Tíminn - 30.12.1987, Qupperneq 3
Miðvikudagur 30. desember 1987
Tíminn 3
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra:
AHERSLAN A TEKJU
OFLUNARFRUMVORP
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, leggur áherslu á að tekjuöfl-
unarfrumvörpum ríkisstjórnarinnar
verði tryggð afgreiðsla frá Alþingi
fyrir áramót og einnig fiskveiðifrum-
varpinu.
Um er að ræða stjórnarfrumvörp-
in um söluskatt, tolla og vörugjald
og um stjórnun fiskveiða. Sagði
forsætisráðherra að um þetta væru
forystumenn stjórnarflokkanna
sammála og að þeir muni leggja alla
áherslu á að málin gangi fram í
þessum farvegi. Þetta er að hans
sögn helsta niðurstaða fundar
leiðtoganna með forseta Sameinaðs
Alþingis og viðkomandi ráðherrum.
Þannig virðist hafa orðið sam-
komulag um að leggja allt kapp á að
ljúka tekjuöflunarfrumvörpunum á
kostnað kvótafrumvarpsins svokall-
aða, ef í harðbakka slær í dag og á
morgun. Fari svo að fiskveiðifrum-
varpið hljóti ekki afgreiðslu fyrir
áramót, er það hluti af samkomulag-
inu að fyrir liggi nákvæm áætlun um
það hvernig það verði afgreitt og
með hvaða hætti, eftir áramót.
Grunnur þessa varasamkomulags
virðist vera sá að kvótinn verði
afgreiddur á fyrstu tveimur starfs-
dögum Alþingis á nýju ári, eða
nánar tiltekið dagana 4. og5. janúar.
„Höfuðatriði þessa máls eru þau
að ljúka umfjöllun og afgreiða tekju-
öflunarfrumvörpin og fiskveiðifrum-
varpið," sagði Þorsteinn Pálsson í
samtali við Tímann eftir strangan
fund leiðtoga stjórnarflokkanna,
forseta Sameinaðs Alþingis, Hall-
dórs Ásgrímssonar, sjávarútvegs-
ráðherra, og Jóns Sigurðssonar, við-
skiptaráðherra, síðdegis í gær.
„Við getum eftir atvikum sætt
okkur við að afgreiða fiskveiðifrum-
varpið á fyrstu tveimur dögum eftir
áramót. Það er auðvitað slæmur
kostur. en það má alveg búa við það.
En það er ákveðinn vilji okkar að
ljúka þessum málum og koma þeim
frá, enda er það höfuð nauðsyn til
að fá hreinar línur. Ég trúi því ekki
að menn vilji af ásettu ráði. tafanna
vegna, tefja það að afgreiðslu mál-
anna verði lokið.
Við skiljunt auðvitað, að menn
notfæri sér þann rétt að ræða mál til
hlítar, en trúum því ckki að óreyndu
að menn vilji tafanna vcgna hindra
eða tefja aígreiðslu málanna," sagði
Þorsteinn.
Sagðist Þorsteinn vona að fisk-
veiðifrumvarpið geti kontið úr sjáv-
arútvegsneínd neðri deildar í dag.
Þá sagðist hann telja að tekjuöflun-
armálin væru þegar búin að fá veru-
lega umræðu og að vel megi takast
að Ijúka þeint fyrir áramót. „Það er
hægt að ljúka þessum málum á
þessunt tíma og það er líka nauðsyn-
legt til að eðlileg festa ríki um
framkvæmd þessara mála.
Um þetta eru forystumenn stjórn-
arflokkanna sammála og þeir munu
leggja alla áherslu á að málin gangi
lram í þessum farvegi," sagði for-
sætisráðherra.
Varðandi þá spurningu hvort ein-
Þorsteinn Pálsson.
stakir þingmenn gætu ekki auðveld-
lega spillt þcssari afgreiðsluáætlun,
sagði Þorsteinn: „Viö vitum að það
hafa veriö mismunandi sjónarmið
um einstök atriði í fiskveiðifrum-
varpinu og það á við um þingmenn
allra flokka. En ég veit ekki til þess
að nokkur stjórnarþingmaður ætli
að koma í veg fyrir að frumvarpið fái
afgreiðslu á eðlilegum tíma. Eg hef
cngan heyrt gefa yfirlýsingu af því
tagi." KB
Norðlenskir skipstjórar eru óhressir með
vinnubrögð andstæðinga kvótafrumvarps:
Ekki vilji þeirra
sem málið varðar
Augu sjó- og útgerðarmanna bein-
ast þessa dagana að Alþingishúsinu
við Austurvöll. Þar stendur yfir reip-
tog fram og aftur um kvótafrumvarp-
ið, einsog kunnugt er. Ekki er sýnt á
þessari stundu um hvort frumvarpið
seytlar í gegn um þingið fyrir ármót.
