Tíminn - 30.12.1987, Page 5
Miðvikudagur 30. desember 1987
Tíminn 5
Breytingar í Reykjavík 1972-1986:
FOLKIFJOLGAR HÆGAR
EN BÍLUM 0G ÍBÚDUM
íbúöum og bílum hefur augljós-
lega fjölgað mun hraðar en íbúum
Reykjavíkur á tímabilinu 1972 til
1986, segir í formála nýjustu Ár-
bókar Reykjavíkur, þar sem m.a.
eru dregnar fram nokkar afgerandi
tölulegar breytingar sem átt hafa
sér stað í höfuðborginni á aðeins 14
ára tímabili. Þá fjölgaði t.d. borg-
arbúum sjálfum um 9%, íbúðum
þeirra um 38% og fólksbílunum
þeirra um 110%.
Fækkað um 2.200 börn í
grunnskólum Reykjavíkur
Pótt fjöldi borgarbúa hafi ekki
breyst svo stórlega á þessum árum,
eða úr um 84.000 í 91.500, verður
annað uppi á teningnum þegar litið
er á breytingar innan einstakra
aldurshópa, sem fyrst og fremst
verða vegna mikillar fækkunar
barneigna. Öll fjölgunin og meira
til er nefnilega fólk á besta starfs-
aldri, þ.e. 25-66 ára, sem um síð-
ustu áramót var um 8.000 fleira
heldur en 1972. í grunnskólum
borgarinnar eru aftur á móti um
2.200 færri (15%) börn en þá var og
um 500 færri á barnaheimilisaldri.
Ellilífeyrisþegar eru nú hins vegar
um 2.900 fleiri (39%) en fyrir hálf-
um öðrum áratug.
Efbörnum 15áraogyngrihefði
aftur á móti fjölgað í hlutfalli við þá
eldri væru börn í borginni nú nær
7.000 fleiri en raun er á. Þar af
þyrftu grunnskólar borgarinnar að
rúma um 4.600 fleiri (38%) nem-
endur en nú og barnaheimilin á 3.
þús. fleiri börn. Miðað við þann
vinnuaflsskort sem nú er svo mjög
um rætt gæti verið forvitnilegt að
velta fyrir sér hvernig gengið hefði
að manna allar þær kennara og
fóstrustöður sem þyrfti til viðbótar
ef ekki hefði dregið svo úr barn-
eignum eins og ráða má af framan-
greindum tölum.
Á hinn bógin sýnist Ijóst að fram-
færsla 7.000 færri barna ætti að gefa
fólki aukin fjárráð til annarra
hluta. Ef miðað er við 10.000 kr.
framfærslukostnað á barn á mán-
uði (tvöfalt meðlag) svarar það til
þess að Reykvíkingar „spari“ sér
þarna um 830 milljóna útgjöld á
ári.
Bílarístað barnanna?
Hafa borgarbúar kannski valið
bíla fremur en börn? Á þessu sama
tímabili og börnum borgarinnar
fækkaði hlutfallslega um 7.000
stækkaði fólksbílafloti þeirra úr
21.000 í 44.200 bíla, eða að meðal-
talium 1.660 bílaáári. (1.660 bílar
x 450 þús. kr. = 750 milljónir?).
Þarna er að vísu miðað við bíla-
flotann í árslok 1986 og ckki ólík-
legt að hann verði kominn í um
49.000 nú í lok þessa árs. Verður þá
kominn fólksbíll á hverja 1,9 borg-
arbúa að meðaltali samanborið við
bíl á hverja 4 borgarbúa 1972. Er
athyglisvert að þarna er um nær
sömu tölur að ræða (með öfugum
formerkjum) og nefndar hafa verið
í sambandi við minnkaða fæðingar-
tíðni, þ.e. úr 4 börnum niður í 1,9
börn á ævi hverrar konu að meðal-
tali.
