Tíminn - 18.12.1987, Side 3

Tíminn - 18.12.1987, Side 3
Föstudagur 18. desember 1987 Tíminn 3 Fulltrúaráð HÍK: UPPSÖGN SAMNINGA FRÁ1. JANÚAR ’88 Á fundi fulitrúaráðs í Hinu ís- lenska kennaraféiagi(HÍK), þann 12. desember s.l., var samþykkt að segja strax upp kjarasamningum fé- lagsins við fjármálaráðherra og tek- ur uppsögnin gildi frá og með 1. janúar 1988. í ályktun fulltrúaráðsins er minnt á að ákvæðið um Starfskjaranefnd S/ og verkefni hennar hafi verið forsenda þess að félagsmenn sam- þykktu samning aðila frá 30. mars 1987. Síðan segir í ályktuninni að stjórn HÍK og fulltrúaráð hafi litið svo á að af hálfu stjórnvalda væri um að ræða loforð um endurbætt og réttlátt launakerfi fyrir kennara, launakerfi sem tæki mið af þeirri starfstilhögun sem samfélagið krel'ur kennara um. 1 lok ályktunar fulltrúaráðs HÍK segir að lokum að því sé treyst að fjármálaráðherra gangi til samninga við HÍK með það að leiðarljósi að áðurnefnd kerfisbreyting verði nú til lykta leidd á viðunandi hátt. óþh Verðlagsráö sjávarútvegsins: FALLID FRÁ FÖSTU VERÐI Á fundi í Verðlagsráði sjávarút- vegsins í gær, varð samkomulag um að falla frá lágmarksverði á loðnu til bræðslu og gefa frjálsa verðlagningu. Hún gildir frá 1. janúar til loka loðnuvertíðar vórið 1988. Með þessu er fallið frá ákvörðun yfirnefndar Verðlagsráðs, sem tók ákvörðun um lágmarksverð á fundi sínum 9. september sl. Þá var verðið 1.600 krónur á tonnið, en almennt var viðurkennt að yfir- borganir væru svo algengar, að til lítils væri að hanga í lágmark- sverði. Á fundinum var einnig ákveðið að gefa frjálsa verðlagningu á fisk- úrgangi, úrgangsfiski og lifur frá 1. janúar til 31. maí 1988. -SÓL JÓLATILBOÐ JAPIS NR.1 FULLKOMIN SAMSUNG HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA MEÐ GEISLASPILARA f þetta er ekki jólatilboð ársins hvað þá? Önnur eins kjarakaup bjóðast ekki á hverjum degi. Því er um að gera að drífa sig af stað áður en það er um seinan. Það er nú einu sinni þannig með þessa samstæðu að magnið er takmarkað og eftirspurnin mjög mikil. KMfNMN Þriggja geisla geislaspilari. 60 vatta magnari. Hálfsjálfvirkur plötuspilari með audio-technica hljóðdós. Stafrænt (digital) útvarp. 16 stöðva minni FM MB LB. Tónjafnari. Tvö kassettutæki með raðspilun. „High-Speed-Dubbing". Dolby. Hljóðnematengi. Hljóðnemamixer. Tveir hátalarar í dökkum viðarkassa. 39.800,- stgr. JAPISS BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.