Tíminn - 18.12.1987, Page 6
6 Tíminn
Föstudagur 18. desember 1987
Ný spá Seölabankans um framfærsluvísitölu á næsta ári:
Verðbólgan gæti orðið
10% á miðju næsta ári
í nýrri spá hagfræðideildiir
Seðlabankans um breytingar á
framfærsluvísitölu á árinu 1988,
kemur fram að búist sé við því að
verulega dragi úr verðbúlgu á
næsta árí. Forsendur fyrir þessari
spá eru eftirfarandi: Gengi verði
óbreytt frá nóvember 1987, launa-
skríð verði 2% næsta ár, sem jafni
sig út með 2% framleiðniaukningu,
launabreytingar miðist við gerða
kjarasamninga við bankamenn og
BSKB, eríendur launakostnaður
verði 4,5%, eriendar verðhækkan-
ir verði 3,5%, 1% launaskattur
verði lagður á um áramót og engin
vísitölubinding verði á næsta ári.
: Miöað við þessar forsertdur-'í:r,” v/
fyrir að verðh<%ányej(^4l'v:
‘ irsgrdiwlvelli,- tniðað .viðífjógtÉrra - t-
mánaða tímabil, u.þ.b.10% og.um
4,5% í árslok. Framfærsluvísitalan.
hækkar um tæp 19%. milti ára.og ''".'
um 10,7% frá upphafi til loka úrs
1988. • \ .
í ijpátwu ■kcmtjfefraroa^^fÍÉMitft| J '??
: um nú>l 8%’, énþað sváfar tfl rþtn-' '?
Jega.2ðfX)' árshaáckuhár. Á'sfðtisín '
12 manúðum hcfur vísitalan hækk-
að um 24,5%, en tilI samanbu.rðar
úækkáði^iún um. á
ma: desétnþér 1985 ’ til deséBroeí..
1986. . -*-• ’ - : 'TA'.. v'. *
Miðáð við þessa spá Seðlabank-
ans hækkar raungengi krónunnar
miðað við afstæða verðvísitölu um
8% á næstu 12 mánuðum. Hlut-
fallslegur launakostnaður hækkar
um 6,7% á sama tíma, og hefur þá
verið tckið tillit til 1 % launaskatts.
Tckið er fram að lítil vitneskja
um þróun Iauna á næsta ári skapi
mikla óvissu um verðbólguhorfur,
og hagfræðideild Seðlabankans
muni endurskoða verðlagsspána
þegar landverkafólk hjá Alþýðu-
sambandinu hafi samið um kaup og
kjör, eftir að samningar losna um
áramót.
Tryggvi Felixson hjá Seðlabank-
anum segir að stærsti óvissuþáttur
spárinnar sé vitanlega launaþáttur-
inn. „Við vitum í raun ekki launa-
breytingar undanfarinna mánuða.
Við vitum um launataxta, en upp-
lýsingar frá Kjararannsóknarnefnd
liggja ekki fyrir um launabreyting-
ar síðasta ársfjórðung þessa árs.
Fyrir næsta ár tökum við mið af
samningum bankamanna og
BSRB. Miðað við þá ættu Iaun að
hækka um 4% í janúar og 2% í
febrúar og síðan 2% í júlí. Við gef-
um okkur það að þessar launa-
breytingar gangi yfir línuna, en
auðvitað er ekki verið að segja
neitt til um það hvort reyndin verði
í þá veru.
Tryggvi segir að hækkun launa
um hvert prósent hafi mikið að
segja um verðbólgutölu næsta árs.
Einnig hafi verðlag erlendis mikið
að segja um verðlagsbreytingar
hérlendis. Sama gildi um gengis-
breytingar. Tryggvi lét þess getið
að í þessu dæmi væri miðað við 1%
launaskatt um áramót, sem myndi
lyfta upp launaútgjöldum fyrir-
tækja. Hann sagði að einnig væri
gert ráð fyrir 2ja prósenta launa-
skriði á næsta ári. „Þetta er að vísu
erfitt hugtak þar sem við fáum eng-
ar góðar upplýsingar um taxta,“
sagði Tryggvi. Hann sagði að á
móti kæmi framleiðniaukning, en
miðað væri við að hún jafngilti
launaskriði næsta árs, þannig að
það hafi ekki áhrif til hækkunar
framfærsluvísitölu.