íbúðum f jölgað
meira en fólkinu
Reykvíkingar hafa líka verið
duglcgir við að byggja á þcssu
tímabili. Þótt enn sé talað um skort
á íbúðum hvort sem er til lcigu eða
á fasteignamarkaðnum, hefur
íbúðum í borginni fjölgað mun
meira en fólkinu, eða um tæplegu
10.000 á tímabilinu - úr 25.800 í
35.650 íbúðir um síðustu áramót.
Tæplega 2,6 íbúar voru þá orðnir
um hverja íbúð að meðaltali íborg-
inni og aðeins rétt um 2 í íbúð í
eldri borgarhverfunum.
Framangreindar breytingar urðu
á síðustu 14 árunum fyrir 1986, eða
álíka tíma og þá var eftir til ársins
2000. Hvcrnig framangreind hlut-
föll munu þá hafa breyst skal les-
endum látið éftir að spá. • HEI
Kerfið situr enn
á 370 milljónum
Það virðist ætla að ganga treg-
lega fyrir sauðfjárbændur að fá
greitt inn á reikninga sína fyrir
sláturinnlegg frá síðastliðnu hausti.
Eins og fram kom í Tímanum fyrir
jól, áttu bændur að fá afurðir að
fullu greiddar þann 15. desember
sl. Samkvæmt upplýsingum Tím-
ans í gær höfðu þá flestir sauðfjár-
bændur landsins einungis fengið
greidd 75% af uppgjöri, þ.e. þá
tölu sem kom til uppgjörs í október
sl. Á svæði Sláturféiags Suðurlands
voru þó greidd 7% til viðbótar til
bænda fyrir jól.
Ólafur Sverrisson, formaður
Landssambands sláturleyfishafa
sagði f samtali við Tímann í gær að
ríkið ætti eftir að greiða þeim
rúmar 500 milljónir. Um helming-
ur þeirrar upphæðar er vegna upp-
gjörs fyrir kjöt frá 1986, sem átti
samkvæmt samningi að vera búið
að gera upp við bændur fyrir nóv-
emberlok. Hinn hluti upphæðar-
innar eru ógreiddar útflutningsbæt-
ur fyrir framleiðslu sl. hausts og
ógreitt vaxta- og geymslugjald. Að
sögn Ólafs áttu rúmar 120 milljónir
króna að berast sláturleyfishöfum
í gær frá ríkinu, sem þýðir þá að
eftir standa um 370 milljónir
króna. Ólafur sagði það ljóst að ef
ríkið greiddi ekki á næstunni þessar
370 milljónir gætu sláturleyfishafar
ekki staðið við nema um 90% af
greiðslum fyrir afurðir sl. hausts.
„Fyrir áramót fá bændur fullt verð,
en það er ekki unnt að borga út
nema 90% upphæðarinnar. Stjórn
Landssambands sláturleyfishafa
getur ekki vænst þess að sláturleyf-
ishafar geti borgað meira en upp
að 90%. Ég vil gcta þess að vaxta-
og geymslugjald fyrir afurðir sl.
hausts hefur enn ekki fengist
ákveðið, þrátt fyrir ítrekaöar til-
raunir fulltrúa sláturleyfishafa í
svokallaðri fimmmannanefnd, sem
tekur ákvörðun um þetta. Það
virðist standa á cinhvcrjum upplýs-
ingum frá landbúnaðar- og fjár-
málaráðuneyti um það hvernig
reikna skuii þetta út. Þarna er um
að ræða nálægt 155 milljónum. Það
er auðvitað fyrir neðan allar hellur
að vaxta- og geymslugjaldið skuli
ekki fást ákveðið," sagði Ólafur.
