Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 31. desember 1987 Tíminn 3 REYKJAVIK Reykjavík ★ BRENNUR Ráðuneyti leyfir veiðar á 4 þúsund tonnum af síld: Mikill áhugi á söltun Vegna gerðra samninga við Sov- étmenn um viðbótarsölu á 30 þús. tunnum af saltsíld, hefur Sjávarút- vegsráðuneytið ákveðið að leyfa veiðar á 4 þúsund lestum af síld í janúar n.k. Þeir sem hyggjast þá róa á síld, skulu sækja um veiðileyfi til ráðuneytisins eigi síðar en 4. janúar 1988. Þessar veiðar munu verða ák- veðnum takmörkunum háðar. Þannig eiga þau skip einungis kost á veiðileyfi sem stunduðu síldveið- ar á þessu ári. Gert er ráð fyrir að skipta heildarafla jafnt á milli þeirra skipa sem sækja um veiði- leyfi. Miðað er við að um 10 skip stundi veiðarnar og að þau haldi til veiða eigi síðar en 10 janúar n.k. Ef skipin hafa þá ekki lagt úr höfn missa þau veiðiréttinn og mun þá koma til endurúthlutunar. Miðað er við að veiðikvóti hvers skips í þessari úthlutun komi að tveimur þremur hlutum til frádrátt- ar við úthlutun haustið 1988. Kristján Jóhannesson hjá Síldar- útvegsnefnd segir að síldarsaltend- ur á svæðinu frá Vopnafirði til Akraness hafi haft samband við Síldarútvegsnefnd og sýnt áhuga á söltun. Hann sagði það ljóst að ekki nema hluti 44 síldarsaltenda á haustvertíð myndu óska eftir leyfi til söltunar í janúar. Haraldur Hannesson, formaður Félags síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi sagði að síldarsaltend- ur á Austfjörðum sýndu mikinn áhuga á söltun. Hann sagði að aðstæður manna væru þó mismun- andi, t.d. væru húsnæðisþrengsli mikil hjá sumum. Haraldur lét þess getið að síldveiðar í janúar kæmu sér eflaust vel fyrir marga því að sá mánuður væri oft dauður í öðrum veiðum. Aðspurður sagði Haraldur að miðað við veiðar 10 skipa, mætti gera ráð fyrir að síldarsöltun á 4. þúsund tonnum lyki á um hálfum mánuði. „Söltun verður að ljúka í janúar, því að það þarf að afhenda síldina fyrir marslok til kaupenda", sagði Har- aldur Hannesson. óþh Áramótabrennur í Reykjavík verða tíu talsins að þessu sinni. Brenna verður haldin við botn Graf- arvogs og er það í fyrsta sinn sem áramótabrenna verður haldin þar. Árbæingar hafa hlaðið bálköst við Fylkisvöllinn og munu tendra eld í honum á gamlárskvöld. í Efra- Brciðholti verður brenna á opnu svæði við Suðurhóla, Þrastarhóla og Kruntmahóla og önnur við Suðurfell upp af Rjúpufelli. í Neðra-Breið- holti er brenna upp af Leirubakka. Brenna verður við Víkingsheimil- ið við Hæðargarð og í Laugardalnum milli Holtavegar og Álfheima. Þá verður brenna í Vatnsmýrinni sunn- an við Norræna húsið, önnur við Skildinganes og síðan að sjálfsögðu hin fræga Ægissíðubrenna. Kópavogur Það verður aðeins ein brenna að þessu sinni í Kópavogi og verður hún á hefðbundnum stað út á Kárs- nesi. Á undanförnum árum hafa yfirleitt verið mun fleiri brennur í Kópavogi en þau auðu svæði sem bálkestir hafa verið hlaðnir á eru nú óðum að byggjast svo ekki er lengur pláss fyrir brennurnar. I Smárahvammi er þó nægt pláss og munu skátar í Kópavogi halda þar brennu og þrcttándagleði á þrettándanum. Hafnarfjörður í Hafnarfirði verður aðeins ein brenna og verður hún út í hrauninu við Dvalarheimili aldraðra sjó- manna í Hafnarfirði. GarðalMH í Garðabæ verður brenna við Bæjarbrautina á sama stað og í fyrra. Seltjarnarnes Á Seltjarnanesi er ein brenna og að sjálfsögðu er hcnni valinn staður á Valhúsahæðinni á sama stað og hún hefur verið undanfarin ár. Mosfellsbær Mosfellingar eru brennuglaðir um þessi áramót. Þeir hafa hlaðið stóran köst \ið Reykjaveg og aðrar minni upp við Reykjamel, Brekkutanga, Álmholt og Dalatanga. í Dæmi um gjaldflokka á sjálfvirku vali til útlanda. Kostnaður á mínútu. 1. Norðurlöndin (að frátöldu Finnlandi) .....kr. 38. 2. Finnland og Holland ......................kr. 41. 3. Bretland ................................. kr. 43. 4. Frakkland, Spánn, V-Þýskaland ........ !. kr. 49. 5. Bandaríkin ...............................kr. 85. ...þú gefur ekki betri jólagjöf PÓSTUR OG SÍMI Hringdu til vina og ættingja erlendis um hátíðarnar...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.