Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 31. desember 1987 Tíminn 7 Flugeldasala hefur gengið mjög vel og merkja sölumenn talsverða aukningu frá í fyrra sem þó var mjög gott ár. Við ræddum við þrjá söluaðila í Reykjavík: Hjálparsveit skáta, Knattspyrnu- og handknattleiksdeild Fram og Knattspyrnudeild KR. Það reyndist samdóma álit þeirra sem við ræddum við að góð veðurspá muni tryggja góða sölu og í kjölfar hennar mikla lita- og ljósadýrð á himinhvolfinu þegar árið 1988 gengur í garð á miðnætti. Björn Hermannsson hjá Lands- sambandiHjálparsveita skáta sagðist vera ánægður með söluna það sem af væri og annað hvort væri fólk fyrr á ferðinni í ár við innkaupin eða um talsverða aukningu væri að ræða í flugeldakaupum. „Við höfum orðið varir við aukningu um allt land,“ sagði Björn. Um fimm hundruð hjálparsveita- menn standa vaktina í flugeldasöl- unni á fjölmörgum sölustöðum um allt land. Var það mat Björns að algeng verslun hjá fjölskyldu væri á bilinu þrjú til fimm þúsund krónur. Einn af forsvarsmönnum í flug- eldasölu Fram, sem við ræddum við í gær, gaf þessum áramótum góða einkunn með tilliti til sölu. „Hjá okkur gengur vel, enda höfum við að bjóða vörur á talsvert lægra verði en hjá keppinautunum.“ Benti hann á að vinsælasta varan væri fjölskota tívolíbomba. Er þar um að ræða stálhólk sem seldur er með sex hleðslum. Hólknum ku vera hægt að Sem sjá má á þessum myndum er það yngsta kynslóðin sem fer fyrst af stað til flugeldakaupa og eru þá gjarnan að prófa hvað veitir mestu ánægjuna. Hjálparsvcitarmcnn er ánægðir það sem af er. Framarar segjast eiga von á góðum áramótum með tilliti til sölu. Tímamynd Gunnar skila eftir áramót gegn endur- greiðslu. „Það er mjögalgengt að sjá Visa-kort upp á þrjú til fjögur þús- und krónur þegar fullorðnir koma að versla." KR-ingar voru einnig hressir mcð söluna það sem af er og telja hana eiga eftir að vera með betra móti. Lúðvík Georgsson, einn af forsvars- mönnum flugeldasölu KR sagði al- gengast að fólk keypti fjölskyldu- pakka og bætti síðan við því sem mest heillaði í hillunum. Af samtölum við „rakettukóng- ana" má því ráða að árið 1987 verði kvatt mcð miklum herlcgheitum og tekið á móti nýju ári með púðurlykt sem aldrei fyrr og Ijósadýrð, svo framarlega scm vcöurguðirnir halda að sér höndum. Tíminn vill taka undir varnaðar- orð sölumanna í flugcldasölunum og bcina því til fólks að það sýni fyllstu aðgætni viö mcðferð flugelda og fari el'tir þcim leiðbciningum sern fylgja eiga flugeldunum. -ES Flugeldasalar himinlifandi Viðurkenning til Steintaks hf.: Huggulegt hjá starfsmönnum Trésmíðafélag Reykjavíkur veitti í gær byggingarfyrirtækinu Steintaki hf. viðurkenningu fyrir góðan að- búnað starfsmanna á vinnustað. Við þetta tækifæri sagði Vignir H. Bene- diktsson, framkvæmdastjóri Stein- taks hf., að þessi viðurkenning væri fyrirtækinu mikill heiður og hvatning til að halda áfram á sömu braut. Gylfi Már Guðmundsson, varafor- maður Trésmíðafélags Reykjavíkur sagði að sú aðstaða sem Steintak hf. byði starfsmönnum uppá væri til sérstakrar fyrirmyndar, og öðrum fyrirtækjum til eftirbreytni. Steintak hf. er ungt fyrirtæki, stofnað árið 1981. Meðal verkefna þess er Seðlabankabyggingin, Broadway/Bíóhöllin, viðbygging við Iðnaðarbankann í Lækjargötu og Selásskóli. Nú starfa hjá Steintaki hf. 70 starfsmenn, þar af 26 trésmiðir og 17 múrarar. óþh Listaverkabók um fugla íslands Stórbókin Fuglar í náttúru íslands, eftir Guðmund Pál Ólafs- son, er komin út hjá bókaútgáfu Máls og menningar. Er hér um all íburðarmikla bók að ræða, með ótal myndum af öllum fuglum lands og sjávar og upplýsingum um lifn- aðarhætti þeirra. Er greinilegt að listrænt auga hefur verið látið ráða ferðinni og lagt hefur verið kapp á að búa bókina sem besta úr garði. Ljóst er þó að hér er ekki á ferðinni léttoglipurhandbók í farangurinn. Á bókarkápu segir að þessari miklu bók sé ætlað að leiða lesand- ann inn í heillandi heim íslenskra fugla. „í upphafi er fjallað almennt um lifnaðarhætti og lífsskilyrði fugla, sagt frá störfum þeirra á mismunandi árstímum, en jafn- framt frá flugi, fæðuöflun, varpi og uppeldi unganna. í lok almennra kafla er fjallað um fugla íslands og kjörlendi þeirra. Síðan ersérstakur kafli um varpfuglana, þar sem hverri tegund er lýst í máli og myndum. Inn í frásögnina fléttast efni úr þjóðtrú og ská!dskap.“ Ekki fer ofsögum af myndasafni bókarinnar. Ljósmyndir eru mjög víða að og af kortum má lesa útbreiðslu hverrar tegundar á ísl- andi og í heiminum. Þá eru skýr- ingarmyndir til að sýna lífshætti hverrar tegundar árið um kring. Teikningar skýra hátterni tegunda og málverkum er ætlað að auð- velda greiningu þeirra. Ekki er á því nokkur vafi að skrautlegri og íburðarmeiri bók hefur vart sést um fugla frá íslensk- um útgefanda. Mikið hefur vissu- lega verið gefið út af fuglabókum í gegnum tíðina og eru nokkrar þeirra meira í ætt við persónulega túlkun á fuglum náttúrunnar. Aðr- ar eru á hinn bóginn eins og þessi, nokkuð vel tæmandi uppsláttarbók fyrir þá sem fræðast vilja um fugla. Þó verður það að segjast um þessa fuglabók Máls og menningar að ekki er nokkur leið að sjá hvernig hafa mætti hana með sér í farangr- inum, vegna stærðarinnar. Þetta er engin handbók en engu að síður er hún mikill og stórkostlegur fengur fyrir fuglaáhugamenn að blaða í við stofuarin á heimili sínu eða í sumarbústaðnum. KB Frá vinstri; Gylfi Már Guðmundsson, varaformaður Trésmíðafélags Reykjavíkur, Vignir H. Benediktsson, framkvæmdastjóri Steintaks hf. og Grétar Þorsteinsson, formaður Trésmíðafélags Reykjavíkur. lim.mynd: Gunnar. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í1.FL.B1986 Hinn 10. janúar 1988 er fjóröi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 4 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: _____ Vaxtamiói með 50.000,- kr. skírteini_kr. 2.805,00_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1987 til 10. janúar 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 1913 hinn 1. janúar nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 4 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1988. Reykjavík, 31. desember 1987 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.