Tíminn - 18.12.1987, Side 2
2 Tíminn ■
Föstudagur 18. desember 1987
Gutlar í pollum
á Laugaveginum
Sárin við Laugaveg ætla seint að
gróa. Undanfarna sunnudags-
morgna hefur vinnuflokkur gatna-
málastjóra unnið að því að grafa upp
grjótið frá Portúgal og bæta snjó-
bræðslukerfið sem undir þeim hefur
kramist og opnast með þeim af-
leiðingum að vatnið flóir upp. Ingi
Ú. Magnússon, gatnamálastjóri í
Reykjavík, sagði í samtali við Tím-
ann að þeir teldu sig vera komna
fyrir lekann.
Aðstoðarmaður hans, Sigurður
Skarphéðinsson, sagði Tímanum að
það væri rétt að þeir hafi verið í
vandræðum með að komast fyrir
þennan leka, cn teldu að kerfið læki
ekki sem stendur. Sagði hann að
búið væri að ákveða aö ráðist vcrði
í vcrulcgar og um leið varanlcgar
endurbætur á stcinlögðu hlutum
Laugavegarins á næsta sumri. Er í
ráði að taka til hcndinni þcgar
sumartími væri kominn á verslanirn-
ar og taka í þctta cina til tvær hclgar,
eftir atvikum. Lckinn verður þá
einnig á dagskrá, cn hann væri
aðcins hluti vandans. Sagði hann að
aukakostnaöur við væntanlegar
cndurbætur yrði ckki mjög vcrulcg-
ur þar scm vcrktaki stcinlagnanna,
hafi ckki fengið það vcrk aö fullu
grcitt í sumar, enda hafi gallarnir
komið í Ijós áður en til cndanlegs
uppgjörs kom. Ekki vildi hann þó
spá því hvcrsu dýrar þessar lagfær-
ingar vcrða þcgar upp verður staðið.
Frágangur
Skýring þessa vandamáls, liggur
að sögn fróðra manna, í því að ckki
var nægilega vcl frá vcrkinu gengiö
miðað við það hvað umferð var
hleypt fljótt á götuna. Afleiðingarn-
ar eru auk þessa vatnsleka þær, að
steinarnir hafa skekkst til og aflag-
ast. Mikil vandræði eru auðvitað af
þessu ástandi vegarins og hafa menn
jafnvel verið hræddir um að gang-
andi vegfarendur geti slasað sig á
lausagrjótinu og hrasað eða snúist á
liðum.
En ástæður lekans eru reyndar
nokkuð ljósar. Frágangur leiðslanna
er unninn samkvæmt viðurkenndri
hönnun. Eftir að lokið hafði verið
við að fjarlægja eldra yfirborð vegar-
ins, var svokallað undirlag malbikað
talsvert neðan við gömlu götulínuna.
Ofan á þetta undirlag var síðan lagt
malbik með ákveðnum raufum í
fyrir röralagnir. Þá var rörakcrfinu
komið fyrir í raufarnar og steypt
yfir, enda er um lokuö kerfi að ræða
og ekki ætlast til að það þarfnist
viðgerðar við þessar föstu skorður í
a.m.k. hálfa öld. Meðan steypan er
enn blaut er tilhöggna portúgalska
grjótinu raðað upp og sett í skorður
ofan í steypulagið. Sandi er að
lokum stráð yfir og honum cr ætlað
að sctjast á milli stcinanna og veita
þeim stuöning. Að loknu þessu
mikla og vandasama verki er talið
nauðsynlegt að gefa steypunni góðan
tíma til að harðna og styrkjast áður
en umferð er hlcypt yfir af fullum
þunga.
Mistökin
Mistökin felast fyrst og fremst í
því að verktakinn, er hafði með
götulagnir að gera, varð verulega á
eftir áætlun og lenti m.a. í dagsekt-
um. Vegna mikils þrýstings, sem
óþarft er að rekja hér, var talið
nauðsynlegt að hleypa umferð á
götuna of snemma. Ekki þarf að
rifja það upp fyrir lesendum að
fljótlega var götunni síðan lokað og
reynt var að skorða steinana betur.
Nú hefur tíminn hins vegar leitt í Ijós
að skemmdir hafa orðið á mjög
dýrum hluta vegagerðarinnar, eða
snjóbræðslulögnum hennar. Tíminn
hefur fyrir því óstaðfestar heimildir
að verið sé að ræða þann möguleika
að tæma snjóbræðslukerfið ef lekinn
heldur áfram að gera vart við sig. En
það mun vera frekar vafasöm aðgerð
vegna þess að ekki er vitað með
vissu hvaða afleiðingar það gæti haft
að hafa engann þrýsting á kerfinu.
Eins hafa vaknað upp spurningar
um það hvort ekki sé þá hætt við að
frostskemmdir gætu orðið, ef þannig
vildi til að vatn stæði eftir í leiðslun-
um eftir tæmingu.
Hvort, og hvernig þá, lekinn áger-
ist, er auðvitað ekki gott að segja til
um á þessu stigi. Hins vegar er ljóst
að veruleg vandræði hafa orðið af
þessum uppákomum og einnig er
ljóst að nokkur kostnaður hefur
orðið af því einu að bæta hefur þurft
frostlegi á kerfið vegna þessa þráláta
leka.
