Tíminn - 22.11.1987, Side 8
8 Tíminn
Sunnudagur 22. nóvember 1987
LITIR GERÐIR ÚR ÍSLENSKUM JURTUM
Ásta Erlingsdóttir sýnir vatnslitamyndir í Gerðubergi
Sl. sunnudag hófst í Gerðu-
bergi sýning á 40 Vatnslitamynd-
um Ástu Erlingsdóttur, sem
orðnar eru til á sl. tveimur
árum. Hér sýnir Ásta einkum
blóma og landslagsmyndir en
einnig fantasíur. Óvenjulegt
mun það þykja að myndirnar
eru allar málaðar með litum sem
Ásta hefur sjálf búið til úr ís-
lenskum jurtum, en hún hefur
langa reynslu og kynni af jurtum
úr grasalækningastarfi sínu og
jurtasöfnunarferðum um allt
ísland.
Sýningin er opin frá því kl. 14
- 21 alla virka daga, en frá 14 -
18 föstudaga, laugardaga og
sunnudaga. Á sýningunni er til
sölu bókin um ævi og starf Ástu,
sem út kom fyrir nokkrum dög-
um og áritar hún hana á sýningu
sinni.
Sýníng Rúnu
Gísladóttur að
Kjarvalsstöðum
Sýningu Rúnu Gísladóttur
að Kjarvalsstöðum sem hófst
7. nóvember lýkur á sunnu-
dagskvöld. Á sýningunni eru
104 myndverk, akrýl- og ol-
íumálverk og collagemyndir
(klippimyndir).
Þetta er fyrsta einkasýning
Rúnu, en hún hefur áður tekið
þátt í nokkrum samsýningum,
m.a. FÍM-sýningum 1981 og
1983, Kirkjulistarsýningu að
Kjarvalsstöðum um páska 1983
og „Reykjavík í myndlist" að
Kjarvalsstöðum sumarið 1986.
Rúna Gísladóttir lauk kenn-
araprófi frá Kennaraskóla ís-
lands 1962 og stundaði al-
menna kennslu í 10 ár. Hún
nam síðan málun og myndvefn-
að í Noregi 1974-76 og vai“við
nám í Myndlista- og handíða-
skóla íslands á árunum 1978-
82. Hún útskrifaðist úr málara-
deild.
Síðan hefur Rúna starfað
sjálfstætt á vinnustofu að Sel-
braut 11 á Seltjamarnesi og
stundar þar einnig myndlistar-
kennslu í námskeiðaformi.
Sýning Rúnu hefur verið
fjölsótt og er opin daglega
klukkan 14.00-22.00. Henni
lýkur sem fyrr segir næstkom-
andi sunnudagskvöld.
Ásta við opnun sýningar sinnar sl. sunnudag.
BILASYNING
Sýnum laugardag og sunnudag kl. 14.00-17.00
ÁAKUREYRI: í nýjumsýningarsal
hjá Sigurði Valdimarssyni, Óseyri 5A
PATROL og SUNNY
NI5SAN
í REYKJAVIK:
NI5SAN
Fólksbíla og pick-up
Lánakjör:
Aðeins 25% út, eftirstöðvar lánaðar í allt að 30 mánuði
III Verið velkomin - Alltaf heittá könnunni
^1957-1987^;
& 30 8
Sll INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.