymt. Enn mun reyna á hverjir bjórar eru í Davíð. Ekki mun hann ætla að láta eftirmanni sínum eftir byggingu musterisins, líkt og nafni hans í Biblíunni. Til einskis hefur hann sigrast á spjótalögum Sál og fellt Golíata einn af öðrum, til þess að hann renni fyrir Flosa og liðsmönnum hans, þótt ógnvænlegir séu. Satt að segja verður heldur ekki annað séð en hið nýja ráðhús sé hin snotrasta bygging og líklega mun svo fara að mönnum lítist heldur vel um það þegar það verður risið af grunni. Það er gömul saga. Þegar Hljómskál- inn var byggður árið 1922 ritaði Kjarval listmálari borgarstjóra bréf og stóðst ekki reiðari vegna þess hve þessi skelfilegi turn skyggði á útsýnið til Keilis. Hugsa má sér hvílíkur fjöldi mótmælenda safnaðist saman ef rífa ætti þennan sama turn - Hljómskálann - nú. Þar mundi án vafa mega þekkja þá fremst í flokki er mest beita sér gegn þessu litla og snotra ráðhúsi nú. Tíminn Umsjón Helgarblaðs: Atli Magnússon Bergljót Davíðsdóttir Agnar Birgir Óskarsson lllllilllllllllllllll ERLENDMAI ;;llll» Deng og Zhao á flokksþinginu Zhao er að mörgu leyti í svipaðri stöðu og Gorbatsjov BÁÐUM STAFAR HÆTTA BÆÐI FRÁ UM- BÓTASINNUM OG AFTURHALDSMÖNNUM ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON SKRIFAR ÞRETTÁNDA þing Kommún- istaflokks Kína, sem haldið var um seinustu mánaðamót, vakti athygli um allan heim, enda hafði verið beðið eftir því með eftirvæntingu. Fréttaskýrendur töldu, að þar myndi fást úr því skorið, hvort sú endurskipulagning á efnahagskerf- inu, sem hafði hafist undir forustu Dengs, myndi hljóta staðfestingu þingsins. Mörg hundruð erlendra fréttamanna voru í Peking meðan á þinginu stóð og sendu fréttir frá því um víða veröld. Yfirleitt er það dómur frétta- skýrenda eftir þingið, að stefna Dengs hafi gengið með sigur af hólmi, en þó með vissum tilslökun- um vegna þeirra, sem hafa viljað fara hægar í breytingum. Sá maður sem hefur hlotið stað- festingu sem eftirmaður Dengs sem aðalleiðtogi Kommúnistaflokks- ins, Zhao Ziyang, eigi því erfitt verkefni fyrir höndum og muni ekki síður en Gorbatsjov þurfa að þræða siglinguna milli skers og báru. Það var Zhao sem flutti aðal- ræðuna, þegar þingið var sett, og þótt hann lýsti eindregnu fylgi við endurbótastefnu Dengs, sló hann talsvert úr og í. Um margt minnir hún á ræðuna, sem Gorbatsjov flutti við setningu hátíðahaldanna, sem haldin voru í Moskvu í tilefni af 70 ára afmæli byltingarinnar. Raunar var Deng áður búinn að móta þessa afstöðu. Á síðastliðnu hausti hófu stúdentar mikil fundar- höld og göngur til að krefjast enn aukins frjálsræðis og mannabreyt- inga. Ýmsir af eldri leiðtogum flokksins risu þá upp til mótmæla og höfðu ekki síst hljómgrunn innan hersins. Deng varð þá að slaka til og láta vin sinn, Hu Yaobang, víkja úr stöðu aðalritara eða framkvæmdastjóra flokksins. Zhao var þá látinn taka við em- bættinu, þótt hann væri forsætis- ráðherra fyrir. Hann hefur síðan gegnt þessum tveim valdamestu embættum, en verður að láta af embætti forsætisráðherra, þegar þing Kína kemur saman á næsta ári og kýs forsætisráðherra. Það mun ekki þykja sæma að sami maður gegni báðum þessum embættum til langframa. SKIPULAGI flokksins er þann- ig háttað, að kosin er á flokksþing- inu 175 manna miðstjórn og urðu nú miklar breytingar á skipan hennar. Deng skoraðist undan endurkosningu í miðstjórninni og fylgdu honum flestir öldungar í nefndinni, sem höfðu flestir verið mótfallnir breytingum hans. Yngri menn voru kosnir í staðinn. Fæstir þeirra voru þó ungir, eins og sést á því að meðalaldur þeirra, sem eru aðalmenn og varamenn í mið- stjórninni, er rúmlega 52 ár. Miðstjórnin er í raun ekki mjög valdamikil, en það gildir aftur á móti um framkvæmdanefnd