Tíminn - 18.12.1987, Blaðsíða 13
Föstudagur 18. desember 1987
Tíminn 13
IIHIIIIIIIIIIIIIIIÍl BÆKUR IIHIIIII
RÆKTAÐU
GARÐINN
Ræktaðu
garðinn þinn
eftir Hákon Bjarnason
Komin er út hjá IÐUNNI ný og
endurskoðuð útgáfa bókarinnar
RÆKTAÐU GARÐINN ÞINN eftir
Hákon Bjamason. Er þetta þriðja
útgáfa bókarinnar og hefur hér
m.a. verið bastt við sérstökum
kafla um trjárækt við
sumarbústaði.
I kynningu útgefanda segir:
„Bók þessi fjallar um trjárækt í
görðum í skýru og stuttu máli.
Sagt er frá gerð og lífi trjánna,
næringarþörf þeirra, uppeldi
trjáplantna, gróðursetningu,
hirðingu og grisjun. Lýst er um 70
tegundum lauftrjáa, runna og
barrviða.
Höfundur bókarinnar, Hákon
Bjamason, hefur um tugi ára verið
forystumaður í þessum efnum hér
á landi. Sakir langrar reynslu og
þekkingar er hann öðrum færari til
að veita leiðbeiningar um ræktun
trjáa, sem að gagni koma."
Allar plöntuteikningar í bókinni
eru nýjar, gerðar af Eggerti
Péturssyni.
MARY HIGGINS
CLARK
l SKUGGA SKELFINGAR
í skugga
skelfingar
Mary Higgins Clark
Þetta er þriðja bókin eftir
þennan þekkta bandaríska
höfund sem kemur út á íslensku.
Fyrri bækumar em: Hvar em
börnin? og Viðsjál er vagga
heimsins.
Patricia Traymore er ung, fögur
og gáfuð sjónvarpskona. Hun
hefur tekið að sér að gera
sjónvarpsþátt um
öldungardeildarmanninn Abigail
Jennings sem sækist eftir
embætti varaforseta
Bandaríkjanna. En þegar Pat
tekur að grafast fyrir um fortíð
þessarar mikilsvirtu þingkonu
kemur ýmislegt ískyggilegt í ljós.
Inn i málið fléttast hörmuleg og
hálfgleymd atvik úr bernsku
Patricíu sjálfrar, voveifleg afdrif
foreldra hennar og myrkraverk
sem höggva ískyggilega nærri
hinum glæsilega áhrifamikla og
framgjarna fulltrúa á
löggj afarþinginu.
Verð kr. 1.494.00.
Heiður í húfi
- metsölubók Jeffrey
Archer á íslensku
Frjálst framtak hf. hefur gefið út
bókina Heiður í húfi eftir breska
rithöfundinn Jeffrey Archer.
Bókin nefnist á fmmmálinu A
Matter of Honour og kom fyrst út
í Bretlandi í fyrra. Hefur hún síðan
verið nær óslitið efst á lista yfir
metsölubækur þar og hefur þegar
verið þýdd á mörg tungumál.
Höfundur bókarinnar, Jeffrey
Archer er í hópi vinsælustu
rithöfunda í heimi og kvikmyndir
og sjónvarpsmyndaflokkar hafa
verið gerðir eftir flestum bóka
hans. Hérlendis hefur t.d. mynd
sem byggð var á sögu hans, Kane
og Abel verið sýnd í sjónvarpinu.
Jeffrey Archer hefur oftsinnis
verið í sviðsljósinu vegna
einkamála sinna. Hann var kjörinn
á breska þingið þegar hann var
aðeins 29 ára en varð síðan að
segja af sér þingmennsku og hóf
þá rithöfundaferil sinn. Hann
sneri sér síðan aftur að
stjórnmálum, var aftur kjörinn á
breska þingið og var orðinn
varaformaður breska
íhaldsflokksins en varð að segja
af sér í fyrra vegna ásakana um
viðskipti við vændiskonu sem
hann var síðar sýknaður af.
