Tíminn - 22.11.1987, Qupperneq 5
Sunnudagur 22. nóvember 1987
Tíminn 5
RÆTT VIÐ
SIGRÍÐI
ÞORVALDSDÓTTUR,
SEM í 23 SUMUR
HEFUR VERIÐ
MATRÁÐS-
KONA í
VEIÐI-
HÚSINU
VIÐ
HÍTARÁ
Það er ekki á hverjum degi sem
nýr veitingastaður er opnaður í
Reykjavík með því sniði sem hér
um getur. Það var því tilvalið að
forvitnast um þá starfsemi sem
þarna fer fram og kynnast þeirri
manneskju sem stendur á bak við
þennan stað.
Þegar Tíminn leit inn hjá Sigríði
Þorvaldsdóttur matráðskonu í
Brauðstofunni Gleym mér ei að
Nóatúni 17, var hún í óða önn að
undirbúa daginn. Ilmur af nýlög-
uðu kaffi lagði að vitum manns og
vistlegt umhverfi staðarins hvísl-
aði því að manni að þarna
væri snyrtimennskan í háveg-
um höfð.
V
M
„EG BJOI H0LL“
hafði eigin baðströnd og sundlaug,
auk fjölda þjóna sem dekruðu við mig
„Ég er að láta gamlan draum
rætast, með því að opna smur-
brauðstofu þar sem einnig er
hægt að setjast niður og fá sér
brauðsneið og drykk. Þetta er
líklega eina sérhæfða smur-
brauðstofan sem býður upp á
þessa þjónustu á Reykjavíkur-
svæðinu ef ekki á öllu landinu.
í dag er boðið upp á 15 tegund-
ir af smurðu brauði og ég stefni
að því að auka á úrvalið þegar
fram líða stundir. Einnig tek ég
að mér að útbúa köld borð,
kaffisnittur, coctail snittur og
brauðtertur fyrir minni og
stærri veislur. Það nýjasta sem
ég er með hef ég kallað „partý-
brauð“, sem ég tel vera mjög
hentugt fyrir samkvæmi og
vinnustaði.
Ég legg mikið upp úr hrein-
læti og góðu hráefni og reyni
að vinna allt hráefnið sjálf t.d.
steiki ég allan lauk sjálf því
annað tel ég vera hálfgert rusl.
Veturinn 1986 fór ég á nám-
skeið til Danmerkur hjá Idu
Davidsen sem kölluð er smur-
brauðsdrottning Danmerkur
vegna þess að mér fannst vera
komin mikil stöðnun í þessa
tegund matargerðar, vanalegast
er aðeins boðið upp á þessar
sex hefðbundnu tegundir af
snittum sem við þekkjum hér á
landi svo dæmi sé tekið.
í dag hef ég eina stúlku mér
til aðstoðar en stefni að því að
ráða til mín danska smur-
brauðsdömu til að ég geti snúið
mér meira að daglegum rekstri.
Þó að fyrirtækið sé ekki stórt
þá eru alveg ótrúlega miklir
snúningar í kringum þessa
starfsemi.“
Hver er þessi kona sem
ræðst í það að setja á stofn
fyrirtæki sem sérhæfir sig í
smurbrauði og snittum?
Sigríður er enginn ný-
græðingur í matargerð, hún er
fædd í Reykjavík 1927 en alin
upp á Blönduósi og er Hún-
vetningur í báðar ættir.
„Faðir minn var Þorvaldur
Þórarinsson frá Hjaltabakka í
Húnavatnssýslu. Móðir mín er
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
sem rak hótel í mörg ár á
Sigríður með sýnishorn af framleiðslu sinni.
(Tímamynd Brcin)
Blönduósi og hóf ég mat-
reiðsluferil minn þar. Ég er
búin að vera viðloðandi matar-
gerð meira og minna s.l. 30 ár.
Eftir að ég lauk námi frá
Húsmæðraskólanum á Blöndu-
ósi 1944 hef ég unnið á ýmsum
stöðum, en s.l. 23 sumur hef ég
verið matráðskona í veiðihús-
inu við Hítará, þar er mjög fal-
legt og gott að vera. Það eru
mest útlendingar sem sækja
þangað og vilja ekkert nema
úrvals fæði.“
Aðspurð um einhverja veiði-
sögu, kvaðst hún sem minnst
hafa blandað sér í umræður
gestanna í veiðihúsinu, enda
ekki hennar hlutverk. „Þessar
sögur fóru inn um annað eyrað
og út um hitt. Þetta er yfirleitt
rólegt fólk og lítið um fyllerí
eins og fylgir mörgum veiðihús-
um, og sama fólkið kemur
þarna ár eftir ár.
Fyrir nokkrum árum vildu
amerísk hjón fá mig til að
koma til sín og stofna með
þeim evrópska brauðstofu, þar
sem einnig væri boðið upp á ís-
lenskar pönnukökur með
rjóma, en ég lét ekki til leiðast.
Ég hef haft tækifæri til að
ferðast mikið bæði innan lands
sem utan og hef m.a. farið til
Hong Kong, Barbados, Amer-
íku, Puerto Rico og Evrópu í
boði þess fólks sem verið hefur
í veiðihúsinu. Á Barbados bjó
ég í höll sem fólkið átti með
eigin baðströnd og sundlaug
svo ekki sé talað um þjónustu-
fólkið sem dekraði við mann.
Þetta var virkilega skemmtileg
ferð.
Einnig hef ég ferðast með
Pólyfónkórnum til Páfagarðs
og víðar, en maðurinn minn
Friðrik Eiríksson var formaður
kórsins. Ég sá einna mest eftir
því að hafa ekki prjónað góða
lopasokka á páfa, þar sem vet-
urinn var mjög kaldur.“
Hér látum við staðar numið
enda Sigríður farin að ókyrrast,
því ekki bíða viðskiptavinirnir
og klukkan langt gengin í el-
lefu. Enda sýnist mér þetta
vera kona sem lætur sér sjaldan
verk úr hendi falla. ABÓ
cúót&t SAUÐFJÁR- OG KÚAKLIPPUR
Barkaklippur eða með mótor í handfangi
Hagstætt verð - undanþegnar söluskatti
BUNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVIK SÍMI 38900