flokksins, sem skipuð er 18 mönnum. Þar urðu verulegar mannabreytingar, sem þykja styrkja stefnu þeirra Dengs og Zhaos. Sérstaka eftirtekt vakti það, að Hu, sem var látinn víkja úr ritarastarfi flokksins fyrir tæpu ári, eins og áður segir, var endurkosinn í framkvæmdanefndina. Talið er, að þannig hafi honum verið veitt viss sárabót, en jafnframt sé þetta styrkur fyrir Zhao. Valdamesta stofnun flokksins er stjórn framkvæmdanefndarinnar, sem skipuð er fimm mönnum. Skipun hennar hefur því vakið mesta eftirtekt, sem vísbending um hvað geti verið í vændum. Þessir menn skipa stjórn fram- kvæmdanefndarinnar: Zhao Ziyang, 69 ára gamall, sem nú er bæði framkvæmdastjóri flokksins og forsætisráðherra. Hann er talinn eindregið fylgjandi stefnu Dengs, enda hefur Deng valið hann sem arftaka sinn. Hu Qili, 58 ára, varaforsætisráð- herra og sagður eindreginn stuðn- ingsmaður þeirra Dengs og Zhaos. Yao Yilin, 70 ára, sem er for- maður efnahags- og áætlunar- nefndar flokksins, og því áhrifa- mikill. Hann er talinn íhaldssamur og því fulltrúi þeirra, sem vilja fara varlega í allar meiriháttar breyting- ar. Li Peng, 59 ára, sem er fóstur- sonur annars aðalleiðtoga komm- únistabyltingarinnar, Chou Enlai og talinn er líklegastur til að taka við forsætisráðherraembættinu af Zhao, og erfa þannig sæti fóstur- föður síns. Li er verkfræðingur að menntun. Hann hlaut verkfræði- menntun sína í Sovétríkjunum. Li er talinn frekar til hægri og hefur gagnrýnt ýmsar breytingar. Hann er talinn fulltrúi þeirra, sem vilja sýna varfæmi í öllum meiriháttar breytingum. Fimmti maðurinn er Ziao Shi, 63 ára, varaforsætisráðherra. Hann er talinn tækifærissinni og geta því ráðið miklu í stjómarnefndinni eftir því hvort hann styður Zhao og Hu Qili eða Zao og Li Peng. Deng, sem er orðinn 83 ára gamall, afsalaði sér öllum embætt- um í nefndum, nema formennsku í hermálanefndinni. Hann vill geta fylgst með hernum, sem er talinn frekar íhaldssamur og hjálpaði á sínum tíma Deng til þess að sigrast á fjórmenningunum, sem stóðu fyrir menningarbyltingunni svo- nefndu. Til að tryggja eftirlit með hernum enn betur, fékk Deng því til vegar komið, að Zhao var kosinn varaformaður hermála- nefndarinnar og tekur því við af Deng, ef hann yrði að láta af formennskunni. AF ÞVÍ, sem hér er rakið, virðist ljóst að staðan í Kína, er ekki ólík þeirri, sem nú er í Sovétríkjunum. Gorbatsjov hefur góðan stuðning við umbótastefnu sína, en verður þó að fara gætilega. Hann verður bæði að hafa gát á þeim stuðnings- mönnum sínum, sem vilja fara of hratt, og jafnframt taka tillit til þeirra, sem telja breytingarnar of hraðar og of miklar. Bæði Gorbat- sjov og Zhao verða að sigla á milli skers og báru, ef þeir eiga að ná því landi, sem báðir stefna að. Engu minni hætta getur oft stafað af þeim, sem vilja fara of hratt, en hinum, sem vilja fara hægar eða helst engu breyta. Óvíst er hvort eigi eftir að valda þeim meiri vanda. Ummæli, sem Zhao lét falla, benda til þess, að spá megi batn- andi sambúð Kína og Sovétríkj- anna. Einkum lét Zhao vinsamleg orð falla í garð fylgiríkja Sovétríkj- anna í Austur-Evrópu, en viðskipti þeirra við Kína hafa farið ört vaxandi síðustu misserin. Zhao deildi á Bandaríkjamenn, sem nýlega hafa heimsótt Tíbet, og átaldi fréttir þeirra þaðan. Aug- ljóst er, að Tíbet er ráðamönnum Kína nú viðkvæmt vandamál og má vel vera, að það auki skilning Kínverja á þeim vanda, sem Af- ganistan hefur valdið Sovétríkjun- um. Að 13. þingi Kommúnistaflokks Kína loknu virðist mega spá því helst, að umbótastefna Dengs muni halda velli, en eftirmenn hans verði að fylgja henni fram með gát, því að hættur geti stafað' bæði frá hægri og vinstri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.