Tíminn - 30.12.1987, Side 4

Tíminn - 30.12.1987, Side 4
4 Tíminn Miðvikudagur 30. desember 1987 „Landnemarnir“ í Grafarvogi láta það eftir sér margir hverjir að búa rúmt þótt mikil umræða hafi verið um háa vexti af lánum síðan byggingar hófust þar. Meðalstærð íbúða í Grafarvogi um síðustu áramót var 176 fer- metrar. Þar sem íbúafjöldinn svaraði aðeins til 2,6 að meðal- tali í hverri íbúð svaraði það til 68 fermetra húsrýmis á hvern íbúa, samkvæmt upplýsingum í nýrri Árbók Reykjavíkur. Hús- rými á mann í Grafarvogi var því rúmlega tvöfalt stærra að jafnaði heldur en í norðurbænum (Teig- ar, Laugarnes og Vogar m.a.), þar sem fólk lætur sér nægja um 33ja fermetra húsrými að meðal- tali. í Breiðholti hefur hver íbúi jafnaðarlega um 38 fermetra til ráðstöfunar en á bilinu 41-43 fer- metra í öðrum borgarhverfum. í Reykjavík töldust um 35.500 íbúðir um síðustu áramót, sem svar- aði til 2,6 manns í íbúðað meðaltali. Minnstar eru íbúðirnar í norðurbæ, um 81 fermetri að mcðaltali. í aust- urbæ cr meðalstærðin um 86 ferm. og í vesturbæ rúmlega 92 fermetrar. Meðalstærð íbúða í suðurbæ (Háa- leiti, Smáíbúðahverfi og Fossvogur) er um 114 fermetrar. Enn hefur íbúðastærðin aukist í 125-126 fer- metra að meðaltali, þegar byggt var í Breiðholti, Árbæ og Selási, en þetta eru einu hverfi borgarinnar þar sem um eða rúmlega 3 manneskjur eru að meðaltali um hverja íbúð. Dæmigerðar kjarnafjölskyldur, þ.e. hjón eða sambúðarfólk, með eða án barna, er aðeins að finna í um helmingi allra íbúða í Reykjavík, eða um 17.900. Þar við bætast um 3.600 fjölskyldureinstæðra foreldra. Um 14 þús. íbúðir, eða um 40% allra íbúða í Reykjavík, eru því eftirfyrir þá tæplega 25 þús. einhleypinga yfir 20 ára sem búa í borginni. Athyglivert er að þó borgarbúum hafi á síðustu 5 árum fjölgað í kring- um 7.000 og íbúðum um 3.500 hefur hjónum nær ekkert fjölgað en fjöl- skyldum sambúðarfólks og ein- stæðra foreldra fjölgað í kringum 1.300. Einhleypingar 20 ára og eldri eru hins vegar um 4.000 fleiri en fyrir fimmárum. Kvnni þaðekki m.a. að geta skýrt þá miklu eftirspurn sem veriö hefureftir litlum íbúðum bæði til leigu og kaups á undanförnum árum ? - HEI Frá Grafarvogi, en þar hafa íbúðir bókstaflega sprottið upp sem gorkúlur. Árbók Reykjavíkur: Um 70 fm húsrými á mann í Grafarvogi Aðeins verið hiýrra í desember 1933 frá 1845: Níunda hlýjasta árið frá fyrstu mælingum „Ég hef nú aðallega miðað við Stykkishólm, en þar hafa farið fram veðurmælingar frá því í nóvember 1845, og þetta ár ætlar að öllum líkindum að verða níunda hlýjasta árið,“ segir Páll Bergþórsson, veðurfræðingur. „Pað eru átta ár sem hafa verið örlítið eða nokkuð hlýrri frá upphafi mælinganna. Það hefur ekki munað rniklu." í Stykkishólmi hafa lengst verið gerðar áreiðanlegar veðurmælingar samfellt hér á landi, eða í 142 ár. Af skrám þaðan má lesa, að aðeins einu sinni hefur desembermánuður verið hlýrri en í ár. Meðalhiti í þessum mánuði nú er um 3,3 stig á C, en árið 1933 var hann 4 stig og hefur ekki mælst mildari. „Meðalhiti þessa árs ætlar að verða 4,7 stig, en hlýjast var 5,2 stig' árið 1942. Árið 1928 voru mæld 4,8 stig, 1933 voru 5,1 stig, 1939 voru sömuleiðis 5,1 stig, 1945 voru 4,9 stig og 1951 5,1 stig. Eftir það er ekkert ár hlýrra en 1960 með 4,8 stig og aftur 1964 með sama meðalhita. Frá því 1845 hafa tvö ár verið með 0,9 stiga meðalhita og eru þau hin allra köldustu. Þau eru hvor tveggja frá 19. öldinni, 1859 og 1866, en þá var aldeilis voöalegur áratugur. Ekk- ert ár á 19. öld var jafnhlýtt því sem nú er að líða.