Það kom fram hjá Trygga að í
forsendum spárinnar væri miðað
við 3,5% hækkun á innflutnings-
verði, sem séu í samræmi við spár
OECD.
Aðspurður sagöi Tryggvi að erf-
ítt vaeri aÓ tógjá týrír hvafta ibtif .
gengiiíBniýíingar kynhu að Jiafa á
verðbótgúspár. „Við getum lítið'
sem ekkert stýrt innflutningsverði.
Að vísu ntá reyna að vinna á móti
því með ntðúrgreiðsium eða breyt-
ingum á tolium. En svo kemur hin
hliðin, þ.e.hvaða áhrif þær breyt-
«18 -þaff Sýaff^tnjsjftórví^
sem óneltáitlega eru Uppi í þjóðfé*
laginu um þéSsar mundir, vaknar
sú spurning hversu raunhæf þessi
spá Séðlahankans sé í rauninm?
“ „Fe’ssi Ápl'. er byggð; á forsenáénr'
þjóðhagsáíMtunitr. Stðan er reýnf
að túika áforrri ríkisstjómar um
tekjuöflun. Ef launaskattur t.d.
fellur um sjálft sig, breytist þetta
aðeins. En í stórum dráttum má
segja að miðað við þær forsendur
sem okkur eru gefnar af stjórnvöld-
um, er reynt að komast að ein-
hverri vitrænni niðurstöðu," sagði
Tryggvi Felixson. óþh
Jón Kjartansson í Eyjum um verkalýðsleiðtogana:
Forystan er
hnípin hjörð
„Það skeður ekki nokkur skapað-
ur hlutur í santningamálunum, það
stendur einfaldlega á Stóra bróður í
Garðastræti,“ sagði Jón Kjartansson
hjá Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja
aðspurður um hvort rót væri komið
á samningaviðræður í Vestmanna-
eyjum. Hann sagðist ekki kannast
við að mikil hreyfing væri nú komin
á samningaviðræður aðildarfélaga
Verkamannasambandsins og vinnu-
veitenda, eins og gefið er í skyn í
einu dagblaðanna í gær.
„Samningar eru ekki lausir fyrr en
um áramót og því er enginn þrýsting-
ur á gerð nýrra kjarasamninga. Ég
hugsa að menn bíði eftir því að
samningar losni og síðan verði hægt
að kenna þessu heimtufreka lág-
Iaunafólki um það að það þurfi að
fella gengið og gera aðrar hliðarráð-
stafanir," sagði Jón.
Hann sagðist tclja að menn yrðu að
setjast niður næstu daga og tala
saman í alvöru, því að öðrum kosti
væru fyrirséð hörð átök eftir áramót.
Jón lét þess getið að hann teldi að
stjórn Verkamannasambandsins
hefði ekki átt að vísa samningamál-
um til aðildarfélaganna. „Ég hygg
að þctta sé biðleikur Verkantanna-
sambandsins, eigunt við ekki bara
að segja að verkalýðsforustan sé nú
hnípin hjörð í vanda. Menn sjá
engin úrræði og það hefur verið
gefið allt of mikið eftir. Við höfum
ekki sýnt klærnar að undanförnu.
Staðreyndin er sú að hjá Verka-
mannasambandinu sitja friðarhöfð-
ingjar í valdastólunum sem vilja allt
gefa fyrir friðinn".
Hann sagði að allt tal um að
breytingar á bónuskerfi gæti verið
grundvöllur að nýrri kjarasamninga-
gerð, væri tóm vitleysa. „Þetta eru
tveir aðskildir hlutir,“ sagði Jón.
Hann lét þess getið að í Vestmanna-
eyjum væri verið að reyna nýtt
bónuskerfi, sem líktist um margt því
kerfi sem nú er verið að reyna á
Vestfjörðum. „En eins og bónusinn
hefur þróast hér, sýnist mér að
hópbónus, þar sem allir fái það
sama, sé ekki raunhæfur,“ sagði Jón
Kjartansson. óþh
Slitnað upp úr samningum um Subarubílana:
Flóðbílastríðið
er rétt að hefjast
Enn virðist allt stefna í að hinir
frægu vatnsSubarubílar komi til
landsins eftir helgina, því í gærmorg-
un slitnaði upp úr samningum milli
fjórmenninganna sem keyptu bíl-
ana, og framleiðenda og umboðsað-
ila bílanna hér á landi.
