Tíminn - 16.12.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 16.12.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. desember 1987 Tíminn 3 Amfetamín- framleiðslan: Rannsókn miðar ágætlega „Rannsókninni miðar ágæt- lega, en henni er alls ckki lokið. Hún er bæði flókin og erfið og margt sem þarf að skoða,“ sagði Arnar Jensson, hjá fíkniefnalög- reglunni í samtali við Tímann í gær, en eins og lescndum Timans er kunnugt, komst upp um amfet- amínverksmiðju í íbúð fjölbýlis- húss í Vesturbænum í síðustu viku. Ekki var eingöngu um arn- fctamín að ræða, því fleiri efni munu koma við sögu í þessu máli. Að öðru leyti vildi Arnar ekkcrt tjá sig um máiið. En fíkniefnalögreglan er að rannsaka fleiri mál en amfetam- ínframleiðsluna, því nú stendur sem hæst rannsókn á máli þriggja aðila, sem stundúðu stórfelldan innflutning á hassi sem sökkt var í málningardollur. bcgar upp komst um málið í síðasia mánuði, voru tveir karlmenn og ein kona handtekin. Konunni var sleppt í gær, en mennirnir eru í gæslu- varðhaldi til 5. janúar næstkom- andi. „Niðurstöður úr þeirri rann- sókn liggur alls ekki fyrir, því henni er ekki lokið. Því gct cg ekkert sagt um þetta mál,“ sagði Arnar, scm greinilega er orðvar maður. -SÓL Fyrirtæki og einstaklingar í Síðumúlanum hafa nú tekið sig saman og sameinast um að skapa jólastemmningu í þessari gamalgrónu verslunargötu í hjarta Austurbæjar. Nú blasa við gcstum, gangandi og ökumönnum sem leið eiga um götuna litfagrar skreytingar og alls kyns jólaskraut sem minnir mann á, að þrátt fyrir að jörð sé auð, þá nálgast jólin óðfluga. Þetta framtak hefur að vonum vakið eftirtekt og um leið minnt fólk á, að það cru verslanir og fyrirtæki á fleiri stöðum en í Kringlu og miðbæ. -SÓL ____________________________________ (Tímaniynd: Pjetur) Þorsteinn Tómasson um breytingatillögur fjárveitinganefndar: Vængstýfing á Rala Breytingar á fæðingarorlofi: Bændakonur og náms- menn fá fæðingarorlof Um áramótin ganga í gildi breyt- ingar á lögum um fæðingarorlof, þar sem það er lengt úr þremur í fjóra mánuði. Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra hefur undanfarið verið að láta vinna reglugerð um framkvæmd lag- anna um fæðingarorlof. í þeirri reglugerð verður að finna það markverða nýmæli að frá og með næstu áramótum munu bænda- konur fá fullt fæðingarorlof greitt frá ríkinu og sama gildir um námsmenn. Hingað til hafa þessir aðilar aldrei fengið meira en % hluta fæðingaror- lofs. Þá verður sú breyting við áramót að bætur í fæðingarorlofi verða tví- skiptar, fæðingarstyrkur sem ein- göngu greiðist mæðrum og fæðingar- dagpeningar, sem foreldrar geta val- ið um hvort tekur eftir ákveðnum reglum. í því sambandi má geta þess að atvinnuþátttaka maka bænda á sauð- fjárbúum og kúabúum er metin þannig að fullir fæðingardagpening- ar fást. Atvinnuþátttaka maka bænda á blönduðum búum og í öðrum búgreinum verður metin sér- staklega. Þá fá þeir námsmenn sem sannan- lega hafa stundað nám í sex mánuði eða meira og sem jafna má til meira en 1052 vinnustunda og fulla fæðing- ardagpeninga. Hins vegar fá þeir námsmenn sem hafa stundað nám í 3-6 mánuði og sem samsvarar a.m.k. 516 dagvinnustundum hálfa dagpen- inga. Upphæð fæðingarstyrks, sem reyndar allir fá án tillits til atvinnu- þátttöku, verður við áramót krónur 16.543 og fæðingadagpeningar verða tvöfaldir sjúkradagpeningar eða tæpar 694 krónur á dag frá áramót- um. En þessar bætur hækka um leið og aðrar bætur almannatrygginga. Fæðingarorlof lengist síðan í fimm mánuði 1. janúar 1989ogsex mánuði í ársbyrjun 1990. ÞÆÓ Fjárlagafrumvarpið afgreitt til þriðju umræðu: Atkvæðagreiðslur í þrjá og hálfan tíma Á fundi í sameinuðu Alþingi í gær var fjárlagafrumvarpið afgreitt til þriðju umræðu. Atkvæðagreiðslan tók rösklega þrjár og hálfa klukku- stund. Fyrir þingmönnum lágu alls 294 breytingartillögur við einstaka fjárlagaliði eða tillögur um nýja liði. Af þessum tillögum komu 165 tillög- ur frá fjárveitinganefnd. Stjórnar- andstaðan lagði fram 129 tillögur. Þrír stærstu liðirnir í atkvæða- greiðslunni voru safnliðir. í fyrsta lagi er þar um að ræða framlög til að byggja grunnskóla og íbúðir fyrir skólastjóra, en þar er um að ræða fjárveitingar til framkvæmda við 121 skóia og jafnframt eru veitt 43 fimm þúsund króna framlög til undirbún- ings framkvæmda við skólabygging- ar. I öðru lagi er um að ræða fjárveit- ingar til sjúkrahúsa og læknabú- staða, en þar er 214 m.kr. skipt á milli framkvæmda við 50 sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og