Tíminn - 30.12.1987, Síða 15
Tíminn 15
ÍÞRÓTTA
ANNÁLL
JANUAR
Eðvarð Þór Eðvarðsson sundmað-
ur úr Njarðvík var kosinn Iþrótta-
maður ársins 1986, með 68 atkvæð-
um af 70 mögulegum.
Víkingar töpuðu fyrir pólsku
meisturunum Gdansk í átta liða
úrslitum Evrópukeppninnar í hand-
knattleik.
íslenska handknattleikslandsliðið
keppti á Eystrasaltsmótinu í A-
Þýskalandi og náði góðum árangri
þrátt fyrir að hafna í síðasta sæti á
mótinu. Jafntefli gegn A-Þjóðverj-
um í fyrsta, stórtap gegn V-Þjóðverj-
um daginn eftir, sigur á Pólverjum,
jafntefli við Sovétmenn og loks tap
fyrir Svíum. Sovétmenn sigruðu á
mótinu, unnu A-Þjóðverja í úrsiita-
leik.
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari
Essen í V-Þýskalandi var kosinn
handknattleiksþjálfari ársins 1986
þar í landi af lesendum Handball
Magazin.
Fram sigraði í karlaflokki og KR
í kvennaflokki á íslandsmeistara-
mótinu í innanhússknattspyrnu.
Leikmenn enska 1. deildarliðsins
Watford komu til Islands og kepptu
við Reykjavíkurúrval í knattspyrnu
á Gervigrasvellinum í Laugardal.
Jafntefli varð 1-1.
FEBRUAR
Handknattleikslandsliðið sigraði á
Flugleiðamótinu sem haldið var í
Laugardalshöll og á Akureyri. ís-
land vann alla sína leiki, Sviss var í
2. sæti, Alsír í þriðja og 21-árs
landslið Islands rak lestina. Kristján
Arason var kosinn besti sóknarmað-
ur mótsins og Konráð Olvasson
leikmaður 21-árs landsliðsins varð
markahæstur á mótinu.
Handknattleikslandsliðið lék
einnig tvo leiki við heimsmeistara
Júgóslava í mánuðinum, tapaði þeim
fyrri 19-20 en vann þann síðari
24-20. Báðir leikirnir voru stórgóðir
og mikil stemmning í Laugardals-
höllinni.
Bjarni Guðmundsson lék sinn
200. landsleik í handknattleik, í fyrri
leiknum gegn Júgóslövum.
fslenska 18 ára landsliðið í hand-
knattleik fékk V-Þjóðverja í heim-
sókn og sigraði þrívegis örugglega.
Agætur árangur náðist á Meistara-
móti íslands innanhúss í frjálsum
íþróttum.
MARS
Víkingar tryggðu sér íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
þremur umferðum áður en íslands-
mótinu lauk.
Framstúlkur tryggðu sér fslands-
meistaratitilinn í handknattleik
tveimur umferðum fyrir lok íslands-
mótsins.
Unglingalandsliðið (21-árs) í
körfuknattleik sigraði jafnaldra sína
frá Luxemborg 153-81 í Lúxemborg
en töpuðu 79-86 fyrir A-landsliði
heimamanna eftir framlengingu.
Sex heimsmet féllu á HM innan-
húss í frjálsum íþróttum. Tveir ís-
lendingar kepptu á mótinu, Svan-
hildur Kristjónsdóttir og Eggert
Bogason. Svanhildur komst í milli-
riðil í 60 m hlaupi.
Þróttur R. tapaði fyrir KA t
undanúrslitum bikarkeppninnar í
blaki karla á Akureyri. KA og ÍS
leika því til úrslita. Þróttarar urðu
íslandsmeistarar í blaki sjöunda árið
í röð.
Svisslendingar báru höfuð og
herðar yfir aðra keppendur í heims-
bikarkeppninni á skíðum sem lauk í
mánuðinum.
APRIL
Alfreð Gíslason varð v-þýskur
meistari í handknattleik með liði
sínu Essen. Alfreð skoraði 7 mörk í
síðasta leik mótsins. Þjálfari Essen
er einnig íslenskur, Jóhann Ingi
Gunnarsson.
íslendingar lentu í a-riðli með
Júgóslövum, Svfum, Sovétmönnum,
Ameríkumönnum og Afríku þegar
dregið var í riðla fyrir handknatt-
leikskeppnina á Ólympíuleikunum.
