Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 14

Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 14
14 Tíminn Fimmtudagur 31. desember 1987 FRÉTTAYFIRLIT TEL AVIV - Palestínumað- ur lést af sárum sem hann hlaut í átökum við ísraelska hermenn fyrr í þessum mán- uði. Þá hafa23 Palestínumenn látist I þessum mánuði í mót- mælunum gegn yfirráðum ís- raelsmanna á Gazasvæðinu og Vesturbakkanum. JÓHANNESARBORG- Sex blökkumenn í viðbót, þeirra á meðal tólf ára gamall drengur, létust í átökum fylk- inga blökkumanna í Natalhér- aði. Átök milli blökkumanna I hverfum þeirra kringum Piet- ermaritzburg hafa þar með kostað 260 manns lífið á þessu ári. ABU DHABI - Háttsettur embættismaður innan PLO, Frelsissamtaka Palestínum- anna, sagði að hreyfingin væri reiðubúin til að sameinast hópi á alþjóðlegri ráðstefnu um leið- ir til að koma á friði í Mið-Aust- urlöndum. PEKÍNG - Landbúnaðarm- álaráðherra Kína sagði að ekki væri framleitt nóg af matvælum né baðmull fyrir hinn ört vax- andi fólksfjölda. RUSSELLVILLE, Ar kansas - Lögregla sem rann- sakar fjöldamorðin í litlum sveitabæ í Bandaríkjunum fann mörg lík blóði drifin á heimili mannsins sem talinn er hafa gengið berserksgang og myrt sextán manns. WASHINGTON - Spreng- ing langdrægu eldflaugarinnar í Bandaríkjunum, þar sem fimm tæknimenn létu lífið, er nýjasti atburðurinn í röð vandamála sem fylgt hafa MX flaugunum, einum mestu hel- vopnum heims. HARARE - Róbert Mugabe forsætisráðherra mun í dag sverja embættiseið sem fyrsti forseti Zimbabwe er fer með framkvæmdavald. Þingið til- kynnti um tilnefningu hins 63 ára gamla Mugabe í gær. LUNDÚNIR -Seðlabankar í Japan og Evrópu keyptu Bandaríkjadali í gær til að halda uppi gengi hans. Fé- sýslumenn sögðu hinsvegar ao dalurinn myndi halda áfram að lækka gripi Bandaríkja- stjórn ekki til einhverra að- gerða. Ekki var þó búist við neinum yfirlýsingum frá stjórn- inni í Washington. ÚTLÖND ■lll illillilil lllllll Norður-írland: Blóðugt ár Noröur-írland: Alls hafa 93 menn látið lífið í átökunum á Norður-írlandi á þessu ári sem þýðir að 1987 er það blóðugasta af síðustu fimm árum. írski lýðveldisherinn (IRA), sem berst gegn yfirráðum Breta á Norður-Irlandi, hefur lýst ábyrgð á næstum sextíu þessara drápa. Ellefu fórnarlömb IRA létust þegar sprengja sprakk við minningarathöfn um fallna hermenn í Enniskillen í síðasta mánuði. Lýðveldisherinn hefur formlega Iýst yfir hryggð vegna þessa atburðar og sagt að mistök hefðu verið gerð. IRA hefur einnig orðið fyrir blóðtöku og missti átta menn á einni nóttu í maímánuði þegar breskir hermenn komu að þeim í þorpinu Loughall þar sem þeir hugðust ráðast á lögreglustöð. Gerry Adams, forseti Sinn Fein sem er pólitískur armur írska lýð- veldishersins, sagði í áramótaávarpi í gær að sorg hefði ríkt innan hreyfingarinnar eftir atburðinn í Loughall og einnig eftir hörmungar- atburðinn í Enniskillen. Stuðningurinn við Sinn Fein minnkaði bæði í kosningunum í Bretlandi og írlandi en Adams sagði að þrátt fyrir tilraunir til að einangra Sinn Fein á þessu ári myndi flokkur- inn síður en svo leggja upp laupana. Frá því að minnihlutahópur róm- versk-kaþólskra manna á Norður- írlandi hóf baráttu sína árið 1969 fyrir betra húsnæði, menntun og atvinnu hafa 2.618 manns látið lífið í einum lífseigasta skæruliðahernaði á þessari öld. Flestir létu lífið árið 1972 eða alls 467. Harðlínumenn úr hópi mótmæl- enda hafa verið sakaðir um fjórtán morð á þessu ári, flest fórnarlamb- anna voru saklausir rómversk- kaþólskir borgarar. hb Frakkland: Mitterrand vinsæll Francois Mitterrand forseti myndi veröa sigurvegari ef hann byöi sig fram annað