Björn Jónsson skólastjóri þýddi
Heiður í húfi. Bókin er 388 bls. og
er hún prentunnin í Odda hf.
í rangri veröld
— smásögur eftir
Hrafnhildi
Valgarðsdóttur
í rangri veröld nefnist bók eftir
Hrafnhildi Valgarðsdóttur sem
Frjálst framtak hf. hefur gefið út.
í bókinni em ellefu smásögur eftir
Hrafnhildi en Hrafnhildur er
kunnur bama- og
unglingabókahöfundur og hlaut
nýlega fyrstu verðlaun í
samkeppni um slíkar bækur. í
rangri veröld er hins vegar fyrsta
bók hennar sem ætluð er
fullorðnum.
Efnistök Hrafnhildar em á
margan hátt óvenjuleg svo og val
söguefnis. Frásagnarmáti hennar
er meitlaður og án orðskrúðs. Hún
gefur lesendunum næma innsýn í
hugarheim og líf söguhetja sinna
en skilur jafnframt eftir margar
spumingar sem lesendunum er
eftirlátið að svara.
Dr. Sveinn Bergsveinsson.
Sögur Sveins
Bergsveins-
sonar
Nýlega kom út bókin „Eylönd"
smásagnasafn eftir Svein
Bergsveinsson sem varð áttræður
á þessu ári.
1 bókinni em sögur skrifaðar á
tæpum fjómm áratugum, sú elsta
frá árinu 1939.
Baksvið smásagnanna em
margvísleg, nokkrar gerast á
erlendri gmnd, aðrar í íslenskum
afdölum, en alls staðar er stutt í
kímnina hjá Sveini, sem skrifaði
ámm saman í skopblaðið
Spegilinn.
Árið 1982 gaf Sveinn út
„Stuttljóð" — smáljóð,
heimspekileg og húmorísk. Bókin
„Eylönd" er gefin út á kostnað
höfundar.
Vökunætur
komnar út
á ný
Vökunætur, sögur eftir Eyjólf á
Hvoli em löngu upplesnar, en
komnar út á ný, í útgáfu Dyngju.
Eyjólfur Guðmundsson, bóndi,
kennari og rithöfundur skrifaði
margt um mannlifið á síðari hluta
síðustu aldar og fram á fyrri hluta
þeirrar 20.
Endurminningar Eyjólfs og
skáldsögur eru skrifaðar á
einföldu og fögm máli, sem bera
höfundinum fagurt vitni. Hann bjó
á Suður-Hvoli í Mýrdal og eru
heimaslóðirnar vettvangur flestra
sagna hans.
Lærdómslistir
Hinn 20. júlí s.l. varð dr. Jakob
Benediktsson áttræður. Af þvi
tilefni hefur Mál og menning gefið
út safn 26 ritgerða eftir hann í
samvinnu við Stofnun Árna
Magnússonar. Hefur bókin hlotið
heitið Lærdómslistir.
Jakob Benediktsson er
einhver kunnasti fræðimaður
íslendinga og hefur á löngum
starfsferli birt eftir sig fjölmargar
ritgerðir um íslensk fræði, mál,
sögu og bókmenntir í innlendum
og erlendum ritum. Flestar
ritgerðanna í Lærdómslistum em
á íslensku en nokkrar em
skrifaðar á dönsku og ensku. Efni
þeirra er fjölbreytt, bókin er eins
konar sýnisbók af þeim fjölda
verka sem Jakob hefur látið frá sér
fara. Halldór Guðmundsson,
Sverrir Tómasson og Örnólfur
Thorsson önnuðust útgáfuna.
Bókin er 306 bls. og geymir auk
ritgerðanna ritaskrá Jakobs
Benediktssonar og Tabula
gratulatoria. Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði.
Draugar, svipír
og dularfull
fyrirbrigði
- bók um yfirnáttúru-
lega atburði
Draugar, svipir og dularfull
fyrirbrigði nefnist bók sem Frjálst
framtak hf. hefur sent frá sér.
Bókin er í flokki vinsælla bóka og
hefur Frjálst framtak áður gefið út
tvær bækur í þessum flokki:
Heimsins mestu furðufuglar og
Ótrúlegt en satt.