Stöðugar símhringingar voru milli
þessara aðila alla fyrrinótt og þegar
upp úr slitnaði, munaði 50.000 doll-
urunt.
Júlíus Vífill Ingvarsson, hjá Ingv-
ari Helgasyni og Simitsu hjá Subaru,
buðu fyrst 1,5 milljónir dollara í 279
híla. Því tilboði var ekki tekið, og
þar að auki höfðu fjórmenningarnir
ekki til umráða nema 235 bíla. Þá
gerðu Júlíus og Simitsu tilboð upp á
1,5 milljónir dollara í þessa 235 bíla.
Fjórmenningarnir höfnuðu því til-
boði og gerðu gagntilboð sem hljóð-
aði upp á 90 milljónir íslenskra
króna. Því var hafnað og lokatilboð
Júlíusar og Simitsu hljóðaði upp á
1,7 milljónir dollara. Gagntilboð
fjórmenninganna hljóðaði upp á
1,75 milljónir dollara og þar strönd-
uðu viðræðurnar. Hvorugur vildi
bakka meira.
„Við buðum þeim þarna tugmillj-
ónir í vasann. Því neituðu þeir og nú
er málið komið íhendurstjórnvalda.
Það verður jólagjöfin í ár,“ sagði
Júlíus Vífill í samtali við Tímann í
gær.
Fjórmenningarnir eru ekki á sama
máli.
„Það var í fyrsta skipti klukkan 17
í gær að þeir höfðu beint samband
við okkur, og þá í gegnum lögfræð-
ing okkar. Áður höfðu þeir reynt að
skaða okkur fjárhagslega, lögfræði-
lega, áróðurslega og kerfislega. Ég
samþykkti fund í gærkveldi, en til-
boðið var einfaldlega of lágt,“ sagði
Margeir.
„Það má vera að við höfum reynt
að skaða þeirra viðskipti. En spurn-
ingin er, hverja eru þeir að skaða?
Þeir eru að skaða mörg þúsund
Subarueigendur, þeir eru að skaða
öryggi á vegum og þeir eru að skaða
okkar viðskiptahætti," sagði Júltus
Vífill um þessi ummæli Margeirs.
„Við hringdumst síðan á meiri-
hluta nætur og þetta fór endanlega í
strand í morgun. Bílarnir koma því
og verða seldir hér. Það er 91 bíll
kominn í skip og þeir koma á
mánudag eða þriðjudag. Þeir eru
ekki valdir, nema með tilliti til
pantana," sagði Margeir Margeirs-
son, einn fjórmenninganna.
Heimildir Tímans telja hins vegar
að 90 bestu bílarnir hafi verið valdir
ntcð það fyrir augum að slæva athygli
bifreiðaeftirlitsmanna og fá leyfi
þeirra til skrásetningar. Bifreiðaeft-
irlitsmenn munu hins vegar skoða
alla bíla jafnvel.
Júlíus Vífill sagði í Tímanum í
gær, að það væri „meira en lítið
undarlegt ef þeir taka ekki þessu
tilboði," þvf þeir hefðu milljónir
upp úr krafsinu.
„Það teljum við ekki vera, miðað
við þá vinnu og fjárhagslega áhættu
sem við höfum lagt út í. Þegar við
gerðum kaupin, þá héldum við að
við værum að kaupa frjálsa vöru á
frjálsum markaði. Subaru eru ntun
betri bílar en framleiðendurnir hafa
verið að reyna að telja okkur trú um.
Þeir eru ekki einungis með áróður
gegnokkarbílum, heldur öllum Su-
barubílum. En eins og þeir hafa
komið fram við okkur, þá höfum við
engan áhuga á viðskiptum við þá.
Enda sagði Júlíus í gær, að stríðið
væri rétt að byrja,“ sagði Margeir.
En eins og áður, ber aðilum ekki
saman.
„Margeir hefur þetta nú ekki rétt
eftir. Hann sagði: „Við ætlum að
berjast“ og þá sagði ég: „Þá er þetta
bara rétt að byrja.“ Þannig voru
orðaskiptin og á engann annan
hátt,“ sagði Júlíus Vífill.
En hvað sem orðalagi líður, þá er
Ijóst að flóðbílastríðið er rétt að
byrja. -SÓL