læknisbú- staði í þriðja lagi er um að ræða fjárveit- ingu til hafnarmannvirkja og lend- ingarbóta upp á 398,5 m.kr., sem skiptist á 48 staði. Alls fóru fram fjórtán nafnaköl) að beiðni stjórnarandstæðinga og Halldór Blöndal Sjálfstæðisflokki fór fram á sitt árlega nafnakall um þann styrk sem þingflokkar fá til útgáfustarfsemi, en þar var sam- þykkt tillaga frumvarpsins um 26 m. kr. til þeirra hluta með 46 atkvæð- um gegn 10. Þá fór Halldór fram á atkvæða- greiðslu um kaup ríkisins á 250 áskriftum að dagblöðunum og var sá liður samþykktur með 50 atkvæðum gegn 10. Níels Árni Lund (F.Rn.) gerði þar grein fyrir atkvæði sínu og benti á að þessi áskriftarkaup væru lítið skref í að jafna þá mismunun sem ríkis- stofnanir iðkuðu gagnvart einstök- um blöðum varðandi auglýsingar. Þegar atkvæðagreiðslunni lauk kvartaði formaður fjárveitinga- nefndar yfir tímalengd atkvæða- greiðslunnar og gagnrýndi þá stjórn- arliða, sem lengdu tímann með þing- skaparumræðu og þyrftu þeir að kunna að sitja á strák sínum. Forseti sameinaðs Alþingis, Þor- valdur Garðar Kristjánsson, mót- mælti orðum Sighvats um að fundur þessi hefði verið óvenjulangur, held- urværihannréttímeðallagi. ÞÆÓ Ráðherrarnir Halldór Ásgrímsson og Friðrik Sophusson greiða atkvæði á þingi í gær. Tímamynd C.unnur Veckans Affárar birtir úttekt yfir bestu flugvelli Evrópu: Keflavík í öðru sæti í nýjasta eintaki sænska vikurits- ins Veckans Affárar, eru birtar niðurstöður á úttekt ritsins á bestu flugvöllum Evrópu. Niðurstöðun- um er skipt í tvennt, annars vegar flugvellir sem þjóna yfir 6 milljón- um farþega á ári, og hins vegar þeir sem þjóna minna en 6 milljónum. í fyrri flokknum er Kaupmanna- hafnarflugvöllur í fyrsta sæti, Schiphol flugvöllurinn í Hollandi í öðru sæti og Frankfurt völlurinn í þriðja sæti. í stðari flokknum ber hins vegar vel í veiði. Milano flugvöllur cr talinn sá besti, fékk 72,5 stig af 92,5 mögulegum. Keflavíkurflug- völlur fylgir fast á eftir með 70,5 stig og er dæmdur næstbesti flug- völlur í Evrópu. Keflavíkurflug- völlur hefur ekki áður verið á listanunt, en er nú hástökkvari og veltir Stokkhólmsflugvelli úr öðru sætinu. Þetta eru mikil tíðindi og góð, og vonandi heldur flugvöllurinn þessu næstu árin og bætir um betur ef eitthvað er. - SÓL Fjárveitinganefnd hefur nú gert sínar breytingatillögur við fjárlaga- frumvarpið og vísað því áfram til annarrar umræðu í þinginu. Hvað landbúnaðarkafla frumvarpsins áhrærir, gerir nefndin tillögu um að jarðræktarframlög hækki um 41 milljón og verði því 141 milljón króna. Framlög til búfjárræktar verða samkvæmt tillögum nefndar- innar 26 milljónir og hækka um 9 milljónir. Tilraunastöðvar landbún- aðarins fá 8 milljóna króna hækkun og framlög til Búnaðarfélags íslands hækkar um 5 milljónir króna. Nái þessar tillögur fram að ganga í þinginu, sem telja verður mjög sennilegt, má búast við miklum sam- drætti í starfsemi Búnaðarfélagsins og Rala. Jónas Jónsson, búnaðar- málastjóri, segir að þessi framlög þýði verulegan samdrátt í starfi Bún- aðarfélags íslands. Hann segir að nefnd hækkun sé einungis um þriðjungur þeirrar tölu sem Búnað- arfélagið þurfi til óbreyttrar starf- semi. „Þetta þýðir ckki síst veruleg- an samdrátt í þjónustu við nýbú- greinar, þær greinar sem við erum mest að reyna að byggja upp. Við teljum að þurft hefði um 17 milljón króna hækkun til að halda óbreytt- um rekstri,“ sagði Jónas Jónsson. Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins, segir að tillaga fjárveitinga- nefndar um framlag til stofnunarinn- ar leiði til að leggja verði niður einhverjar af rannsóknastöðvum út um land, svo og samdráttar hjá Rannsóknastofnuninni sjálfri. Það má láta þess hér getið, að tilraunastöðvar Rala eru nú Korpa á Keldnaholti, Hestur í Borgarfirði, Reykhólar í Reykhólasveit, Möðru- vellir í Hörgárdal, Skriðuklaustur í Fljótsdal og Stóra Ármót í Hraun- gerðishreppi. Þorsteinn segist ekki vita um hvernig við verði brugðist af hálfu stofnunarinnar, en það sé alfarið í höndum stjórnar Rala. „Það sem er alvarlegt í þessu máli frá sjónarmiði stofnunarinnar, er að það hefur ekki farið fram nein fagleg uniræða um stöðvarnar eða rannsóknastofnun- ina. Ég veit ekki til þess að nokkru sinni hafi verið staðið með þessum hætti að vængstýfingu á opinberri starfsemi. En þetta er auðvitað okk- ar húsbóndi og ekkert við því að gera. Við verðum að sjá hvernig hægt er að bregðast við þessu,“ sagði Þorsteinn Tómasson. óþh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.