Draugar, svipir og dularfull
fyrirbrigði er eftir Bretana Nigel
Blundell og Roger Boar. Bókin
fjallar am ýmsa yfirnáttúmlega
atburði og er hún byggð á miklum
athugunum og heimildarsöfnun
höfundanna. Kom í ljós er þeir
vom að vinna bókina að ótrúlega
margir töldu sig hafa orðið fyrir
yfirnáttúmlegri reynslu og að
ýmsar sagnir sem gengið höfðu
jafnvel öldum saman áttu við rök
að styðjast.
Furðulúðar og
Furðufés
Nýjung frá Vöku-Helgafelli
Lifandi bækur
Hjá Vöku-Helgafelli em komnar
út nýstárlegar bækur fyrir yngri
börnin en bækur af þessari gerð
hafa til þess ekki verið fáanlegar
hér á landi.
Þessar nýju bækur sem em fyrir
yngstu lesendurna hafa hlotið
nafnið Leikbækur og eru þetta
fyrstu tvær bækurnar í þessum
flokki. Nefnast bækurnar
Furðulúðar og Furðufés.
í leikbókunum er lesmál mjög
takmarkað en þess í stað er
höfðað til sköpunargáfu
lesendanna og ímyndunarafls. Á
hverri síðu em kúnstugar persónur
og geta börnin sjálf ákveðið útlit
þeirra.
Plastþynnur, sem hægt er að
nota aftur og aftur, fylgja
bókunum og hægt er að festa þær
inn á teiknað'ar andlitsmyndir
þannig að andlitin breyti sífellt
um svip. Á þynnunum em myndir
af mismunandi andlitshlutum,
munnum, nefjum, skeggi og
fleiru.
Leikbækurnar fást í bóka og
leikfangaverslunum og kosta hvor
um sig 290 krónur með söluskatti.
Vindmyllur
guðanna
Sidney Sheldon er einn
vinsælasti skáldsagnahöfundur
sem nú er uppi. Allar bækur hans
haf a verið metsölubækur um viða
veröld, enda hafa þær verið gefnar
út í meira en 75 milljónum eintaka
samanlagt, og allar hafa þær
komið út í íslenskri þýðingu. Og
hér kemur nýjasta og að þvi er
margir telja skemmtilegasta
skáldsagan: Vindmyllur
guðanna. Jóhanna Kristjónsdóttir
segiríMbl. 15.9. sl.: n
Vindmyllur guðanna er ágætis
afþreyingarbók, og þótt ég sé ekki
sérfræðingur í Sheldon er hún
skemmtilegust þeirra bóka hans,
sem ég hef gluggað í ... Þetta er
sem sagt spennandi bók, vel sögð
og söguþráðurinn ekki of
æsikenndur."
Dagfinnur
dýralæknir
og sjo-
ræningjarnir
umskrifuð fyrir
byrjendur í lestri
Andrés Kristjánsson
íslenskaði
Öm og Örlygur hafa hleypt af
stokkunum bókaflokki fyrir
byrjendur í lestri, sem bera
samheitið Byrjendabækur.
Fyrsta bókin er endurútgáfa á
hinni sívinsælu bók Dagfinnur
dýralæknir og sjóræningjarnir
sem kom út fyrir tíu ámm og var
fyrir löngu uppseld og mikið eftir
henni spurt.
Á bókarkápu segir m.a. um
Byrjendabækurnar: „Þessa bók
getum við lesið sjálf" era
einkunnarorð Byrjendabókanna.
Til grandvallar liggur sá
skilningur að það sé börnunum
mikilvægt að hafa metnað og
löngun til þess að lesa sjálf.
Dagfinnur dýralæknir og
sjóræningjamir er dæmigerð
Byrjendabók. Þótt sagan sé af
léttara taginu er hún þess eðlis að
fjölskyldan hefur öll gaman af að
fylgjast með þegar Dagfinnur og
dýrin vinir hans leika á flokk
sjóræningja.