Jóhannes Kristjánsson, formað-
ur Landssambands sauðfjárbænda,
sagði að stjórn þess kæmi saman til
fundar strax eftir áramót til að
ákveða með hvaða hætti yrði
brugðist við þessari töf á afurða-
greiðslum. „Við höfum reynt að
láta jólin líða án þess að hugsa illt'
til neins, með öðrum orðum að
ástunda kristilegt hugarfar." Hann
sagði að sér sýndist málið snúast
um ágrcining annarsvegar slátur-
lcyfishafa og hinsvegar ríkisvalds
og banka. „í mínum huga er þá
spurningin sú hvort sauðfjárbænd-
ur eigi að vcra þolcndur í því
dæmi,“ sagði Jóhannes Kristjáns-
son. óþh
Tilkynning frá Lögreglunni í Reykjavík:
Lýst eftir manni
Lýst er eftir Inga Jóhanni Haf-
steinssyni, sem ekki hefur spurst til
síðan 3. nóvember sl.
Ingi Jóhann er 35 ára 180 cm á
hæð í meðal holdum. frekar breið-
leitur, með alskegg og Ijóst, litað
hár.
Síðast sást til ferða Inga Jóhanns
á Skagaströnd, að morgni 3. nóv-
ember sl.
Þeir sem gefið geta upplýsingar
um ferðir hans frá þeim tíma eru
beðnir um að gefa sig fram við
lögregluna.
Vörur Hvítaness selfluttar í land með Ljósafossi:
Fer Hvítanes
á flot í dag?
„Um leið og Ljósafoss kom var
farið að vinna að því að létta Hvíta-
nesið og það hefur gengið að óskum.
Það voru farnar tvær ferðir með alls
á fjórða hundrað tonn af vörum úr
Hvítanesi á land,“ sagði Sigfús
Harðarson, hafnarvörður í Höfn í
Hornafirði, í gærkvöld um björgun
Hvítaness af sandrifinu. Vörum var
skipað upp úr skipinu yfir í Ljósafoss
allt þar til fór að dimma í gær. „Ætli
verði ekki að fara hér um bil fjórar
ferðir.“
Sigfús taldi að því verki yrði ekki
lokið fyrr en um miðjan dag í dag.
Undanfarið hefur verið gcngið frá
traustum taugum frá skipi til lands
til að hafa cinatt á því fulla stjórn.
Á hvcrju flóði cr rcynt að toga það
af rifinu, en það hefur rcynst árang-
urslaust til þessa. Siglus sagði engan
vafa lcika á því að kalla mætti það
björgun skips, úr því scm komið
væri. Skipafélagið hefði orðið fyrir
slíku tjóni að þctta væri trygginga-
mál.
Að lokum sagði hann þær sögu-
sagnir um að ekki hafi verið sætt
sjávarföllum þcgar Hvítanesi var
siglt inn að Höfn vcra rangar. Allt
aðrar ástæður lægju að baki, s.s.
veður hefði vcrið vont og slæmt
skyggni. þj
Stökkti sjö á flótta með því að veifa hníf:
Var ögrað vegna
hörundslitarins
Eftir yfirheyrslur lögreglunnar í
Grindavík í gær hefur það fengist
staðfest að Bretinn, sem áður hafði
lent í áflogum við Grindvíking utan
við Stapa, greip til hnífs til varnar
óboðnu gestunum sjö scm réðust til
inngöngu í herbergi hans f verbúð-
inni í Grindavík síðar um nóttina.
Hann mun þó ekki hafa beitt honum
hcldur gripið hann með sér þegar
hann stökk móti mönnunum frarn á
ganginn.
Upphafið cr að rekja til átaka
utan við Stapa, sem hófust þegar
Bretinn og vinstúlka hans urðu fyrir
áreitni af þessum mönnum. Sá
þeirra, sem Bretinn hafði undir og
Íék svo grátt sem Tíminn skýrði frá
í gær, hafði að sögn ögrað honum
vegna hörundslitarins sem er
blakkur.
Bretinn er farinn af landi brott, en
rannsóknarlögreglan fer nú með
málið. þj