kjörtímabil og kosið yrði til forseta nú. Þetta kom fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtust í vikunni. Könnunin sem birtist í vikublað- inu París-Match sýndi að sósíalistinn Miterrand naut nú meiri stuðnings en helsti keppinauturinn Raymond Barre sé tekið mið af könnun sem gerð var í nóvember. Niðurstöðurn- ar nú sýndu að Mitterrand naut stuðnings 53,5% aðspurðra en 46,5% studdu Barre. I nóvember voru þeir jafnir með 50% stuðning hvor. Mitterrand hefur neitað að segja hvort hann muni bjóða sig fram annað kjörtímabil en kjósa á í maímánuði á næsta ári. Könnunin sýndi einnig að Jacques Chirac forsætisráðherra og leiðtogi gaullista myndi ekki heldur ná að sigra Mitterrand. Fari hinsvegar svo að Mitterrand bjóði sig ekki fram og Michel Rocard verði frambjóðandi sósíalista sýndi könnunin að hann myndi bera sigur- orð af Chirac en tapa fyrir Barre, fyrrverandi forsætisráðherra. Niðurstöður könnunarinnar í Par- ís-Match sýndu að franska þjóðin hafnar öllum öfgum. Jean-Marie Le Pen frambjóðandi þeirra sem lengst eru til hægri fékk aðeins stuðning 9% aðspurðra og Andre Lajoinie frambjóðandi kommúnista fékk 6% stuðning. hb ÚTLÖND Gamlárskvöld aö ganga í garö og... Smokkaleysi í Manitóba Var einhver aö tala um veröbólgu?: Verðbólgan í Brasilíu 366% Margir Kanadamenn munu skemmta sér á gamlárskvöld án þess að eiga nokkra smokka. Heilbrigðisráðgjafar í Manitóba skýrðu frá þessu í gær, andvörpuðu. og sögðu að gúmmítré í Malajsíu hefðu framleitt heldur lítið að undanförnu og allt benti því miður til þess að framboðið af smokkum í fylkinu myndi ekki anna eftispurn- inni. „Gamlárskvöld er að koma og það er mikilvægur tími í kynlífi fólks", sagði ein kona sem starfar við heilsugæslustöð í fylkinu og for- dæmdi hún smokkaskortinn. hb Verðbólgan í Brasilíu ú þessu ári sló öll fyrri met, var 365,96% sam- kvæmt tölum sem birtar voru í vikunni. Árið 1985 var verðbólgan 233% en í fyrra var hún ekki nema 58,60% sem þykir lítið þar í landi. í ár var hinsvegar verðsprenging í þessu skuldugasta ríki þriðja heims- ins. Allar verðhækkanir voru stöðv- aðar árið 1986 og það hélt verðbólg- unni niðri en í maímánuði varð sprenging og verð á neysluvörum hækkaði um heil 23%. Það voru þó ekki neysluvörurnar sem mest hækkuðu á árinu. Húsnæð- iskostnaður jókst um 459% og lækn- iskostnaður um 401%. Árið í ár er það versta fyrir brasilískan efnahag síðan í krepp- unni í byrjun áratugarins. Samfara því að verðbólgan reis upp úr öllu valdi dróst hagvöxtur einnig veru- lega saman, er nú um 3,5% en var 8,2% á síðasta ári. Þá er talið að iðnaðarframleiðslan hafi ekki aukist nema um 1% á þessu ári. hb Bandaríkjaforseti á gamlárskvöld: Reagan með bíóstjörnum Rónald Reagan Bandaríkjaforseti var í gær kominn til Palm Springs í Kaliforníu þar sem hann mun dveljast í húsi Walters Annenberg yfir nýja árið. Annenbcrg er fyrrum bandarískur sendiherra og ætlar að bjóða fleira fólki i gleðskap í kvöld þ.á.m. gömlum félögum Reagans úr kvikmyndaheiminum í Hollywood svo og nokkrum háttsettum embættismönnum. Það var kalt og rigndi þegar Reagan kom til Palm Springs í gær en hann mun dvcljast í Kaliforníu fram á sunnudag en heldur þá til Washington. Forsetinn mun ekki sitja aðgerðarlaus þennan tíma og verður meðal annars viðstaddur þegar opnuð verður ný menningar- miðstöð til heiðurs grínleikaranum Bob Hope. Reagan er nú kominn með nýtt heyrnartæki sem sérfræðingur á þessu sviði John House að nafni setti í eyra hans. Hinn 76 ára gamli forseti hefur lengi heyrt heldur ilia en vonast er til að nýja tækið geri þar bragarbót á, hb

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.