Tíminn - 30.12.1987, Page 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 30. desember 1987
Miðvikudagur 30. desember 1987
Tíminn 11
IIIMilii íþróttir .:íIIIHIIIIIIIIIII:i: ' ::llllllllllllllllll;!!:':' ..glllllllllllll'1!^1'"' :!llll; .;i,:;llllllllllllll!l!!!'' eiiilllllllllllllllliliiy. jIIÍIIIIIIIIIIIIII!' .iiiilllilllllllllli
ÍÞRÓTTIR
llllillllllllllllllllll
iiiiiiiiiiiiií
1 1X2H
LEIKVIKA18 Leikir 2. janúar 1988 Tíminn „o > Q > -o 'O £L Dagur RÚV. Bylgjan C\J o •o œ Stjarnan |
1. Arsenal-Q.P.R. 1 1 1 1 1 1 1 1 1
2. Chelsea-Tottenham X 2 X 2 2 1 1 1 1
3. Coventry-Norwich 1 1 1 X 1 1 1 1 1
4. Derby-Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 1 2
5. Newcastle-Sheffield Wed. 1 1 1 1 1 1 1 1 2
6. Oxford-Wimbledon X X X 2 X X 1 X X
7. Watford-Man. United 1 2 2 2 2 2 2 2 2
8. WestHam-Luton 1 1 1 X 1 1 1 1 1
9. Barnsley-Aston Villa 1 1 X X 2 1 1 1 2
10. Huddersfield-Blackburn 2 X X 1 X 1 1 1 X
11. Hull-Leeds X 1 1 2 1 2 1 1 2
12. Leicester-Crystal Palace 1 1 X 2 X X 1 X 2
Staðan: 87 89 102 88 89 90 95 89 93
Gctraunahaninn fékk sinn
skcrf af jólastcikinni eins og fleiri
og ákvað að fara i megrun. Það
fór ekki betur en svo að dálkurinn
hans skrapp saman um leið og
áramótaspáin verður þess vegna
heldur snubbótt. Enda var sú spá
gerð fyrir jól og síðan er margt
orðið öðruvísi ■ enska sparkinu.
Nægir að nefna eitt nafn í því
sambandi, Arsenal.
Það má kannski segja sem svo
að nú sé kominn tími á Arsenal-
sigur aftur þótt hanatetrinu þyki
slæmt að spá gegn QPR. Totten-
ham virðist vera að komast á
skrið að nýju en ætli þeir nái
nema jafntefli úti á móti Chelsea.
Nú, Coventry vinnur Norwich
mörgum að óvörum og Derby á
ekki “breik“ í Liverpool. New-
castle rífur sig upp eftir stórtap á
Anfíeld og vinnur Sheff.Wed.
1-0. Oxford heldur Wimbledon
niðri í markalausum baráttuleik
en botnlið Watford kemur gífur-
lega á óvart með heppnissigrí á
Man.United og West Ham sigrar
Luton heima. Þá er plássið á
þrotum og lianinn neyðist til að
koma upp um sig, hann notaði
nefnilega teninginn á 2. deildar-
leikina...
Við sendum starfsfólki okkar, viðskiptavinum
og landsmönnum öllum óskirum farsælt komandi
ármeð þökk fyrir samstarfið á liðnum árum.
EIMSKIP
Þorgils Óttar Mathiesen átti góðan leik með íslenska landsliðinu gegn Dönum í gærkvöldi og var að auki markahæstur, skoraði 10 mörk.
Gullit knattspyrnu-
maðurEvrópu1987
Hollendingurinn Ruud Gullit var kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins í Evrópu 1987. Gullit sem er
sóknarmaður og leikur með AC Milano á Italíu er
fyrsti Hollendingurinn sem hlýtur þennan titil frá
því Johan Cryuff var kjörinn 1974.
Gullit fékk 106 atkvæði í kjörinu, Paolo Futre
(Portúgal/Atl.Madrid) varð annar með 91 at-
kvæði, Emilio Butragueno (Spáni/Real Madrid)
þriðji með 61 en aðrir komu þar langt á eftir.
-HÁ/Reuter
Enskir veðmangarar:
Hættir að veðja
um fyrsta sætið
Enskir veðmangarar eru hættir að nenna að
standa i veðja um sigurvegara í 1. deild ensku
knattspyrnunnar og verða menn að láta sér duga,
í bili a.m.k., að veðja um hvaða lið nær 2. sætinu
í deildinni. Ynrinönnum veðmálaskrifstofanna
hefur þótt nóg um gott gengi Liverpool á undan-
förnum vikum og nú þegar enska 1. deildin er
hálfnuð einbeita þeir sér því að öðru sætinu þar
sem mörg lið berjast um hituna.