Njarðvíkingar tryggðu sér íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik með
tveimur sigrum á Valsmönnum í
úrslitakeppninni. Njarðvíkingar
unnu bikarkeppnina í körfuknatt-
leik, sigruðu Valsmenn með algerum
yfirburðum.
Pálmar Sigurðsson var kosinn
besti körfuknattleiksmaður úrvals-
deildarinnar í körfuknattleik á loka-
hófi körfuknattleiksmanna. Linda
Jónsdóttir hlaut sama titil í kvenna-
flokki.
KR vann ÍBK í jöfnum og bráð-
skemmtilegum bikarúrslitaleik í
kvennaflokki körfuboltans. KR varð
einnig íslandsmeistari.
Stjarnan batt enda á áralanga
sigurgöngu Víkinga í bikar-
keppninni í handknattleik, sló þá út
í undanúrslitum í æsispennandi og
framlengdum leik. Stjarnan tryggði
sér sigur í bikarkeppninni í fyrsta
sinn með sigri á Fram í framlengdum
úrslitaleik.
Fram varð bikarmeistari í kvenna-
flokki í handknattleik, sigraði FH í
stórgóðum úrslitaleik.
Kristján Sigmundsson mark-
vörður Víkinga og Kolbrún Jó-
hannsdóttir markvörður Fram voru
kosin bestu leikmenn íslandsmótsins
í handknattleik á iokahófi hand-
knattleiksmanna.
Breiðablik sem kom upp úr 2.
deild í fyrra tryggði sér sæti í Evr-
ópukeppninni í handknattleik með
því að verða í 2. sæti í 1. deildar-
keppninni.
ÍS varð bikarmeistari í karlaflokki
og UBK í kvennaflokki í blaki. ÍS
vann KA 3-2 í spennandi úrslitaleik
en UBK sigraði ÍS 3-0 í kvenna-
flokki.
Fjórtán íslandsmet féllu á innan-
hússmeistaramóti íslands í sundi.
fslenska landsliðið í sundi náði mjög
góðum árangri á alþjóðlegu sund-
móti í Skotlandi. Á fjórða tug ís-
lands- og aldursflokkameta féllu og
íslenska liðið sigraði í 12 greinum.
Átján íslandsmet til viðbótar féllu
þegar sundlandsliðið keppti á öðru
móti í 50 m braut í Skotlandi stuttu
síðar.
Þrettán fslandsmet féllu á meist-
aramóti fslands í kraftlyftingum.
Hæst bar met Magnúsar Ver Magn-
ússonar í hnébeygju í 125 kg flokki,
365,5 kg þar sem hann bætti met
Jóns Páls Sigmarssonar.
Arsenal sigraði í ensku deildabik-
arkeppninni í knattspyrnu, lagði
Liverpool 2-1 í úrslitaleik.
Þorsteinn Páll Hængsson og Þór-
dís Edwald sigruðu þrefalt á Meist-
aramóti íslands í badminton.
Hlín Bjarnadóttir komst í úrslit í
tveimur greinum á NM fullorðinna í
fimleikum. Hún varð í 5. sæti í
gólfæfingu og á tvíslá.
íslenska knattspyrnulandsliðið lék
gegn ítölum á útivelli í undankeppni
Ólympíuleikanna og tapaði 0-2.
Bryndís Ýr Viggósdóttir frá Akur-
eyri varð sigursælust á skíðamóti
íslands í ísafirði um páskana. Bryn-
dís Ýr sigraði í svigi og stórsvigi og
varð í 2. sæti í samhliða svigi. Einar
Ólafsson sigraði þrefalt í göngu.
íslenska landsliðið í handknatt-
leik, skipað leikmönnum 18 ára og
yngri varð í 2. sæti á NM 18 ára
íandsliða í Digranesi. Þorsteinn
Gunnarsson var kosinn besti varnar-
Eðvarð Þór Eövarösson var kosinn íþróttamaður ársins 1986
í byrjun janúar. Eövarð setti Noröurlandamet í 200 m baksundi
á árinu.
Einar Vilhjálmsson setti 4
Norðurlandamet í spjótkasti á
landsmóti UMFÍ á Húsavík. Ein-
ar stóð einnig framarlega í stiga-
keppni spjótkastara.
Arnór Guöjohnsen varð
belgískur meistari í knatt-
spyrnu meö Anderlecht, varö
markahæstur í belgísku 1.
deildinni og stigahæstur í eink-
unnagjöf stærsta dagblaðs
Belgíu.
maður mótsins. Norðmenn urðu
Norðurlandameistarar.