“ Það vekur þó athygli leikmanns að meiri sól hafi verið þau ár sem kaldara var. Páll Bergþórsson segir það vera vegna þess að hlýindin fylgi sunnanátt, en þá er yfirleitt meira skýjað en f norðanátt. Það sem hins vegar vekur athygli fræðimannsins, Páls Bergþórssonar, er að á sama tíma og desember er Páll Bergþórsson. svona feiknalega hlýr hér er að öllum líkindum þessi mánuður sá kaldasti sem hefur mælst frá upphafi á Jan Mayen. „Það eru aldeilis gífurlegar and- stæður sem hafa verið í veðurfarinu hér á þessu bili og meiri en nokkru sinni fyrr. Það segir okkur ekki svo ýkja mikið þótt sé svona hlýtt hérna meðan svona kalt er norðurundan, því að við getum átt að búa að því frekar síðar. Það er mjög mikið norðaustan hvassviðri um Vestfirði og frost og snjókoma sem við er að búast við slíkar aðstæður. En þetta er mjög sérstakt að þetta skuli koma fyrir. “ þj Nefnd til starfa Guðmundur Bjarnason, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nefnd til að endur- skoða lög um almannatryggingar og stjórnskipulag Tryggingastofn- unar ríkisins. Fyrsti fundur hennar verður 5. janúar nk. Hlutverk nefndarinnar er m.a. eftirfarandi: Að endurskoða lög um almannatryggingar og leggja mat á þau markmið sem fram koma í núgildandi lögum, en þau eru að stofni til frá 1971. Að athuga tengsl almannatrygginga- laga við önnur lög s.s. lög um málefni aldraðra og fatlaðra. Að gera úttekt á Tryggingastofnun ríkisins, endurskoða stjórnskipu- lag og deildaskiptingu hennar svo og starf tryggingayfirlæknis. Einnig er nefndinni ætlað að endurskoða fyrirkomulag tryggingaumboða og sjúkrasamlaga. f nefndina hafa valist: Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður heil- brigðismálaráðherra, Árni Gunn- arson, alþingismaður, Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður, Helga Jónsdóttir, formaðurTrygg- ingaráðs, Helgi Seljan, fyrrv. al- þingismaður, Kristján Guðjóns- son, deildarstjóri í Tryggingastofn- un ríkisins og Sigurður Hermund- arson, deildarstjóri í Ríkisendur- skoðun. Ritari nefndarinnar hefur verið skipaður Gunnar Jónsson, lögfræðingur. . Ragnar H. Ragnar látinn Hinn kunni tónlistarfrömuður og heiðursborgari ísafjarðar, Ragnar Hjálmarsson Ragnar, lést 24. des- ember. Ragnar var 89 ára gamall er hann lést. Ragnar H. Ragnar var ráðinn skólastjóri tónlistarskólans á ísafirði skömmu eftir stofnun hans árið 1948 og starfaði hann óslitið við skólann þar til fyrr á þessu ári. Ragnar var menntaður í Kanada, en þangað flutti hann árið 1921 ogstarfaði hann þar við söngstjórn og tónlistar- kennslu þar til hann gerðist sjálf- boðaliði í bandaríska hernum í heimsstyrjöldinni síðari. Eftir það tók hann við skólastjórastöðunni á ísafirði. Ragnar hélt alla tíð uppi öflugu tónlistarlífi á ísafirði með dyggum stuðningi konu sinnar Sigríðar Jóns- dóttur. Þau eignuðust þrjú börn og hafa börn þeirra einnig lagt stund á tónlist. Sigríður er skólastjóri tón- listarskólans á ísafirði, Anna Áslaug Ragnar Hjálmarsson Ragnar er píanóleikari og Hjálmar Helgi tónskáld. ísafjarðarkaupstaður mun sjá um útför Ragnars.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.