Flestir telja það þó heldur ósenni-
legt. Þessi óvissustaða skapar
ákveðna erfiðleika í sjávarútvegs-
ráðuneyti og raunar hjá útgerðar-
mönnum og sjómönnum víða um
land. Á aðalfundi í Skipstjóraféiagi
Norðlendinga í gær voru vinnubrögð
einstakra þingmanna, sem vilja
endurskoðun á núgildandi kvóta-
frumvarpi, harðlega fordæmd. í
skeyti, sem mun hafa verið sent frá
aðalfundinum til forseta þingsins og
nokkurra þingmanna, segir: „Aðal-
fundur Skipstjórafélags Norðlend-
inga haldinn 29/12 ’87 lýsir furðu
sinni á framgangi frumvarps um
stjórnun fiskveiða á Alþingi, þar sem
fyrir liggja samþykktir allra helstu
hagsmunaaðila. Vinnubrögð ein-
stakra þingmanna, sem stokka vilja
kerfið upp eða leggja það niður, eru
ekki í neinu samræmi við ríkjandi
viðhorf þeirra þjóðfélagshópa, sem
málið varðar mest."
Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í gær
í samtali við Tímann að ráðuneytið
hefði heimild í lögum til ákveðinnar
stjórnunar á fiskveiðunum eftir ára-
mót ef svo færi að kvótinn yrði ekki
samþykktur. Hann nefndi í þessu
sambandi m.a. lög frá 1976 og 1948.
„Það er hægt að gera ýmislegt á
grundvelli þessara laga," sagði Jón.
„Verði kvótinn ekki samþykktur fyr-
ir áramót, skapast ákveðnir erfið-
leikar í ráðuneytinu með að vinna
með tvö ólík kerfi á sama árinu. Það
gerir okkur mjög erfitt fyrir að geta
ekki unnið að undirbúningi kvóta-
kerfis, t.d. að senda út bréf til út-
gerðarmanna um val þeirra á afla-
marki eða sóknarmarki."
Jón lþt þess getið að þetta óvissu-
ástand skapaði þó fyrst og fremst
ákveðna erfiðleika fyrir útgerðina í
landinu sem þyrfti að skipuleggja
sinn rekstur fram í tímann. „Útgerð-
armenn hringja stanslaust hingað í
ráðuneytið og spyrja okkur um ýmis-
legt sem við getum ekki gefið svar
við á meðan lögin um fiskveiði-
stjórnun hafa ekki verið samþykkt á
þinginu" sagði Jón B. Jónasson.
Ef kvótafrumvarpið fer ekki í
gegn fyrir ármót, virðist ljóst að sá
fiskur sem skipin kunna að draga úr
sjó í upphafi nýs árs, verði dreginn
frá kvóta þeirra á næsta ári. óþh
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra:
Kvótafrumvarpið
yrði þá óbreytt
„Það er rétt að við urðum sam-
mála um að leggja áherslu á að
þessi þrjú frumvörp fari í gegn fyrir
áramótin, en láta þó tekjuöflunar-
frumvörpin hafa forgang," sagði
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins. „En ef það tækist
ekki að koma fiskveiðifrumvarpinu
í gegn fyrir áramót, þá verði komið
saman strax eftir áramót og það
samþykkt án tafar og án nokkurra
breytinga, sem sjávarútvegsráð-
herra geti ekki fallist á.“
Lagði Steingrímur áherslu á það
atriði í samkomulagi þessu að eng-
ar breytingar yrðu teknar inn í
frumvarpið nema þær scm sjávar-
útvegsráðherra getur fellt sig við.
Sagði hann að Ijóst væri að fram
muni koma einhverjar brcytingar á
frumvarpinu í meðferð nefnda og í
annarri og þriðju umræðu. Allar
breytingar á frumvarpi Halldórs
yrðu þó miðaðar við þaö scm hann
telur sér fært að samþykkja. KB
Stcingrímur Hermannsson.
*' #
*
*
** «. «•*"*"***
■ ■ » *■ . * ,
-“““■■■■■■•■■•■í
fím ÍS fös
lau
;
■
SfeöSt ShhI
■ \
» *
*
Helgarferðir Flugleiða og samstarfsflugfélaga ásamt 17 samstarfshótelum heQast á ný
ársbyrjun 1988. Við bygum með JANÚARTILBOÐI sem stendur í rúman mánuð.
JANÚARTILBOÐIÐ ER ÓTRÚLEGT!
Þar er feröin (flug, gisting ásamt góðum morgunveröi) á
hlægilegu veröi.
Til Reykjavíkur eru helgarferðir frá 20 stööum á landinu og
þar geta helgarferðargestir valið milli sjö frábærra hótela.
Frá Reykjavík eru helgarferðirnar til ísafjarðar, Akureyrar,
Húsavíkur, Egilsstaða, Hornafjarðar og Vestmannaeyja
þar sem gist er á úrvals hótelum og gistiheimilum. Allar
upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, ferðaskrifstofum
og umboðsmönnum.
Láttu ekki JANÚARTILBOÐIÐ fljúga frá þérl
FLUGLEIÐIR