Körfuknattleikslandsliðið varð í
fimmta og neðsta sæti á NM, tapaði
öllum leikjum sínum. Búist hafði
verið við góðri frammistöðu liðsins
á nrótinu.
Knattspyrnulandsliðið mætti
Frökkum á útivelli í Evrópukeppn-
inni og tapaði 0-2. Vörn íslenska
liðsins var sterk og áttu Frakkar fá
góð marktækifæri. Sigur þeirra var
eigi að síður öruggur.
MAÍ
ísland og Holland gerðu jafntefli
í skemmtilegum leik í undankeppni
Ólympíuleikanna á Laugardalsvefli.
Eyþór Pétursson varð glímukappi
íslands.
Everton tryggði sér enska meist-
aratitilinn í knattspyrnu í annað sinn
á þremur árum.
fslendingar náðu góðum árangri á
EM í karate. íslendingar hafa aldrei
fyrr unnið glímu á Evrópumóti.
Napoli varð ítalskur meistari í
knattspyrnu í fyrsta sinn frá upphafi.
Valsmenn urðu Reykjavíkur-
meistarar í knattspyrnu er þeir sigr-
uðu Framara 2-0 í tíðindalitlum
úrslitaleik á gervigrasinu.
Ajax varð Evrópumeistari bikar-
liafa í knattspyrnu, Gautaborg sigr-
aði í UEFA keppninni, og Porto í
meistarakcppninni.
íslendingar tóku þátt í Ólympíu-
leikum smáþjóða og náðist góður
árangur en aðbúnaðurinn var vægast
sagt ekki til fyrirmyndar, gistiað-
stöðunni lýst eins og hundakofum
eða í besta falli vegavinnuskúrum.
Skagamenn urðu meistarar meist-
aranna í knattspyrnunni, unnu Fram
2-0 í leik íslands- og bikarmeistara.
Ben Johnson spretthlaupari frá
Kandada lýsti því yfir að hann gæti
hlaupið 100 metrana á 9,85 sek. og
þótti mörgum hann taka full stórt
upp í sig. Heimsmet Calvin Smith er
9,93 sek.
JÚNÍ
Arnór Guðjohnsen varð belgískur
meistari í knattspyrnu með Ander-
lecht, annað árið í röð. Arnór varð
markahæsti leikmaður belgísku 1.
deildarinnar með 7 mörk og stærsta
dagblað Belgíu valdi Arnór knatt-
spyrnumann ársins.
Handknattleikslandsliðið 21-árs
tapaði naumlega fyrir Norðmönnum
í fyrri leik liðanna í undankeppni
HM 21-árs. Síðari leikurinn tapaðist
Iíka og Norðmenn fara því á HM.
A-Þjóðverjar sendu knöttinn 6
sinnum í íslenska markið í leik
þjóðanna í Evrópukeppninni í
knattspyrnu á Laugardalsvelli.
Ragnheiður Ólafsdóttir setti ís-
landsmet í 3000 m hlaupi á banda-
ríska háskólameistaramótinu í
frjálsum íþróttum, hljóp á 8:58,00
mín og bætti sig um heilar 12 sekúnd-
ur. Ragnheiður varð 2. í hlaupinu.
Los Angeles Lakers urðu meistar-
ar NBA deildarinnar í körfuknatt-
leik, unnu Boston Celtics 4-2 í
úrslitakeppninni.
Handknattleikslandsliðið lék þrjá
leiki við Dani en sigraði aðeins í
einum. Landsliðið var þungt á sér og
leikirnir lítið fyrir augað.
Ágætur árangur náðist á Flug-
leiðamótinu í frjálsum íþróttum og
var nærri mörgum íslandsmetum
hoggið án þess að neitt þeirra félli.
Vésteinn Hafsteinsson náði Ól-
ympíulágmarkinu í kringlukasti á
kastmóti á Selfossi. Vésteinn kastaði
64,30 m en lágmarkið er 63,00 m.
JÚLÍ
Einar Vilhjálmsson setti Norður-
landamet í spjótkasti á Landsmóti
UMFÍ á Húsavík. Einar kastaði
82,96 m. Árangur Einars var há-
punkturinn á vel heppnuðu lands-
móti sem fram fór í miklu blfðskap-
arveðri. HSK sigraði í heildarstiga-
keppninni, með yfirburðum. Talið
er að milli 14 og 16 þúsund manns
hafi lagt leið sína á landsmótið en
keppendur og starfsmenn voru um 3
þúsund.