Liverpool lék tvo leiki yfir hátíðarnar, vann
samtals 7-0 og jók forystuna í 10 stig. Kenny
Dalglish framkvæmdastjóri Liverpool er maður
sem seint verður nógu ánægður ineð sína menn en
honum tókst þó ekki að finna nokkurn skapaðan
hlut að leik sinna manna um jóiin. -HÁ/Reuter.
Svanhildur valin
afreksmaður
Kópavogsbæjar
Svanhildur Kristjónsdóttir frjálsíþróttakona úr
UBK var kjörin afreksmaður Kópavogs 1987. Það
er bæjarstjórn Kópavogs sem stendur að kjörinu.
Islandsmeistarar og Islandsmethafar úr öllum
íþróttafélögum Kópavogs voru einnig heiðraðir í
liófi sem bæjarstjórnin hélt af þessu tilefni og þá
voru einnig valdir afreksmenn yngri flokka. Aron
Tómas Haraldsson hlaupari og boltamaður hlaut
útncfningu í flokki 12 ára og yngri og Hlín
Bjarnadóttir fimleikakona í ilokki 13-16 ára. -HÁ
Magnús Ver Magnússon hefur verið kjörinn kraftlvftingamaður ársins 1987.
Magnús er ört vaxandi lyftingamaður og bætti m.a. Islandsmet Jóns Páls
Sigmarssonar í hnébeygju í +125 kg flokki á árinu. Magnús tekur hér við
viðurkenningu úr hendi Matthíasar Eggertssonar formanns kraftlyftingasam-
bandsins. Timamynd Pjetur.
Ævar Þorsteinsson karatemaður úr UBK var í gær valinn íþróttamaður ársins
í Kópavogi. Það er Rotaryklúbbur Kópavogs sem stendur að valinu og á
myndinni hér að ofan tekur Ævar við farandbikar sem fylgir nafnbótinni.
Tímamynd Pjetur.
Ólafur Unnsteinsson keppti fyrr í þessum mánuði á heimsmeistaramóti
öldunga í frjálsum íþróttum í Melbourne i Ástralíu. Ólafur komst í úrslit í
kúluvarpi, varð 8. (af 36) með 11,89 m og hafnaði í 10. sæti (af 34) með 36,70
m í kringlukasti. Keppendur á mótinu voru um 5000 talsins frá 52 löndum. Á
myndinni hér að ofan er Ólafur (t.h.) ásamt Klaus Lietke V-Þýskalandi sem
sigraði í kúluvarpi og kringlukasti.
Handknattleikslandstiðið á móti í Danmörku:
TapgegnDönum
- íslendingar urðu í 2. sæti á mótinu
íslenska landsliðið í handknattleik
tapaði fyrir Dönum á fjögurra þjóða
mótinu í Danmörku í gærkvöldi.
Lokatölur urðu 24-25 og sigruðu
Danir því á mótinu en íslendingar
urðu í 2. sæti. Jafntefli hefði nægt
íslenska liðinu til sigurs.
Danirnir höfðu forystuna nánast
allan leikinn og mest 5 mörk á
tímabili í síðari hálfleik. íslendingar
söxuðu á forskotiðsíðustu lOmínút-
urnar og komust í 23-24. Sigurður
Sveinsson fór þá inn úr horninu og
var brotið á honum. Töldu íslend-
ingar öruggt að dæmt yrði víti en í
stað þess var ekkerl dæmt, Danirnir
fóru í hraðaupphlaup og skoruðu
23-25. íslendingar svöruðu strax
24-25 og spiluðu svo maður-á-mann
síðustu sekúndurnar en Danirnir
náðu að halda boltanum út leikinn
og tryggja sér sigurinn.
Leikurinn var fremur slakur hjá
íslenska liðinu, vörnin var oft opin
og vantaði meiri ógnun í sóknina.
Þorgils Óttar Mathiesen lék mjög
vel og skoraði 10 mörk. Geir Sveins-
son stóð sig vel í vörninni og Einar
Þorvarðarson í markinu, varði 14
skot.
Sigurður Gunnarsson lék mjög
lítið með, fékk spark í lærið í
leiknum gegn Svisslendingum og
fann enn til í gær.
„Danirnir eru með mjög gott lið
cn með öllum okkar mönnum þá
vinnum við þá,“ sagði Kjartan Stein-
bach fararstjóri íslenska landsliðsins
eftir leikinn.
Mörk íslands gerðu: Þorgils Óttar
Mathiesen 10, Júlíus Jónasson 4,
Sigurður Sveinsson 3, Sigurður
Gunnarsson 3(3), Guðmundur
Guðmundsson 2, Valdimar Gríms-
son 2.
Frakkar og Svisslendingar gerðu
jafntefli, 17-17 í leik sínum í gær og
lokastaðan á mótinu varð því þessi:
Danmörk....... 3 2 10 69-67 5
ísland.........3 1 1 I 71-67 3
Sviss......... 3 0 2 1 59-60 2
Frakkland ... 3 0 21 60-65 2
-HÁ
Óvenju margar milljónir! Upplýsingasími: 685111