Vegfarendum er þó bent á að ekki
er hætta á gorbrunnamyndunum af
þessum sökum, enda er ekki það
mikill þrýstingur á kerfinu og þá er
yfirlagið það þétt að það dregur úr
öllum slíkum sýningum. Hins vegar
ætti mönnum að veitast frekar létt
að sjá pollana og raka bletti hér og
þar í steinlagðri götunni þegar al-
mennt þornar á. KB
Portúgalska grjótið skekkist og gengur niður í snjóbræðslurörin og mer þau
í sundur. Þess vegna eru pollar á Laugaveginum þótt ekki bleyti á steini
annars Staðar. Tímamynd Gunnar
Könnun á atvinnuástandi og horfum
á vinnumarkaði haustið 1987:
Þjóðhagsstofnun og Vinnumála-
skrifstofa félagsmálaráðuneytisins,
hafa nú lokið könnun á atvinnuást-
andi og horfum á vinnumarkaðnum
haustið 1987. Áðurhafa veriðgerðar
fimm samskonar kannanir frá því á
vordögum 1985. Þessi könnun nær
til allra atvinnugreina nema hvað
landbúnaður, fiskveiðar og opinber
þjónusta (þó ekki sjúkrahús) eru
undanskilin.
Meginniðurstaðan í könnuninni
er sú að mikil þensla sé á vinnumark-
aðnum um þessar mundir. Ætlað er
að ófylltar stöður í þeim atvinnu-
greinum sem könnunin nær til, séu
um 3250, sem er um 3,5% af heildar-
mannaflanum í þessum greinum.
Þetta er nokkur aukning frá því á
sama tíma í fyrra, þegar umframeft-
irspurn eftir vinnuafli nam rúmlega
2.700 stöðum. Á tveimur árum hefur
umframeftirspurn eftir vinnuafli ríf-
lega tvöfaldast ef miðað er við fjölda
lausra starfa.
Tölur um skráð atvinnuleysi ber
vott um þenslu f atvinnulífinu. 1
október s.l. voru 214 manns skráðir
atvinnulausir á öllu landinu, sem er
um 0,2% af heildarmannaflanum. Á
sama tíma í fyrra voru 357 manns
skráðir atvinnulausir. Þenslumerkin
eru hvað greinilegust á höfuðborgar-
svæðinu. í október s.l. vantaði þar
fólk í um 1800 störf, í þeim atvinnu-
greinum sem voru athugaðar. Fyrir
einu ári, í október 1986, voru laus
störf á höfuðborgarsvæðinu um 700,
en árið á undan vantaði fólk í um 300
störf.
Mestur skortur er á verkafólki.
Áætlað er að vanti í 1800 störf
verkafólks, þar af eru 800 störf
bundin við höfuðborgarsvæðið, í
iðnaði, byggingariðnaði og þjón-
ustugreinum, einkum á sjúkrahús-
um. Úti á landsbyggðinni er mynstur
vinnuaflsskorts annað. Þar vantar
flesta starfsmenn í fiskvinnslu, en
einnig í iðnaði. Á öllu landinu er nú
lítill sem enginn skortur á fólki í
afgreiðslu- og skrifstofustörf. Það
þarf ekki að koma á óvart að mikill
skortur er á sérhæfðu starfsfólki á
sjúkrahúsunum. En það vantar einn-
ig sérhæft starfsfólk í byggingariðn-
aði, og raunar í fleiri starfsgreinum.
Það virðist margt benda til að í
desember dragi verulega úr eftir-
spurn eftir vinnuafli, en síðan muni
eftirspurnin aukast á nýjan leik með
vorinu. óþh
Björn Gíslason og Ármann Pétursson, slökkviliðsmcnn sýna lesendum Tímans reykskynjara, dufttæki og
eldvarnarteppi. Nauðsynlegir hlutir á öllum heimilum. Timaniynd: Pjctur
Brunavaröafélag Reykjavíkur:
Varar við eldhættu
Brunavarðafélag Reykjavíkur
hefur látið gera 20 mínútna langa
mynd, sem heitir „Það þarf ekki að
gerast" og verður hún sýnd næst-
komandi þriðjudag klukkan 20.40 í
ríkissjónvarpinu. Það verður að telj-
ast í hæsta máta óvenjulegt að
starfsmenn geri myndina, en ekki
stofnanir, en með stuðningi Húsa-
trygginga Reykjavíkur og vátrygg-
ingafélaga innan Sambands ís-
lenskra tryggingafélaga tókst að gera
myndina.
Myndin verður sýnd til að minna
fólk á að um jólin er meiri eldhætta
í íbúðarhúsum en á öðrum tíma
ársins. Benda brunaverðirnir á fimm
sérstök varúðaratriði. í fyrsta lagi
verður að fylgjast með lifandi kerta-
Ijósum. í öðru lagi með skreytingum
með rafmagnsljósum. í þriðja lagi
gæta varúðar við matreiðslu, þar
sem af feiti getur orðið mikið bál. I
fjórða lagi að fylgjast með rusli og
fjöltengjum og í fimmta lagi með
reykingum.
Vilja brunaverðir minna fólk á að
mest hætta stafar af eldsuppkomu að
næturlagi, enda deyja flestir í elds-
voðum af völdum reyksins. Gegn
þeirri hættu er aðeins eitt sæmilega
öruggt ráð, og það er reykskynjari.
Góður reykskynjari kostar rúmar
1.000 krónur, og ódýrari líftryggingu
er erfitt að finna.
Slökkviliðsmenn verða því með
reykskynjarasölu, ásamt slökkvi-
tækjum og eldvarnarteppum í
Kringlunni og í Austurstræti eftir
hádegi og þar til verslanir loka til
jóla.
-SÓL
Staðfesting
þenslunni